Morgunblaðið - 17.05.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 17.05.2019, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019 ✝ María SigríðurJóhanna Ein- arsdóttir fæddist á Siglufirði 3. apríl 1935. Hún lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boða- þingi í Kópavogi 10. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Lovísa Helgadóttir, verkakona á Siglu- firði, f. 6. desember 1908, d. 3. desember 1977, og Einar Indr- iðason, vélstjóri á Siglufirði, f. 22. september 1898, d. 13. apríl 1972. Sigríður ólst upp á Siglu- firði. Hún var annað barn þeirra hjóna, sem fyrir áttu soninn Indriða Helga sem fæddist 1932 og lést af slysförum í janúar 1975. Sigríður var skírð við útför nöfnu sinnar og föðursystur, Maríu Sigríðar Jóhönnu Indr- iðadóttur. Sigríður lauk skyldunámi á Siglufirði og húsmæðra- skólanámi á Ísafirði og Hall- ormsstað. Hún giftist árið 1954 Resch kennari, f. 1989. 3) Helgi Steinar Sigurðsson rafmagns- verkfræðingur, 1967 kvæntur Robin Miller viðskiptafræðingi. Dóttir þeirra er Brynja Zoé Helgadóttir, f. 2010. 4) Gunnar Tjörvi Sigurðsson, tæknifræð- ingur og framkvæmdastjóri hjá Marel, f. 1971. Sambýliskona hans er Hilda Björk Indriða- dóttir ritari. Þeirra börn eru Lovísa Rut Tjörvadóttir, nemi í véla- og iðnaðarverkfræði, f. 1997, Dagmar Íris Hafsteins- dóttir, f. 2003 og Sigurður Her- mann Tjörvason, f. 2009. Sigríður bjó lengst af ásamt Sigurði manni sínum á Grenivöll- um 30 og Kotárgerði 17 á Akur- eyri og að Smáraflöt 46 í Garða- bæ. Þau Sigurður fluttu í þjónustuíbúðir Hrafnistu í Boða- þingi 24 í Kópavogi en síðustu átta árin dvaldi Sigríður á hjúkr- unarheimili Hrafnistu í Boða- þingi. Sigríður stundaði versl- unarstörf og ýmis umönnunarstörf við heilsugæslu, skóla og sundlaugina í Garðabæ. Með föstu starfi sínu starfræktu Sigríður og Sigurður brauðgerð á heimili sínu í Garðabæ um 20 ára skeið og sérhæfðu sig í gerð norðlensks soðins brauðs. Útför Sigríðar fer fram frá Garðakirkju í dag, 17. maí 2019, klukkan 11. Sigurði Bárðarsyni, bifvélavirkja frá Akureyri, f. 1. ágúst 1930. Foreldrar hans voru Stefanía Sigurðardóttir, f. 4. júní 1906, d. 24. ágúst 1983, og Bárður Bárðarson, f. 9. mars 1908, d. 20. ágúst 1978. Börn Sigríðar og Sigurðar eru: 1) Einar Sigurðsson framkvæmda- stjóri, f. 1955, kvæntur Kristínu Ingólfsdóttur, lyfjafræðingi og fyrrverandi rektor Háskóla Ís- lands. Dætur þeirra eru: a) Hild- ur Einarsdóttir, rafmagnsverk- fræðingur og framkvæmdastjóri hjá Össuri, f. 1982. Sambýlis- maður hennar er Sölvi Dav- íðsson lögfræðingur. Þau eiga synina Pétur, f. 2013, og Birki, f. 2016. b) Sólveig Ásta Einars- dóttir, nemi í rafmagnsverk- fræði, f. 1994. 2) Stefanía Sigurð- ardóttir hagfræðingur, f. 1958, gift Andreas Resch kennara. Sonur þeirra er Einar Björn Sigríður tengdamóðir mín bjó lengst sinna fullorðinsára á Akureyri og síðar í Garðabæ. Æskuslóðirnar á Siglufirði áttu þó ávallt ríkan sess í hug hennar og hjarta. Hún átti þar enda ástrík uppvaxtarár og kynntist á síldarárunum þar lífsförunauti sínum Sigurði Bárðarsyni. Þess- ara góðu stunda var oft minnst, álags- og akkorðsvinnu í síld- inni, fjörugs mannlífs og sam- vista við litríkar persónur. Tengslin við Siglufjörð héldust náin eftir að Sigga og Siggi stofnuðu sitt eigið heimili á Akureyri, heimsóknir í foreldra- hús og unnið í síldarvertíðinni á sumrin. Sigríður var forkur til vinnu, hvort sem hún var að salta síld eða sinna öðru. Í raun vann hún öll sín störf í akkorði, sló hvergi af fyrr en verkinu var lokið, vinnubrögðin ávallt vönduð og snyrtimennska í fyrirrúmi. Þeg- ar þau Siggi byggðu húsin sín á Akureyri, á Grenivöllum og síð- ar í Kotárgerði, tók hún virkan þátt, naglhreinsaði og skóf timbur af kappi og gekk í önnur verk sem þurfti að sinna. Þegar við Einar eignuðumst okkar fyrstu íbúð lét Sigga ekki sitt eftir liggja til að hlúa sem best að ungri fjölskyldu. Hún skrap- aði gamla málningu af innrétt- ingum og gluggakistum og gaf gömlum gólfdúk nýtt líf. Samband Sigríðar og Sigurð- ar er eitt það kærleiksríkasta og fegursta sem ég hef orðið vitni að. Þau voru afar samrýmd og nutu þess að vinna verkin sam- an. Um tíma bökuðu þau norð- lenskt soðið brauð og seldu í verslanir á höfuðborgarsvæðinu á morgnana áður en þau héldu til sinnar dagvinnu, enda árrisul og vinnusöm með eindæmum. Sigga hafði sterka réttlætis- kennd og mátti ekkert aumt sjá. Hún naut sín vel í umönnunar- störfum og var vel metin af skjólstæðingum og samstarfs- fólki. Sigga var mikill náttúru- unnandi og meiri hamhleypu til berjatínslu hef ég aldrei séð, nema ef vera skyldi Sigga tengdapabba. Straumhvörf urðu fyrir tólf árum þegar Sigga veiktist af alzheimer. Á fyrstu stigum sjúk- dómsins leitaði hugur hennar sterkt til Siglufjarðar, hún þráði að fara þangað þrátt fyrir að allt hennar fólk væri löngu horfið á braut. Þótt erfitt væri að skilja vanlíðan hennar og þá skelfingu sem fylgir þessum skæða sjúk- dómi, hefur Siglufjörður senni- lega vakið tilfinningar um ör- yggi og skjól. Frá því Sigga fluttist á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boðaþingi fyrir átta árum hefur Siggi setið hjá henni hvern einasta dag, talað við hana og strokið um vangann, sýnt henni ótakmarkaða elsku. Þó að sjúkdómurinn hafi smám saman tekið hana frá okkur var alltaf ljóst að hún fann sterkt fyrir návist Sigga og kærleik. Í sveitinni okkar í Þverárhlíð- inni hefur stórt aspartré vaxið af afleggjara sem Sigga gaf okk- ur úr garði sínum. Þrátt fyrir að taka á sig stöðuga og stífa norð- austanátt hefur tréð hennar Siggu vaxið þráðbeint og er sér- lega blaðfagurt. Það er okkur ævarandi minning um þessa sterku, stoltu og fallegu mann- eskju. Ég þakka henni fyrir allt sem hún var okkur Einari og dætrum okkar í fjörutíu ára samfylgd. Megi hún hvíla í friði. Kristín Ingólfsdóttir. Ég tel mig afskaplega lán- sama að hafa fengið leiðsögn tveggja kynslóða í gegnum mín uppvaxtarár og voru ömmur mínar og afar stór partur af okkar daglega lífi. Ég var fyrsta barnabarnið í fjölskyldum for- eldra minna og því gjörsamlega dekruð í bak og fyrir. Dekruð með þessum hefðbundnu hlut- um eins og sælgæti og athygli en það sem eftir situr eru fjöl- margar gæðastundir með þeim sem stóðu mér næst. Stundirnar hjá ömmu og afa í Smáraflötinni voru margar og góðar og gáfu mér tækifæri til að kynnast þeim náið og læra af þeim. Og auðvitað níðast á stóru frændum mínum sem höfðu óbilandi þol- inmæði gagnvart mér. Það var mér til happs í öllu dekrinu að í fjölskyldunni var ég líka umkringd afskaplega sjálfstæðum og hörkuduglegum konum sem sýndu mér ítrekað í verki að hvers konar bómullar- meðhöndlun í lífinu væri algjör- lega óþörf. Amma Sigga var svo sannarlega í þessum hópi kven- skörunga. Vinnuhestur sem féll aldrei verk úr hendi en gaf sér á sama tíma ekki nokkru sinni það hrós sem hún raunverulega átti skilið. Amma mátti aldrei aumt hjá nokkrum manni sjá. Hún vor- kenndi öllum sem var hallmælt í útvarpinu og rauk til að aðstoða þá sem áttu bágt í kringum hana. Stundum fólst sú huggun í að láta undirritaða syngja Maís- tjörnuna fyrir viðkomandi. Það eru áhöld um að það hafi gert nokkrum manni gott en amma grét í hvert skipti og bað um uppklappslag: Maístjörnuna, aftur! Amma var mikil stemn- ingskona þótt feimin væri og á ég henni það til dæmis að þakka að kunna svo gott sem alla ís- lenska sjómannavalsa og síldar- ævintýrislög. Ég var nokkuð ung þegar hugtakið að koma til dyranna eins og maður er klæddur kom upp í íslenskutíma í skólanum. Án umhugsunar komu amma og afi mér til hugar og æ síðan hugsa ég hlýtt til þeirra þegar ég heyri þessi orð. Í mínum huga eru þau sem einstaklingar og sem par hin fullkomna lýsing á þessu orðasambandi og þannig hafa þau verið mér fyrirmynd og þörf áminning í gegnum tíð- ina. Í minningunni voru amma og afi alltaf mjög samrýmd og gerðu flesta hluti saman. Hvort sem þurfti að setja í uppþvotta- vél, keyra út til verslana soðið brauð sem þau bökuðu saman í bítið hvern dag, vinna í sund- lauginni eða þrífa í bankanum. Mér fannst þetta alltaf mjög fal- legt. En þegar veikindin bönk- uðu upp á hjá ömmu þá raun- verulega skildi ég hvað felst í því að vera sálufélagar í blíðu jafnt sem stríðu. Hvaða ástar- saga sem heimsbókmenntir eða kvikmyndir hafa fært okkur blikna í samanburði við þá ást- arsögu sem við, sem fengum að fylgja Sigga og Siggu í gegnum þennan tíma, fengum að upplifa. Ástin, alúðin, umhyggjan og þolinmæðin sem afi sýndi ömmu var slík að hún breytti sýn minni á lífið og það samferða- fólk sem við höfum tök á að velja okkur. Sú ást og þrá sem amma sýndi afa fram á síðasta sprettinn, þrátt fyrir að hún hefði að öðru leyti nánast horfið okkur hinum sjónum, var svo falleg og djúp. Elsku afi minn, takk fyrir að kenna mér á lífið og sýna mér hvað raunverulega skiptir máli. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Hvíl í friði, elsku amma mín. Þín Hildur. María Sigríður Jó- hanna Einarsdóttir Sálm. 14.2 biblian.is Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs. ✝ Jón Karl Sig-urðsson fædd- ist á Ísafirði 11. apríl 1932. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Hömrum í Mosfellsbæ 27. apríl 2019. Foreldrar hans voru Sigurður Bjarnason, f. 12. maí 1903, d. 2. júlí 1985, og Jóna Þor- bergsdóttir, f. 12. júlí 1907, d. 4. mars 1984. Jón Karl, eða Bói eins og hann var oftast kall- aður, átti einn bróður, Hauk Sigurðsson, f. 1930, d. 2006. Hinn 12. febrúar 1955 giftist Jón Karl Steingerði Gunn- arsdóttur, f. 9. desember 1936. Foreldrar hennar voru Gunnar Þ. Þorsteinsson, f. 1911, d. 1953, og María Helgadóttir, f. 1914, d. 2002. Börn Jóns Karls og Stein- gerðar eru: 1) Ragnhildur, f. 28. desember 1953, eiginmaður Ingvar Einarsson, f. 1948. Börn: a) Steingerður, f. 1974, eigin- maður Einar Sverrir Sigurðar- Ragnhild, f. 1994. c) Vigdís, f. 1995. Jón Karl vann hjá Flugfélagi Íslands á Ísafirði frá 1952 til 1973, ásamt því að reka verslun og bílaleigu með konu sinni Steingerði. Síðan starfaði hann fyrir Flugfélagið í Kaupmanna- höfn og svo í stuttan tíma í Reykjavík. Í apríl 1978 tók Jón Karl við sem stöðvarstjóri Flug- leiða á Fornebuflugvelli í Ósló og síðasta rúma hálfa árið sem hann starfaði var hann á nýja Gardermoen-flugvellinum í Noregi. Jón Karl lét af störfum hjá Flugleiðum 1. maí 1999. Jón Karl og Steingerður bjuggu í Noregi allt til haustsins 2018 en þá fluttu þau heim til Íslands. Síðasta heimili þeirra var á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ. Eftirlifandi eig- inkona Jóns Karls, Steingerður, býr áfram á Hömrum. Jón Karl var mikill íþróttamaður á yngri árum. Hans aðalgrein var alpa- greinar. Hann tók þátt í Ólympíuleikunum í Ósló 1952 með bróður sínum Hauki. Eftir að skíðaferlinum lauk var hreyfing og heilsurækt hans helsta áhugamál alla tíð og stundaði hann hjólreiðar af kappi fram yfir áttrætt. Útförin fer fram frá Digra- neskirkju í dag, 17. maí 2019, klukkan 13. son, f. 1973. Börn: Daníel Freyr, f. 1994, Elísabet Líf, f. 1999, Ingvar Sverrir, f. 2005, og Halldór Sverrir, f. 2013. b) Einar Bergur, f. 1983, eiginkona Kristrún Frostadóttir, f. 1988. Barn María Herdís, f. 2019. c) Dóttir Ingvars Guðbjörg Kristín, f. 1969, móðir Ásgerður Halldórsdóttir. 2) Gunnar Þorsteinn, f. 31. mars 1955, eiginkona Helle Lund Jensen, f. 1966. Börn: a) Kristín Bjargey Lund, f. 1992. b) Bragi, f. 1976, d. 1998. 3) Sigurður Hjálmar, f. 27. mars 1959, d. 6. maí 1996, eiginkona Ólöf Davíðsdóttir, f. 1956. Barn Jón Karl, f. 1983, móðir hans er Unnur Óttarsdóttir, eiginkona Vala Pálmadóttir, f. 1982. Barn Pálmi Sigurður, f. 2018. 4) Þór- dís, f. 8. júní 1966, eiginmaður Sindre Stöer, f. 1962. Börn: a) Bergljót, f. 1990, eiginmaður Joshua Kuyten, f. 1992. b) Elsku nafni, þá ertu búinn að kveðja í síðasta sinn. Ég man eftir sumrunum þeg- ar ég var lítill og dvaldi hjá ykk- ur ömmu í Noregi. Þið voruð með opið garðskýli í garðinum sem þú hafðir smíðað. Þar borð- uðum við oftast kvöldmat í góða veðrinu. Komandi frá Íslandi þá fannst mér það sérstaklega huggulegt að geta borðað úti í garði. Suma dagana fór ég með þér í vinnuna. Þá vöknuðum við eld- snemma og fórum í sturtu. Ég man sérstaklega eftir hvað vatnið í sturtunni hjá þér var heitt. Þegar í vinnuna á Forn- ebu-flugvelli var komið spjall- aðir þú við allt starfsfólkið sem þú mættir á göngunum óháð því fyrir hvaða félag það vann. Þessi samtöl voru iðulega vina- leg og þú varst greinilega vel liðinn. Þú kynntir mig sem barnabarnið þitt sem héti Jón Karl Sigurðsson sem mér fannst alltaf jafn gaman. Síðan fór góður partur úr deginum í að redda hinu og þessu. Ein- hver var búinn að týna flugmið- anum sínum og annar hafði gleymt passanum og svo mætti lengi telja. Þessi mál afgreiddir þú af mikilli greiðvikni. Ég er þakklátur fyrir að þú hafir verið síðustu mánuðina hér á Íslandi. Það gaf okkur Völu Kolbrúnu Pálmadóttur, unnustu minni, og syni okkar, Pálma Sigurði, f. 30. janúar 2018, fleiri tækifæri til að heim- sækja þig. Það að hafa átt nafna eins og þig fyrir afa varð til þess að mig langaði að skíra son minn Pálma Sigurð í höfuðið á öfum sínum til þess að hann ætti líka nafna sem afa. Þinn, Jón Karl. Í dag kveð ég hann Bóafa í hinsta sinn. Ég er mjög þakklát fyrir þau forréttindi að fá að eiga afa verandi komin á fimm- tugsaldur. Þegar ég lít yfir far- inn veg hellast yfir mig enda- lausar minningar sem hlýja mér um hjartarætur. Afi og amma bjuggu í Noregi frá því að ég man eftir mér. Ég hitti þau því ekki oft á ári en í staðinn urðu heimsóknirnar lengri. Öll sumur og önnur hver jól varð ég þess heiðurs aðnjót- andi að fá að fljúga til Noregs í heimsókn. Þetta var alltaf til- hlökkunarefni og spenningurinn var ólýsanlegur við að sjá dyrn- ar á flugvélinni opnast og sá fyrsti sem birtist var brosandi afi minn (stöðvarstjóri á flug- vellinum í Noregi). Afi minn gat allt eins og afar yfirleitt geta. Minn hins vegar var stórkostlegur. Honum fannst rugl að kaupa sláttuvél með mótor því þá fengi hann enga æfingu út úr slættinum. Honum fannst rugl að kaupa sjálfskiptan bíl því þá þyrfti hvorki að hreyfa fæturna né nota heilann við keyrslu. Hon- um fannst rugl að dæla í sig lakkrís því það væri bara aftan- íhlaðningur. Honum fannst rugl að hreyfa sig ekki daglega því þá mundi líkaminn bara eyði- leggjast. Hann byggði hús, hann lagaði allt sem bilaði, hann fór á ólympíuleikana, hann hjól- aði á reiðhjóli fram yfir áttrætt og hann var alltaf í góðu skapi með frábæra kímnigáfu. Mér er í fersku minni síðasta heimsókn yngsta drengsins míns (5 ára) fyrir örfáum vik- um. Hann var að ræða við lang- afa sinn og kallaði hann þjófa afa. Afi hváði en þá horfði sá litli á hann og sagði: „Afi, bói er það sama og þjófur.“ Það sem hann afi minn hló í framhaldinu var yndislegt. Afi elskaði að fá krakkana sína í heimsókn fram til síðasta dags. Börnin sín, barnabörnin og barnabarna- börnin. Hann var alltaf stoltur af okkur öllum. Koss á ennið frá afa gerði allt betra. Nú kyssi ég hann á ennið í hinsta sinn og varðveiti minn- ingarnar í hjarta mínu. Steingerður Ingvarsdóttir. Mín fyrstu kynni af Jóni Karli Sigurðssyni voru fyrir tæplega 40 árum þegar hann sótti mig á Fornebu-flugvöllinn í Noregi. Á þeim tíma bjuggu Jón Karl og kona hans, Stein- gerður Gunnarsdóttir, í Ósló. Ég var að heimsækja son Jóns Karls, Sigurð Hjálmar Jónsson heitinn, sem dvaldist um tíma hjá foreldrum sínum. Við Jón Karl þekktumst ekki og töluð- um ekki mikið saman í þá tæpu klukkustund sem bílferðin tók en ég minnist þess að mér leið vel með honum í þögninni í bíln- um. Í þá tæpu fjóra áratugi sem ég þekkti Jón Karl var hann gleðigjafi. Alltaf var stutt í vestfirska húmorinn og átti hann sérlega auðvelt með að sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu. Þegar ég kvaddi Jón Karl í hinsta sinn fyrir stuttu þá hló hann eins og honum var einum lagið þrátt fyrir að hann væri máttfarinn vegna veikinda. Leiðir okkar Sigurðar, sonar Jóns Karls, lágu saman um tíma og áttum við þeirri gæfu að fagna að eignast soninn Jón Karl Sigurðsson, alnafna afa síns. Jón Karl og Vala Kolbrún Pálmadóttir, kona hans, eiga nú soninn Pálma Sigurð Jónsson. Ljós og glaðværð Jóns Karls eldri og sonar hans Sigurðar skín nú á okkur í gegnum barnabarnið Jón Karl yngri og langafabarnið Pálma Sigurð. Jón Karl eldri var mikill skíðamaður og keppti hann á ól- ympíuleikum í Ósló 1952. Skíða- íþróttin hefur ávallt verið í há- vegum höfð í fjölskyldunni. Sigurður keppti einnig tvisvar sinnum á ólympíuleikum og var hann einn mesti skíðamaður sem Ísland hefur alið. Hann kynnti skíðaíþróttina fyrir mér og fjölskyldu minni og höfum við notið þess að renna okkur í fjöllunum síðan. Þannig gengur skíðagleðin í arf, frá Jóni Karli afa til Sig- urðar sonar hans og þaðan til minnar fjölskyldu og síðan til Jóns Karls yngri. Pálmi Sigurð- ur hefur enn ekki farið á skíði þar sem hann er nýorðinn eins árs. Hann hefur þó rennt sér á þotu og um daginn fór hann inn í geymslu og burðaðist fram með þotuna og sagði „gaman, gaman“. Jón Karl eldri var óvenju lag- inn við smíðar og að lagfæra húsnæði en það var eiginleiki sem hann hafði fengið í arf frá föður sínum sem var smiður. Bjuggu Jón Karl og kona hans Steingerður sér fallegt heimili í Ósló þangað sem ég kom oft og var þar notalegt að vera. Jón Karl yngri var oft hjá ömmu sinni og afa um tíma og hugsuðu þau vel um drenginn. Bæði Jón Karl yngri og pabbi hans Sigurður erfðu handlagn- ina og smíðaáhugann frá Jóni Karli eldri. Eitt sinn þegar Jón Karl var lítið barn spurði mamma mín hann hvernig hefði verið í Nor- egi hjá ömmu hans og afa. Svar- aði hann „afi festaði fyrir mig“ sem þýddi að afi festi naglana svo strákurinn gæti haldið áfram að negla. Þannig samein- uðust þeir nafnarnir í smíða- gleðinni sem erfst hefur í gegn- um kynslóðirnar. Þegar ég kveð Jón Karl í hinsta sinn er ég þakklát fyrir að hafa kynnst honum og fjöl- skyldu hans sem hefur reynst mér og syni mínum vel. Blessuð sé minning Jóns Karls Sigurðs- sonar eldri. Unnur Guðrún Óttarsdóttir. Jón Karl Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.