Morgunblaðið - 24.05.2019, Side 2

Morgunblaðið - 24.05.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Sá kostnaður sem ríkið greiðir vegna skurðaðgerða á brjóstum kvenna, sem greinst hafa með krabbamein, er sá sami hvort sem aðgerðin er gerð á Landspítala eða erlendis. Ástæðan fyrir því að sjúkratryggingar ná ekki til slíkra aðgerða á Brjóstaklíníkinni á Klíník- inni Ármúla, sem er einkarekin heil- brigðisþjónusta, er að heilbrigðisyf- irvöld hafa mótað þá stefnu að miðstöð krabbameinsmeðferðar landsins sé á Landspítala. Það er gert til að tryggja heildstæða og samfellda meðferð sjúklinga með krabbamein, enda þurfa þeir iðulega á mjög fjölþættri og langvinnri með- ferð að halda. Þetta segir María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygg- inga Íslands. Fékk greidda aðgerð erlendis Morgunblaðið greindi frá því í gær að kona, sem er með krabba- mein í hægra brjósti og er auk þess arfberi BRCA-gensins sem eykur líkurnar á krabbameini fékk vilyrði SÍ fyrir greiðsluþátttöku í fyrir- byggjandi aðgerð á vinstra brjósti hennar sem átti að gera á Klíníkinni en SÍ hafnaði beiðni hennar um að greiða fyrir aðgerð þar á hægra brjóstinu. Þegar hún síðan sótti um að fara í aðgerð í Englandi hjá ís- lenskum lækni, þeim sama og hefði gert þessa aðgerð á Klíník- inni, samþykktu Sjúkratryggingar að greiða þá að- gerð að fullu. „Það er stefna heilbrigðisyfir- valda að krabbameinsaðgerðir hér á landi séu gerðar á einum stað, Landspítala,“ segir María. Hún seg- ir að mikilvægt sé að gera sér grein fyrir því að brottnám brjósts vegna krabbameins sé ekki sama aðgerð og brottnám í forvarnarskyni og því gildi mismunandi reglur um þessar tvær aðgerðir. „Í lögum um sjúkra- tryggingar kemur sérstaklega fram að ekki skuli gera samninga við ytri aðila, sem geti raskað þeirri heil- brigðisþjónustu sem veita ber á heil- brigðisstofnunum sem ríkið rekur; Landspítala og á heilsugæslunni,“ segir María. „Það er í þágu gæða þjónustunnar og öryggis sjúklinga að svo flókin meðferð sem krabbameinsskurðað- gerðir eru, séu byggðar upp á einum stað í okkar litla samfélagi,“ segir María og segir að svipað fyrirkomu- lag sé í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Sami kostnaður hér og erlendis  Stefna stjórnvalda er að krabbameinsaðgerðir séu eingöngu gerðar á LSH  Mismunandi reglur um mismunandi aðgerðir, segir forstjóri Sjúkratrygginga María Heimisdóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég vil draga strik í sandinn. Það hefur verið fjallað um þetta mál og því mjakað áfram hægt og rólega. Það var skýrt í síðustu kosningum að við ætluðum ekki að taka þátt í þessu verkefni nema allt væri uppi á borð- inu. Því miður er enn ekki allt komið upp á borðið,“ segir Magnús Örn Guðmundsson, bæjarfulltrúi sjálf- stæðismanna á Seltjarnarnesi og formaður bæjarráðs. Hann lét bóka andstöðu sína gegn undirritun samn- inga um borgarlínu sem kynntir voru á fundi bæjarráðs í gærmorgun. Guðmundur Ari Sigurjónsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í bæj- arráði, lét bóka að Samfylkinginn vildi að Seltjarnarnesbær lokaði engum dyrum og yrði áfram virkur þátttakandi í samstarfi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um skipulag á samgöngum á höfuð- borgarsvæðinu. Ekki var tekin af- staða til samninga um borgarlínuna og tengd mál í bæjarráði en málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar sem fundar 12. júní. Sveitarfélögin á höfuðborg- arsvæðinu eru um þessar mundir að funda um það hvort þau fylgi for- dæmi Reykjavíkurborgar og sam- þykki fjárframlög til fyrsta áfanga borgarlínu. Ekki náðist í Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarstjóra og odd- vita sjálfstæðismanna í bæjarstjórn, í gær til að spyrja um afstöðu full- trúa flokksins í ljósi bókunar Magn- úsar Arnar. Fram kom í viðtali við hana fyrir nokkrum dögum að búast mætti við að skiptar skoðanir yrðu um málið í bæjarstjórn. Hún tók það fram að ekki væri gert ráð fyrir nein- um fjárveitingum til borgarlínu í ár eða næstu ár. Óraunhæfar hugmyndir Magnús Örn Guðmundsson segir í bókun sinni í bæjarráði að hug- myndir um borgarlínu séu óraun- hæfar, ekki síst forsendur um heild- arkostnað, áætlaða nýtingu og rekstrarkostnað og vitnar til fyrri stefnuyfirlýsinga bæjarfulltrúa flokksins. Magnús leggur áherslu á að hann vilji bæta almennings- samgöngur en telji það best gert með eflingu Strætó. Í fyrirliggjandi áætlunum er gert ráð fyrir að Seltjarnarnesbær greiði 16 milljónir til undirbúnings- framkvæmda en kostnaður sveitar- félaganna er áætlaður 800 milljónir á móti jafnháu framlagi ríkisins. Tollahlið við bæjarmörkin? Guðmundur Ari Sigurjónsson tel- ur það algjört glapræði ef Seltjarn- arnesbær stimplar sig út úr sam- starfi um borgarlínuverkefnið, eins og fram kemur í bókun hans. Borg- arlínan sé framtíðarlausn á sam- göngumálum innan höfuðborgar- svæðisins og muni hún verða lífæð hverfa og sveitarfélaga í framtíðinni. Það muni verða gífurleg skerðing á lífsgæðum Seltirninga ef bærinn verði ekki hluti af undirbúningi verk- efnisins. Guðmundur Ari segir við Morgunblaðið að ef Seltjarnarnes taki ekki þátt gæti komið tollahlið við bæjarmörkin. „Ef við ætlum að hafa áhrif á samgöngukerfin verðum við að vera við borðið hjá SSH. Þarna er verið að taka ákvarðanir til langs tíma sem snúa að öllu sam- göngukerfi höfuðborgarsvæðisins,“ segir hann. Morgunblaðið/Hari Seltjarnarnes Nálægðin við höfuðborgina er greinileg hvar sem menn eru staddir. Myndin er frá golfvellinum. Formaður bæjarráðs á móti borgarlínu  Tekist á um þátttöku í borgarlínu á Seltjarnarnesi Magnús Örn Guðmundsson Guðmundur Ari Sigurjónsson Flugfélagið Icelandair hefur upp- fært flugáætlun sína fyrir seinni hluta sumarsins vegna þess að út- lit er fyrir að kyrrsetning Boeing 737 MAX flugvéla félagsins muni vara lengur en áður var áætlað. Við breytingarnar dregst sæta- framboð félagsins saman um 5% á tímabilinu 15. júlí til 15. sept- ember. Ásdís Pétursdóttir upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir að fækka þurfi flugferðum af þessum sökum. Lögð sé áhersla á að gera það til staða sem flogið er til oftar en einu sinni á dag og þegar stutt er á milli fluga. Félagið hefur tekið þrjár leigu- vélar í notkun til að lágmarka áhrif kyrrsetningarinnar á far- þega. Því til viðbótar er unnið að lokafrágangi samnings um leigu á einni Boeing 767-300 vél. Leita leiða fyrir farþega Tekið er fram í tilkynningu að þrátt fyrir þennan samdrátt í sætaframboði sé framboðið 10% meira en á sama tímabili á síðasta ári. Eins og áður hefur komið fram leggur félagið nú megináherslu á fjölgun farþega á mörkuðunum til og frá Íslandi og eiga rúmlega 30% fleiri farþegar bókað með félaginu til Íslands á tímabilinu júní til ágúst en á sama tíma í fyrra. Ásdís segir að unnið verði að því næstu daga að útfæra þessa ákvörðun. Haft verði samband við þá farþega sem breytingarnar munu hafa áhrif á. „Við munum leggja okkur fram við að finna nýj- ar lausnir fyrir farþega. Ef það tekst ekki eiga þeir rétt á endur- greiðslu,“ segir Ásdís. Icelandair hefur áður tilkynnt um niðurfellingu flugferða vegna kyrrsetningar flugvélanna frá Bo- eing. Þannig voru felldar niður um 100 ferðir á tímabilinu 1. apríl til 15. júní, sem svaraði til 3,6% af flugferðum félagsins. Síðar var flugáætlunin uppfærð til 15. júlí. helgi@mbl.is Icelandair fellir niður fleiri flug  Enn vandræði vegna kyrrsetningar Morgunblaðið/Árni Sæberg Icelandair Fella þarf niður margar ferðir næstu vikur og mánuði. Fjórir Íslendingar sitja í gæslu- varðhaldi vegna gruns um fíkni- efnainnflutning. Málið kom upp á Keflavíkurflugvelli 12. maí síðast- liðinn. Það á uppruna sinn í Frank- furt í Þýskalandi. Málið varðar innflutning á yfir tíu kílóum af kókaíni, að því er fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Lögreglan á Suð- urnesjum vildi ekki staðfesta það í gærkvöldi, hvorki við Stöð 2 né mbl.is, en upplýsti að lagt hefði ver- ið hald á umtalsvert magn fíkniefna og fjármuna í tengslum við þetta mál. Lögreglan á Suðurnesjum er í samstarfi við þýsk lögreglu- yfirvöld, tollgæsluna á Keflavík- urflugvelli og lögregluna á höf- uðborgarsvæðinu um rannsókn málsins sem er sögð umfangsmikil. arnarth@mbl.is Fjórir í gæslu vegna stórs fíkniefnamáls

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.