Morgunblaðið - 17.05.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 17.05.2019, Síða 19
Elsku mamma mín. Það er skrýtið að standa frammi fyrir því að setja í valinn fjölda orða allt það sem fer í gegnum huga minn og hjarta á dánarstundu þinni. Við áttum flókið samband gleði og sorgar. Fallegasta konan af þeim öllum varstu. Þú varst fyrirmynd mín á svo margan hátt og leiðbeinandi minn í svo mörgu, án þess þó að vita það alltaf. Kannski hefði ég mátt segja þér það oftar. Erfið- leikar þeir sem við gengum í gegnum saman þegar ég var barn leiðbeindu mér til sigurs í hjart- anu. Ég lærði að fylgja því, vegna þess að ég lærði að lífið væri ekki sjálfgefið, hamingja væri ekki sjálfgefin, né andleg eða líkamleg heilsa. Þú kenndir mér þrautseigju, að gefast aldrei upp, að halda Ólöf Vilhelmína Ásgeirsdóttir ✝ Ólöf Vilhelm-ína Ásgeirs- dóttir fæddist 28. júlí 1935. Hún lést 30. apríl 2019. Útförin fór fram 10. maí 2019. mínu striki og að hið ómögulega væri mögulegt. Stundum finnst mínum ná- stöddu ég agalega rugluð þegar ég staðfastlega ætla að láta hið ómögulega gerast. Þá brosi ég í laumi og hugsa til þín. Þú kenndir mér að standa með sjálfri mér með því að skora ansi oft á mig og gast gert mig ansi lúna. Þú varst nú ekki sátt við að ég ætlaði að vera svona lengi í þessu blessaða doktorsnámi. Þér fannst það nú ægileg vitleysa en svo vissi ég að þú varst stolt af mér í laumi. Þú stóðst með mér í öllum mínum ákvörðunum og hvattir mig til að vera sönn í einu og öllu. Takk fyrir það, elsku mamma. Þú varst svo skemmtileg og já- kvæð og ég get með engu móti munað eftir einum degi þar sem þú varst ekki til í að grínast. Þeg- ar þú veiktist í ágúst var það greinilegt á öllu að þú ætlaðir að sigrast á því líka. En aldrei misst- irðu húmorinn eins og við Helena heyrðum á dánarbeði þínum, þar sem þú lást meðvitundarlítil og sagðir skyndilega skýrum rómi: „ég þoli ekki húmorslaust fólk, bara nenni ekki að vera nálægt því“ og við Helena sprungum úr hlátri. En beinin voru orðin lúin og baráttuþrekið minna en áður og gaf líkaminn að lokum undan. Ég er þakklát, elsku mamma mín, fyrir öll góðu árin sem við áttum saman. Ég var alltaf svo stolt af því sem þú hafðir afrekað í lífinu. Þú varst ótrúlega sterk kona. Takk fyrir að kenna mér styrk. Við veg þinn anga rósir og vorsins gleðiljóð Um varir þínar titra, og sumarnóttin hljóð Fer anganljúfum draumi um dali þína. En samt ertu svo döpur. Ó, seg mér, ljúfa mær, hví syrgir þú er vorið í hjörtum allra slær og dagsins glöðu geislar við þér skína? Víst þrái ég angan blóma og ljúf eru vorsins ljóð og laufið titrar fagurt í kvöldsins dökkvu glóð, er roðnar loft og rennur sól að beði. En sár er hinzti ómur hins sungna gleðilags Og sorgin myrkvar brosið á vörum liðins dags, sjálf jörðin fellir tár við týnda gleði. (Tómas Guðmundsson) Þín Sigríður Björk Þormar (Sirrý). ✝ Pétur AxelPétursson fæddist á Lauf- ásvegi 79 18. desember 1945. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 10. maí 2019. Foreldrar hans voru Pétur Sig- urðsson kaup- maður, frá Bergi, f. 23. júní 1918, d. 13. apríl 1990, og Soffía S. Ó. Axelsdóttir,, bankamaður, frá Ísafirði, f. 15. mars 1923, d. 17. maí 2011. Yngri systir Péturs er Þuríður E. Pétursdóttir, fædd á Lauf- ásvegi 79 hinn 23. apríl 1947. Pétur kvæntist 27. apríl 1968 fyrri konu sinni, Guðnýju Krist- jánsdóttur, f. 28. desember 1946, d. 17. ágúst 2018. Með Guðnýju eignaðist Pétur eitt barn i) Pétur Jökul Pétursson, f. 27. maí 1967. Pétur er kvæntur Tinu Teigen Pétursson. Pétur kvæntist 30. april 1975 stærstan hluta ævinnar. Á yngri árum vann Pétur meðal annars í Herradeild P.Ó., þar sem hann sinnti afgreiðslustörfum ásamt sölustjórn. Pétur útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykja- vík árið 1966 og ári síðar fór hann til Mannheim í Þýskalandi og hóf þar nám í tæknifræðum. Eftir heimkomu lagði hann stund á viðskiptafræði við Há- skóla Íslands. Árið 1973 hóf hann störf sem verktaki hjá Sig- ölduvirkjun og vann þar í tvö ár. Haustið 1975 fluttist hann ásamt fjölskyldu sinni til Bandaríkj- anna og gegndi þar ýmsum störfum, þar á meðal við land- mælingar. Pétur útskrifaðist sem landfræðingur frá Háskól- anum í Georgíu árið 1981. Sama ár flutti fjölskyldan aftur til Ís- lands. Pétur fékkst við ýmis verk- efni í gegnum árin en starfaði lengst af sem vélvirki og málm- iðnaðarmaður þar til hann lét af störfum vegna veikinda, þá 66 ára að aldri. Útför Péturs fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 17. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. seinni konu sinni, Stephanie Scobie, f. 1. júní 1948, og með henni eignaðist hann þrjú börn ii) Stefán Pétursson, f. 24. mars 1977. Sam- býliskona Stefáns er Vigdís Jóhanns- dóttir, f. 11. september 1966. Þau eiga tvö börn: Viggó Örn Stef- ánsson og Dagmar Lilju Stef- ánsdóttur. iii) María Péturs- dóttir, f. 21. maí 1979. Unnusti Maríu er Philip Sebastian Phil- ipsson f. 11. maí 1982. Þau eiga tvö börn: Johönnu Philipsdóttur og Magnus Arn Philipsson. iv) Ásta Soffía Pétursdóttir, f. 21. ágúst 1981. Eiginmaður Ástu er Kasper Rasmussen, f. 8. júní 1981. Þau eiga eitt barn: Ronju Kaspersdóttur. Pétur Axel og Stephanie slitu samvistum árið 2002. Pétur Axel ólst upp í for- eldrahúsum og bjó í Reykjavík Glaður og reifur skyli gumna hver, uns sinn bíður bana. Þessi spekiorð Hávamála eiga vel við um Pétur Axel föður minn sem í dag verður lagður til hinstu hvílu. Þrátt fyrir alvarleg veikindi í mörg ár mætti hann reglulega í heimsóknir, á bílnum sínum, og bar sig aldrei illa. Heilsan var alltaf „bærileg“. Lífsspeki hans leyfði honum að iðka sín áhuga- mál allt þar til yfir lauk. Enginn gaumur var gefinn að hugsanleg- um endalokum. Þau komu þegar þau áttu að koma og hananú! Það var alltaf gaman að sitja með pabba og spá og spekúlera um alls konar hluti, hvort sem það voru eðlisfræðilegir útreikn- ingar eða hönnun á sérútbúnum BMX-hjólum. Þá var ávallt hægt að leita til hans ef það þurfti að laga eitthvað. Bílar og vélar voru honum engin fyrirstaða í þeim efnum. Þær ljúfu stundir sem við átt- um saman undir lokin verða ávallt greyptar í minni mitt þrátt fyrir veikindi og erfiðleika. Þá fékk ég að kynnast upp á nýtt alls kyns skemmtilegum hliðum á honum. Þetta voru dýrmætar stundir. Elsku pabbi, takk fyrir góðu stundirnar sem við áttum saman. Stefán Pétursson. Síðasta símtalið okkar við pabba var á föstudaginn langa. Hann var bara ansi hress. Við vorum staddar í Vín í Austurríki þegar við heyrðum í honum frá spítalanum. Hann hafði verið lagður inn tveimur dögum fyrr, en eins og oft áður áttum við von á að hann myndi ná sér og verða kominn heim eftir nokkra daga. Pabbi er maðurinn með níu líf, sögðum við, næstum í kór. Þetta skiptið bar krabbameinið þó sig- ur úr býtum, eftir sex ára hetju- lega baráttu af hálfu pabba. Pabbi var alltaf tilbúinn til að aðstoða okkur við nánast hvað sem er. Hann sýndi verulegan áhuga á náminu okkar, áhuga- málum og störfum. Á okkar yngri árum sat hann oft lengi með okk- ur við heimalærdóminn og seinna hjálpaði hann okkur við að gera við bíla, flytja eða bara að grúska í einhverju (ó)áhugaverðu. Enn fremur spáði pabbi oft í notagildi hluta og uppsetningu. Hann gerði jafnan tilraunir í að betr- umbæta almenna heimilishluti, þar sem útlitið skipti töluvert minna máli en notagildi „uppfinn- inganna“. Oftast gat maður fund- ið hann við eldhúsborðið að lesa blöð og bækur eða úti í bílskúr. Flestar uppfinningar hans gengu út á að spara honum sporin við endurtekna vinnu, t.d. einn takki sem sparaði honum að ýta á þrjá takka. Það var ekki fallegt, en það virkaði – oftast. Pabbi hafði almennt áhuga á að vita hvernig hlutir virkuðu. Hann var fljótur að skilja hvernig vélar og tæki gengu fyrir sig og átti því auðvelt með að gera við þær vélar sem biluðu. Það var einstaklega gott fyrir ungar stúlkur sem voru að byrja að sjá um sína eigin bíla. Eftir að við fengum bílpróf eyddum við mörgum stundum úti í bílskúr með pabba. Hann sýndi okkur hvernig við gætum gert við bílana sem við vorum, því miður, oft að lenda í vandræðum með. Hann kenndi okkur hvernig maður tappar dísil af bíl, þrífur kertin, skiptir um peru, réttir út beyglur, rennir bílnum í start og skiptir um hljómtæki. Það var næstum alveg sama hversu mikið við rústuðum bílunum, hann gat alltaf komið þeim í gang aftur – þetta gat hann pabbi okkar. Það var alltaf hægt að spjalla við hann um nánast hvað sem er, og ef hann vissi ekki svarið við einhverju, þá var bara farið í að rannsaka það og komast að því. Tvennt var þó heilagt, þá mátti ekki trufla, það var þegar sendar voru 1) fréttir eða 2) veðurfréttir. Hann hafði ótæmandi áhuga á mælanlegum hlutum, svo sem rakastigi, loftþrýstingi, hitastigi og sérstaklega veðrinu. Ef við vorum úti að ferðast fjölluðu samtölin oftar en ekki um veðrið, bæði á Íslandi og í útlandinu góða. Við lærðum fljótt að skýra frá veðrinu í mælanlegum eining- um, þá hita- og rakastigi, en það var líka í lagi að skýra frá komu nýja brumsins á trjánum. Í gegnum tíðina var pabbi sjaldan veikur og kvartaði aldrei. Á seinni árunum tók hann hlutina ósköp rólega og flýtti sér hægt. Pabbi var þannig gerður að hann vildi ekki miklar breytingar og var ósköp nægjusamur og leið vel með sitt. Vertu sæll, elsku pabbi. Þín verður sárt saknað. Þínar dætur, María og Ásta Soffía. Það er skrýtin tilhugsun að afi muni ekki að koma næstu sunnu- daga í heimsókn til okkar eins og hann var vanur að gera. Nú þeg- ar sumarið er að koma mun hann ekki heldur sitja með okkur á pallinum úti í sólinni og spjalla. Hann var alltaf svo rólegur og yf- irvegaður og gott að hafa hann hjá sér. Hver einustu jól síðan við munum eftir okkur mætti hann rosalega fínn og gaf hann okkur oftast mjög fínar bækur í jóla- gjöf, en ein jólin gaf hann mér tölvuleik og ég varð hissa og ánægður á sama tíma. Það verður eitthvað annað næstu jól þegar hann verður ekki hjá okkur og engin bók frá honum til að lesa. Við söknum þín, elsku afi, og okkur finnst ljóðið sem við syngj- um á sal í skólanum okkar vel við hæfi. Kveðja eftir Bubba Morthens: Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Þín afabörn, Viggó og Dagmar. Pétur Axel Pétursson MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019 ✝ Laufey Sigurð-ardóttir fædd- ist á Akranesi 12. október 1948. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Vestur- lands á Akranesi 7. maí 2019. Foreldrar henn- ar eru Sigurður Ingvar Gunnars- son, fæddur á Akranesi 18.9. 1918, d. 13.7. 1982, og Kristjana Jónsdóttir, fædd á Stóru- Fellsöxl 29.12. 1923. Systkini Laufeyjar eru Jón Sigurðsson, f. 1946, Þóra Sig- urðardóttir, f. 1954, og Hlín Sigurðardóttir, f. 1958. Eiginmaður Laufeyjar er Þorvaldur Ólafsson frá Akra- nesi, f. 20.12. 1946. Saman eiga þau tvö börn: Kristjönu Þorvaldsdóttur, f. 23.3. 1972. Krist- jana er kvænt Guido Picus, f. 3.7. 1969, og börn þeirra eru Marel Thor, f. 21.3. 2012, og Freyja Maren, f. 25.7. 2015. Sig- urður Ingvar Þor- valdsson, f. 27.8. 1982. Börn Sig- urðar eru Laufey Sigurbirna, f. 8.4. 2002, og Aron Benedikt, f. 26.3. 2006. Sambýliskona Sig- urðar er Guðrún Ragna Yngva- dóttir, f. 22.4. 1982. Útförin fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 17. maí 2019, klukkan 13. Hún Lulla var stóra systir mín sem ég leit mikið upp til þegar ég var lítil. En það sem ég er búin að dást að henni systur minni síð- ustu mánuði, og ekki síst síðustu dagana fyrir andlát hennar, er hreint ekki lítið. Þvílíkan baráttu- vilja, dugnað og það æðruleysi sem hún er búin að sýna í veik- indum sínum, það er aðdáunar- vert í mínum augum. Hún Lulla var ekki bara systir mín, heldur líka ein besta vinkona mín. Okkur kom kannski ekkert sérlega vel saman sem krökkum, enda sex ára aldursmunur og hún ekkert endilega spennt fyrir því að leyfa yngri systur sinni að þvælast með sér, þótt áhugann hafi ekki vantað hjá mér. Síðar, þegar við urðum full- orðnar og fórum sjálfar að eignast börn, áttum við mun meira sam- eiginlegt. Mikill samgangur var alla tíð á milli heimila okkar, og okkar börn góðir félagar og vinir. Við fórum í ófáar útilegur sam- an þegar börnin voru lítil, fórum í laxveiðitúra, sumarbústaðaferðir og síðar í margar utanlandsferðir með fjölskyldum okkar og svo líka bara tvær saman, enda hafði hún yndi af því að ferðast og kanna nýjar slóðir. Allt eru þetta nú dýr- mætar minningar. Það var mjög gott að vera í ná- vist Lullu, hún hafði þægilega nærveru, og gjarnan með prjón- ana sína meðferðis. Hún systir mín var mjög flink í höndunum og vandvirk eins og verkin sýna, og hafa börn okkar systkinanna not- ið góðs af því í gegnum tíðina. Hún var ekki mikið fyrir að trana sér fram, var frekar hlé- dræg en mjög barngóð og kölluðu sum barnabörnin mín hana „ömmu Lullu“, sem segir meira en mörg orð. Lulla var mjög traust, um- hyggjusöm, með sterka réttlætis- kennd og alltaf var hægt að leita til hennar. Hún var mikil hann- yrðakona, hafði gaman af tónlist og hafði yndi af að vera úti í nátt- úrunni. Hún var líka mjög góð heim að sækja, og þar kom maður ekki að tómum kofunum, því hún átti ávallt til heimabakað bakkelsi sem vinsælt var, bæði hjá ungum sem öldnum. Börn hennar og barnabörn voru hennar líf og yndi, og hún var mjög stolt af þeim. Með miklum trega og sorg í hjarta kveð ég systur mína og þakka fyrir allt sem hún var mér og minni fjölskyldu. Elsku Valdi, Kristjana, Diddi, Laufey, Aron, Marel og Freyja, Guð gefi ykkur huggun og styrk á þessum erfiðu tímum. Minning um góða konu lifir. Þóra. Hún Lulla mágkona mín er dáin. Þegar ég kynntist Lullu, eða Laufeyju Sigurðardóttur, eins og hún hét fullu nafni, faldi ég mig bak við hurð, neitaði að tala við hana og fór að gráta. Ég var sex ára. Bróðir minn var kominn með kærustu og með því taldi ég að öll mín hlunnindi myndu hverfa og kærastan fengi alla athyglina. Það var öðru nær, ég fékk við- bótar liðsauka og meiri athygli. Með hæverskunni og rólegheit- unum vann hún mig á sitt band og ég þurfti ekkert að óttast. Hræðsla mín breyttist í aðdáun. Aðdáun mín á mágkonu minni var sú að mig langaði að vinna í fisk- búð eins og hún, pakka ýsunni inn í dagblöð, vigta fiskhakkið og svara í símann þegar fólk hringdi í fiskbúðina og spurði „hvað er til?“ Mágkona mín var vönduð og góð manneskja. Hún yfirveguð og hógvær kona sem hugsaði sitt. Yfir henni var einhvers konar æðruleysi, sjálfsagi og sálarró. Hún var ekki þessi opna persóna sem var út um allt og alls staðar en hún hafði gaman af fólki og fé- lagsskap. Hún hugsaði vel um sitt fólk og tók veikindum sínum af ótrúlegum styrk. Það er sárt að horfa á eftir mágkonu minni sem hafði svo margt að bera og átti ýmislegt eftir að klára. Þegar ég kvaddi Lullu mágkonu mína í síðasta sinn fór ég að gráta. Núna af ann- arri ástæðu. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur sendi ég Valda bróður, Kristjönu, Didda og fjölskyldum þeirra. Takk fyrir samfylgdina kæra Lulla. Lilja S. Ólafsdóttir (Lella). Í dag kveð ég Lullu frænku. Eða ömmu Lullu eins og yngsta barnið mitt kallaði hana gjarnan. Lulla frænka var ein af þessum ljúfu góðu. Það var alltaf notalegt að fara í heimsókn til hennar, hún átti yfirleitt alltaf til vínarbrauð, kleinur eða eitthvert annað góð- gæti í frystinum. Lulla var líka af- bragðsprjónakona og prjónaði teppi og peysur á börnin mín. Það var síðast fyrir nokkrum mánuð- um sem ég fékk að koma og velja mér ullarsokka á alla fjölskyld- una. Það voru allar stærðir til, það var bara svoleiðis. Mamma og Lulla hafa alla tíð verið nánar og góðar vinkonur og þegar ég var yngri ferðuðust þær oft saman með sínar fjölskyldur. Þessi ferðalög héldu áfram hjá þeim systrum meðan Lulla hafði heilsu til og einstaka sinnum slóst ég í hópinn. Ég, mamma og Lulla fórum til að mynda til Brighton eitt haustið fyrir nokkrum árum. Það var hin fínasta ferð. Við borð- uðum góðan mat á kvöldin og rölt- um milli búða á daginn. Held reyndar að Lullu hafi þótt nóg um búðargleði okkar mæðgna en vel skemmtum við okkur allar. Ég kveð Lullu frænku með hlýju og söknuði í hjarta og sendi Valda, Didda, Nennu og börnum þeirra mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Lilja Sigríður Hjaltadóttir. Laufey Sigurðardóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.