Morgunblaðið - 24.05.2019, Side 4

Morgunblaðið - 24.05.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 Falleg og vönduð silkiblóm Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 LISTHÚSINU Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Eins og frægt er nú þegar orðið hampaði meistaraflokkur karla í handknattleiksliði Ungmennafélags Selfoss, UMF Selfoss, Ís- landsmeistaratitlinum síðastliðið miðvikudagskvöld. Fögnuðurinn eftir leikinn var mikill en einhverjir Selfyss- ingar voru þó komnir fram úr rúmum sínum þegar blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins lögðu leið sína austur fyrir fjall um hádegisbilið í gær. Uppi á vegg á Selfossbíói hafði auglýsingu með hamingju- óskum til liðsins verið varpað og var hamingjuóskirnar víðar að finna enda Selfyssingar áberandi stoltir af strákunum sínum. Rík hefð er fyrir handknattleiksiðkun á Selfossi en UMF Sel- foss hefur þó ekki hampað meistaratitlinum áður. Liðsmenn komust nærri því að verða Íslandsmeistarar fyrir tæpum þrjá- tíu árum síðan og því er skiljanlegt að sigurinn hafi verið sætur. Voru nokkrir Selfyssingar teknir tali um meistaratitilinn. Selfyssingar stoltir af strákunum  Mikil kæti á Selfossi með sigur í handknattleik  Fagnað fram á nótt á planinu við Pylsuvagninn „Ég er mjög sáttur með þetta,“ segir Ragnar Pálsson þar sem blaðamaður hittir hann á hinu fræga pylsuvagnsplani sem geymdi fagnaðarlæti sigurkvöldsins. Stemningin í bæjarfélaginu var góð að sögn Ragnars og hún minnkar líklega ekkert í náinni framtíð. „Hún var svakaleg fyrir leik- inn, þá voru allir klæddir í boli merkta Sel- foss og svo verður stemningin um helgina lík- lega svakaleg líka. Slúttið hjá handboltanum er um helgina svo fjörið ætti að verða eitt- hvert.“ Ragnar er mjög ánægður með það starf sem hefur verið unnið undanfarið í hand- boltadeild Selfoss. „Þetta eru frábærir strák- ar og frábær þjálfari og öll umgjörðin í kringum þetta er búin að vera geðveik í vet- ur. Ég vona að þetta verði til þess að halda áfram þessu góða starfi sem hefur verið í handboltadeildinni undanfarin ár.“ Hvað varðar áhuga Selfyssinga á hand- bolta segir Ragnar: „Það hefur alltaf verið mikill áhugi hér. Við lentum síðast í þessu fyrir 27 árum þegar við töpuðum fyrir FH á síðustu sekúndunum eftir fimm leiki.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sáttur Ragnar Pálsson, íbúi á Selfossi, segir sigurinn verðskuldaðan þar sem mikil vinna sé að baki. Segir handboltastarfið á Selfossi ákaflega sterkt Fjóla Ingimundardóttir og Vilhjálmur Sörli Pétursson voru í skýjunum yfir sigri gærdagsins þegar blaðamað- ur tók þau tali í miðbæ Sel- foss. „Ég er alveg að springa úr stolti,“ segir Fjóla. Vilhjálmur veltir því upp hvort sigurinn sé ekki sér- staklega merkilegur ef horft sé til höfðatölu. „Ég var ein- mitt að hugsa í morgun hvort maður ætti að horfa á þetta miðað við höfðatölu, eins og við Íslendingar ger- um mikið. Hvernig þetta væri í samanburði við landið allt. Að 10.000 manna sveit- arfélag taki Íslandsmeist- aratitilinn er auðvitað bara glæsilegur árangur.“ Fjóla sofnaði út frá fagn- aðarlátunum. „Ég er alveg ofsalega ánægð með strák- ana okkar og stolt af þeim. Það síðasta sem ég horfði á í gærkvöldi var fjörið við brúna. Það var mikið fagn- að. Það var sungið og dans- að á planinu hjá Pylsuvagn- inum.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stolt Fjóla og Ingimundur eru ánægð með sigurinn. Fjóla segir að sigr- inum hafi verið fagnað almennilega. „Það var bara stórhátið, þjóðhátíð.“ Sérstaklega glæsilegur árangur miðað við höfðatölu Þóra Rán Elíasdóttir og Rannveig Elva Arnarsdóttir vinna báðar í Pylsuvagn- inum á Selfossi og urðu vitni að því þegar fagn- aðarlætin brutust út í gær- kvöldi á planinu við vagn- inn. Þær stóðu vaktina aftur morguninn eftir þegar blaðamaður náði tali af þeim en virtust ekki vitund þreyttar. Stelpurnar jánka því að sungið hafi verið og dansað. „Þetta var alveg brjálað,“ segir Þóra. Rannveig vill meina að Þóra hafi fellt tár. „Það var grátið, hún fór að grenja,“ segir Rannveig og bendir stríðnislega á Þóru. Þóra viðurkennir það og segir aðspurð að það hafi líklega verið vegna stoltsins yfir sigrinum en hún er einmitt fyrrverandi handboltaiðkandi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kátar Þóra Rán Elíasdóttir og Rannveig Elva Arnarsdóttir vinna í Pylsu- vagninum á Selfossi sem stendur við enda Ölfusárbrúar. Felldi tár yfir sigrinum þegar fagnaðarlætin brutust út „Ég gerði ekki neitt, þeir gerðu allt,“ segir Jón Lárusson um sigurinn og skellir upp úr. Hann kveðst þó sáttur við að vera hluti af bæjarfélaginu sem geymi sigurliðið. „Maður er auðvitað glaður að vera hluti af þessari heild en eins og ég segi þá var minn þáttur í þessu náttúrulega enginn,“ segir Jón. Eins og greint var frá í íþróttafréttum Morgunblaðsins í gær þá hafði lið Selfoss unnið tvo leiki á útivelli en tapað einni við- ureign á heimavelli. Einhverjir töldu að pressan á liðinu væri of mikil og það væri ekki líklegt að liðið myndi standa uppi sem sigurvegari. „Þetta er náttúrulega búið að vera und- irliggjandi í sveitarfélaginu í vetur og stemmningin er búin að stigmagnast,“ segir Jón. Hann er fullur aðdáunar á árangri hand- knattleiksliðsins. „Ég dáist að einstaklingum sem setja sér markmið, vinna vel að þeim og ná þeim.“ Jón segir sigurinn verðskuldaðan. „Þeir áttu þetta allt saman skilið, það var ekkert tekið út í krít þarna.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðdáun Jón Lárusson, Selfyssingur og fyrrum for- setaframbjóðandi, dáist að handknattleiksliðinu. „Ekkert tekið út í krít“ hjá handknattleiksliðinu Verslunin Sigurboginn á horni Laugavegar og Barónsstígs heyrir senn sögunni til, en eftir er að taka ákvörðun um framtíð netverslunar fyrirtækisins. Sigurboginn hefur í rúm 27 ár boðið upp á snyrtivörur, kvenfatnað og skartgripi, „allt fyrir konuna“, eins og Hafdís Stefánsdóttir, eigandi fyrirtækisins undanfarin sex ár, orðar það. Verslunin hefur alltaf verið á sama stað. Hafdís segir að versl- unarhættir hafi breyst mikið og Laugavegurinn laði ekki lengur að viðskiptavini í sama mæli og áður. Hún vilji samt ekki tala götuna niður og 95% viðskiptavina séu traustir og góðir Íslendingar, sem séu miður sín vegna ákvörðunarinnar, en meira þurfi til. „Laugavegurinn var aðal- staðurinn og er enn,“ segir hún. Hafdís segir að framtíð verslunar í landinu sé umhugsunarefni, því ljóst sé að Íslendingar kaupi mikið erlendis. „Verslun hérna skapar at- vinnu og er góð fyrir hagkerfið, en landinn þarf að gera upp við sig hvað hann vill,“ segir hún. Sigurboganum verður lokað á næstu dögum, en þangað til verða vörur seldar á tilboðsverði. „Við er- um að tæma lagerinn og svo er spurning hvort við spýtum meira í netverslunina,“ segir Hafdís og þakkar viðskiptavinum fyrir ánægjuleg samskipti í öll þessi ár. steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Hari Sigurboginn Verslunin hefur verið á Laugavegi 80 í rúm 27 ár. Sigurboginn hættir  Með „allt fyrir konuna“ í rúm 27 ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.