Morgunblaðið - 21.05.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 21.05.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 VIÐTAL Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Anna Kristrún Einarsdóttir var ein af þeim fyrstu hérlendis til að kom- ast að því að hún bæri stökkbreytt BRCA2 gen, sem eykur líkur á krabbameini verulega, og jafnframt sú yngsta sem leitaði eftir þeirri vitneskju á sínum tíma. „Ég missti mömmu mína úr brjóstakrabbameini þegar ég var sextán ára. Nokkrum dögum áður en hún lést sagði hún mér að hún hefði fengið óljósar fréttir um að krabbamein gæti verið arfgengt. Hún vissi svo sem ekki meira um það og vissi ekki hvar væri hægt að leita þessara upplýsinga en bað mig um að fylgja þessu eftir og gá hvort ég gæti látið athuga með mig.“ Anna lét ekki tilleiðast alveg strax. „Þarna vissi hún greinilega í hvað stefndi en á þessum tíma var ég auðvitað enn þá í mikilli afneitun svo ég hugsaði ekkert mikið út í þetta. Eftir að hún lést og móður- systir mín lést mánuði og einum degi síðar þá ákvað ég að skoða þetta en þetta varð mín leið til að takast á við sorgina. Mamma bað mig um að gera þetta svo ég ákvað að reyna að komast að þessu.“ Tveggja ára ferli Þegar Anna hóf leitina að svari við spurningu móður sinnar var um- ræðan um stökkbreytingu í BRCA2 geni mun minni en nú svo hún stóð frammi fyrir flóknu verkefni. „Ég fór að hringja út um allt og reyna að spyrjast fyrir um þetta. Ég ákvað að segja engum í fjöl- skyldunni frá því að ég væri að leita þessara upplýsinga því ég vildi ekki hræða neinn né vera að þröngva einhverjum upplýsingum upp á neinn sem kannski vildi þær ekki.“ Ferlið var tímafrekt, en það tók um það bil tvö ár. Fyrst sneri Anna sér til heimilislæknisins síns sem beindi henni svo áfram til Krabba- meinsfélagsins. Krabbameinsfélagið sendi hana svo áfram á Landspít- alann og Landspítalinn benti henni á erfðaráðgjöfina. „Ég var boðuð í viðtal hjá erfða- ráðgjöfinni og þurfti fyrst að fara í gegnum ættartréð mitt og sjá hvar krabbamein væri að finna. Það voru það margir sem höfðu fengið brjóstakrabbamein í ættinni minni að erfðaráðgjafinn sagði að það væri greinilegt mynstur.“ Næsta skref var svo að velja á milli tveggja erfiðra valkosta. „Annaðhvort að draga afa minn, sem hafði líka fengið brjósta- krabbamein, upp á Landspítalann til að fara í blóðprufu eða fá pabba til að skrifa undir eyðublað sem gaf leyfi til þess að skoða lífsýni hjá mömmu. Af því að ég var ekki búin að segja neinum frá þessu þá þorði ég ekki að tala við afa en pabbi skrifaði undir eyðublaðið um leið.“ Það tók um það bil ár að fá niðurstöður um það hvort mamma Önnu hefði verið arfberi. „Þá var ég boðuð aftur í viðtal hjá erfðaráðgjöfinni og þau sögðu mér að mamma hefði verið BRCA2 arfberi og sögðu að ef ég myndi kjósa þá mætti ég fara í blóðprufu til að kanna hvort ég væri það líka. Ég þáði það auðvitað og nokkrum vikum seinna boðuðu þau mig aftur í viðtal og sögðu mér að ég væri líka arfberi. Ég hefði í raun verið í miklu meira sjokki ef þau hefðu sagt mér að ég væri ekki BRCA2 arfberi.“ Vildi strax fara í aðgerðir Arfberum standa helst tveir kost- ir til boða, að fara í reglulegt eftirlit eða fyrirbyggjandi aðgerðir. Anna kaus seinni kostinn og fór í brjóst- nám. „Ég ákvað strax að fara í fyrir- byggjandi aðgerðir og vera ekkert að bíða vegna þess að aukna eftir- litið virkaði ekki í tilfelli mömmu. Hún var í auknu eftirliti en meinið var of smátt og of falið,“ segir Anna. Eftir að hún komst að því að hún væri arfberi fóru fleiri í kringum hana að kanna hvort þau væru það líka. „Nú hafa eiginlega allir í fjöl- skyldunni, í mínum ættlið og ætt- liðnum fyrir ofan, farið og látið at- huga þetta. Bara einn þeirra hefur fengið neikvæða niðurstöðu og það er bróðir minn.“ Aðspurð segir Anna að það hafi verið mikill léttir þegar í ljós kom að bróðir hennar væri ekki arfberi. „Það gaf okkur líka smá von því áður virtist þetta ekki hoppa yfir neinn svo loksins fékk einhver nei- kvætt út úr þessu. Þá er líka alveg von fyrir okkar börn.“ Eignaðist börn snemma Anna, sem er 28 ára í dag, á tvö börn en hún eignaðist þau þegar hún var 19 og 25 ára. „Það eru ellefu ár síðan mamma lést og ég er á svipuðum aldri og bróðir minn var þegar hún lést. Ef ég hefði fengið sama tíma með henni og hann þá hefði hún náð að kynnast tengdasyninum, hún hefði séð barnabörnin sín, mig útskrifast úr menntaskóla og háskóla. Þetta er bara brot af því sem hefur gerst á þessum ellefu árum, af því sem ég missti af að upplifa með henni og hún með mér. Ég held að það sé þessi lífs- reynsla sem hafi haft þau áhrif á mig að ég vildi reyna að eignast börnin mín ung. Ég vildi reyna að tryggja það að ég ætti sem lengstan tíma með þeim og þau með mér. Með því að fara í fyrirbyggjandi brjóstnám þá er ég búin að gera allt sem ég get gert til þess að reyna að tryggja það að ég verði til staðar því ég vil ekki missa af neinu.“ Hægt að grípa inn í Afi Önnu fékk brjóstakrabbamein í bæði brjóstin og talaði mjög op- inskátt um stökkbreytinguna í BRCA2 eftir að hann komst að því og fór í viðtal um málefnið árið 2013. Anna segir opinskáa umræðu um BRCA2 þýðingarmikla. „Það er mikilvægt að fólk sé meðvitað um þessar genabreytingar og það að það er hægt að athuga, með tiltölulega lítilli fyrirhöfn, hvort þú sért með þetta eða ekki og að fólk sé meðvitað um að hægt sé að grípa inn í. Það er hægt að bregðast við. Þetta er ekki eitthvað sem þú færð vitneskju um og þarft síðan að sitja bara og bíða. Þú getur gripið inn í, þú getur stjórnað eigin örlögum.“ Flestir í fjölskyldunni arfberar  Ber stökkbreytt BRCA2 gen sem eykur til muna líkurnar á krabbameini  Leitaði svara 16 ára gömul að ósk látinnar móður sinnar  Fór strax í fyrirbyggjandi aðgerðir  Umræðan mikilvæg Morgunblaðið/Kristinn Magnússon BRCA Önnu er umhugað um að fólk sé meðvitað um genabreytingar sem þessar. „Þú getur stjórnað eigin örlögum.“ Bezt áflest er gæðakrydd sem hentar vel með flestummat. Kryddið inniheldur meðal annars hvítlaukspipar, sítrónupipar, papriku og salt. Kryddblandan er án allra aukaefna. BEZTÁFLEST Hvítlaukskryddblanda Heildarlosun hjá íslenskum flugrek- endum er líklega tvisvar til þrisvar sinnum hærri en þau rúm 820 þús- und tonn koltvísýringsígilda sem gerð hafa verið upp fyrir flug innan EES ríkja á síðasta ári. Þetta segir Margrét Helga Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun á sviði loftslagsmála og græns sam- félags. Umhverfisstofnun hefur birt tölur síðasta árs fyrir losun íslenskra flug- rekenda og íslensks iðnaðar. Þær tölur sýna að losunin hélt áfram að aukast í fyrra og var heildarlosun í flugi sem fellur undir kerfið 820.369 tonn koltvísýringsígilda og losun frá iðnaði 1.854.715 tonn. Í báðum til- fellum var um aukningu að ræða milli ára. Margrét Helga segir ekkert í þessum tölum koma Umhverfis- stofnun á óvart. „Iðnaðurinn er nokkuð stöðugur og ástæðan fyrir aukningunni í fyrra er sú að það var að koma nýtt fyrirtæki á markað. Margrét Helga vísar þar til PCC á Bakka sem hóf rekstur á síðasta ári. „Þannig að ég geri ráð fyrir að fyrir árið 2019 verði aukningin meiri, því þá verður PCC búið að vera í fullum gangi í heilt ár.“ Margrét Helga samsinnir því að losunin 2018 hefði væntanlega verið enn meiri í fyrra ef kísilver United Silicon hefði ekki orðið gjaldþrota í byrjun þess árs. Sú losun sem gerð er upp vegna flugsins á eingöngu við um flug inn- an EES-svæðisins og tekur því ekki á heildarlosun flestra flugrekenda, þar sem t.d. Ameríkuflug er ekki innan gildissviðs kerfisins eins og er. Margrét Helga segir af þessum sök- um geta verið erfitt að meta flugið, þar sem heildarlosunartala liggi ekki fyrir. Spurð hversu miklu hærri hún telji þó heildarlosunina vera segir hún: „Ég geri ráð fyrir að það megi vel tvö- til þrefalda hana til að fá heildarlosunina.“ annaei@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Flug Losun jókst á síðasta ári. Heildarlosun frá flugi allt að þreföld  Nýjar tölur sýna aukningu milli ára

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.