Morgunblaðið - 24.05.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 24.05.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari • Opið alla daga kl. 7-18 SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn Örn Arnarson, sérfræðingur hjáSamtökum fjármálafyr- irtækja, skrifar baksíðupistil á Við- skiptablaðið þar sem hann skopast að Samkeppniseftirlitinu fyrir und- arlegan úrskurð um búðakaup suður með sjó.    Örn segir: „Sam-keppniseftirlitið úrskurðaði á dög- unum að Samkaup, sem rekur fimmtíu verslanir um land allt, mætti ekki festa kaup á einni verslun Iceland í Keflavík. Ástæðan var að eftirlitið taldi að kaupin hefðu „raskað verulega samkeppni“ á Suðurnesjum.    Þessi úrskurður felur í sérákveðna sýn á kauphegðun Suðurnesjamanna: Það er að segja að þeir versli eingöngu á Suð- urnesjum og að þar ríki svo við- kvæmt jafnvægi á samkeppnis- markaði með dagvöru að viðskipti með eina verslun geti hæglega bundið Suðurnesjamenn í klafa fá- keppni eða jafnvel einokunarversl- unar. Ég er hræddur um að Sam- keppniseftirlitið sé á villigötum í þessu máli. Svo háttar að tvær af stærstu verslunarkeðjum landsins – Bónus og Krónan – reka verslanir í Keflavík í harðri samkeppni við Samkaup og aðra. Það er því fjarskalega ósennilegt að kaup Samkaupa á þessari einu Iceland- verslun í Keflavík hafi fært félag- inu öll völd til verðlagningar á dag- vöru suður með sjó.“    Þetta er því miður fjarri því einadæmið um óþörf eða skaðleg afskipti Samkeppniseftirlitsins. Stofnunin skapar mikla vinnu fjölda sérfræðinga. Sú vinna væri oft betur óunnin. Kerfi sem framleiðir sóun STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Héraðssaksóknari hefur ákært Magnús Stefán Jónasson, fyrrver- andi skrifstofustjóra Afls spari- sjóðs, fyrir fjárdrátt, umboðssvik og peningaþvætti. Er hann bæði ákærður fyrir að hafa dregið sér fé og millifært fé inn á reikning verk- takafyrirtækis í sinni eigu. Ákæran er í níu liðum en sum málin eru um áratugar gömul. Alls er um að ræða tæplega 85 milljónir króna sem Magnús er ákærður fyrir að hafa annaðhvort dregið sér sjálfur eða lagt inn á reikning verktakafyr- irtækisins. Hann er einnig ákærður fyrir lánveitingar án heimilda. Ákærður fyrir fjárdrátt og svik Guðni Einarsson gudni@mbl.is Framkvæmdir við lokafrágang og snyrtingu utan Vaðlaheiðarganga eru hafnar. Valgeir Bergmann fram- kvæmdastjóri sagði stefnt að því að ljúka því verkefni í sumar. Síðan yrði farið í að fjarlægja vinnubúðir og tækjabúnað. Rekstur ganganna hefur gengið ágætlega, að sögn Valgeirs. Umferð var hleypt á göngin 21. desember og innheimta veggjalds hófst 2. janúar. Formleg opnun var 12. janúar. „Umferð um Víkurskarð hefur verið heldur meiri en við töldum að hún yrði. Hins vegar er umferð um göngin svipuð og við bjuggumst við og heildarumferð meiri,“ sagði Val- geir. Samkvæmt yfirliti frá Vega- gerðinni um sólarhringsumferð um Víkurskarð og göngin fóru tæplega níu bílar af hverjum tíu um göngin í vetur. Þegar leið á veturinn hækkaði hlutfall þeirra sem fóru skarðið. Það sem af er maí hafa um átta bílar af hverjum tíu farið göngin. Heildar- umferðin hefur þyngst og er nú um tvöfalt meiri en hún var t.d. í janúar og febrúar. Valgeir sagði þá gruna að margir sem ækju yfir Víkurskarð væru er- lendir ferðamenn sem væru með úr- elt kort í leiðsögutækinu og vissu ekki af göngunum. Sjálfvirkur myndavélabúnaður les um 95% númeraplatna bíla sem fara um göngin. Gangagjaldið er inn- heimt samkvæmt númerunum. Ef númeraplötur eru beyglaðar eða mjög óhreinar virkar sjálfvirkur af- lestur ekki alltaf. Þá les starfsmaður númerið af myndunum. Mótorhjól, fjórhjól og önnur farartæki sem eru ekki með númer að framan sleppa án þess að borga. „Það hefur komið fyr- ir að færeyskir bílar hafa komið með númer sem eru alveg eins og íslensk bílnúmer,“ sagði Valgeir. „Öll svona frávik eru skemmtileg og alltaf gam- an að sjá eitthvað nýtt.“ Breytt gjaldskrá í göngin Gjaldskrá Vaðlaheiðarganga var breytt 15. maí. Þá var tekinn upp nýr flokkur fyrir millistærðir bíla, t.d. pallbíla, húsbíla og minni rútur. „Helsta breytingin var sú að miða við leyfilega heildarþyngd bíla en ekki eiginþyngd. Okkur var bent á að í reglugerð og annars staðar í Evrópu væri alltaf miðað við leyfða heildarþyngd ökutækis og henni breytir þú ekki.“ Nú er hægt að skrá ferðir um göngin og hve lengi skráningin gildir með lengri fyrirvara en áður. Með því móti kostar ferðin fyrir fólksbíl 1.500 kr. en sé greitt meira en þrem- ur tímum eftir að ferðin var farin kostar hún 2.500 kr. Gengið frá við Vaðlaheiðargöng  Lokafrágangur utan ganga hafinn  Um átta af hverjum tíu bílum fara nú um Vaðlaheiðargöng  Hlutfallið var hærra í vetur en heildarumferðin minni Ljósmynd/Vaðlaheiðargöng Vaðlaheiðargöng Hafin er vinna við lokafrágang utan ganganna. Því verk- efni á að ljúka í sumar. Síðan verða vinnubúðir fjarlægðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.