Morgunblaðið - 24.05.2019, Síða 10
uppbyggingar sunnan við Öskju-
hlíð, fyrirhugaðs hverfis í Skerja-
firði og uppbyggingar stúdenta-
íbúða í Vísindagörðum.
Helgunarsvæði flugvallarins er
smátt og smátt að minnka og ég tel
engan vafa á því, sérstaklega eftir
að hafa séð hvernig menn hér í
Ósló hafa endurnýtt gömul og úr
sér gengin iðnaðarsvæði, eða svæði
fyrir atvinnustarfsemi sem taka
gríðarlegt pláss en skapa kannski
ekki mörg störf, að flugvöllurinn
mun fara úr Vatnsmýri. Ég vona að
það verði lagður borgarflugvöllur í
Hvassahrauni. Ég held að það sé
betri kostur fyrir borgina og lands-
byggðina að hafa tvo flugvelli, eins
og er algengt erlendis,“ segir
Hjálmar.
Hvassahraun kemur best út
Hjálmar telur aðspurður ósenni-
legt að seinustu flugbrautinni verði
lokað um miðjan næsta áratug.
„Ég myndi telja að um 2030
verði flugvöllurinn farinn, eða svo
gott sem farinn. Ég er sannfærður
um það,“ segir Hjálmar. Rann-
sóknir bendi eindregið til þess að
Hvassahraun sé álitlegasti stað-
urinn fyrir nýjan innanlands-
flugvöll.
„Hvassahraunið virðist koma
miklu sterkar út en aðrir valkostir,
á borð við Löngusker og Hólms-
heiði. Margir hafa nefnt Álftanesið
en af umhverfisástæðum og út af
vissum atriðum held ég að það
verði hins vegar aldrei,“ segir
Hjálmar.
Spurður um þessi sjónarmið
Hjálmars kveðst Dagur ekki geta
svarað því hvenær flugbrautunum
tveimur sem enn eru í notkun verð-
ur lokað.
„Hópur á vegum samgöngu-
ráðherra er að ræða þessi flug-
vallamál. Þá bæði millilandaflugið
og varaflugvallarmálin sem eru í
algjörum ólestri. Það er mjög
brýnt öryggismál að bæta úr þeim.
Svo eru það innanlandsflugvall-
armálin og nýr æfinga- og einka-
kennsluflugvöllur, sem er bundinn í
samningi borgar og ríkis 2013. Sá
samningur kveður á um að ráðast
þurfi í það verkefni óháð öðru í
þessu flugvallarmáli. Þannig að ég
tel ótímabært að kveða upp úr um
það. Þessi mál eru hins vegar í um-
fjöllun og í deiglu,“ segir Dagur.
Hann segir aðspurður að
Hvassahraun sé ekki eini raunhæfi
kosturinn fyrir nýjan innanlands-
flugvöll. Athuganir hingað til bendi
hins vegar til þess að það sé besti
kosturinn.
Borgin horfir til Hvassahrauns
Borgarstjóri segir athuganir benda til að Hvassahraun sé besti kosturinn fyrir nýjan flugvöll
Styður áform um fluglest Hjálmar Sveinsson segir Reykjavíkurflugvöll fara upp úr 2030
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vallarstæði Lengi hafa verið uppi hugmyndir um að reisa innanlandsflugvöll í Hvassahrauni og nú vilja borgaryfirvöld skoða málið á ný.
Dagur B.
Eggertsson
Hjálmar
Sveinsson
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldur@mbl.is
Fluglest er einn af þeim kostum
sem vert er að skoða til að efla al-
menningssamgöngur frá Keflavík-
urflugvelli og draga um leið úr los-
un gróðurhúsalofttegunda.
Þetta segir Dagur B. Eggerts-
son, borgarstjóri Reykjavíkur, en
hann gerði hátt hlutfall ferða með
bílaleigubílum frá flugvellinum, alls
55%, að umtalsefni á ráðstefnu um
skipulagsmál í Ósló.
„Ég held að Ísland sé eitt af
fáum löndum sem eru ekki að
reyna að tryggja að ferðamenn taki
rútur, strætó eða einhvers konar
lestarsamgöngur frá alþjóða-
flugvelli,“ segir Dagur.
Horft sé til hugmyndar um flug-
lest við fyrirhugaða uppbyggingu á
BSÍ-reitnum í Vatnsmýri.
„Ég hef verið opinn fyrir hug-
myndinni frá upphafi. Hugmyndin
er að lestin verði alfarið einka-
framkvæmd og standi undir sér.
Þannig að ég held að við eigum tví-
mælalaust að vera opin fyrir því.
Það hefur auðvitað áhrif á okkur öll
ef göturnar eru fullar af bíla-
leigubílum, fyrir utan að þeir eru
allir á nagladekkjum, sem við vit-
um að er mjög vont fyrir svifryk og
loftgæðin í borginni.“
Umbreyting Vatnsmýrar
Hjálmar Sveinsson, fyrrverandi
formaður skipulags- og umhverf-
isráðs borgarinnar, sótti einnig
ráðstefnuna Framtíð borganna sem
haldin er í Ósló.
Hjálmar sagði aðspurður að upp-
byggingin á fyrrverandi helgunar-
svæðum nærri Reykjavíkur-
flugvelli, svo sem á Hlíðarenda, sé
hluti af umbreytingu Vatnsmýr-
arinnar og breyttri notkun í fram-
tíðinni.
„Sumir myndu kalla þetta smá
skref. Ég myndi hins vegar kalla
þetta stór skref. Þá vísa ég meðal
annars til Hlíðarendahverfisins,
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Töskur kr. 4.990
Buxur kr. 6.990
Stútfull búð af
Nýjum vörum
Tunika
kr. 5.990
Buxur
kr. 6.990
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Í umsögn Læknafélags Íslands (LÍ)
um frumvarp til laga um breytingu á
lögum um dýrasjúkdóma kemur
fram að sýklalyfjaónæmi og hröð út-
breiðsla baktería
sem nær engin
sýklalyf vinni á sé
einhver alvarleg-
asta heilsuvá sem
að mannkyni
steðji.
Reynir Arn-
grímsson, for-
maður LÍ, segir
að víða í heimin-
um sé sýklalyfja-
ónæmi raunverulegt vandamál.
„Við erum að renna út með þau úr-
ræði sem við höfum til þess að með-
höndla sýkingar. Sýklalyfjaónæmi
er eitt af stærstu vandamálunum
sem við stöndum frammi fyrir í heil-
brigðisþjónustunni ef við lítum á
heiminn í heild,“ sagði Reynir í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Reynir segir að í mestri hættu séu
einstaklingar með veiklað
ónæmiskerfi, en þetta geti komið
fyrir alla.
Reynir segir LÍ telja að verði
frumvarpið að lögum muni það leiða
til aukins innflutnings á kjöti og
huga þurfi að hvernig matvaran er
meðhöndluð miðað við þær breyttu
aðstæður að möguleiki sé fyrir hendi
á að ónæmar bakteríur séu komnar
hingað sem engin sýklalyf geta unnið
á. „Það er ný staða og allt önnur en
við höfum þurft að horfast í augu við
hingað til hér á landi.“
LÍ telur að verði frumvarpið að
lögum þurfi að grípa til mótvægisað-
gerða sem felist í því að gera lands-
mönnum grein fyrir þeirri áhættu
sem felist í neyslu innfluttra land-
búnaðarafurða.
„Þótt lagalegar skuldbindingar Ís-
lands vegna EES-samningsins bendi
til að afnema þurfi frystiskyldu á
innfluttu kjöti telur stjórn LÍ mik-
ilvægt að afnámið verði ekki víðtæk-
ara en þörf krefur og nái þá einungis
til innflutnings á fersku kjöti frá öðr-
um EES-löndum, og öðlist ekki gildi
fyrr en nýr meðferðarkjarni og
bráðamóttaka Landspítalans, með
fullnægjandi aðstöðu til að bregðast
við útbreiðslu sýkinga af völdum fjöl-
eða alónæmra baktería, hafa verið
tekin í notkun,“ segir jafnframt í um-
sögn LÍ.
Varar við afnámi
frystiskyldu
Sýklalyfjaónæmi alvarlegt vandamál
Reynir
Arngrímsson