Morgunblaðið - 17.05.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019
Ramia 1500
Verð: 95.800
HEFILBEKKIR
FYRIR SKÓLA, VERKSTÆÐI OG HEIMILI
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
te 2000Eli
Hobby
Verð: 32.500
amia 1700
Verð: 99.800
Verð: 179.800
Ramia
Tvöfaldur
Skóli-4
2 og 4 plötu bekkir,
hæðastillanlegir
R
Nordic
Plus 1450
Verð: 69.800
Skápur: 27.490
Einme
Hæðarst
ningur
illanlegur
Vefverslun brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16 Fagmennska í 100 ár
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Jarðvegsvinna er í fullum gangi í
grunni væntanlegrar nýbyggingar
Landsbankans við Austurbakka í
Reykjavík. Jarðvegsvinnu á lóðinni
lýkur í sumar og áætlanir gera ráð
fyrir útboði vegna uppsteypu bygg-
ingarinnar nú í sumar, samkvæmt
upplýsingum Rúnars Pálmasonar,
upplýsingafulltrúa bankans.
Landsbankinn samdi við Ístak hf.
um að annast jarðvegsframkvæmdir
vegna nýbyggingar bankans við
Austurbakka 2, sunnan tónlistar-
hússins Hörpu.
Útboðið var auglýst 23. febrúar sl.
og bárust tilboð frá sex verktökum.
Ístak bauð lægst í verkið, 92,6 millj-
ónir króna, og var tilboðsfjárhæðin
um 1,2 milljónum króna lægri en
kostnaðaráætlun verkkaupa. VSB
verkfræðistofa annaðist útboðið.
Bankinn keypti lóðina 2014
Að sögn Rúnars er umfang verks-
ins tiltölulega lítið enda var jarð-
vinna langt komin þegar Lands-
bankinn keypti lóðina árið 2014.
Sem fyrr segir verður uppsteypa
hússins boðin út í sumar. Þá er átt
við uppsteypu burðarvirkis. Í því
felst ekki frágangur utanhúss,
klæðning o.þ.h., eða frágangur inn-
anhúss.
Gerð aðaluppdrátta nýrra höfuð-
stöðva Landsbankans lauk í desem-
ber í fyrra og í kjölfarið sótti bankinn
um byggingarleyfi til byggingar-
fulltrúans í Reykjavík.
„Sótt er um leyfi til að byggja
steinsteypt 5 hæða verslunar- og
skrifstofuhús, einangrað að utan og
klætt blágrýti, með tveggja hæða
bílageymslu fyrir 102 bíla undir
hluta húss á reit 6 á lóð nr. 2 við
Austurbakka,“ sagði í umsókn
Landsbankans.
Fram kom í umsókninni að heild-
arstærð hússins með bílakjallara
verði 21.497 fermetrar. Húsið sjálft
verður 16.500 fermetrar. Bankinn
hyggst nýta um 10.000 m2 í nýju húsi,
um 60% af flatarmáli hússins, en
selja eða leigja frá sér um 6.500 m2
sem nýtist fyrir verslun og aðra
þjónustu. Byggingarkostnaður er
áætlaður tæpir 9 milljarðar króna,
að lóðarverði meðtöldu.
Arkþing ehf. og C.F. Møller
teikna húsið og Efla hefur komið að
vinnu við hönnun. Tillagan, sem bar
heitið Kletturinn, bar sigur úr býtum
í arkitektasamkeppni sem bankinn
stóð fyrir.
Vestan við Landsbankalóðina hafa
risið tvö stórhýsi að undanförnu,
íbúðarhús og Marriott Edition hótel,
fimm stjörnu glæsihótel. Lokafrá-
gangur stendur yfir.
Jarðvinna hafin í grunni
nýja Landsbankahússins
Uppsteypa boðin út í sumar Húsið alls 21.497 fermetrar
Morgunblaðið/sisi
Hörpulóð Starfsmenn Ístaks fjarlægja efni úr grunni nýs Landsbankahúss.
Í fyrsta skipti á þessu sumri fór hit-
inn yfir 20 stigin á þriðjudaginn, 14.
maí. Þann dag mældist hiti á Torfum
í Eyjafirði 20,4 stig.
Hitatölurnar bárust Veðurstof-
unni reyndar ekki fyrr en daginn
eftir vegna „sendingaverkfalls“ og
því var í fyrstu talið að hæsti hiti
dagsins á landinu þann dag væri 19,9
stig (á Végeirsstöðum i Fnjóskadal
og við Mývatn). Á miðvikudaginn
mældist hitinn síðan 20,1 stig á
Sauðárkróksflugvelli.
Í pistli hungurdiska hinn 23. júní
2014 fjallaði Trausti Jónsson veð-
urfræðingur um það hvenær 20 stig-
um er fyrst náð á landinu – að með-
altali. Meðaldagsetning áranna 1997
til 2014 var einmitt 14.maí – en mið-
gildisdagur (jafnoft fyrir og eftir) er
17.maí. Koma fyrstu 20 stiga ársins
2019 telst því í meðallagi. „Það er
svo annað mál að þessi dagur hefur
birst fyrr á þessari öld heldur en áð-
ur var að jafnaði – virðist muna um
það bil viku,“ segir Trausti.
Hann fjallaði í gær á hung-
urdiskum um hitatölur fyrir hálfan
maí. Meðaltal fyrstu 15 daganna í
Reykjavík er nú 6,5 stig, +1,3 stig-
um ofan meðallags áranna 1961-90
og +0,5 ofan meðallags sömu daga
síðustu tíu árin. Hitinn raðast í átt-
unda hlýjasta sæti (af 19) á öldinni.
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 15
daga maímánaðar 4,7 stig. Það er
+0,7 stigum ofan meðallags sömu
daga 1961-1990, en -0,7 neðan með-
alhita síðustu tíu árin.
Hiti ofan meðallags síðustu tíu ára
mældist á tæplega helmingi veð-
urstöðva. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hundur og geimfari Fólk hefur notið veðurblíðunnar í höfuðborginni.
Hitamúrinn rofinn
á „meðaltalsdaginn“