Morgunblaðið - 17.05.2019, Síða 27
þegar komið með forystuna og gerði
nánast út um leikinn í uppbótartíma
fyrri hálfleiks með sínu öðru marki.
Ásgeir Marteinsson og Birkir Val-
ur Jónsson voru í aðalhlutverkum því
Birkir skoraði fyrra markið með hör-
kuskalla eftir hornspyrnu Ásgeirs, og
seinna markið gerði Ásgeir eftir
glæsilegt spil upp hægra megin þar
sem Birkir Valur var í aðalhlutverki
og renndi boltanum út í teiginn á fé-
laga sinn.
Ásgeir var besti maður vallarins,
ógnandi og útsjónarsamur í sókn-
arleik HK, auk þess sem horn-
spyrnur hans og aukaspyrnur, sem
hann tekur ýmist með hægri fæti eða
vinstri, sköpuðu ítrekað hættu í víta-
teig Eyjamanna.
Með 2:0 forystu í seinni hálfleik og
manni fleiri var HK nánast með yf-
irburði á vellinum og ef Máni Aust-
mann hefið verið með skotskóna
reimaða hefði hann mögulega getað
gert þrennu fyrir Kópavogsliðið.
Hann fór illa með nokkur upplögð
færi og átti m.a. hörkuskot í inn-
anverða stöngina á marki ÍBV.
HK-liðið er vel spilandi á góðum
degi og sýndi það í verki í seinni hálf-
leik. Hleypti ÍBV aldrei inn í leikinn.
Eyjamenn voru aldrei líklegir eftir
hlé og andleysi þeirra kom satt best
að segja talsvert á óvart. Einhvern
tíma hefði maður séð lið ÍBV berjast
og seiglast í svona stöðu en á köflum í
seinni hálfleik var um hreina uppgjöf
að ræða. HK-ingar fengu að leika sér
með boltann nánast óáreittir á
löngum köflum og sigla sigrinum í
höfn á eins þægilegan máta og hugs-
ast getur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Barátta Birkir Valur Jónsson,
HK, og Eyjamaðurinn Sigurður
Arnar Magnússon t.h. í baráttu.
Birkir Valur skoraði fyrra mark
HK og lagði upp það síðara.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, er komin til
Þórs/KA í láni frá Kristianstad næstu
tvo mánuðina. Tveggja mánaða hlé
verður gert á sænsku úrvalsdeildinni
vegna HM eftir næstu helgi og Þórdís
mun aðeins missa af einum leik með
liðinu vegna dvalarinnar á Akureyri.
Arnar Daði Arnarsson hefur verið
ráðinn þjálfari karlaliðs Gróttu í hand-
knattleik en það féll úr úrvalsdeildinni
í vor. Arnar hefur þjálfað yngri flokka
hjá Val undanfarin ár en einnig ung-
mennalið félagsins og verið aðstoð-
arþjálfari meistaraflokks kvenna.
Hólmbert Aron Friðjónsson var á
skotskónum með liði Aalesund í
norsku B-deildinni í knattspyrnu í gær.
Hólmbert skoraði tvö af mörkum sinna
manna þegar þeir höfðu betur gegn
Tromsdalen 5:0 en hann lék allan tím-
ann sem og þeir Daníel Leó Grét-
arsson og Aron Elís Þrándarson. Aale-
sund er í toppsæti deildarinnar en
liðið hefur unnið sjö af átta leikjum
sínum og gert eitt jafntefli.
Aron Sigurðarson skorað tvö marka
Start í 3:2 sigri gegn Jerv einnigí B-
deildinni.
Þýska knattspyrnuliðið Werder
Bremen hefur staðfest að Aron Jó-
hannsson yfirgefi liðið eftir leiktíðina
og verður hann kvaddur fyrir síðasta
leik liðsins gegn Leipzig á laugardag-
inn.
Aron hefur verið sérlega óheppinn
með meiðsli frá því hann gekk í raðir
Werder Bremen frá hollenska liðinu AZ
Alkmaar fyrir fjórum árum. Aron hefur
ekkert komið við sögu með Bremen í
deildinni á tímabilinu en á síðustu leik-
tíð lék hann tólf deildarleiki og skoraði
í þeim eitt mark.
Eitt
ogannað
Fram og Haukar skildu með skiptan hlut í upphafsleik
þriðju umferðar Inkasso-deildar karla í knattspyrnu á
Framvelli í Safamýri í gærkvöldi, 1:1.
Fram fékk óskabyrjun þegar Fred Saraiva skoraði
strax á fimmtu mínútu. Hann var réttur maður á réttum
stað og hirti frákast eftir að markvörður Hauka, Óskar
Sigþórsson, hafði varið skot en ekki tekist að hafa hend-
ur á boltanum. Forystan hélst ekki út hálfleikinn því
Ísak Jónsson jafnaði metin fyrir Hauka á 38. mínútu.
Framarar urðu fyrir áfalli á 65. mínútu þegar Marcão
fékk beint rautt spjald eftir að hann sló til eins leik-
manns Hauka. Einum færri tókst Fram að halda sjó en
liðið hefur nú fjögur stig að loknum þremur leikjum og situr í fjórða sæti.
Haukar eru enn án sigurs en niðurstaðan í leiknum í gær þýðir að liðið
hefur gert í tvígang jafntefli auk eins tapleiks. Haukarnir sitja í níunda
sæti. iben@mbl.is
Skiptur hlutur í Safamýri
Fred
Saraiva
1:0 Alexander V. Þórarinsson 24.
2:0 Aron Jóhannsson (víti) 30.
2:1 Björgvin Stefánsson 60.
I Gul spjöldRené Joensen, Rodrigo Gó-
mez, Marino Axel Helgason, Vladimir
Tufegdzic, Jón Ingason (Grindavík).
Tobias Thomsen, Björgvin Stef-
ánsson (KR).
GRINDAVÍK – KR 2:1
M
Vladimir Tufegdzic (Grindavík)
Alexander V. Þórarinsson (Grind.)
Elias Tamburini (Grindavík)
Marc McAusland (Grindavík)
Aron Jóhannsson (Grindavík)
Josip Zeba (Grindavík)
Björgvin Stefánsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Dómari: Þorvaldur Árnason, 4.
Áhorfendur: Á að giska 500.
0:1 Orri Sigurður Ómarsson 5.
I Gul spjöldGeoffrey Castillion (Fylki), Ari
Leifsson (Fylki), Sebastian Hedlund
(Val), Einar K. Ingvarsson (Val)
FYLKIR – VALUR 0:1
M
Ásgeir Eyþórsson (Fylki)
Helgi V. Daníelsson (Fylki)
Ólafur Ingi Skúlason (Fylki)
Hannes Þ. Halldórsson (Val)
Orri S. Ómarsson (Val)
Haukur P. Sigurðsson (Val)
Einar K. Ingvarsson (Val)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson, 4.
Áhorfendur: 1.290.