Morgunblaðið - 24.05.2019, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019
ROKK-æði
FOSSBERG
Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600
Yfir 20 mismunandi
slípirokkar á tilboði
út júní
HANDBOLTI
Þýskaland
RN Löwen – Göppingen ..................... 33:27
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk
fyrir Löwen en Alexander Petersson er frá
keppni vegna meiðsla.
Leipzig – Erlangen.............................. 26:25
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
Melsungen – Hannover Burgdorf ...... 28:25
Magdeburg – Gummersbach............... 29:24
Stuttgart – Flensburg.......................... 20:30
Efstu lið: Flensburg 60 (32 leikir), Kiel 56
(31 leikur), RN Löwen 50, Magdeburg 50,
Melsungen 38, Füchse Berlín 36, Bergisc-
her 36, Göppingen 34, Erlangen 28.
Ungverjaland
Fyrri úrslitaleikur:
Veszprém – Pick Szeged .................... 35:24
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 1
mark fyrir Pick Szeged sem er á heimavelli
í seinni leiknum á sunnudaginn.
Argentína
16-liða úrslit, fjórði leikur:
San Martin – Regatas .......... (2frl.) 124:128
Ægir Þór Steinarsson skoraði 5 stig fyr-
ir Regatas, tók 4 fráköst og átti eina stoð-
sendingu en hann lék í 22 mínútur.
Regatas vann einvígið 3:1.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Ólafsvíkurv.: Víkingur Ó. – Þór........... 19.15
Vivaldi-völlur: Grótta – Leiknir R ...... 19.15
2. deild karla:
Sauðárkr.: Tindastóll – Dalvík/Rey .... 19.15
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Kópavogsv.: Augnablik – Haukar....... 19.15
Kaplakriki: FH – Fjölnir ..................... 19.15
Varmárvöllur: Afturelding – ÍR.......... 19.15
Eimskipsv.: Þróttur R. – Tindastóll ... 19.15
Norðurálsvöllur: ÍA – Grindavík......... 19.15
2. deild kvenna:
Fjarðabyggðarhöll: FHL – Sindri ...... 19.15
Í KVÖLD!
Samúel Kári Friðjónsson skoraði
tvívegis fyrir Viking frá Stavangri í
norsku bikarkeppninni í knatt-
spyrnu í gær. Viking heimsótti
Hinna og sigraði 4:1 en leikurinn
var í 2. umferð keppninnar.
Viking er því komið áfram í 3.
umferð en Hinna er úr leik. Axel
Óskar Andrésson er frá keppni
vegna meiðsla.
Samúel Kári
skoraði tvívegis
Keflvíkingar eru taplausir eftir fjóra
leiki í 1. deild karla í knattspyrnu,
Inkasso-deildinni. Í gærkvöld fór
fram grannaslagur í bítlabænum á
milli Njarðvíkinga og Keflvíkinga.
Leikmenn voru hógværir þegar kom
að markaskorun eins og stundum
vill verða þegar grannalið mætast og
lauk leiknum með markalausu jafn-
tefli. Keflavík er með 10 stig eftir
þrjá sigra og eitt jafntefli. Njarðvík
hefur einnig byrjað vel en liðið er
með 7 stig eftir tvo sigra, eitt jafn-
tefli og eitt tap.
Reykjavíkurliðin Fjölnir og Þrótt-
ur bættu þremur stigum í sarpinn
hjá sér en þrír leikir voru á dagskrá í
gærkvöld. Grafarvogsbúar fóru ekki
langt og heimsóttu Mosfellinga sem
eru nýliðar í deildinni. Fjölnir hafði
betur 3:1 en jafnt var 1:1 að loknum
fyrri hálfleik. Bergsveinn Ólafsson,
Albert Ingason og Kristófer Óskar
Óskarsson skoruðu fyrir Fjölni. Al-
bert kom frá Fylki í vetur og hefur
þegar skorað þrjú mörk í deildinni.
Róbert Orri Þorkelsson skoraði fyr-
ir Aftureldingu.
Á Ásvöllum í Hafnarfirði tóku
Haukar á móti Þrótturum og fengu
Hafnfirðingarnir óskabyrjun þegar
Trínidadinn Sean De Silva skoraði á
annarri mínútu leiksins. Ekki tók
Þróttara langan tíma að jafna sig og
voru þeir yfir 3:2 að loknum fyrri
hálfleik.
Jasper Van Der Hayden skoraði
tvö mörk fyrir Þrótt og þeir Ágúst
Leó Björnsson og Lárus Björnsson
sitt markið hvor. De Silva skoraði
bæði mörk Hauka.
Fjölnir er með 9 stig í 2. sæti,
Þróttur í 6. sæti með 4 stig, Aftur-
elding í 10. sæti með 3 stig en Hauk-
ar í 11. sæti með 2 stig. Umferðinni
lýkur á morgun. sport@mbl.is
Keflavík taplaus á toppnum
Markalaust í grannaslagnum Albert Ingason drjúgur fyrir Fjölni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í Mosó Fjölnismaðurinn Ingibergur Kort Sigurðsson og Sigurður Kristján Friðriksson, Aftureldingu, í gær.
Gríska úrvalsdeildin í körfubolta
hefur ákveðið að senda lið Olympia-
cos niður um deild vegna mótmæla-
aðgerða félagsins en forráðamenn
Olympiacos neita að láta lið sitt
spila við Panathinaikos nema er-
lendir dómarar dæmi.
Olympiacos er sannkallað stór-
veldi sem orðið hefur grískur
meistari 12 sinnum, grískur bik-
armeistari níu sinnum og unnið
Euroleague þrisvar, en liðið er eitt
af sextán liðum í þeirri keppni sem
er sú sterkasta í Evrópu. Nánar um
málið á mbl.is/sport/korfubolti
Stórveldi fær
þunga refsingu
Morgunblaðið/Skúli B. Sigurðsson
Refsing Georgios Printezis leik-
maður Olympiacos á EM 2017.
Stefán Rafn Sigurmannsson og
samherjar í Pick Szeged eru í erf-
iðri stöðu í úrslitarimmunni um
ungverska meistaratitilinn í hand-
knattleik og það fremur óvænt eftir
gott gengi í vetur. Liðið fékk skell
gegn Veszprém í fyrri úrslita-
leiknum í gær. Veszprém vann leik-
inn með ellefu marka mun, 35:24,
og er því með girnilegt forskot fyr-
ir seinni leik liðanna á sunnudag-
inn. Stefán Rafn skoraði eitt mark í
leiknum. Hann varð deildarmeist-
ari með Pick Szeged sem endaði
fimm stigum fyrir ofan Veszprém.
Erfið staða hjá
Pick Szeged
AFP
Erfitt Stefán og samherjar voru
teknir föstum tökum í Veszprém.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í
baráttu um að komast í gegnum
niðurskurðinn á Pure Silk mótinu í
Virginíu. Mótið er hluti af LPGA
mótaröðinni þar sem Ólafía var áð-
ur með fullan keppnisrétt. Ólafía
lauk leik seint í gærkvöldi og var á
72 höggum. Er hún á höggi yfir
pari í 84. sæti eftir fyrsta dag.
Valdís Þóra Jónsdóttir er í ágæt-
um málum við Genfarvatnið þar
sem Jabra-mótið fer fram á Evr-
ópumótaröðinni. Er hún í 39. sæti á
74 höggum sem er þrjú högg yfir
parinu. Á ýmsu gekk hjá Valdísi en
hún fékk fimm fugla sem er virki-
lega gott. En á hinn bóginn fékk
Valdís Þóra skramba og sex skolla.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
fékk tækifæri á stóra sviðinu og
komst inn í Made in Denmark mót-
ið í Silkeborg á Evrópumótaröð-
inni. Guðmundur náði sér ekki á
strik og lék á 78 höggum. Er hann
í næstneðsta sæti.
Haraldur Franklín Magnús
komst í gegnum niðurskurðinn á
Elisefarm mótinu í Svíþjóð en mót-
ið er hluti af Nordic Golf-
mótaröðinni.
Haraldur Franklín lék annan
hringinn á 69 höggum og fékk tvo
erni á hringnum. Kristófer Orri
Þórðarson er úr leik. kris@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LPGA Ólafía Þórunn á möguleika á að komast áfram í Virginíu.
Ágætur hringur
Ólafíu í Virginíu