Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 ✝ Helga Sæþórs-dóttir fæddist 21. apríl 1931 á Kraunastöðum í Aðaldal. Hún lést 15. maí 2019 á Heil- brigðisstofnun Þingeyinga. Foreldrar henn- ar voru Sæþór Kristjánsson og Ragna Gísladóttir. Systkini Helgu eru Kristján, f. 1929, d. 2011, Gunn- steinn, f. 1933, d. 2019, og Kristín Friðrika, f. 1937. Helga átti tvö börn; Elfu Ósk og Ragnar Þór. Helga vann mestalla ævina sem ráðskona við Hafralækjarskóla í Aðaldal. Síðustu ár- in bjó hún á Húsa- vík. Útför Helgu verður gerð frá Húsavíkurkirkju í dag, 24. maí 2019, klukkan 14. Þegar ég sat við dánarbeð þinn rifjuðust upp fyrir mér ótal minningar. Röð atvika sem gerðu mig að þeim manni sem ég er í dag. Mínar fyrstu minningar eru úr vinnuskúrum í vegavinnu víða í Þingeyjarsýslu. Þú varst þar ráðskona og leyfðir mér oft að koma með þér, ég fékk að vera í vörubílunum hjá körlun- um og mér fannst ég vera einn af þeim þegar við komum í mat og kaffi hjá þér í matarskúrnum. Alltaf varstu útivinnandi, ým- ist sem ráðskona eða húshjálp. Það hefur ekki alltaf verið auð- velt að vera ein með tvö börn á þessum tíma. En aldrei skorti okkur neitt, þú sást til þess með dugnaði og elju. Þú fékkst vinnu við Hafralækjarskóla þegar byggingarframkvæmdir hófust þar. Eldaðir ofan í smiði og aðra vinnumenn. Alltaf fylgdi ég. Ég man hversu heillaður ég var af þessum framkvæmdum og var staðráðinn í því að verða smiður og vinna hjá Stebba á Rein sem var byggingarstjóri skólans. Ég stóð við hvert orð. Síðar varstu svo ráðskona við skólann og þar bjuggum við um tíma. Þú naust þess að vinna þar og á fyrstu ár- unum var starfrækt heimavist þar sem krakkar af Tjörnesi bjuggu og þótti ungviðinu gott að geta leitað til þín á nóttunni þegar heimþráin tók völdin, þú varst alltaf til staðar. Þú vannst þar samfleytt í 26 ár og tókst hálfan dag í veikindaleyfi á því tímabili. Hættir á 67 ára afmæl- isdaginn þinn – þó aðeins væri eftir rúmur mánuður af skólan- um. Þér fannst þetta vera orðið gott eftir rúman aldarfjórðung í starfi. Árið 1990 var eftirminnilegt. Þá ákváðum við að byggja okkur saman tvíbýlishús að Laugar- holti 7d á Húsavík. Ég sam- gladdist innilega þegar þú flutt- ir inn í nýja íbúð sem þú áttir skuldlaust. Ekki vildir þú skulda neinum neitt, tókst aldrei lán, áttir aldrei greiðslukort og aldr- ei ávísanahefti. Þú ólst upp við að fara í sparisjóðinn og taka út peninga og hélst því áfram alla tíð þannig að ekki tókst þú þátt í því að fóðra bankana. Það var gaman að sjá hversu mikið þú naust þess að vera hætt að vinna og geta eytt tíma með barnabörnunum þínum á Húsavík. Þú varst svo dugleg að labba um bæinn og heilsa upp á vini og ættingja. Það voru for- réttindi fyrir börnin mín að hafa alltaf ömmu í kjallaranum og geta farið til þín eftir skóla og þeir voru ófáir bíltúrarnir sem þið fóruð í saman á heimaslóðir þínar. Það fór vel um þig á Dvalar- heimilinu Hvammi þar sem þú bjóst síðustu árin og það var gott að vita af þér í örygginu. Þú varst virk í félagslífinu og það var notalegt að heimsækja þig með börn og barnabörn sem voru þinn fjársjóður og stolt. Ég minnist þín sem sterkrar sjálfstæðrar konu sem aldrei kvartaði og var alltaf til staðar. Takk elsku mamma fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu. Að lokum vil ég gera orð Jónasar Hallgrímsson- ar að mínum: Sæludalur sveitin best, sólin á þig geislum helli snemma risin, seint er sest, sæludalur, prýðin best. Þín er grundin gæðaflest gleðin æsku, hvíldin elli. Sæludalur sveitin best sólin á þig geislum helli. Hvíl í friði, elsku mamma. Þinn Ragnar Þór. Helga Sæþórsdóttir ✝ IngibjörgSteinunn Kristjánsdóttir fæddist 5. mars 1925 í Borgarnesi. Hún lést 16. maí 2019 á hjúkr- unarheimilinu Skjóli í Reykjavík. Foreldrar henn- ar voru Kristján Magnússon, f. 25. ágúst 1895 að Breiðabólsstað á Skógarströnd, d. 16. september 1977, og Sigurþórunn Jósefsdóttir, f. 16. nóvember 1893 að Skógsmúla í Dalasýslu, d. 1944. Bróðir Ingibjargar var Jó- hannes Jósep Kristjánsson, f. 31. október 1926, d. 23. nóvember 1975. Ingibjörg giftist Haraldi Páli Þórðarsyni, 9. júlí 1949, og þau bjuggu lengst af í Staðarbakka 34 í Reykjavík. Ingi- björg og Haraldur voru barnlaus. Ingibjörg var húsmóðir og fékkst við saumastörf. Útför Ingibjargar verður gerð frá Áskirkju í dag, 24. maí 2019, klukkan 11. Elsku besta Inga frænka. Í dag kveð ég þig í hinsta sinn og minningarnar streyma fram, ylja og kæta og gera mér ljóst hversu heppin ég var að hafa þig í mínum innsta hring. Ævi þín var löng þótt síðustu æviárin hafir þú ekki getað notið alls þess sem þessi jarðvist býður upp á vegna heilsubrests. Ég minnist konu sem var stríðin, skemmtileg, örlítið sér- vitur, mjög nýtin, einstaklega ljúf og afar örlát. Inga frænka var á einhvern hátt meira en afasystir mín, ég eignaðist með henni þriðju ömmuna sem allt vildi fyrir mig og frændsystkini mín gera. Þau Halli bjuggu á fal- legu heimili á Staðarbakka í Breiðholtinu og þangað var allt- af gott að koma sem og til Ingu þegar hún flutti í Árskóga eftir að Halli lést. Inga frænka kenndi mér margt en nú þegar ég hugsa til baka þá kenndi hún mér meira en ég gerði mér grein fyrir og marga af hennar eiginleikum vil ég tileinka mér. Mér er minn- isstætt þegar við sátum tvær við eldhúsborðið í Staðarbakkanum og ég varla eldri en 5-6 ára. Hún var að kenna mér að súkkulaði skyldi aldrei borða fyrir mat og að matinn skyldi tyggja að mér fannst milljón sinnum áður en honum væri kyngt. Hún kenndi mér líka að fara aldrei að sofa fyrr en allt væri á sínum stað, það gerði morgnana svo miklu þægilegri. Inga var mjög listræn og eftir hana liggja ótal listaverk en hún saumaði, heklaði, málaði og gerði fallega muni úr leir. Inga sá fallegu hlutina í umhverfinu og vildi hafa fallegt í kringum sig. Heimili hennar var ávallt snyrtilegt og garðurinn í Stað- arbakkanum algjört meistara- verk. Hlutir sem ég á og Inga gerði með sínum eigin höndum skipa og munu alltaf skipa sér- stakan sess á mínu heimili. Inga var umhverfissinni og kannski meiri en hún sjálf gerði sér grein fyrir. Hún var á sínu 95. aldursári þegar hún lést og hafði því lifað tímana tvenna eins og sagt er. Hún var nýtin á mat og föt, nokkuð sem komandi kynslóðir eru að reyna að temja sér að nýju svo náttúran njóti sín sem best. Inga var líka partí- dýr sinnar kynslóðar og hafði gaman af því að bjóða heim. Ég minnist þess að koma í Stað- arbakkann og seinna í Árskóga þar sem borðstofuborðið svign- aði undan alls kyns kræsingum, flestar nokkuð sætar enda þótti Ingu mikið til sætinda koma. Engan mátti skorta nokkuð í heimsókn til Ingu og allir fengu sitt, meira að segja hundurinn okkar Brúnó fékk harðfiskbita í hvert sinn er hann heimsótti Ingu og Halla í Staðarbakkann. Elsku Inga frænka. Það er gott til þess að vita að þú og Halli séuð sameinuð á ný í sum- arlandinu góða. Þið voruð sam- hent, falleg, skemmtileg og afar góð hjón sem allt gerðuð fyrir mig. Grynnist ekki góðvildin þótt gerist gömul kona. Betri væri veröldin, viðmótið og samskiptin, ef heimurinn ætti fleiri af fólki svona. (Hilmar Pálsson) Hafðu þökk fyrir allt, ég er ríkari fyrir að hafa átt þig að. Unnur Sigurþórsdóttir. Fallin er frá Ingibjörg Stein- unn Kristjánsdóttir – Inga frænka. Á blaði var hún bara afasystir mín, en í raun var hún svo miklu meira. Barnapía, auka-amma, vinkona og fyrir- mynd. Inga var yndisleg manneskja. Umhyggju- og uppátækjasöm, drepfyndin og góðlátlega mein- stríðin, listræn og iðin, útsjón- arsöm og nýtin. Jafnvíg á potta og pensla. Flestar af mínum fyrstu minningum eru tengdar Ingu frænku. Á Staðarbakkanum át- um við gúmmíorma og ísblóm sem Inga og Halli áttu ávallt nóg af. Í Árskógum stjanaði hún við mig með fótanuddi og nýbök- uðum lummum á meðan ég horfði á Lukku-Láka og Ástrík af VHS-spólu. Strætóskoðunar- ferðir um Stór-Reykjavíkur- svæðið eftir að hún hætti að keyra (loksins!) þar sem hún skáldaði upp sögur og staðar- heiti ef hana rak í vörðurnar með staðreyndir. Þegar ég var sjö ára bjó hún heima á Núpa- bakkanum í heila viku og pass- aði okkur Evu þegar foreldrarn- ir höfðu farið til útlanda. Heimilið umturnaðist af skemmtilegum uppátækjum Ingu, eldhúspappírshaldarinn var allt í einu orðinn hrökk- brauðsstandur! Einhvern veginn gat hún alltaf séð spánnýjan flöt á hversdagsleikanum sér og öðr- um til skemmtunar. Til dæmis byrjaði hún að kenna mér á pí- anó um sex ára aldur þrátt fyrir að kunna ekkert sjálf, hvað þá eiga hljóðfæri! Stofuborðið ein- faldlega umturnaðist í konsert- flygil og við spiluðum saman af innlifun. Inga varð ekki þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast börn á sinni lífsleið, en ó hvað ég var heppinn að hafa hana í mínu lífi. Albert Finnbogason. Ingibjörg Steinunn Kristjánsdóttir Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Minningargreinar Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ARNÓR PÁLL KRISTJÁNSSON, bóndi á Eiði í Eyrarsveit, sem lést á Landspítalanum 11. maí, verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 25. maí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól í Grundarfirði. Auður Jónasdóttir Elísa Anna Friðjónsdóttir Hermann Jóhannesson Óskar Arnórsson Rannveig Þórisdóttir Sveinn Arnórsson Guðrún Lilja Arnórsdóttir Bjarni Sigurbjörnsson Kári Arnórsson Ólöf Ragnhildur Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR R.H. SIGFÚSDÓTTIR HALLDÓRS, sem lést miðvikudaginn 8. maí á Hjallatúni, Vík í Mýrdal, verður jarðsungin frá Víkurkirkju laugardaginn 25. maí klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hollvinasjóð Hjallatúns, 0317-26-300530, kt. 430206-1410. Jóhannes St. Brandsson Sigfús Jóhannesson Theresa A. O'Brien Guðrún Jóhannesdóttir Þ. Daði Halldórsson Stefán H. Jóhannesson Árný Lúthersdóttir barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HERMÍNA SIGURJÓNSDÓTTIR frá Siglufirði, áður búsett á West Palm Beach, Flórída, er látin. Útför hennar fór fram í kyrrþey, að hennar eigin ósk. Við fjölskyldan þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Einnig þökkum við starfsfólki þriðju hæðar norður á Hjúkrunarheimilinu Eir fyrir einstaka umönnun og hlýju í hennar garð. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Ása Finnsdóttir Jóhannes Long Sigurjón Finnsson Margrét Þóra Blöndal Soffía Ákadóttir Jón Þóroddur Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri SIGURÐUR BJARNI JÓHANNESSON menntaskólakennari lést á líknardeild Landspítala 14. maí. Útför hefur farið fram. Innilegar þakkir til allra sem önnuðust hann síðustu vikurnar. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Ásdís Guðmundsdóttir Linda Sigurðardóttir Ivan M. Knudsen Freyja Sjöfn Hrafnsdóttir Grímur Vilhjálmsson Svana Dís Þórarinsdóttir Tobias P. Gentin Sigurður Ingvar Þórarinsson Agnes Grímsdóttir Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem önnuðust hann í veikindum hans. Einnig þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐMUNDAR PÁLSSONAR tæknifræðings, Hrísmóum 7. Guð blessi ykkur öll. Guðbjörg María Jóelsdóttir Arnfríður María Guðmundsdóttir Kristín Pálsdóttir Magnús Ingvarsson Gissur E. Pálsson Hjálmar A. Jóelsson Erla Salómonsdóttir Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN BREIÐFJÖRÐ GUÐLAUGSSON, Diddi, bifreiðastjóri, Litlakrika 2a, lést laugardaginn 18. maí. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju mánudaginn 27. maí klukkan 13. Guðlaugur Kristinsson Sveinbjörg Haraldsdóttir Matthildur Ernudóttir Sigurjón Ólafsson G. Agnar Ernuson Vigdís Ólafsdóttir Súsanna Ernudóttir Andrés Magnússon Helena Ernudóttir Naser Khalil Þórir B. Kristinsson Steinunn S. Helgudóttir Anders Godsk María Helgudóttir Stefán Ingi Ingvason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.