Morgunblaðið - 21.05.2019, Side 6

Morgunblaðið - 21.05.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 15-20% afsláttur af ÖlluM AEG VÖruM OrMssOn DAGAR Skoðaðu úrvalið okkar á *SENDUM FRÍTT Í VEFVERSLUNLágmúli 8 | S: 530 2800 þú færð HeiMilstækin Hjá Okkur VEGGOFNARHELLUBORÐ ÖRBYLGJUOFNAR 20% afsláttur 20% afsláttur 15% afsláttur SKOÐAÐU TILBOÐIN OKKAR Á Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að nauðga stúlku í febrúar 2017 í þremur herbergjum hús- næðis í Reykjavík. Í ákæru frá embætti héraðs- saksóknara kemur fram að menn- irnir hafi beitt stúlkuna ólögmætri nauðung með því að notfæra sér ölvunarástand hennar og yfir- burðastöðu sína, þar sem stúlkan var stödd með þremur ókunnugum mönnum fjarri öðrum. Þeir brutu gegn henni hver í sínu lagi. Tveir mannanna eru sagðir hafa haft samfarir við stúlkuna og nýtt sér til þess yfirburðastöðu sína gagnvart henni sökum aldurs og þroskamunar, en einn þeirra mun hafa látið hana hafa við sig munn- mök. Stúlkan, sem var ekki orðin 18 ára þegar brotin áttu sér stað, fer fram á mennirnir greiði henni fimm milljónir króna í miskabæt- ur. Málið verður þingfest í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í upphafi næstu viku og verður þinghaldið lokað. Þrír menn ákærðir  Beittu stúlku ólögmætri nauðung Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Útför Stefáns Friðbjarnarsonar blaðamanns Útför Stefáns Friðbjarnarsonar, fyrrverandi bæjarstjóra á Siglu- firði og blaðamanns á Morgun- blaðinu, fór fram í gær frá Digraneskirkju í Kópavogi. Stefán fæddist 16. júlí 1928 á Siglufirði. Hann sat í bæjar- stjórn Siglufjarðar í 16 ár frá 1958-1974. Hann var bæjarritari árin 1962-1966 og bæjarstjóri frá 1966-1974. Stefán var lengi fréttaritari Morgunblaðsins á Siglufirði en flutti til Reykjavík- ur 1974 og hóf þá störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Stefán var lengi vel umsjónar- maður þingfrétta blaðsins og sinnti einnig stjórnmálaskrifum allt þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1998. Stefán tók þátt í margvíslegum félagsstörfum á lífsleiðinni og var sæmdur riddarakrossi hinn- ar íslensku fálkaorðu árið 1996 fyrir störf sín að félagsmálum. Þau Kristinn Ingvarsson, Rósa Elín Davíðsdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir, Stefán Kjartans- son, Hinrik Þór Harðarson, Helga Sigmundsdóttir, Hulda Sigmundsdóttir og Arnar Sig- mundsson báru Stefán til graf- ar. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þórður Birgir Bogason, fram- kvæmdastjóri RR Hótela, segir útlit fyrir sambærilegt sumar í ferðaþjón- ustu og í fyrrasumar. Hins vegar hafi orðið samdráttur í apríl og maí í kjöl- far gjaldþrots WOW air. Eftir fall fé- lagsins hafi bókunum með skömmum fyrirvara fækkað verulega. RR Hótel tóku nýtt íbúðahótel í notkun fyrr í þessum mánuði. Það er í endurgerðu framhúsi og nýju bak- húsi á Hverfisgötu 78. Bakhúsið er gert úr límtréseiningum frá Aust- urríki og er að líkindum fyrsta slíka hótelið á höfuðborgarsvæðinu. Alls 16 hótelíbúðir eru í húsunum tveimur og eru RR Hótel því með 63 íbúðir í nokkrum húsum í miðborginni. Byggt fyrir bókbandsstofu Húsið á Hverfisgötu 78 var kallað Bókfellshúsið eftir bókbandsstofunni Bókfelli, sem var stofnuð 1943. Húsið var byggt 1945-47 og hafa nokkrar prentsmiðjur verið í húsinu, sú síð- asta Formprent. „Sumarið lítur nokkuð vel út hjá okkur,“ segir Þórður Birgir. „Það er sambærilegt og undanfarin ár. Það sama segja þeir sem ég ræði við í ferðaþjónustunni. Vorið hefur aftur á móti verið erfiðara en síðustu ár. Bókanir líta vel út fram á haustið,“ segir Þórður Birgir og bendir á að 80-85% nýting hafi verið á hótelinu í maí en 92-93% nýting í maí í fyrra. „Við erum að selja gistingu á eitt- hvað lægra evruverði en oft áður – samkeppnin er mikil – og gengi krón- unnar hefur hjálpað okkur að selja þennan áfangastað. Ég held að við, og eflaust margir, værum í veruleg- um vandræðum ef krónan væri skráð eins og hún var fyrir ári. Ef evran væri í kringum 123 krónur en ekki tæplega 140 krónur,“ segir Þórður Birgir. Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segir bókunarstöðuna áberandi lakari en í fyrra. Hann tek- ur fram að gögnin séu ófullkomin og taki mið af stöðunni á höfuðborg- arsvæðinu, sem sé betri en úti á landi. „Miðað við þær upplýsingar sem við höfum á höfuðborgarsvæðinu er 10-12% samdráttur milli ára,“ segir Jóhannes og vísar til fyrstu fjögurra mánaða ársins. Hann segir samdráttinn hafa birst strax í kjölfar niðurskurðar hjá WOW air í desember og svo aukist eftir gjaldþrot flugfélagsins. „Okkur sýnist bókunarstaðan hjá gististöðum í sumar vera töluvert lakari en undanfarin ár. Um miðjan júní ætti myndin að skýrast,“ segir Jóhannes Þór. Eftirspurn frá ferða- mönnum sem ferðast ódýrt hafi dregist töluvert saman. Til dæmis hjá hvalaskoðunarfyrirtækjum. Flugsæti fyrir þennan hóp skorti. Opna íbúðahótel á Hverfisgötu  RR Hótel taka Bókfellshúsið í notkun  Framkvæmdastjóri SAF segir 10-12% samdrátt milli ára Íbúðahótel RR Hótel tóku nýtt íbúðahótel í notkun á dögunum. Alls 16 hótelíbúðir í tveimur húsum við Hverfisgötu 78. Sumarið lítur vel út í bókunum. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.