Morgunblaðið - 17.05.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fjármálaráðherra gerir kröfu um
að fimm svæði í Barðastrandar-
sýslu verði úrskurðuð þjóðlendur.
Meðal þeirra eru Vatnsfjörður og
Bæjarbjarg. Óbyggðanefnd skorar
á þá sem telja til eignarréttinda á
þessum svæðum að lýsa kröfum
sínum á móti.
Kröfur ríkisins ná til fimm svæða
í Vesturbyggð og Reykhólahreppi
sem nefnd eru Hvannahlíð, Skálm-
ardalsheiði, Auðshaugsland, Vatns-
fjörður og Bæjarbjarg.
Vatnsfjörður er langstærsta
svæðið og nær þjóðlendukrafan yfir
meginhluta af friðlandinu sem nú er
skilgreint. Hvannahlíð er í Þorska-
firði og Auðshaugsland í Kjálka-
firði. Skálmardalsheiði er á hálend-
inu, á móti Ísafjarðardjúpi.
Bæjarbjarg er austasti hluti Látra-
bjargs, kennt við Saurbæ á Rauða-
sandi enda var það í eigu Bæj-
arkirkju sem þar er.
Óbyggðanefnd kallar nú eftir
mótkröfum þeirra sem kunna að
eiga öndverðra hagsmuna að gæta
og úrskurðar síðan í málinu. Það
þarf fólk að gera skriflega fyrir 16.
ágúst.
Strandir og Snæfellsnes
Barðastrandarsýslur eru annað
svæðið á Vestfjörðum sem
óbyggðanefnd tekur fyrir. Strandir
eru einnig til meðferðar ásamt
Snæfellsnesi. Eftir er að taka fyrir
Ísafjarðarsýslur og Austfirði. Um-
fjöllun og úrskurðum um önnur
svæði er lokið en mörg mál vegna
þeirra eru þó enn fyrir dómstólum.
ndar í BarðastrandarsýslumKröfur óbyggðanef
REYKHÓLAHREPPUR
VESTURBYGGÐ
ÍSAFJARÐAR-
BÆR
SÚÐAVÍKUR-
HREPPUR
STRANDABYGGÐ
TÁLKNAFJARÐAR-
HREPPUR
Kortagrunnur:
OpenStreetMap
Aðalkrafa ríkisins um þjóðlendumörk
Mörk svæðis 10C, Barðastrandarsýslur
Breiðafjörður
Gilsjörður
Arnarfjörður
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Bíldudalur
Þingeyri
Brjánslækur
5. Bæjarbjarg
austur af Látrabjargi
Reykhólar
Hólmavík
1. Hvannahlíð í Þorskafi rði
2. Skálmardalsheiði
3. Auðshaugsland í Kjálkafi rði
4. Vatnsfjörður friðland
1
3
2
4
Vatnsfjörður verði þjóðlenda
Ríkið hefur gert kröfur um
þjóðlendur í Barðastrandarsýslum
Alræðishugtakið er til umfjöllunar á málstofu Rannsóknarseturs um nýsköp-
un og hagvöxt sem haldin verður í dag, föstudaginn 17. maí, í stofu 101 í
Odda kl. 16-17.30.
Þar verður Stefán Snævarr prófessor í heimspeki með framsögu og Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði verður til andsvara.
Að því loknu verða frjálsar umræður.
Hannes notaði alræðishugtakið í bók sinni Til varnar vestrænni menningu
og þar kemur fram að hann telji þjóðernisjafnaðarstefnu Hitlers og sameign-
arstefnu Stalíns af sama meiði.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, fer með fundarstjórn.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Alræðishugtakið til umfjöllunar
SMÁRALIND – KRINGLAN
auðveldar
eldun í
örbylgjuofni
Beikonbakki - 3.390
Beikon & pylsubakki - 3.990
Poppskál - 2.590
Gufusuðubox - 2 stærðir 4990 / 7.990
Ommelettubakki - 2.590
Hrísgrjóna & kinóa suðubox - 4.390
Pastasuðubox - 4.490
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Andrew Bedwell, frá þorpinu Scar-
isbrick sem er miðja vegu á milli
Liverpool og Blackpool í Englandi,
siglir nú hraðbyri til Íslands á lítilli
skútu. Hann ætlar sér að sigla
hringinn í kringum landið og aftur
heim. Tilgangur siglingarinnar er að
safna fé fyrir St Cuthbert’s-
grunnskólann í Halshall, nálægt
Ormskirk, þar sem Poppy dóttir
hans stundar nám í fyrsta bekk, að
því er kemur fram í frétt Jess Moly-
neux hjá fréttavefnum LancsLive.
Þar segir Andrew að verið sé að
skera niður fjárframlög til skólanna
svo hann hafi ákveðið að gera sitt til
að bæta hag nemendanna. Pening-
arnir sem safnast verða m.a. notaðir
til að kaupa leiktæki á skólalóðina.
Nemendur í skólanum geta fylgst
með ferð Andrews sem er með stað-
setningartæki sem skráir feril skút-
unnar á vefsíðu.
Baunapoki í stað koju
Andrew er 45 ára gamall og hefur
stundað siglingar við Bretlandseyjar
frá sex ára aldri. Hann lagði af stað í
Íslandsferðina á laugardaginn var
frá höfninni í Whitehaven. Um miðj-
an dag í gær var hann staddur mitt á
milli Íslands og Færeyja.
Skútan er aðeins 6,5 metra löng
og býður ekki upp á mikil þægindi.
Ekkert salerni er um borð og ekki
heldur koja þannig að Andrew þarf
að leggja sig á baunapoka. Lítið
pláss er fyrir annað en brýnustu
nauðsynjar. Þá kveðst Andrew vera
viðbúinn því að geta aðeins lagt sig
stutta stund í einu á siglingunni.
Siglir og safnar fé til skólans
Enskur siglingamaður er væntanlegur til Íslands og ætlar að sigla hringinn í
kringum landið og aftur heim á lítilli skútu Þröngt og lítil þægindi um borð
Ljósmynd/Úr einkasafni
Siglingakappi Skútan er ekki nema 6,5 metra löng og ekkert pláss er fyrir
óþarfa. Andrew Bedwell er vanur siglingum og er einn um borð.
Nýjar upplýs-
ingar liggja fyr-
ir um komu
DC-3/C-47 vél-
anna til landsins,
sem eru á leið-
inni til Frakk-
lands að minnast
75 ára frá inn-
rásinni Norm-
andí. Von er á
fyrstu vélinni til
Reykjavíkurflugvallar í dag en síð-
an er reiknað með að 11 vélar
lendi nk. mánudag eða þriðjudags-
morgun. Þrjár vélar koma seinna,
samkvæmt upplýsingum frá ACE
FBO Flugþjónustunni á
Reykjavíkurflugvelli, sem er einn
þeirra aðila sem undirbúa komu
vélanna.
Ranglega var farið með nafn
flugþjónustunnar í blaðinu í gær
og notast þar við eldra nafn á
fyrirtækinu. Beðist er velvirðingar
á því. Fundað var um heimsóknina
í gær og fyrir liggur að vélarnar
11 verði almenningi til sýnis.
Fyrsti Þristurinn
á að lenda í dag
Þristar 15 vélar
væntanlegar.