Morgunblaðið - 21.05.2019, Side 25

Morgunblaðið - 21.05.2019, Side 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 Mikið er það viðeigandi nú í lok valdatíðar Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel að sjá hann hefja á loft verðlaunagrip á sigurstundu, fagnandi enn einum titlinum með félaginu á meðan leikmenn hans baða sinn kæra þjálfara upp úr bjór að þýskum sið. Mikið afskaplega má Akureyringurinn líta stoltur um öxl þegar hann kveður „stærsta handknattleiks- félag heims“ í sumar. Það hefði verið hálfgerð synd ef Alfreð hefði stigið frá borði án þess að vinna verðlaun á kveðju- leiktíðinni, eftir allt það sem hann hefur afrekað með Kiel. En það kom auðvitað aldrei til greina. Kiel varð þýskur bikar- meistari og vann svo EHF- keppnina um helgina, og eftir sigur á Flensburg í toppslag þýsku deildarinnar á dögunum er enn talsverð von um að Kiel geti orðið þýskur meistari. Tvö stig skilja liðin að og fleiri koma ekki til greina í meistarabarátt- unni. Alfreð hefur á ferli sínum sem þjálfari fagnað um 30 titlum. Flestum þeirra, eða 20, hefur hann fagnað sem þjálfari Kiel og þannig orðið að algjörri goðsögn hjá þessu sigursælasta félagi Þýskalands. Enda verður blásið til mikillar kveðjuhátíðar í sumar. Það verður forvitnilegt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér hjá Alfreð. Hann sagði í viðtali við Ívar Benediktsson félaga minn í síðasta mánuði að hann væri staðráðinn í að taka sér að minnsta kosti hálfs árs frí áður en hann skoðaði framhaldið varðandi þjálfun. Einnig að hann væri svo í kjölfarið opinn fyrir því að taka að sér þjálfun lands- liðs. Einhvern tímann hefði mað- ur kannski óskað sér að íslenska landsliðið yrði fyrir valinu en það er hins vegar í afar öruggum höndum í dag. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is SUND Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Ég er afar sáttur við árangur helg- arinnar. Það gekk allt upp eins og að var stefnt,“ sagði sundmaðurinn Anton Sveinn McKee í samtali við Morgunblaðið í gærmorgun þar sem hann var staddur á flugvellinum í Indianapolis á heimleið til Boston, eftir að hafa tryggt sér farseðilinn á heimsmeistaramótið í sundi í 50 m laug sem fram fer í Gwangju í Suð- ur-Kóreu í lok júlí. Anton Sveinn náði lágmarki til þátttöku í 50 og 100 m baksundi á HM með framúrskarandi árangri á TYR Pro Swim Series-sundmótinu í Bloomington í Indiana um helgina. Um leið setti hann Íslandsmet í 50 m bringusundi. Bætti hann 10 ára gamalt met Jakobs Jóhanns Sveins- sonar um ríflega fjórðung úr sek- úndu, synti á 27,73 sekúndum. Ant- on Sveinn var nærri eigin meti í 100 m bringusundi á mótinu um helgina en hann komst einnig í úrslit í 200 m bringusundi. „Ég er afar sáttur við þennan árangur enda var ég alls ekki fullhvíldur fyrir átökin og tel mig þar af leiðandi eiga meira inni sem er jákvætt þegar litið er til þátttökunnar á HM í sumar,“ sagði Anton Sveinn sem verður í íslenska landsliðinu í sundi sem tekur þátt í Smáþjóðaleikunum sem fram fara í Svartfjallalandi í lok þessa mán- aðar. „Íslandsmetið í 50 metra bringu- sundi var síðasta af bringusunds- metunum í 50 metra braut sem mig langaði til að ná. Það gerði góða helgi enn betri að ná þessum áfanga,“ sagði Anton Sveinn sem á einnig Íslandsmetin í 100 og 200 m bringusundi. „Næsta skref er að halda áfram að bæta metin meðan ég er á fullri ferð við æfingar.“ Anton Sveinn keppti á Ólympíu- leikunum í Rio de Janeiro í Brasilíu árið 2016 og stefnir á þátttöku á leikunum sem fram fara í Tókýó í lok júlí og framan af ágúst á næsta ári. Hann segist hafa gefið sér góð- an tíma til þess að velta framtíðinni fyrir sér eftir þátttöku á leikunum fyrir þremur árum. Nokkru síðar hafi hann lokið háskólanámi í Bandaríkjunum og þess vegna að mörgu að hyggja. „Ég kom mér síðan jafnt og þétt af stað aftur og nú er ég kominn í hörkuform sem á bara eftir að batna ennþá meira á næstu mán- uðum. Ég hef mikinn metnað og hef þess vegna sett mér háleit markmið fram yfir Ólympíuleikana í Tókýó. Næsta skrefið er að tryggja sér farseðilinn inn á Ólympíuleikana með góðum árangri á HM í sumar. Á HM gefst fyrsti möguleikinn á að verða sér út um þátttökurétt í Tók- ýó. Markmiðið er háleitt en ég tel það vera raunhæft miðað við í hvaða formi ég er nú. Ég á bara eftir að verða öflugri á HM í lok júlí þar sem ég keppi að sjálfsögðu full- hvíldur,“ sagði Anton Sveinn sem stefnir á þátttöku í 100 og 200 m bringusundi á Ólympíuleikunum eft- ir rúmt ár. Anton Sveinn verður í eldlínunni með félögum sínum í sundlandslið- inu á Smáþjóðaleikunum í Svart- fjallalandi í lok þessa mánaðar. Hann segist horfa til Smáþjóðaleik- anna með eftirvæntingu eftir keppnina í Indiana um nýliðna helgi. „Útlitið er gott og þess vegna er spennandi að taka þátt í Smá- þjóðaleikunum og reyna að gera enn betur.“ Langar að einbeita sér að ÓL Anton Sveinn býr í Boston og hef- ur unnið við fyrirtækjaráðgjöf hjá stórfyrirtækinu Ernst & Young frá því að hann lauk háskólanámi ytra fyrir tveimur árum. Hann segir krefjandi en spennandi að sameina starf og áhugamál sitt sem er sund- ið. „Ég æfi mestmegnis einn og þá hvar sem ég kemst í sundlaug á ferðum mínum vegna starfsins. Þegar ég er heima í Boston um helgar æfi ég með sundfélagi sem þar er þótt ekki sé um formlegan fé- lagsskap að ræða. Ég reyni að gera eins vel og ég get að samræma vinnuna og sundið. En því miður eru oft ekki nógu margar klukku- stundir í sólarhringnum til þess að ég fái næga hvíld á stundum. Þess vegna er ljóst að ég verð að leita betri lausnar á vinnunni og sundinu. Vonandi get ég til dæmis fengið langt frí úr vinnu til þess að einbeita mér sem mest að sundinu síðasta árið fyrir Ólympíuleikana þannig að ég eigi möguleika á sem bestum ár- angri,“ sagði sundmaðurinn Anton Sveinn McKee í gær. Háleitt markmið fram yfir ÓL  Anton Sveinn McKee ánægður með árangur helgarinnar  HM-sæti og Ís- landsmet en telur sig eiga meira inni  Reynir að samhæfa vinnuna og sundið Morgunblaðið/Hari Svartfjallaland Anton Sveinn McKee er á leiðinni á Smáþjóðaleikana sem hefjast í Svartfjallalandi á mánudaginn. Einn af stórleikjum sumarsins í úr- valsdeild kvenna í fótbolta, Pepsi Max-deildinni, fer fram á Þórsvell- inum á Akureyri í kvöld en þangað koma Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks í heimsókn og mæta Þór/KA. Breiðablik og Valur eru efst í deildinni með níu stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar en Þór/KA, Stjarnan og Fylkir eru í næstu sæt- um með sex stig. Akureyrarliðið er af flestum talið eina liðið sem gæti ógnað Breiðabliki og Val í barátt- unni um meistaratitilinn í ár og við- ureignin í kvöld er því sannkallaður lykilleikur fyrir bæði liðin. Sérstak- lega fyrir Þór/KA sem má alls ekki við því að tapa, eftir að hafa beðið lægri hlut fyrir Val á útivelli í fyrstu umferðinni í vor. Þetta eru liðin sem háðu einvígi um Íslands- meistaratitilinn í fyrra og þá höfðu Blikar betur með fimm stigum. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er komin til liðs við Þór/KA og getur spilað sinn fyrsta leik í kvöld en hún er í láni í tvo mánuði frá Kristi- anstad í Svíþjóð. Þórdís gæti þar fyllt skarð Önnu Rakelar Péturs- dóttur á vinstri vængnum en Anna, sem hefur lagt upp mikið af mörk- um fyrir Þór/KA undanfarin ár, gekk til liðs við Linköping í Svíþjóð. Þrír aðrir leikir í fjórðu umferð eru leiknir í kvöld. Valur sækir HK/Víking heim í Kórinn og freist- ar þess að vinna fjórða leikinn í röð. Stigalausir KR-ingar taka á móti ÍBV í Vesturbænum og fyrir austan fjall eigast við Selfoss og Keflavík en lið Keflavíkur er líka án stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar. vs@mbl.is Bestu lið síðasta árs í lykilleik á Akureyri Morgunblaðið/Hari Toppslagur Það er mikið í húfi á Þórsvellinum í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.