Morgunblaðið - 21.05.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.05.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 SAMSTARFSAÐILI Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVAR SEM ÞÚ ERT Úrslitakeppni NBA Austurdeild, úrslit: Toronto – Milwaukee............... (frl.) 118:112  Staðan er 2:1 fyrir Milwaukee og fjórði leikur fer fram í Toronto í kvöld.  Í úrslitum Vesturdeildar var Golden State 3:0 yfir fyrir fjórða leikinn sem fram fór í Portland í nótt. Sjá mbl.is/sport. KÖRFUBOLTI KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Meistaravellir: KR – ÍBV ......................... 18 Þórsvöllur: Þór/KA – Breiðablik......... 18.30 Kórinn: HK/Víkingur – Valur ............. 19.15 Jáverkvöllur: Selfoss – Keflavík ......... 19.15 Í KVÖLD! Danmörk Úrslitakeppnin: Bröndby – Midtjylland ............................ 4:1  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn fyrir Bröndby.  Köbenhavn 82, Midtjylland 71, Esbjerg 53, OB 52, Bröndby 49, Nordsjælland 41. Einni umferð ólokið. Noregur Molde – Viking......................................... 5:1  Samúel Kári Friðjónsson var í liði Viking fram á 73. mínútu. Axel Óskar Andrésson er frá keppni vegna meiðsla. Staðan: Molde 10 7 1 2 25:10 22 Odd 9 7 1 1 15:6 22 Vålerenga 9 5 2 2 17:10 17 Bodø/Glimt 9 5 2 2 19:13 17 Brann 10 5 2 3 14:12 17 Kristiansund 10 5 2 3 11:10 17 Viking 9 4 2 3 13:13 14 Haugesund 9 3 3 3 12:8 12 Ranheim 9 3 1 5 12:15 10 Strømsgodset 9 2 3 4 12:14 9 Mjøndalen 9 2 3 4 14:17 9 Rosenborg 9 2 3 4 7:14 9 Lillestrøm 9 2 3 4 7:15 9 Sarpsborg 9 1 4 4 7:11 7 Stabæk 8 2 1 5 6:13 7 Tromsø 9 1 1 7 8:18 4 Ítalía Lazio – Bologna ........................................ 3:3 Efstu lið fyrir lokaumferð: Juventus 37 28 6 3 70:28 90 Napoli 37 24 7 6 72:33 79 Atalanta 37 19 9 9 74:45 66 Inter Mílanó 37 19 9 9 55:32 66 AC Milan 37 18 11 8 52:34 65 Roma 37 17 12 8 64:47 63 Torino 37 15 15 7 49:36 60 Lazio 37 17 8 12 55:43 59 Sampdoria 37 14 8 15 58:51 50 Sassuolo 37 9 16 12 52:57 43  HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Áhugi forráðamanna Ribe Esbjerg vaknaði í fyrra en þá afþakkaði ég vegna þess að komið var nærri keppnistímabilinu og ég var að hefja nám. Fyrirvarinn var of stuttur. Forráðamenn liðsins höfðu síðan aft- ur samband við mig snemma á þessu ári og þá ákvað ég að stíga skrefið, enda afar spenntur,“ sagði landsliðs- maðurinn í handknattleik Daníel Þór Ingason um vistaskipti sín í sumar er hann gengur til liðs við danska úr- valsdeildarliðið Ribe Esbjerg. Daníel Þór hefur skrifað undir þriggja ára samning við Jótana sem hyggjast komast í allra fremstu röð í dönskum handknattleik með sitt lið. Ribe Esbjerg hafnaði í níunda sæti í dönsku úrvalsdeildinni í vor og var hársbreidd frá áttunda og síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina um meistaratitilinn. Daníel Þór verður þriðji Íslend- ingurinn í herbúðum Ribe Esbjerg á næsta keppnistímabili. Fyrir eru Gunnar Steinn Jónsson og Rúnar Kárason sem báðir komu til liðsins á síðasta sumri. „Ég ræddi vel við Rúnar og Gunn- ar áður en ég tók ákvörðun um að skrifa undir samninginn. Þeir láta vel af öllu hjá félaginu. Aðstæður eru fyrsta flokks. Ég er viss um að með þessu er ég að stíga rétt skref á mín- um ferli. Ég er fullur eftirvæntingar að breyta til og spreyta mig í dönsku úrvalsdeildinni,“ sagði Daníel sem hefur slegið í gegn með Haukum á tveimur síðustu keppnistímabilum og unnið sér inn sæti í landsliðinu. Hann lék m.a. með landsliðinu á HM í Þýskalandi í janúar sl. og á alls 28 A-landsleiki að baki. Sennilegt er að Daníel Þór verði í landsliðshópnum sem tekur þátt í tveimur síðustu leikjum landsliðsins í undankeppni EM, gegn Grikkjum ytra og við Tyrki hér heima, í næsta mánuði. Stendur í ströngu Daníel Þór stendur í ströngu þessa dagana með Haukum sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn við Selfoss. Hann tryggði Haukum sigur með marki á síðustu andar- tökum annarrar viðureignar liðanna á föstudaginn í Hleðsluhöllinni á Sel- fossi. Haukar eru undir, 2:1, í vinn- ingum talið eftir þrjár viðureignir og tap á heimavelli á sunnudaginn. Haukar þurfa á sigri að halda annað kvöld á Selfossi til að knýja fram oddaleik á heimavelli á föstudaginn. „Mig langar að taka þann stóra með mér út. Það verður allt lagt í söl- urnar í leikjunum sem eftir eru. Kærasta Daníels Þórs, Sandra Erlingsdóttir, leikmaður Íslands- meistara Vals og landsliðskona, flyt- ur ekki með honum til Danmerkur í sumar. Sandra heldur sínu striki með þreföldu meistaraliði Vals eins og á nýliðnu keppnistímabili. Ég er fullur eftirvæntingar  Daníel Þór afþakkaði tilboð í fyrra Morgunblaðið/Ómar Danmörk Daníel Þór Ingason leikur með Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeild- inni á næsta keppnistímabili en hann samdi við félagið til þriggja ára. Sigrún Björg Ólafsdóttir úr Hauk- um og Þóranna Kika Hodge-Carr úr Keflavík hafa verið valdar í A- landslið kvenna í körfuknattleik í fyrsta sinn en þær eru í tólf manna hópi sem Benedikt Guðmundsson hefur valið fyrir Smáþjóðaleikana í Svartfjallalandi. Þá kemur Bryndís Guðmundsdóttir úr Keflavík í landsliðið á ný eftir þriggja ára fjarveru. Helena Sverrisdóttir er langreyndust í liðinu með 70 lands- leiki en Bryndís með 39 og Gunn- hildur Gunnarsdóttir með 29 koma næstar á eftir henni. vs@mbl.is Sigrún og Þór- anna eru nýliðar Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýliði Þóranna Kika Hodge-Carr úr Keflavík er í landsliðinu. Gríðarlegur áhugi er fyrir öðrum úr- slitaleik Sävehof og Alingsås um sænska meistaratitilinn í handknatt- leik sem fram fer í kvöld. Leikurinn fer fram á heimavelli Ágústs Elís Björgvinssonar landsliðsmarkvarðar og félaga í Sävehof sem er frá Par- tille í útjaðri Gautaborgar. Hátt í 3.000 miðar voru seldir síðdegs í gær. Sävehof hafnaði í sjöunda sæti í deild- inni en hefur sprungið út í úr- slitakeppninni. Sävehof vann fyrsta leikinn á útivelli. Ekki spillir fyrir áhuganum innan félagsins að kvenna- lið Sävehof varð meistari um helgina. Ágúst Elí og fé- lagar fá stuðning Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Úrslit Ágúst Elí Björgvinsson gæti orðið sænskur meistari. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fær sitt fyrsta tækifæri á LPGA- mótaröðinni í golfi, þeirri sterkustu heimi, á þessu keppnistímabili þeg- ar hún hefur leik í Williamsburg í Virginíu á fimmtudaginn. Þar keppir hún á Pure Silk-meist- aramótinu sem stendur yfir til sunnudags. Ólafía var sem kunnugt er með fullan keppnisrétt á LPGA 2017 og 2018 en missti hann eftir síðasta tímabil og fær nú takmarkaðan að- gang að mótaröðinni. Hún verður þó á tveimur mótum í röð því Ólafía keppir einnig á risamótinu US Open sem hefst í Suður-Karólínu fimmtudaginn 30. maí. Tvö undanfarin ár hefur Ólafía keppt á þessu móti í Williamsburg en það bar þá reyndar nafn Kings- mill. Í hvorugt skiptið komst hún í gegnum niðurskurðinn. Hún var fjórum höggum frá því árið 2017 en í fyrra stóð það afar tæpt. Ólafía virtist örugg áfram þegar tvær hol- ur voru eftir en þá fór allt úrskeiðis og hún sat eftir, einu höggi frá því að fara áfram. Í síðustu viku keppti Ólafía á Sy- metra-mótaröðinni, þeirri næst- sterkustu vestanhafs, og hafnaði þar í 58. sæti. Ólafía er í 444. sæti heimslistans í kvennaflokki sem kom út í gær og sígur niður um tíu sæti. Hún komst best í 170. sætið í janúar 2018. Val- dís Þóra Jónsdóttir er rétt á eftir, seig um fimm sæti og er í 450. sæti listans. Guðrún Brá Björgvinsdóttir er þriðji Íslendingurinn á listanum og er í 1.038. sæti. vs@mbl.is Hitar upp í Virginíu fyrir risamótið Ljósmynd/@olafiakri Ólafía Hún gæti leikið átta hringi á ellefu dögum ef vel tekst til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.