Morgunblaðið - 17.05.2019, Qupperneq 12
12 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019
17. maí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.4 122.98 122.69
Sterlingspund 158.03 158.79 158.41
Kanadadalur 90.72 91.26 90.99
Dönsk króna 18.341 18.449 18.395
Norsk króna 13.982 14.064 14.023
Sænsk króna 12.718 12.792 12.755
Svissn. franki 121.5 122.18 121.84
Japanskt jen 1.1186 1.1252 1.1219
SDR 169.21 170.21 169.71
Evra 137.02 137.78 137.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.2643
Hrávöruverð
Gull 1298.9 ($/únsa)
Ál 1791.5 ($/tonn) LME
Hráolía 70.9 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● LS Retail, Nordic
Visitor, PwC, Sjóvá
og Vörður trygg-
ingar voru í gær
valin fyrirtæki árs-
ins í hópi stórra
fyrirtækja þar sem
starfsmenn eru 70
eða fleiri.
Fyrirtæki ársins
eru valin í könnun
sem VR stendur
fyrir meðal þúsunda starfsmanna á al-
mennum vinnumarkaði, að því er fram
kemur í tilkynningu frá VR.
Þar segir einnig að fyrirtæki ársins
2019 í hópi millistórra fyrirtækja, þar
sem starfsmenn eru 30 til 69, voru val-
in Cyren, dk hugbúnaður, Tengi, Toyota
á Íslandi og TRS. Þá voru fyrirtæki árs-
ins 2019 í hópi lítilla fyrirtækja, þar sem
starfsmenn eru færri en 30, valin At-
tentus – mannauður og ráðgjöf, Bók-
hald og uppgjör, Egill Árnason, Eirvík og
Microsoft Ísland. tobj@mbl.is
Fimmtán fyrirtæki valin
fyrirtæki ársins hjá VR
Val 114 komust á
lista í könnuninni.
STUTT
Í fréttinni segir einnig að að auki
sitji Lilja Bjarnadóttir í stjórn, en
hún var kjörin til tveggja ára árið
2018.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að hin svokallaða hallarbylting hafi
verið óvænt. Sprottið hafi fram ný og
að því er virðist vel skipulögð fram-
boð til stjórnar félagsins, þegar úr-
slit í formannskjöri lágu fyrir.
Vildi sitja áfram í stjórn
Lög félagsins kveða á um, sam-
kvæmt heimildum, að hægt er að
bjóða sig fram í stjórn allt fram að
stjórnarkjöri. Það sem hafi verið
óvenjulegt hafi verið að nýr formað-
ur, Hulda Ragnheiður, hafi áður lýst
því yfir að næði hún ekki kjöri sem
formaður, myndi hún sitja áfram í
stjórn félagsins.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins dró varaformaður FKA,
Guðrún Ragnarsdóttir, framboð sitt
til stjórnar til baka þegar úrslit voru
ljós í formannskjörinu, auk tveggja
annarra. Tvær stjórnarkonur
ákváðu að sitja áfram þrátt fyrir úr-
slitin, Ragnheiður Aradóttir og
Hulda Bjarnadóttir.
Heimildarmaður blaðsins fullyrðir
að úrsagnir úr félaginu séu þegar
hafnar. Þá hafi fyrrverandi formaður
félagsins, Margrét Kristmannsdóttir
forstjóri PFAFF, sagt sig úr félag-
inu.
FKA gæti klofnað eftir
formanns- og stjórnarkjör
FKA Ný stjórn er skipuð þeim Áslaugu Gunnlaugsdóttur, Ragnheiði Aradóttur, Huldu Ragnheiði Árnadóttur, Lilju
Bjarnadóttur og Sigríði Hrund Pétursdóttur. Hulda Bjarnadóttir og Margrét Jónsdóttir Njarðvík voru fjarverandi.
Félagsstarf
» Leiðtogaauður er um það bil
100 manna hópur innan FKA
» Sprettur upp úr verkefninu
AUÐUR í krafti kvenna.
» Markmið AUÐAR var að
auka þátttöku kvenna í at-
vinnusköpun
» FKA hefur staðið fyrir verk-
efnum eins og Jafnvægisvog-
inni og sérstöku fjölmiðla-
verkefni til að auka ásýnd
kvenna í fjölmiðlum
Ólíkar áherslur Leiðtogaauðs-hóps Fyrrverandi formaður hætti í félaginu
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Náttúruhamfara-
tryggingar Íslands, var fyrr í vik-
unni kjörin nýr formaður Félags
kvenna í atvinnulífinu, FKA, en hún
bauð sig fram gegn sitjandi for-
manni, Rakel Sveinsdóttur. Hlaut
Rakel 144 atkvæði en Hulda Ragn-
heiður 182 atkvæði. Auk þess urðu
breytingar á stjórn félagsins, þar
sem þrjár nýjar konur tóku sæti.
Heimildarmaður Morgunblaðsins,
sem sat fundinn, kallar formanns- og
stjórnarkjörið „vel skipulagða hall-
arbyltingu“ og segir að útlit sé fyrir
að félagið muni klofna vegna úr-
slitanna.
Strax í kjölfar fundarins hafi
vaknað spurningar um hvort hópur
eins og Leiðtogaauður, sem telur um
100 konur, ætti áfram samleið með
félaginu. Þykja áherslur nýs for-
manns og nýrrar stjórnar það ólíkar
Leiðtogaauði, að óvíst sé hvort sam-
leið geti verið með fylkingunum
tveimur.
Nálægt 1.200 konur eru fé-
lagsmenn í FKA, en félagið var
stofnað árið 1999.
Sjö konur í framboði
Í frétt á vefsíðu FKA segir að í
framboði til stjórnar hafi verið sjö
konur en kosið var um þrjú sæti til
tveggja ára og tvö sæti til eins árs. Í
stjórn til tveggja ára voru kosnar
Sigríður Hrund Pétursdóttir, Ragn-
heiður Aradóttir og Áslaug Gunn-
laugsdóttir. Þá voru Hulda Bjarna-
dóttir og Margrét Jónsdóttir
Njarðvík kosnar í stjórn til eins árs.
Kaffitár mun opna nýtt kaffihús í
Háskólanum í Reykjavík í haust en
samningar þess efnis voru undirrit-
aðir í vikunni. Kaffihús rekin undir
vörumerki Kaffitárs eru fjögur tals-
ins í dag. Ólafur Ó. Johnson er
stjórnarformaður Nýju kaffi-
brennslunnar ehf. sem festi kaup á
Kaffitári í lok síðasta árs og að hans
sögn er stefnan tekin á það að færa
Kruðerí-kaffihúsin tvö, sem einnig
eru í eigu Kaffitárs, undir merki þess
síðarnefnda á næstunni. Því verða
sjö kaffihús undir merkjum Kaffi-
társ á endanum.
„Nú erum við að samþætta ýmsa
hluti. Það er verið að fara í gegnum
alla hluti hvað varðar Kaffitár, m.a.
hvað varðar uppsetningu og rekstur.
Það verður ferskari blær á kaffihús-
unum með haustinu, en þetta tekur
allt sinn tíma með eldri kaffihúsin.
En það lá vel við höggi að bæta kaffi-
húsinu í HR í flóruna“ segir Ólafur í
samtali við Morgunblaðið.
Ólafur segist spenntur fyrir kaffi-
húsarekstrinum, það sé nýtt fyrir
Nýju kaffibrennsluna, sem stofnuð
var árið 2000 við sameiningu Kaffi-
brennslu Akureyrar og Kaffi-
brennslu Ó. Johnson & Kaaber, en
að samkeppnin sé hörð. Þar njóti
fyrirtækið góðs af þekkingu starfs-
manna Kaffitárs, en Aðalheiður
Héðinsdóttir, stofnandi Kaffitárs, er
starfandi framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins í dag. „Við tókum við Kaffi-
tári í þeirri mynd sem fyrirtækið var
í. Kaffihúsareksturinn er þar undir.
Við ætlum ekki að hrófla neitt við
hlutunum fyrr en við höfum áttað
okkur á því hvernig landið liggur.“
peturh@mbl.is
Morgunblaðið/Rósa Braga
Kaffi Kaffihús undir merkjum
Kaffitárs verða brátt sjö talsins.
Kaffitár í Háskól-
anum í Reykjavík
Færa Kruðerí
undir vörumerki
Kaffitárs