Morgunblaðið - 21.05.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.05.2019, Qupperneq 16
Mig hefur lengi langað til að leggja orð í belg og skrifa um þessa endemis dellu og uppnám út af skipan dómaranna í Lands- rétt, sem varð svo til þess að Sigríður Á. Andersen dóms- málaráðherra var neydd með órétt- mætum ásökunum til að segja af sér. Þótt ég sé ekki löglærður taldi ég strax, eins og reyndar Bjarni Ben. sjálfur sagði í heyranda hljóði í sjón- varpinu eftir dóm Mannréttinda- dómstóls Evrópu, að sá dómstóll hefði ekkert dómsvald á landi hér. Ég skil heldur ekki ástæðu þess að aðrir löglærðir menn, sem fjölluðu um málið ruku upp til handa og fóta, skíthræddir við þennan dóm, sem hafði ekkert gildi á Ís- landi. Kæran til dóm- stólsins var líka, að mínu viti, algjörlega til- hæfulaus. Það höfðu engin mannréttindi verið brotin. Hæfn- isnefndin átti aðeins að mæla með 15 umsækj- endum, en endanlegt úrskurðarvald var hjá ráðherranum og Al- þingi. Nefndin virðist hinsvegar hafa ætlast til þess að ráðherrann og Alþingi afsöluðu valdi sínu til að skipa dómarana og að fara ætti alfarið eftir tillögu nefndarinnar; taka sem sagt völdin af ráðherra og Alþingi! Það á kannski að verða að venju eða tísku, eftir nýliðið fullveldisafmæli, að stjórnvöld afsali sér öllum völdum til einhverra nefnda, og jafnvel til út- landa? Síðan finnst mér að þessir þing- menn, sem gerðu allt upphlaupið og báru dómsmálaráðherra þungum sökum, ættu að skammast sín og biðja hana afsökunar. Þeir voru hin- ir sömu, sem greiddu skipan dóm- aranna atkvæði sitt, þegjandi og hljóðalaust, þótt þeir hefðu haft fullt frelsi til að hreyfa mótmælum eða gera athugasemdir. Loks á að vinda bráðan bug að því að ljúka þessu asnalega máli og veita Sigríði tafarlaust aftur embætti sitt. Hún er frábær dómsmálaráðherra. Um skipan landsréttardómara Eftir Knút Hauk- stein Ólafsson »Hæfnisnefndin átti aðeins að mæla með 15 umsækjendum, en endanlegt úrskurð- arvald var hjá ráðherr- anum og Alþingi. Knútur Haukstein Ólafsson Höfundur er eldri borgari. 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Netverslun er ein af þeim framförum sem fylgt hafa upplýs- ingatækni þróuninni síðast liðin ár og sú þróun er og mun verða örari á næstu misserum. Þróunin er að breyta kauphegðun neytenda og er stór hluti nútímaheimila að nýta sér viðskipti á netinu vikulega eða oftar. Þá er gott að skoða hina hliðina á peningnum sem snýr að áhættuþættinum. Í auknum mæli eru fréttir af við- skiptaháttum á netinu þar sem við- skiptavinir eru plataðir, t.d. með því að kaupa vöru eða þjónustu sem ekki er svo afhent eða innt af hendi. Algengar skýringar eru að um tafir sé um að ræða þangað til að á end- anum neytandinn tekur eftir að síð- an hefur verið lögð niður og hann situr eftir með sárt ennið. Húsráðin Til eru nokkur húsráð sem hægt er að hafa í huga í netviðskiptum eins og að kaupa ekki vöru eða þjónustu ef verðið er lygilega lágt eða ef lofað er að viðskiptin geri þig ríkan. Jafnframt eru til hjálparsíður eins og www.scamadviser.com sem gefa netverslunum einkunn varð- andi heiðarleika í viðskiptum. Það eina sem þarf að gera er að afrita vefsíðuna sem neytandinn er í vafa um og líma í leitarformið á „scam adviser“. Niðurstöðurnar eru mynd- rænar og sýna nokkuð ýtarlega hvað það er við vefsíðuna sem möguleg áhætta stafar af. Mik- ilvægt er þó að hafa í huga að skori netverslunin ekki alveg 100% í trausti þá er ekki þar með sagt að hún sé slæm en gott er að miða við að forðast síður sem skora 50% eða lægra. Þekktar netverslanir sem skora lágt Þekktar netverslanir eins og aliexpress.com, ebay.com og amazon.com skora til að mynda ekki 100% þó svo að við vitum að þessir vefir eru nokkuð öruggir. Þegar undirritaður skoðaði t.d. aliexpress.com þá fékk vefurinn 84% traust með athugasemd um að mögulega séu ekki allir söluaðilar innan síðunnar nægilega traustir en meldingin var: „Beware – some fake sellers“. Á Scam adviser má einnig finna flokk sem kallast „risk sites“ og þar er að finna lista yfir nýj- ustu síðurnar sem ekki er ráðlagt að versla við. Dæmi um netverslun sem ber að varast er shopsmartlystore.com og þar má m.a. finna vörur með lygilega lág- um verðum og útlit net- verslunarinnar er nokkuð gott, með ein- falt og þægilegt viðmót. Eina markmið slíkrar netverslunar er að komast yfir kreditkortanúmer hjá grunlausum viðskiptavinum. Trygging Sumar netverslanir hafa mjög áberandi öryggisvottanir á síðunum hjá sér sem geta verið heima- tilbúnar en blekkja neytandann og því ber að varast að treysta slíkum merkingum nema um þekktar vott- anir sé um að ræða. Flestir Íslendingar þekkja Ali Express sem er ein stærsta net- verslun í heimi og það sem gerir Ali svona stóra er að þar inni er gríð- arlega mikið magn mismunandi söluaðila sem eru að selja úr vöru- húsum Ali Express út um allan heim. Þar sem eigendur Ali eru meðvitaðir um áhættur sem fylgja mismunandi söluaðilum þá bjóða þeir upp á kaupvernd vara „Buyer Protection“ til þess að stemma stigu við kaupáhættu neytenda. Þessi vernd tryggir það að kaupandi sem ekki fær senda vöru eftir skil- greindan tíma er tryggður fyrir því og kaupin verða þá endurgreidd. Ebay er líka með samskonar kerfi og þar á bæ er það kallað „money back guaranty“. Lykilatriðið er því að vera með- vitaður um þær hættur sem leynast í viðskiptum á netinu, versla hjá þekktum aðilum sem leggja metnað sinn í að stuðla að öryggi viðskipta og nýta þau tól og tæki sem í boði eru til að meta áhættuna. Ekki láta plata þig í viðskiptum á netinu Eftir Ólaf Kristjánsson Ólafur Kristjánsson » Til eru hjálparsíður eins og www.scam- adviser.com sem gefa netverslunum einkunn varðandi heiðarleika í viðskiptum. Höfundur er tölvukennari. olafur@netkynning.is Þriðji orkupakkinn hefur verið til umræðu á Alþingi síðan í byrj- un apríl en eitt hefur einkennt umræðuna frá upphafi, hún er flókin. Reglugerðirnar eru tyrfnar, umræð- urnar ganga þvers og kruss og sérfræðing- arnir eru ekki sam- mála. Hvernig á venjulegt fólk að átta sig á þessu máli sem virðist vera mikið hags- munamál fyrir þjóðina? Komið hefur til umræðu hvort orkupakkinn geti átt hlutdeild í því að Landsvirkjun verði einkavædd og ber í því samhengi að nefna að Landsvirkjun er stór og mikil mjólkurkýr fyrir þjóðarbúið. Árið 2017 skilaði hún yfir 11 milljörðum í tekjur til þjóðarinnar og þrátt fyr- ir framkvæmdir 2018 þá fengum við rúma 4 milljarða í kassann. Svo eru bundnar vonir við að arðgreiðslur geti jafnvel náð upp í 10 til 20 millj- arða og fyrir svo lítið samfélag sem Ísland er, þá eru þetta miklir pen- ingar. Þegar við tökum einnig tillit til þess að á Íslandi búum við við eitt lægsta orkuverð í heiminum þá er eðlilegt að velta fyrir sér hvers vegna verið er að rugga orkubátn- um. Við höfum tekjur af Lands- virkjun sem er að öllu leyti í þjóð- areigu. Við greiðum lágt orkuverð. Hvaða ástæðu höfum við til þess að innleiða orkupakka sem ólíklegt er að verði til hagsbóta fyrir okkur Íslendinga? Ríkisstjórnin hefur notað ýmis rök fyrir máli sínu. Má þeirra á meðal nefna rökin um að orkupakkinn skipti ekki máli, að EES- samningurinn fari í uppnám ef við höfnum þessu, að við séum orðin of sein. Eins og fram hefur komið í umræðunni, og þá sérstaklega frá ríkisstjórninni sjálfri, þá er Ísland ótengt orkumarkaði Evrópu. Það mætti því ætla að fyrst orkupakk- inn skiptir ekki máli fyrir okkur, þá ætti hann ekki að skipta máli fyrir Evrópusambandið heldur og því ætti að vera auðfengið að innleiða hann ekki. Stefán Már Stefánsson, lagapró- fessor og einn álitsgjafi ríkisstjórn- arinnar varðandi orkupakkann, sagðist ekki hafa áhyggjur af því að við settum EES-samstarfið í upp- nám með því að hafna orkupakk- anum. Þetta er þó pólitískt mál og því er erfitt fyrir nokkurn að vita fyrir víst hvaða pólitískar afleið- ingar nokkur aðgerð getur haft, á Íslandi sem og erlendis. Eitt er þó kýrskýrt og það er lagalegur réttur okkar til að hafna orkupakkanum, en gerum við það fer hann aftur fyrir sameiginlegu EES-nefndina þar sem leitast verður við að ná samkomulagi. Samkomulag er gott orð. Það ætti öllum að vera ljóst að sam- komulagi hefur ekki verið náð um orkupakkann. Þjóðin er óánægð. Það hafa átt sér stað mótmæli. Settur hefur verið á fót hópur sem vinnur að því að kynna orkupakk- ann og vara fólk við afleiðingunum af innleiðingu hans. Óeining er á Alþingi og standa mótherjar í ströngu við að halda aftur af þeim sem vilja keyra málið í gegn á ljós- hraða og stimpla það og votta fyrir lok þingsins svo ríkisstjórnin geti farið brosandi inn í sumarfríið. Ég hef fylgst vel með umræðunni og lesið mér töluvert til í þessu flókna máli og í raun finnst mér niðurstaðan vera einföld. Ef þetta skiptir ekki máli, ef við getum hafn- að þessu og við búum við frábærar aðstæður í orkumálum, þá eigum við umhugsunarlaust að hafna orkupakkanum. Ekki myndi ég skrifa undir óhagstæðan samning fyrir sjálfa mig og vænti ég þess að Alþingi geri það ekki heldur fyrir hönd þjóðarinnar. Við höfum það gott í orkumálum, af hverju ættum við að óska þess að hafa það verra? Erum við að gera mistök? Eftir Hildi Sif Thorarensen » Sem einstaklingar gerum við ekki óhagstæða samninga, hvers vegna ættum við að gera það sem þjóð? Hildur Sif Thorarensen Höfundur er verkfræðingur hildursifgreinar@gmail.com Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.