Morgunblaðið - 17.05.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
fyrir heimilið
VifturHitarar
LofthreinsitækiRakatæki
40 ára Íris ólst upp á
Seftjörn á Barðaströnd
og á Patreksfirði en býr
á Akranesi. Hún er
grunnskólakennari í
Grundaskóla.
Maki: Þórhallur
Þórðarson, f. 1975,
verkstjóri vinnuflokka hjá Veitum.
Börn: Hafsteinn Einar Ágústsson, f.
1994, Ísak Þórhallsson, f. 1998, og Auður
Þórhallsdóttir, f. 2004.
Foreldrar: Aðalsteinn Haraldsson, f.
1956, fv. sjómaður, og Ragnhildur Kristín
Einarsdóttir, f. 1960, aðstoðarskólastjóri
í Borgarnesi. Stjúpfaðir er Haukur Vals-
son, f. 1958, sjúkraflutningamaður.
Íris
Aðalsteinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Öðrum finnst kraftur þinn helst til
mikill og stendur ógn af þér í dag. Það er
engin ástæða til að skríða í duftinu fyrir
aðra.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú skilur vísbendingar sem ástvinir
gefa þér. Hugurinn er sterkt afl og það má
líka sitja kyrr á sama stað en samt vera að
ferðast.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að finna tíma fyrir
sjálfa/n þig núna. Gættu sérstaklega að
útgjöldunum og dragðu þau saman eftir
mætti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Foreldrar eru fyrirmyndir, það sem
þú gerir skiptir miklu máli. Einhver reynir
að bregða fyrir þig fæti, vertu með augun
opin.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú gefur mikið af þér til fólks í kring-
um þig. Ekki óttast hið óþekkta. Þú ert
komin/n á græna grein í lífinu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er einhver spenna í þér og
hætt við að þú látir það bitna á fólkinu í
kringum þig. Hertu upp hugann og farðu
inn á brautir sem hafa valdið þér kvíða.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er allt í lagi að rétta öðrum hjálp-
arhönd en þú verður að passa upp á að
fara ekki yfir strikið í hjálpseminni. Viljir
þú kynnast nýju fólki er ágæt leið að finna
sér nýtt áhugamál.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vertu opinn fyrir fleiri en
einni lausn á viðkvæmu deilumáli, sem þú
stendur í. Mistök eru til að læra af þeim.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er erfitt að gera svo öllum
líki. Einhver slær þér gullhamra sem gleðja
þig mjög. Ástarsamband líður undir lok.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gefðu þér tíma til útiveru því
það hressir upp á sálarlífið. Leyfðu fólki að
hafa sínar skoðanir. Þú kemst í kast við
lögin.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það getur verið erfitt að standa
á sínu þegar allir virðast annarrar skoð-
unar. Hlustaðu á röddina sem heldur aftur
af þér en haltu svo þínu striki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú munt komast yfir upplýsingar
sem þú áttir ekki að fá. Leyfðu mönnum
að gaspra, þeir gefast upp og þá kemur
þinn tími.
R
únar Helgi Haraldsson
fæddist 17. maí 1969 í
Reykjavík. „Ég er al-
inn upp á Gunnars-
braut 36 í húsi sem afi
og langafi byggðu og var í sveit að
Bæjum við Ísafjarðardjúp 1986. Ég
gekk í Flugbjörgunarsveitina í
Reykjavík 1987, nýliðaþjálfun, og
varð fullgildur meðlimur árið 1989.
Ég hætti síðan virkri þátttöku þeg-
ar ég fór til framhaldsnáms 1994.“
Rúnar gekk í Æfingaskóla Kenn-
araháskólans (nú Háteigsskóli),
varð stúdent frá Mennaskólanum í
Hamrahlíð 1991, lauk BA-prófi í
mannfræði frá Háskóla Íslands með
félagsfræði sem aukagrein 1993,
lauk kennaraprófi frá Háskóla Ís-
lands 1994, lauk MA-prófi í heil-
brigðismannfræði frá School of
Oriental and African Studies, Uni-
versity of London 1995 og lauk
diplómanámi í geðmeðferðarfræði
við University of Sheffield 2011.
Rúnar var meðferðarfulltrúi við
sambýlið Stuðlasel, þar sem bjuggu
fullorðnir einstaklingar með þroska-
hamlanir, 1991-1994, var umsjón-
armaður heilsdagskóla Vesturbæj-
arskóla 1995-1997,
meðferðarfulltrúi við sambýlið
Bröndukvísl sem þá var stofnun
með dreifða þjónustu við ein-
staklinga með þroskahamlanir og
geðræn einkenni, 1999-2004 og
kennari við Foldaskóla í Grafarvogi
1997-2004.
Hann var kennari í samfélags-
greinum við Menntaskólann á Ísa-
firði 2004-2014 og var sviðsstjóri fé-
lagsgreina þar frá 2006. Hann var
sérfræðingur við Fjölmenningar-
setur frá maí 2014 til desember
sama ár og tók þá við sem for-
stöðumaður þar.
Fjölmenningarsetur hefur það
hlutverk að greiða fyrir sam-
skiptum fólks af ólíkum uppruna og
efla þjónustu við innflytjendur sem
búsettir eru á Íslandi. „Við byrj-
uðum sem verkefni í félagsmála-
ráðuneyti 2003, Fjölmenningarsetur
verður síðan sjálfstæð stofnun 2012
og við störfum eftir lögum um inn-
flytjendur og er eina ríkisstofnunin
á Vestfjörðum sem þjónar öllu
landinu. Innflytjendum hefur verið
að fjölga mikið undanfarin ár eftir
uppgang í efnahagslífinu og því
fylgja vaxtarverkir og ýmis atriði
sem þarf að takast á við, húsnæðis-
mál og réttindamál, og svo atriði
eins og íslenskukennsla og túlka-
þjónusta. Svo veitum við ein-
staklingum, fyrirtækjum og sveit-
arfélögum ráðgjöf.“ Þrjú stöðugildi
eru hjá Fjölmenningarsetri en
margir verktakar hafa komið að
ráðgjöf og nú á að fjölga stöðugild-
um vegna flóttamanna.
„Það eru vissulega áskoranir í
þessu starfi eins og sést hefur í
fréttum. Starfið er mjög fjölbreytt
og gefandi og fyrir einstakling sem
hefur áhuga á samfélagsmálum er
það mjög lærdómsríkt.
Rúnar var umsjónarmaður nám-
skeiðs (ásamt Halldóri Jónssyni) í
eigindlegum rannsóknaraðferðum
fyrir fagmenntað starfsfólk Land-
spítala - Háskólasjúkrahúss 2003
og var stundakennari við HÍ 2006-
07 og kenndi á námskeiðinu „Túlk-
un í heilbrigðiskerfinu“. Hann er
höfundur ritsins Inngangur að
mannfræði sem er ætlað byrj-
endum á framhalds- og háskóla-
stigi.
Rúnar stundaði rannsókn á við-
horfum foreldra til sýklalyfja og
eyrnabólgu 1995-2002 og rannsókn
á viðhorfum Íslendinga til bólusetn-
inga og hugmyndum þeirra um
ónæmiskerfið 2002-2003 ásamt
Halldóri Jónssyni. Enn fremur
rannsókn á áhættumati Íslendinga
varðandi heilkenni alvarlegrar og
bráðrar lungnabólgu og rannsókn á
lífsháttum og lífsreynslu offitu-
sjúklinga á biðlista eftir offitu-
meðferð á Reykjalundi auk þess
sem hann vann að rannsóknum fyr-
ir Fjölmenningarsetur áður en
hann varð fastráðinn starfsmaður
þar.
Rúnar var í stjórn sundfélagsins
Vestra á Ísafirði 2005 til 2007.
Hann hefur verið í stjórn siglinga-
klúbbsins Sæfara frá 2009 til dags-
ins í dag ef undanskilið er tímabilið
2017 til 2019 og er nýlega sestur í
Rúnar Helgi Haraldsson, forstöðumaður Fjölmenningarseturs – 50 ára
Feðginin Rúnar og Emma á leið upp á Fimmvörðuháls í fyrra.
Í fjölbreyttu og gefandi starfi
Á skíðum Bjarney og Rúnar á
skíðasvæðinu á Ísafirði.
Kajakmaður Rúnar staddur við
aðstöðu Sæfara á Ísafirði.
Karl Davíðsson og Margrét Eyfells eiga 50
ára brúðkaupsafmæli í dag. Þau voru gefin
saman í Dómkirkjunni í Reykjavík 17. maí 1969
af séra Ingimari Ingimarssyni.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
30 ára Veróníka er
Reykvíkingur og
myndlistarmaður og
vinnur á leikskólanum
Hulduheimum og gaf í
fyrra út bókina Herra
blýantur og litadýrð.
Maki: Daníel Martyn
Knipe, f. 1989, ábyrgðarfulltrúi hjá
Toyota.
Börn: Amelía Nótt, f. 2014, og Atlas Þór,
f. 2016.
Foreldrar: Gunnar Bjarki Hrafnsson, f.
1966, bús. á Kjalarnesi, og Sigurlaug
Stella Ágústsdóttir, f. 1967, bús. í
Grafarvogi.
Veróníka Björk
Gunnarsdóttir
Til hamingju með daginn