Morgunblaðið - 21.05.2019, Side 29

Morgunblaðið - 21.05.2019, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Miðstöð íslenskra bókmennta hefur tilkynnt úthlutun útgáfustyrkja fyrir árið 2019 og var úthlutað 26 milljónum króna til 43 verka. 67 umsóknir um styrki bárust og var sótt um tæpar 64 milljónir króna í heildina. Verkin sem hlutu styrki að þessu sinni eru af ýmsum toga; fræðirit, handbækur, skáldverk og heimildarit um náttúru Íslands, menningu, tungu, listir og fleira. Hæsta styrkinn, eina og hálfa milljón króna, hlýtur Fjörmeti - tínsla, verkun og matreiðsla mat- þörunga eftir Eydísi Mary Jóns- dóttur, Silju Dögg Gunnarsdóttur og Hinrik Carl Ellertsson. 1,1 millj- ón króna hlýtur Reykholt í ljósi fornleifanna eftir Guðrúnu Svein- bjarnardóttur. Sumardvöl barna í sveit, bindi I og II í ritstjórn Jónínu Einarsdóttur, hlýtur eina milljón króna í styrk og sömu upphæð hljóta Að segja fyrir um jarð- skjálfta eftir Ragnar Stefánsson og Rafræn þýsk orðabók í ritstjórn Þórdísar Úlfarsdóttur og Halldóru Jónsdóttur. Meðal annarra styrktra verka má nefna Um tímann og vatnið eftir Andra Snæ Magnason; Smásögur heimsins IV - Afríka; Saga leirlistar á Íslandi eftir Ingu S. Ragnarsdóttur og Kristínu G. Guðnadóttur; Lífgrös og leyndir dómar eftir Ólínu Þorvarðardóttur; Tarot - Völuspá eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur; og Drauma- dagbók Sæmundar Hólm, sem rit- stýrt er af Má Jónssyni. Yfirlit yfir alla útgáfustyrki árs- ins 2019 má finna á islit.is undir flipanum „styrkir“. 26 milljónir til 43 verka Guðrún Sveinbjarnardóttir Ragnar Stefánsson Yfir milljón óánægðra aðdáenda hefur nú undirritað bænarskjal þess efnis að áttunda og síðasta þáttaröð Game of Thrones verði endurgerð í heild sinni og að fengn- ir verði aðrir og hæfari handrits- höfundar. Vefur BBC greinir frá þessu og að enskir gagnrýnendur virðist vera á svipaðri línu og þessir mjög svo óánægðu aðdáendur og almennt sammála um að of mikill flýtir hafi komið niður á handrits- skrifum. Þá þykir ýmsum spurn- ingum ekki hafa verið svarað og því enn margir lausir endar. Krefjast endur- gerðar lokaraðar Par Persónurnar Daenerys Targaryen og Jon Snow í hinum vinsælu Krúnuleikum. John Wick: Chapter 3 – Parabellum Ný Ný Pokémon Detective Pikachu 1 2 Avengers: Endgame 2 4 The Hustle 3 2 After Ný Ný UglyDolls 5 2 Hellboy (2019) 4 2 Wonder Park 6 6 Eden 7 2 Dumbo (2019) 8 8 Bíólistinn 17.–19. maí 2019 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Bíóaðsókn helgarinnar »Lokaþáttur lokaþáttaraðar Game of Thrones, vinsælustu sjónvarpsþátta sögunnar, var frum- sýndur aðfaranótt mánudags að íslenskum tíma. Víða komu aðdáendur saman til að horfa á þáttinn og þá m.a. á barnum Brennan í Marina del Rey í Kaliforníu þar sem enn var sunnudagskvöld. Aðdáendur Game of Thrones horfðu á síðasta þátt sögunnar miklu og var stundin tilfinningaþrungin Nei!! Ljósmyndari AFP tók margar myndir af þessum aðdáanda sem gat ekki leynt tilfinningum sínum á meðan á sýningu þáttarins stóð. Alvarleg Af svip þessa pars að dæma hefur eitthvað slæmt gerst. Sveiflur Það var skammt milli gleði og sorgar í frumsýningarteiti kráarinnar Brennan í Marina del Rey. AFP Fjör Líklega hefur hér verið blásið til Krúnuleika í síðasta sinn því sjá má mikinn fögnuð viðstaddra yfir því sem er að gerast á sjónvarpsskjánum. Dapurlegt Líklegt má telja að einhver ástsæl persóna þáttanna hafi látið lífið skömmu áður en þessi mynd var tekin af eldheitum aðdáanda GoT.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.