Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019
Launmorðinginn og hunda-vinurinn John Wick snýraftur til leiks í þriðju kvik-myndinni um kappann. Að
þessu sinni er Wick á hlaupum und-
an öllum helstu illfyglum heimsins
eftir að hafa verið bannfærður fyrir
gjörðir sínar í annarri myndinni í
seríunni, þar sem hann myrti mann
á hinu griðhelga Continental-hóteli,
þungamiðju glæsiheims launmorða
og afbrota. Wick þarf því að finna
leið til þess að komast undan og um
leið friða sálu sína fyrir öllum ódæð-
unum sem hann hefur unnið á lífs-
leiðinni.
Eins og vera ber í John Wick-
mynd er enginn skortur á listilega
leikstýrðum ofbeldisatriðum, sem
hafa orðið að nokkurs konar aðals-
merki seríunnar. Í fyrri myndum
var gert mikið úr sögu um karakter-
inn, að hann hefði myrt mann með
blýanti. Í þessari bætir Wick ýmsum
öðrum hlutum á listann yfir ósenni-
leg morðtól, þar á meðal eru með-
limir dýraríkisins og rússneskar
heimsbókmenntir.
Keanu Reeves er traustur sem
fyrr í aðalhlutverkinu, og hann virð-
ist skapaður til þess að leika Wick.
Að þessu sinni nýtur hann aðstoðar
Sofíu (Halle Berry), fyrrverandi
launmorðingja sem skuldar Wick og
aðstoðar hann við að fresta skulda-
dögum sínum. Snillingurinn Ian
McShane (Lovejoy) snýr aftur í hlut-
verki Winstons, hótelstjóra Cont-
inental-hótelsins, og stelur senunni
líkt og hann gerir oftast hvar sem
hann kemur við.
Á endanum hverfist kvikmyndin
um baráttu Wick við „háborðið“ um
að vinna sér aftur inn frelsi sitt frá
lífi launmorðingjans. Asia Kate
Dillon (Orange is the New Black)
leikur fulltrúa háborðsins, kald-
rifjaðan dómara sem svífst einskis til
þess að koma „ólögum“ yfir Wick og
alla sem kunna að hafa svo mikið
sem kinkað kolli í áttina til hans.
Segjast verður eins og er að Dillon
nær ekki nægilega góðum tökum á
hlutverki sínu sem fulltrúi æðsta
valds í þeim glæsilega glæpaheimi
sem serían hefur búið til, sem er
skaði, því að gott illmenni getur oft
gert góða spennumynd betri.
Það fellur hins vegar í skaut laun-
morðingjanum og sushi-kokkinum
Zero (Mark Dacasco), sem virðist
a.m.k. jafn vel að sér í morðfræð-
unum og John Wick, og nær
Dacasco vel að hitta inn á allar klisj-
ur sem fylgja því að vera „stóri vondi
kallinn“ í svona spennumynd.
Það ætti kannski ekki að koma á
óvart að kvikmynd um launmorð-
ingja innihaldi umtalsvert ofbeldi,
og John Wick 3 ætti ekki að valda
unnendum þaulæfðrar ofbeldis-
kóreógrafíu neinum vonbrigðum.
Ofbeldið er yfirgengilegt á köflum
og verður stundum nánast kómískt í
fáránleika sínum, eins og þegar
Wick endar í hnífakastsbardaga sem
fékk bíósalinn til að springa úr
hlátri, hvort sem það var ætlunin
eða ekki. Á sama tíma dregur það
ögn úr spennustigi myndarinnar að
áhorfandinn er mögulega orðinn of
vanur þeim flottu fantabrögðum sem
fyrri myndir buðu upp á. Aldurinn
er þannig farinn að segja til sín.
Hitt er aftur á móti ljóst að serían
um John Wick ætlar ekkert að slaka
á eftir því sem fleiri kvikmyndir
bætast í bálkinn og sem slík er John
Wick 3 öflug viðbót við fyrri myndir,
án þess að hún nái sömu hæðum og
myndir eitt og tvö gerðu. Lykilorð
myndarinnar er að „hafa skuli það
sem svalara reynist“ og sé farið á
myndina með því hugarfari, ættu
aðdáendur John Wick ekki að verða
fyrir vonbrigðum.
Svalur Keanu Reeves í John Wick 3: Parabellum sem ætti ekki að valda unnendum þaulæfðrar ofbeldiskóreógrafíu
neinum vonbrigðum, að mati gagnrýnanda, þó ekki nái myndin sömu hæðum og fyrstu tvær gerðu.
Hafa skal það sem
svalara reynist
Laugarásbíó og Háskólabíó
John Wick: Chapter 3 – Parabellum
bbbnn
Leikstjóri: Chad Stahelski. Handrit: De-
rek Kolstad, Shay Hatten, Chris Collins
og Marc Abrams. Aðalhlutverk: Keanu
Reeves, Halle Berry, Laurence Fish-
burne, Mark Dacascos, Asia Kate Dillon,
Lance Reddick, Anjelica Huston og Ian
McShane.
Bandaríkin 2019, 131 mínúta.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Bandaríski rithöfundurinn Siri
Hustvedt hlaut á miðvikudaginn
hin virtu bókmenntaverðlaun
Spánverja kennd við prinsessuna
af Asturias fyrir höfundarverk
sitt. Dómnefnd segir verk Hust-
vedt með þeim allra metnaðar-
fyllstu í heimi bókmenntanna í
dag.
Hustvedt er 64 ára og hefur
skrifað ljóðabók, þrjú ritgerða-
söfn, sex skáldsögur og einnig
greinasöfn og þá ekki síst um
myndlist. Verk hennar hafa verið
þýdd á yfir 30 tungumál. Þegar
Hustvedt var þrettán ára dvaldist
hún sumarlangt á Íslandi og í við-
tali við Morgunblaðið árið 2005,
þegar hún var einn gesta Bók-
menntahátíðar, greindi hún frá
því hvernig stóð á því. „Faðir
minn var að rannsaka Íslendinga-
sögurnar og um sumarið fékk
hann styrk til að koma til Íslands.
Við komum til Reykjavíkur um
vorið og leigðum hús við Hávalla-
götu,“ sagði hún blaðamanni.
Sumarið á Íslandi hafi verið eitt
það yndislegasta sem hún hafi lif-
að.
Hustvedt er gift bandaríska rit-
höfundinum Paul Auster sem
hlaut Asturias-verðlaunin árið
2005. Verðlaununum fylgir pen-
ingaupphæð, 50 þúsund evrur.
Asturias-verðlaunin eru afhent í
október í borginni Oviedo sem er
höfuðstaður Asturias-héraðs.
Siri Hustvedt hlaut hin spænsku
bókmenntaverðlaun Asturias
Morgunblaðið/Einar Falur
Á Íslandi Siri Hustvedt var gestur
Bókmenntahátíðar í Reykjavík árið
2005 og ræddi þá við Morgunblaðið.
Radiohead-rokkmessur verða
haldnar í kvöld og annað kvöld,
sú fyrri á Hard Rock Cafe í
Reykjavík kl. 22 og sú seinni á
Græna hattinum á Akureyri,
einnig kl. 22.
Flutt verða öll þekktustu lög
Radiohead af yfir 30 ára ferli
hljómsveitarinnar og ætti þar að
vera af nógu að taka þar sem
breiðskífur hennar eru nú orðnar
níu talsins.
Hljómsveitin sem hefur verið
sett saman af þessu tilefni er
skipuð tónlist-
armönnum sem
eiga það sam-
eiginlegt að
hafa mikið dá-
læti á Radio-
head. Þeir eru
Eyþór Ingi
Gunnlaugsson,
Franz Gunn-
arsson, Þor-
björn Sigurðs-
son, Hálfdán Árnason og Skúli
Gíslason.
Tvær Radiohead-rokkmessur
Eyþór Ingi
Gunnlaugsson
Fjöllistahópurinn Hatari mun
troða upp í Edinborgarhúsinu á
Ísafirði á morgun, laugardag, en
hópurinn hefur ákveðið að flakka
landshorna á milli eftir að hafa
landað tíunda sæti í Eurovision.
„Hatari býður Vestfirðingum og
gestum þeirra að umfaðma enda-
lokin dansandi í Edinborgarhúsinu
– enda lífið tilgangslaust,“ segir í
tilkynningu. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21 og miðasala fer fram á
tix.is
Hatari kemur fram í Edinborgarhúsinu
Frægðarför Hatari í Eurovision söngva-
keppninni í Tel Aviv í síðustu viku.
Morgunblaðið/Eggert
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Lau 25/5 kl. 13:00 aukas. Sun 2/6 kl. 19:00 38. s Mán 10/6 kl. 19:00 42. s
Sun 26/5 kl. 19:00 35. s Mið 5/6 kl. 19:00 39. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s
Mið 29/5 kl. 19:00 36. s Fim 6/6 kl. 19:00 40. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s
Fim 30/5 kl. 19:00 37. s Fös 7/6 kl. 19:00 41. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s
Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk!
Elly (Stóra sviðið)
Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 24/5 kl. 20:00 19. s Fim 6/6 kl. 20:00 21. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Fim 30/5 kl. 20:00 20. s Fös 7/6 kl. 20:00 22. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Sun 26/5 kl. 20:00 8. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s Fim 6/6 kl. 20:00 Lokas.
Alltof mikið testósterón
Sýningin sem klikkar (Stóra sviðið)
Lau 25/5 kl. 20:00 43. s Lau 1/6 kl. 20:00 aukas.
Aðeins örfáar sýningar.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 26/5 kl. 13:00 Sun 2/6 kl. 13:00 Lau 8/6 kl. 13:00
Sun 26/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 2/6 kl. 16:00 Lau 8/6 kl. 16:00 Auka
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 31/5 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Loddarinn (Stóra Sviðið)
Fös 24/5 kl. 19:30 8.sýn Mið 29/5 kl. 19:30 9.sýn
Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna
Hárið (Stóra sviðið)
Fös 14/6 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30
Áhugasýning ársins 2019
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Fös 24/5 kl. 19:30
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið)
Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Atvinna