Morgunblaðið - 24.05.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.05.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Falleg hönnun frá Blómahengi verð 970 kr. Bókastoðir verð 875 kr. stk. Hilluvinklar frá 850 kr. stk. Snagi HRÓI HÖTTUR verð 980 kr. stk. Snagi ALBER frá 1.630 kr. stk. Til í fleiri litum Snagabretti verð 4.980 kr. stk. Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár Snagi Papillon verð 1.630 kr. Fataupphengi Pescetto verð 1.980 kr. 50 ára Inga er Akur- eyringur en býr í Ólafs- firði. Hún er fjármála- stjóri og kennari í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Maki: Rúnar Krist- insson, f. 1968, sjó- maður á Sólberginu. Börn: Kristinn Örn Barkarson, f. 1986, og Brynjar Bjarkason, f. 1993. Stjúpsonur er Rögnvaldur Brynjar Rúnarsson, f. 2001. Foreldrar: Eiríkur Kristjánsson, f. 1944, rafvirki, og Hulda Baldursdóttir, f. 1945, hjúkrunarfræðingur. Þau eru búsett á Akureyri. Inga Eiríksdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Láttu takmarkanir sem felast í að- stöðu þinni sem vind um eyru þjóta. Tekjur maka þíns gætu aukist eða þú feng- ið gjöf eða einhvers konar fyrirgreiðslu. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér finnst þú búa við eitthvert and- streymi þessa dagana. Stilltu þig um að hlaupa í hringi, andlega og líkamlega. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú eru vitsmunalegir kraftar málið og þú slærð í gegn hvar sem þú keppir á því sviði. Skildu fordómana eftir heima, þeir flækjast bara fyrir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur svo sterka löngun til að kaupa eitthvað að það jaðrar við þrá- hyggju. Láttu það eftir þér að leika þér eingöngu að þessum hlutum dálitla stund. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nú þarftu að leggja mál þitt fyrir og þótt þú sért fullur sjálfstrausts skaltu muna að kannski eru aðrir litlir í sér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Spenna eða átök í samskiptum við vin eru hugsanleg. Samræður gætu farið út um þúfur vegna þess að einhver móðg- ast vegna orða þinna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft að melta þá hluti sem nú valda þér hugarangri. En líttu ekki of lengi um öxl því það er framtíðin sem skiptir máli. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það gengur ekki að þú hafir allt á hornum þér, bæði við ástvini og vinnufélaga. Taktu einn hlut fyrir í einu því ef þú ert með of mörg járn í eldinum fer allt úr böndunum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þeir eru margir sem bíða í of- væni eftir að heyra hvað það er sem þú hefur fram að færa. Fátt er eins dýrmætt og að kunna að verja sjálfan sig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú er komið að þeim tímamót- um í lífi þínu að þú hrindir í framkvæmd þeirri áætlun sem þú hefur svo lengi verið með í undirbúningi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert ekki hugsanir þínar, og það finnst þér gott að heyra, því hugur þinn er fullur af misgóðum hugmyndum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ekki nóg að vita hvað er manni fyrir bestu heldur er nauðsynlegt að tileinka sér það. Samræður um verka- skiptingu og skyldur eru líklegar. taugadeild og endurhæfingardeild. Sólveig hlaut viðurkenninguna Ung- ur vísindamaður ársins, á Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi á ráðstefn- unni Vísindi á vordögum 12. maí 2005. „Síðastliðið ár hef ég svo starfað á Greiningar- og ráðgjafarstöð rík- isins og er að hefja störf við rann- sókn á arfgengri heilabilun, sem Há- kon Hákonarson læknir stýrir.“ Helstu áhugamál Sólveigar eru söngur, garðrækt, bridge, golf og vatnslitamálun. „Ég var meðlimur í söngsveitinni Fílharmóníu í rúm 20 ár og syng í dag með ákaflega skemmtilegum kór sem heitir Harmóníukórinn. Ég spila bridge með vinkonum mínum þegar því verður við komið. Ég hóf að spila golf með manninum mínum fyrir nokkrum árum og sé mikið eftir því að hafa ekki byrjað í golfinu fyrr.“ Fjölskylda Eiginmaður Sólveigar síðan 23. október 1971 er Gestur Þorgeirsson hjartasérfræðingur, fyrrverandi yf- irlæknir hjartadeildar Landspítala, f. 15. júlí 1948. Foreldrar hans voru and Its Relationship to Comorbidity and Gender“, við læknadeild Rijks- universiteit Groningen 2006.“ Eftir heimkomu frá Bandaríkj- unum 1984 starfaði Sólveig sem sál- fræðingur á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkur í nokkur ár. Árið 1998 hóf hún störf á Landspít- alanum þar sem hún vann næstu 18 árin, fyrst í sex ár á barna- og ung- lingageðdeild (BUGL) og síðan á S ólveig Jónsdóttir fæddist 24. maí 1949 á Hring- braut 101 í Reykjavík. Þar bjó hún til sjö ára aldurs, en þá flutti fjöl- skyldan í Hlunnavog þar sem hún átti heima þar til hún giftist 1971. Sólveig hóf nám í Langholtsskóla, en fluttist yfir í Vogaskóla í 10 ára bekk og lauk þaðan landsprófi 1965. „Það var gaman að alast upp í Voga- hverfinu á þessum tíma. Hverfið var mjög barnmargt og Vogaskólinn, sem var fjölmennasti grunnskóli landsins, var þrísetinn.“ Þegar Sólveig var 10 og 11 ára var hún á sumrin í sveit hjá frænda sín- um Daníel Pálssyni, bónda í Geitavík á Borgarfirði eystra, og eiginkonu hans Margréti. „Ég var send þangað ein með Esjunni, sem þótti ekki til- tökumál í þá daga. Þetta voru yndis- leg sumur á einum fegursta stað á Íslandi. Þar stundaði ég hefðbundin sveitastörf, vann við heyskap, rak og sótti kýrnar, gaf hænunum og mok- aði flórinn. Ég minnist þess einnig að hafa sviðið kindahausa á spýtu yf- ir prímuseldi. Ég átti fallegt steina- safn eftir dvöl mína á Borgarfirði. Sumarið sem ég varð 12 ára vann ég við tómatarækt á Syðri-Reykjum í Biskupstungum. Á menntaskóla- árunum vann ég í tvö sumur skrif- stofustörf við Búrfellsvirkjun. Á há- skólaárum mínum starfaði ég sem flugfreyja hjá Loftleiðum í þrjú sumur.“ Sólveig fór í Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdents- prófi 1969. Síðan lá leiðin í Háskóla Íslands þaðan sem hún lauk BA- námi í sálfræði 1975. „Ég var í fyrsta árganginum sem lærði sálfræði á Ís- landi. Ég kenndi ensku við Gagn- fræðaskólann við Laugalæk 1974 til 1978, en þá flutti ég ásamt eigin- manni og þremur börnum til Cleve- land í Ohio í Bandaríkjunum. Þar stundaði maðurinn minn sérfræð- ingsnám í hjartalækningum og ég framhaldsnám í skólasálfræði við John Carroll University og hlaut löggildingu sem skólasálfræðingur í Ohio-ríki 1984. Síðar fór ég í dokt- orsnám í taugasálfræði til Hollands og varði doktorsritgerðina, „ADHD hjónin Þorgeir Gestsson, f. 3. nóv- ember 1914, d. 19. júní 2005, læknir frá Hæli í Gnúpverjahreppi og Ása Guðmundsdóttir, f. 25. júní 1918, d. 29. janúar 2012, húsmæðrakennari frá Harðbak á Melrakkasléttu. Börn Sólveigar og Gests: 1) Erla Sigríður, f. 24. apríl 1972, verkfræð- ingur, búsett í Mosfellsbæ. Maki: Hugi Sævarsson framkvæmdastjóri. Börn: Sólveig Rósa, f. 22. maí 2001, og Sævar Atli, f. 28. nóvember 2004. 2) Ása Fanney, f. 31. janúar 1976, MM í óperusöng og MA í menning- arstjórnun. Fv. maki: Claudius Brodmann kvikmyndagerðarmaður. Börn: Gestur Andri, f. 29. ágúst 2004, og Sólveig Gabríela, f. 14. nóv- ember 2007. 3) Þorgeir, f. 21. júní 1978, taugalæknir, búsettur í Reykjavík. Maki: Helga Eyjólfs- dóttir öldrunarlæknir. Börn: Eyjólf- ur Logi, f. 2. apríl 2005, Gestur, f. 9. júní 2007, og Hekla, f. 17. desember 2012. 4) Jón Gunnlaugur, f. 7. nóv- ember 1984, MS í sálfræði og flug- maður. Maki: Hjördís Diljá Gunn- laugsdóttir, BA í markaðsfræði og flugfreyja. Systur Sólveigar eru Sigríður Sólveig Jónsdóttir taugasálfræðingur – 70 ára Fjölskyldan Sólveig og Gestur ásamt börnum, mökum þeirra og barnabörnum í heimsókn hjá NASA. Söngunnandi og golfáhugamaður Útskrift Við útskrift yngri sonarins frá Florida Institute of Technology. 40 ára Bjarney er Grímseyingur en býr á Dalvík. Hún er þroskaþjálfi á leik- skólanum Krílakoti. Maki: Gunnar Reim- arsson, f. 1975, sjó- maður á Björgúlfi. Börn: Tvíburarnir Heiðar Andri Gunn- arsson og Hilmar Örn Gunnarsson, f. 2000, og Aron Ingi Gunnarsson, f. 2006. Foreldrar: Sigfús Jóhannesson, f. 1948, sjómaður, og Aðalheiður Sigurðardóttir, f. 1950, húsmóðir. Þau eru búsett í Grímsey. Bjarney Anna Sigfúsdóttir Til hamingju með daginn Bolungarvík Mía Von Matthías- dóttir fæddist laugardaginn 1.september 2018 kl. 13.46 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hún var 3.080 g að þyngd og 49 cm að lengd. Foreldrar hennar eru Aníta Mjöll Heimisdóttir og Matthías Bessason. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.