Morgunblaðið - 21.05.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.05.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 ÁRMÚLA 26 – 108 REYKJAVÍK Meðal fjölmargra fyrirspurnaBjörns Levís Gunnarssonar alþingismanns til ráðherra ríks- istjórnarinnar er fyrirspurn hans til heilbrigð- isráðherra um auglýsingar á samfélags- miðlum.    Spurningin ernýlega fram komin og hefur ekki verið svarað, en hún hljóðar svo: „Hvaða út- gjöld hafa Geislavarnir ríkisins, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Hjúkrunarheimilið Sólvangur, Sjúkrahúsið á Akureyri og að- alskrifstofa heilbrigðisráðuneyt- isins haft ár hvert frá árinu 2015 vegna auglýsinga eða kostaðrar dreifingar á samfélagsmiðlum, svo sem á Facebook, Instagram, You- Tube og Twitter? Svar óskast að- eins fyrir þær stofnanir sem hafa haft einhver slík útgjöld á tíma- bilinu.“    Það hlýtur að vera verulegt um-hugsunarefni fyrir hið op- inbera ef stofnanir þess auglýsa á samfélagsmiðlum en ekki í inn- lendum fjölmiðlum sem greiða skatta hér á landi og veita fólki vinnu hér á landi sem einnig greiðir hér skatta.    Hægðarleikur er að ná augumog eyrum landsmanna í gegnum íslenska fjölmiðla og það hlýtur að skjóta skökku við að op- inberir aðilar leiti til erlendra samfélagsmiðla í þessum tilgangi. Ekki síst þegar á sama tíma er rætt um að styrkja íslenska einka- rekna fjölmiðla vegna óeðlilegra markaðsaðstæðna. Björn Leví Gunnarsson Auglýsingar hins opinbera STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Flatarmál íslenskra jökla hefur minnk- að um 647 km² frá árinu 2000 og jafn- ast það á við áttfalt flatarmál Þing- vallavatns, eða um hálft Þingvallavatn á ári. Þetta kemur fram í Kvarðanum, nýjasta fréttabréfi Landmælinga á Ís- landi. Þar er fjallað um CORINE- landgerðarflokkunina svonefndu, sem uppfærð er á nokkurra ára fresti með nýjum gervitunglamyndum. Megintilgangur hennar er að afla sambærilegra umhverfisupplýsinga fyrir öll Evrópuríki og fylgjast með breytingum sem verða á landnotkun í álfunni með tímanum. Gerð fjórðu uppfærslu á CORINE- flokkuninni lauk í nóvember í fyrra og sýna helstu niðurstöður þeirrar upp- færslu að rýrnun jökla er mesta land- breyting á Íslandi um þessar mundir. Flatarmál jöklanna rýrnaði um 215 km² 2012-2018 og 647 km² frá árinu 2000, eða um 36 km² að meðaltali á ári. Aðrar helstu breytingar sem í ljós komu eru breytingar vegna árangurs af landgræðslu á Hólasandi í S.- Þingeyjarsýslu og á Haukadalsheiði, sunnan Langjökuls. Einnig sýnir hún að í eldgosinu sem myndaði Holu- hraun árið 2014 runnu 85 km² af hrauni yfir land þar sem aðallega voru sandar og jökuláreyrar áður. Eins er flokkunin sögð sýna fram á að á milli áranna 2000 og 2018 hafi byggð svæði og skógar stækkað. Hopa um hálft Þingvallavatn á ári  Íslenskir jöklar hafa rýrnað um 647 km² frá aldamótum  Skógar stækka Morgunblaðið/RAX Öræfajökull Íslenskir jöklar rýrna að meðaltali um 36 km² á ári. Bjarnfreður Ólafsson, lögmaður nú- verandi og fyrrverandi liðsmanna Sigur Rósar og endurskoðanda hljómsveitarinnar, lagði í gær fram frávísunarkröfu, við fyrirtöku máls er varðar meint skattsvik sveit- arinnar í Héraðsdómi Reykjavíkur. „Það er á grundvelli mannrétt- indasjónarmiða, við segjum að þetta sé brot á reglunum um tvöfalda málsmeðferð,“ sagði Bjarnfreður við fjölmiðla eftir fyrirtökuna. Munnlegur málflutningur um frá- vísunarkröfuna fer fram í Héraðs- dómi Reykjavíkur 12. september næstkomandi, en málið er höfðað gegn tónlistarmönnunum Orra Páli Dýrasyni, Kjartani Sveinssyni, Georg Hólm og Jóni Þór Birgissyni, auk endurskoðanda sveitarinnar, Gunnars Þórs Ásgeirssonar. „Klárlega“ skotið til MDE „Það er búið að úrskurða á þá refsingu, beitingu álags hjá ríkis- skattstjóra og þeir eru búnir að standa í þessum málaferlum eða þessu stappi í mörg, mörg ár. Málið hófst fyrst hjá skattrannsóknar- stjóra þar sem þeir voru með rétt- arstöðu sakbornings og síðan var málið flutt aftur til tveggja annarra stofnana, annars vegar til rík- isskattstjóra þar sem þessi refsing var svo ákveðin. Síðan fór málið í þann farveg að fara til saksóknara líka og allt er þetta sama málið. Það er bara galli á þessu réttarfari hér á landi, því miður,“ sagði Bjarn- freður. Hann bætti við að ef svo færi að íslenskir dómstólar myndu ekki fall- ast á frávísunarkröfuna yrði málinu „alveg klárlega“ skotið til Mann- réttindadómstóls Evrópu (MDE), sem hefur á undanförnum árum kveðið upp nokkra dóma í sambæri- legum málum. arnarth@mbl.is Sigur Rósar-menn fara fram á frávísun  Krafa lögð fram á grundvelli mannrétt- indasjónarmiða Morgunblaðið/Eggert Sigur Rós Farið var fram á frávísun málsins í héraðsdómi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.