Morgunblaðið - 24.05.2019, Side 24

Morgunblaðið - 24.05.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019  Portúgalska handknattleikskonan Maria Ines Pereira er farin frá Hauk- um eftir að hafa spilað með liðinu í fjögur ár. Hún er búin að semja við Bad Wildungen sem leikur í efstu deild Þýskalands. Maria hefur verið í stóru hlutverki í Haukaliðinu og skoraði 104 mörk fyrir það í 21 leik í Olísdeildinni í vetur.  Manuel Ángel Rodríguez hefur ver- ið ráðinn þjálfari karlaliðs Skallagríms í körfuknattleik en liðið féll úr úrvals- deildinni í vor. Rodríguez kannast vel við sig í Borgarnesi en hann þjálfaði kvennalið félagsins 2015-17, kom því upp í úrvalsdeild, í bikarúrslit og í úr- slitakeppni Íslandsmótsins.  Frederik Schram, einn af markvörð- um karlalandsliðs Íslands í knatt- spyrnu undanfarin ár, er hættur hjá danska B-deildarliðinu Roskilde eftir að hafa verið aðalmarkvörður liðsins í þrjú ár. Frederik er 24 ára og hefur spilað fimm landsleiki og segir í viðtali við mbl.is í gær að hann útiloki alls ekki að spila á Íslandi þó hann hafi allan sinn feril leikið í Danmörku. „Ég hef rætt við ís- lensk félög í gegnum tíðina en ekki að und- anförnu. Ég veit að það hefur verið áhugi frá félögum í Danmörku og einnig ann- ars staðar í Evrópu,“ sagði Freder- ik m.a. við mbl.is. Eitt ogannað SELFOSS Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Það var líf og fjör við hótelið á Sel- fossi í gærkvöld þar sem margt fólk kom saman og Ingó veðurguð hélt uppi fjörinu auk þess sem boðið var upp á karókí þar sem ég söng dúett með Alexander Már Egan í laginu „Hlið við hlið“ með Frikka Dór,“ sagði Sverrir Pálsson, nýkrýndur Ís- landsmeistari í handknattleik karla með félögum sínum í Selfoss-liðinu, þegar Morgunblaðið tók púlsinn á varnarjaxlinum sem fór á kostum í hjarta Selfossvarnarinnar í úrslita- rimmunni við Hauka um Íslands- meistaratitilinn. „Hér á Selfossi og nærsveitum rík- ir hátíðarstemning í dag. Allir eru með bros á vörum og vilja gera allt fyrir mann,“ sagði Sverrir sem er einn af fjölmörgum heimamönnum í liði Selfoss. Sverrir sem er 25 ára gamall og hefur leikið með meist- araflokki í átta ár hefur á þeim tíma fengið að kynnast því súra jafnt sem því sæta. Sverrir er einn fimm leikmanna Ís- landsmeistaraliðs Selfoss á leiktíð- inni sem skipuðu Selfossliðið þegar það kom upp úr 1. deild fyrir þremur árum eftir að hafa lagt Fjölni í fimm leikja rimmu þar sem Selfoss vann þrjá síðustu leikina. Hinir eru Alex- ander Már Egan, Elvar Örn Jónsson, Hergeir Grímsson og Helgi Hlyns- son markvörður, sem tók þátt í nokkrum leikjum í upphafi keppn- istímabilsins í haust sem leið. „Ég hef kynnst ýmsu á síðustu ár- um. Allt frá að vera í miðjumoði í næstefstu deild og upp í að verða Ís- landsmeistari á nokkrum árum er hreint ótrúlegt ævintýri sem gaman hefur verið að taka þátt í. Undan- farin tvö ár höfum við verið nærri stóru titlunum og meðal annars tap- að deildarmeistaratitlinum tvö ár í röð á markatölu sem er sennilega einsdæmi. Við vissum vel að við vor- um með öflugt lið þannig að fyrr en síðar myndi eitthvað ganga alveg upp hjá okkur. Það var bara spurn- ing um tíma,“ segir Sverrir sem vax- ið hefur við hverja raun. Var einu sinni stórskytta „Ég er nú ekki nema 25 ára gam- all, þótt ég líti út fyrir að vera eldri með þetta skegg þá rétt slefa ég upp í eldri hluta hópsins í liðinu enda eru margir leikmenn þess afar ungir að árum,“ sagði Sverrir léttur í bragði. Hann hefur nær eingöngu leikið í vörn Selfoss-liðsins síðustu tvö til þrjú árin. „Ég var einu sinni ein helsta skytta liðsins og tel mig enn vera frambærilegan sem slíkur. Aft- ur á móti eru enn betri skyttur í lið- inu en ég og á meðan svo er þá tek ég öðrum hlutverkum innan liðsins sem ég er beðinn um og reyni að sinna þeim eins vel og mér er unnt,“ sagði Sverrir sem hefur æft handknattleik frá 12 ára aldri og fór m.a. upp í gegnum handboltaakademíu Selfoss- liðsins sem rekin er í samvinnu við Fjölbrautaskólann á Selfossi. „Ég var mikið í frjálsum þegar ég var yngri en hætti þegar ég var ekki lengur bestur í öllu. Þá sneri ég mér alfarið að handboltanum,“ segir Sverrir kíminn. Haukarnir henta vel „Eftir að við fórum upp í Olís- deildina þá fékk ég það hlutverk að vera varnarsérfræðingur liðsins, leika í hjarta varnarinnar og kann því bara vel,“ segir Sverrir sem að margra mati sprakk út í hjarta varn- ar Selfoss-liðsins í úrslitakeppninni. Hann segist ekki hafa spáð mikið í það. „Tímabilið í heild var bara nokk- uð þokkalegt hjá mér en kannski tókst mér að stíga upp um eitt þrep í úrslitakeppninni. Margt gekk vel upp hjá mér, ekki síst gegn Haukum sem eru lið sem mér hentar vel að leika á móti með hávaxna leikmenn og sterka. Slíkir menn henta mér Við lékum bara eins og kóngar  Tölvunarfræðingurinn og varnarjaxl- inn í meistaraliði Selfoss var stórskytta  Æfði og keppti í frjálsíþróttum SELFOSS Ívar Benediktsson iben@mbl.is Árangur nýkrýndra Íslandsmeist- ara Selfoss í handknattleik karla er hvorki tilviljun né keyptur með fjölda aðkomumanna. Árangurinn er afrakstur af markvissu starfi inn- an handknattleiksdeildar félagsins um árabil. Aðeins þrír leikmenn liðsins eru aðkomumenn. Aðrir eru uppaldir hjá félaginu. Hluti liðsins er skipaður piltum sem eru fæddir 1997. Þeir unnu allt sem hægt var að vinna hér innanlands á hand- boltasviðinu á sínum tíma. Þeir gerðu reyndar gott betur með því að vinna til gullverðlauna á Partille Cup árið 2013, stærsta handbolta- móti barna og unglinga sem haldið er í heiminum ár hvert. Íslands- meistaratitillinn sem þeir unnu með samherjum sínum í gær var rökrétt framhald af þeim ferli. Ekki er ólíklegt að fyrsti Íslands- meistaratitill Selfoss í handknattleik Uppskorið eins karla sem vannst í fyrrakvöld sé að- eins sá fyrsti í röðinni. Markvisst starf handknattleiksdeildarinnar um árabil þar sem ákveðinni stefnu hefur verið fylgt við þjálfun barna frá unga aldri er að skila árangri og á vafalaust eftir að gera það áfram. Árangur yngri flokka Selfoss á síð- ustu árum, nú síðast í vetur, segir að reikna megi með að handknatt- leiksfólk frá Selfossi verði áfram í fremstu röð. Næstu kynslóðir eru þegar á leiðinni á þroskabrautinni. Leikur og alvara Æfingaáætlunin rúmast á einu A-4 blaði, eftir því sem næst verður komist, heldur sér frá 7. og 8. flokki upp í 4. flokk eða þangað til hand- boltaakademían tekur við í 3. flokki. Stefnan gengur í stórum dráttum út á leik þar sem tveir, þrír og fjórir vinna saman. Mikið er unnið í litlum hópum og nær ekkert leikinn sjö manna handbolti sem íþróttin geng- ur þó út á. Lögð er m.a. áhersla á leikskilning og hraða. KOMIÐ Í VERSLANIR ! Stórsniðugur skammtari fyrir stórsekki Hentar fyrir : FÓÐUR - ÁBURÐ - FRÆ - SAGKÖGGLA - SALT FÆST Í VERSLUNUM OKKAR OG Í NETVERSLUN www.fodur.is Ljósmynd/Guðmundur Karl Íslandsmeistari Sverrir Pálsson með Íslandsbikarinn í búningsklefanum eftir sigurinn magnaða á Haukum í fjórða úrslitaleiknum í fyrrakvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.