Morgunblaðið - 21.05.2019, Side 26

Morgunblaðið - 21.05.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 Pepsi Max-deild karla FH – Valur ................................................ 3:2 Grindavík – Fylkir.................................... 1:0 KR – HK.................................................... 3:2 Staðan: ÍA 5 4 1 0 10:4 13 Breiðablik 5 3 1 1 8:4 10 FH 5 3 1 1 9:7 10 KR 5 2 2 1 9:6 8 Stjarnan 5 2 2 1 7:7 8 Grindavík 5 2 2 1 6:6 8 KA 5 2 0 3 6:7 6 Fylkir 5 1 2 2 6:5 5 Valur 5 1 1 3 7:9 4 HK 5 1 1 3 6:8 4 Víkingur R. 5 0 3 2 9:12 3 ÍBV 5 0 2 3 3:11 2 Svíþjóð AIK – Falkenberg.................................... 2:0  Kolbeinn Sigþórsson var ekki með AIK vegna meiðsla. Gautaborg – Hammarby......................... 0:0  Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn fyrir Hammarby. Norrköping – Sundsvall ......................... 2:0  Guðmundur Þórarinsson var ekki með Norrköping vegna meiðsla og Alfons Sampsted var einnig utan hóps. Staðan: Malmö 10 6 3 1 17:8 21 Häcken 10 6 2 2 16:8 20 AIK 10 6 2 2 13:8 20 Gautaborg 10 5 3 2 18:10 18 Djurgården 10 5 3 2 16:9 18 Hammarby 10 5 3 2 18:12 18 Elfsborg 10 4 3 3 15:16 15 Norrköping 10 3 5 2 14:13 14 Östersund 10 3 4 3 11:14 13 Kalmar 10 2 5 3 9:11 11 Örebro 10 3 2 5 14:18 11 Sirius 10 3 1 6 14:19 10 Helsingborg 10 2 3 5 11:17 9 Sundsvall 10 2 2 6 12:16 8 Eskilstuna 10 1 3 6 9:16 6 Falkenberg 10 1 2 7 8:20 5 A-deild kvenna: Djurgården – Växjö ................................ 3:0  Guðbjörg Gunnarsdóttir, Ingibjörg Sig- urðardóttir og Guðrún Arnardóttir léku all- an leikinn fyrir Djurgården. Linköping – Rosengård .......................... 0:0  Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik- inn fyrir Linköping.  Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn fyrir Rosengård.  Staðan: Gautaborg 15, Rosengård 14, Linköping 14, Vittsjö 14, Örebro 13, Kristi- anstad 11, Piteå 11, Djurgården 6, Eskil- stuna 5, Växjö 5, Limhamn Bunkeflo 4, Kungsbacka 1. B-deild: Brage – Syrianska................................... 1:0  Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn fyrir Brage.  Nói Snæhólm Ólafsson var í liði Syri- anska fram á 64. mínútu.  Efstu lið: Varberg 25, Mjällby 18, Brage 17, Norrby 16, Jönköping 14, Degerfors 14, Örgryte 12, GAIS 12, Västerås 10. KNATTSPYRNA Landsliðsþjálfari kvenna í blaki, Borja González, hefur valið 14 kvenna landsliðshóp fyrir Smáþjóðaleikana sem hefjast í Svartfjallalandi í næstu viku. Landsliðið hefur æft af kappi undanfarnar vikur og var í æfingabúðum í Reykjanesbæ um nýliðna helgi. Fyrsti leikur liðsins á Smáþjóðaleikunum er gegn Kýpur á þriðjudaginn eftir rúma viku. Landsliðshópurinn: Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir (fyr- irliði), Helena Kristín Gunnarsdóttir, Hjördís Eiríks- dóttir, Thelma Dögg Grétarsdóttir, Velina Apostolova, Hulda Elma Eysteinsdóttir, Sara Ósk Stefánsdóttir, Sæ- rún Birta Eiríksdóttir, Gígja Guðnadóttir, Unnur Árna- dóttir, Matthildur Einarsdóttir, Ana María Vidal Bouza, Birta Björnsdóttir, Kristina Apostolova. Borja González, sem tók við liði Aftureldingar í vor eftir að hafa stýrt Þrótti Neskaupstað síðustu ár, er aðalþjálfari landsliðsins eins og fyrr seg- ir. Honum til aðstoðar eru Antonio Alcaraz og Lárus Jón Thorarensen. Mundína Ásdís Kristinsdóttir er sjúkraþjálfari liðsins og Berglind Valdi- marsdóttir er liðsstjóri. González búinn að velja hóp Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir 1:0 Brandur Olsen 34. (víti) 1:1 Eiður Aron Sigurbjörnsson 68. 2:1 Steven Lennon 76. 2:2 Ólafur Karl Finsen 79. 3:2 Jákup Thomsen 86. I Gul spjöldOrri Sigurður Ómarsson og Haukur Páll Sigurðsson (Val). MM Brandur Olsen (FH) Ólafur Karl Finsen (Val) FH – VALUR 3:2 M Hjörtur Logi Valgarðsson (FH) Guðmann Þórisson (FH) Guðmundur Kristjánsson (FH) Jákup Thomsen (FH) Steven Lennon (FH) Birkir Már Sævarsson (Val) Bjarni Ólafur Eiríksson (Val) Eiður Aron Sigurbjörnsson (Val) Einar Karl Ingvarsson (Val) Dómari: Ívar Orri Kristjánsson, 8. Áhorfendur: 1.790. KAPLAKRIKI/VESTUR- BÆR/GRINDAVÍK Kristján Jónsson Andri Yrkill Valsson Jóhann Ingi Hafþórsson FH-ingar ætla sér að vera með í bar- áttunni um Íslandsmeistaratitil karla í knattspyrnu. Þeir undirstrik- uðu það með mikilvægum 3:2 sigri á Íslandsmeisturum Vals í Kaplakrika í 5. umferðinni í gær. Leikurinn var fjörugur og þá sérstaklega í síðari hálfleik þegar fjögur mörk voru skoruð. FH hefur tapað einum leik af fyrstu fimm en Valur hefur hins veg- ar tapað þremur nú þegar. Vals- menn risu upp á afturlappirnar í síð- ustu umferð og voru að mörgu leyti ágætir í gær en fengu þó engin stig út úr leiknum. „Hraðmótið“ í maí er að fara illa með meistarana og lítill tími á milli leikja til að bregðast við. Það sem kemur mér mest á óvart varðandi Val er hversu mörg mörk liðið fær á sig. Í þessu tilfelli var að- eins eitt þeirra í opnum leik en hin tvö eftir föst leikatriði. Bæði mörk ÍA á dögunum gegn Val voru eftir föst leikatriði. Valsmenn hljóta að vera mjög pirraðir yfir þessari stað- reynd. Fínn bragur var á FH-liðinu í gær. Í fyrri hálfleik var nokkuð um lipran samleik hjá FH-ingum en í þeim síð- ari voru Valsmenn með meiri völd á vellinum. FH-ingar voru skynsamir. Þegar Valsmenn gerðu sig líklega þá söfnuðust FH-ingar saman til baka og vörðust. Þótt Valsmenn hafi byrj- að illa þá þurfa menn að vera skyn- samir til að vinna þá og FH-ingar voru það. FH fékk Steven Lennon inn með látum í gær og hann er beittur oddur á vel smíðað spjót. FH-ingar fengu á sig tvö mörk eft- ir hornspyrnur. Valsmenn létu reyna á Vigni Jóhannesson í markinu og sendu hornspyrnurnar inn að mark- inu. Einu sinni urðu Vigni á mistök þegar hann hitti boltann illa í tilraun til að kýla boltann frá. Í síðara marki Vals gerði Ólafur Karl Finsen ein- staklega vel. Skapandi leikmaður á miðjuna er ef til vill fundinn hjá Val miðað við frammistöðu hans í gær. Stálheppnir KR-ingar Það er óhætt að segja að hurð hafi skollið ansi nærri hælum KR-inga þegar þeir tóku á móti nýliðum HK. Eftir að hafa verið með leikinn í hendi sér og 3:0 yfir eftir tæpan klukkutíma hleyptu gestirnir hins vegar gríðarlegri spennu í leikinn með tveimur mörkum í blálokin, eftir að HK-ingurinn Beitir Ólafsson í marki KR hafði varið vítaspyrnu Brynjars Jónassonar. Lokatölur 3:2 fyrir KR-inga, sem vörpuðu öndinni léttar við lokaflautið á meðan HK- ingar gengu svekktir af velli. Það gekk allt upp hjá KR-ingum fyrsta klukkutímann eða svo. Liðið spilaði af krafti og var greinilega ákveðið í að svara fyrir tapið í Grindavík í síðustu umferð. Óskar Örn Hauksson stjórnaði sókn- arspilinu eins og hans er von og vísa og í framlínunni barðist Björgvin Stefánsson sem ljón. En staðan var ef til vill orðin helst til of þægileg fyrir KR-inga, sem misstu sjónar á grunngildum sínum undir lokin og gáfu HK-ingum færi á að komast inn í leikinn. Gamla vísan um að leik- urinn er ekki búinn fyrr en við loka- flautið virðist aldrei of oft kveðin. HK-ingar létu ekki segja sér það tvisvar þegar KR-ingar slökuðu á og naga sig í handarbökin að hafa ekk- ert fengið út úr þessum leik. Auk vítaklúðursins þá fór liðið illa með nokkur opin dauðafæri sem hefðu hæglega getað snúið taflinu þeim í vil. Draumamark Kára Péturssonar sem breytti stöðunni í 3:2 gerði mik- ið fyrir andann í liðinu og það má taka undir orð þjálfarans sem sagði HK-inga hæglega hafa getað hlaupið í hálftíma í viðbót. En það er dýrt fyr- ir nýliða að klúðra jafn góðum tæki- færum og buðust í þessum leik og þó baráttuandinn hafi verið til staðar þá þarf líka að reka smiðshöggið. Það vantaði upp á í gær og má hreinlega ekki gerast aftur. Grindavík líður vel heima Grindvíkingar báru sigurorð af Fylki á heimavelli, 1:0. Grindvíkingar eru búnir að vinna tvo í röð, báða í Grindavík. Leikurinn var mjög jafn og kom fljótt í ljós að mörkin yrðu ekki mörg í Grindavík. Báðum liðum tókst illa að reyna á markmennina og spiluðu varnarmenn beggja liða bet- ur en sóknarmennirnir. Það var við- eigandi að Josip Zeba, miðvörður Grindvíkinga, skoraði sigurmarkið. FH-ingar eru með í baráttunni  Lennon með mark og stoðsendingu  Annar sigurinn í röð hjá Grindavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.