Morgunblaðið - 24.05.2019, Page 28

Morgunblaðið - 24.05.2019, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 Íslenski dansflokkurinn heims- frumsýnir dans- og tónverkið Aiõn eftir Ernu Ómarsdóttur danshöfund og Önnu Þorvalds- dóttur tónskáld á Point-tónlistar- hátíðinni í Gautaborg í kvöld við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar. „Aiõn er mikið ástríðuverkefni þeirra Ernu og Önnu og er inn- blásið af abstrakt hugsun um tím- ann og ferðalag milli vídda. Í Aiõn bjóða Erna og Anna áhorf- endum upp á töfrandi heim þar sem tónlist og dans mætast á óvanalegan hátt og dansarar Ís- lenska dansflokksins og hljóð- færaleikarar Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar renna saman í eitt,“ segir í tilkynningu frá Íd. Þar kemur fram að um sjón- ræna umgjörð sjá búningahönn- uðurinn Agnieszka Baranowska og kvikmyndagerðarmennirnir Pierre-Alain Giraud og Valdimar Jóhannsson. Vídeóverki sem Pierre-Alain og Valdimar hafa búið til fyrir Aiõn verður varpað á veggi tónlistarhússins í Gauta- borg við undirspil hljómsveit- arinnar og dans dansflokksins. Íd sýnir Aiõn í Eldborg í Hörpu 1. apríl 2020 við undirleik Sinfón- íuhljómsveitar Íslands. Aiõn er samstarfsverkefni Íslenska dans- flokksins, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar. Ljósmynd/ Gunnar Freyr Steinsson Frumsýna Aiõn í Gautaborg í kvöld Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það er mjög gott að setja upp svona yfirlitssýningu. Maður staldrar að- eins við og skilur ferilinn betur en áður, sem er fínt,“ segir myndlistar- konan Hulda Hákon þar sem hún stendur innan um verkin sín á efri hæð Listasafns Íslands. Sum eru komin upp á veggi, önnur eru enn í kössum og innpökkuð þegar við ræð- um saman, en þegar sýningin Hverra manna ertu? verður opnuð klukkan 20 í kvöld, föstudagskvöld, verða þau öll á réttum stað. Og gefa góða og tímabæra sýn á sérstakan myndheim og verk Huldu; hér eru í lágmyndum og skúlptúrum hausar af álftum, gæsum og hröfnum, önnur verk gerð úr mannshöfðum, hér eru líka portrett af fótboltamönnum og íslenskum samtímamönnum, Mið- garðsormur vefur sig utan um Höfða í verki sem var gert á tíma leiðtoga- fundarins þar árið 1986, það er skrímsli við Korpúlfsstaði og biðröð fólks við Þjóðleikhúskjallarann, maður inni í hamraborg úr svörtum spýtum og önnur hamraborg byggð í Wall Street-hverfinu í New York. Þetta eru alls kyns örsögur og textar í mörgum verkanna, sem segja frá fólki, aðstæðum, farfuglum eða ör- nefnum í sjó og á landi. Hátt í fjórir áratugir Ferill Huldu Hákon spannar nú hátt í fjóra áratugi. Hún fæddist í Reykjavík árið 1986, nam eftir stúd- entspróf við nýlistadeild Myndlista- og handíðaskólans og hélt eftir það, ásamt eiginmanni sínum, myndlist- armanninum Jóni Óskari, í nám við School of Visual Arts í New York. Og elstu verkin á sýningunni eru frá 1983, gerð meðan á náminu ytra stóð. Það eru einu málverkin, verkið „Icelandic Sheep“. Hulda segist hafa komið þá heim vegna andláts afa síns, þá átti að fara að opna í JL- húsinu hina goðsagnakenndu sýn- ingu Gullströndin andar – sem markaði upphaf bylgju „nýja mál- verksins“ hér á landi. „Ég keypti ódýrt efni, málaði þessi verk á tveimur dögum í JL-húsinu og sýndi þau þar. Þau eru sýnd hér eins og upphaflega; heftuð beint á vegginn.“ Hann er eitt skraut Hvers vegna kallar hún sýninguna Hverra manna ertu? „Þetta er ein af þeim setningum sem hafa ratað í verk hjá mér, það var á sýningu sem ég setti einu sinni upp á Kjarvalsstöðum,“ svarar Hulda. „Þetta er tvíbent spurning. Í hinu gamla Íslandi þótti öfum okkar og ömmum eðlilegt að spyrja svona, enda var þá alltaf einhver nefndur í þessu fámenna og lokaða samfélagi sem spyrillinn þekkti. En svona spurning getur gengið nærri sumum og það er alls ekki víst að allir vilji svara henni. Ef maður er af „vit- lausu“ fólki, er maður þá búinn að gjaldfella sig?“ Og margt hefur gegnum árin orð- ið Huldu að verki. Í öðrum salnum eru tvö nýleg verk sem sýna makríl; ofan á fiskana hefur hún málað heiti fiskimiða úti fyrir landinu, annað er Rósagarðurinn. Hulda og Jón Óskar dvelja löngum í Vestmannaeyjum og ástæðuna fyrir makrílnum segir hún hafa verið að einu sinni hafi hún far- ið með sonarsyni niður á bryggju þar að veiða og þau hafi strax fengið makríl enda var hann að ganga. „Ég var svo hissa þegar ég sá hvað fisk- urinn var fallegur, meira að segja tungan var silfruð! Hann er eitt skraut.“ Og kallaði augsýnilega á þessi verk á sýningunni. „Svo hafði ég áður notað í verk titla á miðum kringum landið; eftir að hafa verið mikið í Eyjum veit ég hvað sjó- mennskan getur verið erfið en úti á ballarhafi eru þeir svo að skíra miðin þessum fallegu nöfnum, eins og Rósagarðurinn og Paradísarhola.“ Það er fjöldi verka á sýningunni, „sýnishorn frá ferlinum“, segir Hulda og dásamar samstarfið við starfsfólk Listasafnsins; síðan í fyrrasumar hafi þau átt vikulega fundi og mótað sýninguna og vænt- anlega sýningarskrá á afar faglegan hátt. Og verkin koma víða að. „Sum úr söfnum hér á landi og eitt stórt frá Listasafninu í Malmö í Svíþjóð – það er frá 1989 og ég seldi það strax og hef ekki séð það síðan, ég á ekki einu sinni litmynd af því, og það var gaman að sjá það hér aftur. Svo eru mörg verkin í einkaeigu.“ Þá eru nokkur ný verk, hún sýnir eitt með gæsahausum og hrævareldi sem hún nær fram með því að nota fosfat í málninguna, og annað er bjart og með hvítu fuglageri og kall- ast „Jafndægur að vori“. „Í raun gerði ég þá mynd fyrir löngu og sýndi hana en var samt aldrei alveg ánægð. Svo braut ég fullt af henni og er ánægð núna, hef aldrei gert jafn bjarta mynd,“ segir Hulda. Þá hefur hún skapað eins konar herbergi í miðjum þeim sal og segir það hýsa „munaskrá Kjarvals“. Á veggjunum þar inni eru plötur sem hún hefur skrifað á lýsingar á innihaldi sumra þeirra 347 kassa sem í er það sem var í vinnustofu Kjarvals er hann dó. „Þetta er eins konar portrett af gömlum þreyttum listamanni,“ segir hún um þessa innsetningu. Þetta er ákveðin hreinsun En hvernig líður Huldu nú við þessa miklu „tiltekt“, og það að geta horft yfir ferilinn með yfirlitssýn- ingu og væntanlegri bók. Er þetta kannski orðið gott? „Alls ekki! Þetta er ákveðin hreinsun og ég held að allir lista- menn hafi gott af því að fara gegnum svona „beauty treatment“ og horfa til baka yfir veginn. En annars er þetta bara enn ein varðan á leiðinni,“ segir Hulda Hákon og heldur áfram að setja verkin sín upp fyrir okkur að skoða í Listasafninu. Morgunblaðið/Einar Falur Yfirlit Hulda Hákon í Listasafni Íslands við tvö verk á sýningunni, íslenska hamraborg sem maður er að ganga inn í og aðra sem sýnir hunda og Wall Street-hverfið í New York. Bæði þessi verk gerði hún þar í borg á námsárunum. Þetta er enn ein varðan á leiðinni  Yfirlitssýning á verkum eftir Huldu Hákon verður opnuð í Listasafni Íslands í kvöld  Þau elstu frá námsárunum í New York og önnur splunkuný  Hefur skapað einstakan og vinsælan myndheim Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Margar gerðir af barstólum í textílleðri Verð frá 13.500 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.