Morgunblaðið - 17.05.2019, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 7. M A Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 115. tölublað 107. árgangur
HEIMILIÐ KLÆÐ-
IST HÖNNUN
FRÁ GUCCI
Í KRINGUM
LANDIÐ Á
SKÚTU
JOEY CHRIST
GEFUR ÚT
NÝJA PLÖTU
SIGLIR OG SAFNAR FÉ 10 PERSÓNULEGRI EN FYRR 2840 SÍÐNA SÉRBLAÐ
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alvarlegt umferðarslys varð á
Suðurlandsvegi við Hofgarða rétt
norðan við Fagurhólsmýri um
þrjúleytið í gær þegar rúta fór út
af veginum með 32 farþega og
einn ökumann. Allir 33 um borð
voru sagðir kínverskir ríkisborg-
arar.
Mikill viðbúnaður hófst þegar
tilkynnt var um slysið og voru
björgunarsveitir komnar mjög
skjótt á slysstað. Fjórir hinna
slösuðu voru sendir með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á Landspít-
alann í Fossvogi en þeir voru allir
sagðir með alvarlega áverka. Þrír
minna slasaðir voru svo fluttir
þangað síðar um kvöldið.
Flugvél Landhelgisgæslunnar
flutti 10 slasaða á Sjúkrahúsið á
Akureyri og sjúkraflugvél Nor-
landair flaug frá Fagurhólsmýri
með ellefu slasaða til aðhlynningar
á Sjúkrahúsinu á Selfossi. Þá var
útbúin sérstök móttaka hjá bráða-
móttöku Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands á Selfossi auk þess
sem sett var upp skoðunar- og
meðferðarrými í opinni móttöku
og biðstofu Sjúkrahússins á Sel-
fossi til að taka við 16 slösuðum.
Loka þurfti Suðurlandsvegi
vegna slyssins og myndaðist bíla-
röð báðum megin við, þar sem
engin hjáleið er á þessum slóðum.
Tildrög slyssins voru ekki ljós í
gær.
Fjórir slösuðust illa
Rúta fór út af þjóðveginum rétt norðan við Fagurhólsmýri 32 kínverskir
ferðamenn voru í henni Þrjú sjúkrahús tóku á móti slösuðum einstaklingum
MBændur veittu aðstoð »2
Umferðarslysið
» Tilkynning barst um að rúta
hefði farið út af veginum um
tvo km austan við Hof í Öræf-
um kl. 15.05 í gær.
» 32 farþegar og einn öku-
maður voru í rútunni.
» Fjórir voru fluttir alvarlega
slasaðir á Landspítalann.
Ljósmynd/Sigurður Gunnarsson
Rútuslys Frá vettvangi slyssins við Hofgarða í Öræfum síðdegis í gær. Rútan á hliðinni og björgunarsveitir komnar á staðinn ásamt þyrlu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ríkið setti 5,6 milljarða króna í
rekstur Strætó árin 2012 til 2018.
Framlagið var hluti af sam-
komulagi sem ætlað var að tvöfalda
hið minnsta hlutdeild almennings-
samgangna í öllum ferðum á höfuð-
borgarsvæðinu til ársins 2022.
Frá árinu 2012 hafa eigendur
Strætó, sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu, varið 21 milljarði
til reksturs Strætó. Hefur framlag
sveitarfélaganna aukist ár frá ári
en framlag ríkisins verið um 900
milljónir á ári síðustu þrjú ár.
Framkvæmdum var frestað
Áðurnefnt samkomulag ríkisins
og Strætó hafði m.a. það markmið
að „skapa forsendur til frestunar á
stórum framkvæmdum í sam-
göngumannvirkjum“. Mælingar á
umferð benda hins vegar til að bíla-
umferð á hvern íbúa á höfuðborg-
arsvæðinu hafi aukist álíka mikið
og fjöldi farþega með strætó. Tafir í
umferðinni við helstu umferð-
aræðar hafa aukist og ferðatíminn
lengst. »6
Átti að
draga úr
umferð
Morgunblaðið/Eggert
Umferð Strætó fékk meira fé.
Ríkið hefur sett
5,6 milljarða í Strætó
Mælingar á
nokkrum smá-
jöklum á Trölla-
skaga gefa til
kynna að þeir
hopi ekki eins
hratt og stærri
jöklar landsins.
Skafti Brynjólfs-
son, jarðfræð-
ingur hjá
Náttúrufræði-
stofnun, er að vinna úr gögnunum
sem safnað hefur verið saman á
um það bil áratug en hann telur
að afkoma jöklanna hafi á því
tímabili verið neikvæð í heildina.
»6
Hopa ekki eins hratt
Skafti
Brynjólfsson
Lars Løkke Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur og leiðtogi
mið- og hægriflokksins Venstre,
hefur léð máls á því að flokkur sinn
geti myndað meirihlutastjórn með
Jafnaðarmannaflokknum í fyrsta
sinn frá árunum 1978 til 1979, en þá
sátu flokkarnir saman í ríkisstjórn
undir forsæti jafnaðarmannsins
Ankers Jørgensen.
Á blaðamannafundi Rasmussens í
gær kom þó fram að hann vildi
helst halda áfram núverandi stjórn-
arsamstarfi hægriflokkanna eftir
þingkosningarnar sem haldnar
verða 5. júní næstkomandi. Þá
væru ýmis vandkvæði á myndun
ríkisstjórnar með jafnaðarmönnum
en Rasmussen sagði að hann teldi
skrýtið að segja að stærstu and-
stæðurnar í dönskum stjórnmálum
væru á milli Venstre og jafn-
aðarmanna. »13
Ljær máls á stjórn með jafnaðarmönnum
AFP
Danmörk Lars Løkke Rasmussen á blaða-
mannafundi sínum í gær.
Ný löggjöf í Alabama-ríki um
þungunarrof hefur vakið töluverða
athygli, en þau lög eru hin hörðustu
í Bandaríkjunum. Þungunarrof,
sem einnig kallast fóstureyðing, er
nú bannað á öllum stigum með-
göngunnar og geta læknar átt yfir
höfði sér allt að lífstíðarfangelsi
fyrir að framkvæma það.
Fleiri ríki Bandaríkjanna hafa
hert löggjöf um fóstureyðingar á
undanförnum misserum. Silja Bára
Ómarsdóttir, dósent í alþjóða-
samskiptum, segir í samtali við
Morgunblaðið í dag að lagasetn-
ingin sé hugsuð til þess að fá hæsta-
rétt Bandaríkjanna til þess að taka
réttinn til fóstureyðinga til endur-
skoðunar en hann hefur verið sagð-
ur varinn af stjórnarskrá Banda-
ríkjanna allt frá dómi hæstaréttar
landsins í máli Roe gegn Wade árið
1973. »14
Allt að lífstíðarfangelsi fyrir þungunarrof
AFP
Mótmæli Þungunarrof hefur verið mikið
hitamál í Bandaríkjunum í áratugi.