Morgunblaðið - 21.05.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
alnabaer.is
Þrjár gerðir: þunnar, með sólarvörn og myrkvunar.
Henta mjög vel í skáglugga og þakglugga.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 7.900
Str. 36-52
Fleiri litir
Buxur
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta var mjög ljúft. Ég er yfir-
leitt metnaðarfull og legg mikið á
mig til að ná markmiðum mínum.
Það var því gaman að geta klárað
almennilega,“ segir Árný Oddbjörg
Oddsdóttir, hestakona frá Selfossi,
sem sópaði að sér verðlaunum á
reiðsýningu Hólanema sem fram
fór um helgina. Hún vann verð-
launagripinn Morgunblaðshnakkinn
sem veittur er fyrir besta heildar-
árangur í öllum reiðmennskugrein-
um í BS-námi í reiðmennsku og
reiðkennslu og verðlaun Félags
tamningamanna fyrir besta árangur
á lokaprófi í reiðmennsku.
Reiðsýningin var á reiðvelli Hóla-
skóla og var felld inn í dagskrá
hestaíþróttamóts UMSS og hesta-
mannafélagsins Skagfirðings. Í lok
sýningar færði Súsanna Sand
Ólafsdóttir, formaður Félags tamn-
ingamanna, nemana tólf sem nú
hafa lokið þriggja ára námi í hina
bláu einkennisjakkana með rauða
kraganum.
Horfði á hestana
Árný segir að námið hafi verið
skemmtilegt, fjölbreytt og krefj-
andi. Hún tekur fram að hún hafi
verið heppin með hest, hafi fengið
hryssu lánaða hjá Berglindi
Ágústsdóttur í Efra-Langholti. „Ég
hef alltaf haft mikinn áhuga á hest-
um,“ segir Árný þegar hún er
spurð að því hvers vegna hún hafi
valið þetta nám. Hún er fædd og al-
inn upp á Ísafirði þar sem ekki er
jafn mikill áhugi á hestamennsku
og á Suðurlandi þar sem hún býr
nú. „Ég átti þó fjölskyldu hér fyrir
sunnan svo það þurfti ekkert að
hafa ofan af fyrir mér þegar for-
eldrarnir óku suður, það voru alltaf
nógir hestar til að skoða út um bíl-
gluggann.
Mig langar til að einbeita mér að
þjálfun og reiðkennslu. Það var
enginn í kringum mig í hestum og
þess vegna var það verðmætt fyrir
mig að kynnast fólki sem var tilbú-
ið að segja mér til. Ég er því mikið
tilbúin til að halda því áfram og
hjálpa öðrum,“ segir hún.
Vinnur við þjálfun
Árný býr með kærasta sínum,
Arnari Bjarka Sigurðarsyni, á
Sunnuhvoli í Ölfusi. Hún verður þar
í sumar og næsta vetur að vinna við
þjálfun hjá tengdaforeldrum sínum.
Einnig stendur til að hún vinni fyr-
ir reiðtygjaframleiðandann Hrímni
sem gefur út fræðslumyndbönd um
ýmsa þætti hestamennskunnar.
Hún segir að námið skipti máli
því margir ræktendur vilji aðeins
Hólamenntað fólk í vinnu. „Það er
því verðmætt að hafa þessa gráðu
þegar maður vill komast í góða
vinnu á þessu sviði,“ segir Árný.
Vil hjálpa öðrum
Árný Oddbjörg Oddsdóttir frá Selfossi fékk Morgunblaðs-
hnakkinn og verðlaun FT afhent á reiðsýningu Hólanema
Reiðkennarar Nemarnir tólf, sem nú eru að ljúka námi, komnir í bláu tamningamannajakkana.
Hlaðin verðlaunum Árný Oddbjörg Oddsdóttir með reiðkennurum sínum í
Háskólanum á Hólum, Antoni Páli Níelssyni og Mette Moe Manseth.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Viðurkenningarskjöldur frá Al-
þjóðaveðurfræðistofnuninni var af-
hjúpaður í Stykkishólmi á föstudag-
inn var. Hann var veittur fyrir
meira en 100 ára samfelldar veður-
mælingar í bænum. Veðurathug-
anir hafa verið skráðar samvisku-
samlega í Stykkishólmi í samfleytt
173 ár en Árni Thorlacius hóf að
skrá veðurathuganir þar í nóv-
ember 1845.
Í tilefni af viðurkenningunni var
haldið erindi á vegum Veðurstofu
Íslands í Eldfjallasetrinu í Stykk-
ishólmi í samstarfi við Norska hús-
ið. Árni lét einmitt reisa Norska
húsið fyrir fjölskyldu sína en hann
var kaupmaður, útgerðarmaður og
bóndi í Stykkishólmi. Kristín Björg
Þorláksdóttir, sérfræðingur á sviði
veðurfarsrannsókna á Veðurstofu
Íslands, sagði þar frá starfi Árna og
sögu veðurathugana í Stykkis-
hólmi. Hún sagði að upphaf veð-
urathugana hans hefði markað
þáttaskil í veðurathugunum hér á
landi. Þá hófust reglulegar hita-
mælingar og hafa þær staðið nán-
ast óslitið síðan. Aðeins sex aðrar
stöðvar í Evrópu geta státað af
lengri samfelldri mælasögu en
Stykkishólmur, að sögn Kristínar,
samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni.
Verjum miklu í veðurathuganir
Óðinn Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri athugana- og tækni-
sviðs Veðurstofunnar, fjallaði einn-
ig um þær miklu breytingar sem
orðið hefðu á sviði athugana frá því
að Árni Thorlacius hóf skrán-
inguna. Hann benti m.a. á að auk
athugana á jörðu niðri hefðu bæst
við athuganir úr veðursjám og
einnig frá gervitunglum.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni voru fyrstu veðurathug-
anir með mælitækjum gerðar hér á
landi á 17. öld. Þær voru brota-
kenndar þar til kom fram á 18. öld.
Dagleg skráning veðurathugana
nær samfellt aftur til ársins 1822,
en þó ekki á sama stað allan tím-
ann. Elstu veðurathugunarstöðvar
sem enn eru í rekstri eru Stykkis-
hólmur, frá árinu 1845, Teigarhorn
frá 1872, Akureyri frá 1881, Gríms-
staðir frá 1907, Reykjavík frá 1920
og Sámsstaðir frá 1927.
Íslendingar leggja meira til veð-
urathugana en nokkur önnur þjóð
miðað við fólksfjölda. Landið er á
einu veðurvirkasta svæði norður-
hvels jarðar.
Ljósmynd/Veðurstofa Íslands
Norska húsið F.v.: Óðinn Þórarinsson framkvæmdastjóri, Hjördís Páls-
dóttir safnstjóri, Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri, Kristín Björg Ólafs-
dóttir sérfræðingur og Wioletta Maszota veðurathugunarmaður.
Viðurkenning fyrir
veðurathuganir
Löng saga athugana í Stykkishólmi
Karlmaður sem var sakfelldur fyrir
kynferðisbrot gegn stjúpdóttur
sinni og dóttur í Héraðsdómi
Reykjaness í apríl hefur áfrýjað sex
ára dómi sínum til Landsréttar.
Þetta staðfesti Sigríður Friðjóns-
dóttur ríkissaksóknari við mbl.is í
gær. Sigríður staðfesti einnig að
eiginkona mannsins, sem hlaut
fimm ára dóm í málinu, hefði enn
ekki áfrýjað, en frestur til þess
rennur út 24. maí.
Hjónin hafa setið í gæslu-
varðhaldi frá því að dómur var
kveðinn upp 24. apríl síðastliðinn.
Ákvörðun var tekin um það að birta
héraðsdóminn ekki á vef dómstóls-
ins, til þess að hlífa brotaþola í mál-
inu.
Við þingfestingu málsins í októ-
ber játuðu hjónin brot sín að hluta,
en í ákæru kom fram að þau hefðu
brotið kynferðislega gegn dóttur
konunnar í sameiningu í febrúar í
fyrra og tekið bæði hreyfi- og ljós-
myndir af brotunum. Dóttur kon-
unnar voru dæmdar 2,5 milljónir
króna í miskabætur.
Hjónin voru sögð hafa framið
brotin að dóttur sinni viðstaddri,
þannig að hún horfði á foreldra
sína brjóta gegn hálfsystur sinni.
Maðurinn var einnig ákærður
fyrir að hafa í vörslu sinni ljós-
myndir og myndskeið sem sýndu
börnin á kynferðislegan hátt.
Áfrýjar dómi fyrir
brot gegn dætrum