Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Síða 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2019
Svífandi
göngustígur
Með mikilli fjölgun ferða-manna hér á landi á síð-ustu árum hefur myndast
þörf fyrir að vernda þá ferða-
mannastaði sem illa mega við átroðn-
ingi. „Við sáum mikla þörf fyrir stíga
þar sem náttúran er undir miklu álagi
og umhverfið er slíkt að maður vill
ekki hrófla við því líkt og gerist þegar
lagðir eru stígar sem eru til dæmis
malbikaðir eða úr timbri,“ segir Birg-
ir Þ. Jóhannsson arkitekt sem, ásamt
brúarverkfræðingnum Laurent Ney,
hefur hannað svokallaða svífandi
göngustíga sem eiga að koma í veg
fyrir ágang ferðamanna á við-
kvæmum svæðum í náttúru Íslands.
Svokallaðar jarðvegsskrúfur eru
notaðar sem undirstöður fyrir álplöt-
ur sem á þeim liggja og lágmarka
þannig snertipunkta vegarins við
jörðina. Birgir segir burðargetu
platnanna mikla og geta verið allt að
sex metrar á milli skrúfna. Stígurinn
er því upplyftur og hefur lágmarks-
áhrif á þann jarðveg sem liggur und-
ir. „Auðvelt er að breyta stígnum eða
færa hann eftir þörfum og þegar slíkt
er gert er jörðin nánast ósnert und-
ir,“ segir Birgir. Hann segir enn-
fremur að álplöturnar séu mjög end-
ingargóðar, framleiðsla þeirra
hagkvæm og þær endurvinnanlegar.
Stígurinn nýtist vel þegar hann er
lagður yfir ójafnt landssvæði þar sem
álplöturnar eru sléttar og auðvelt að
ganga á þeim. „Stígurinn býður upp á
aðgengi fyrir hjólastóla að náttúru-
perlum auk þess sem áloxíð hálku-
vörn er borin á stíginn sem kemur í
veg fyrir hálku. Hann er því öruggari
en til dæmis timburstígur.“
Ennfremur gerir hönnun stígsins
mönnum kleift að leggja hann á
svæðum þar sem að öðrum kosti væri
erfitt eða ekki hægt að ganga. Birgir
segir tilvalið að leggja stíginn yfir
hraun, mýrlendi eða við hveri og seg-
ir hann ýmis svæði á landinu henta
vel í því skyni.
Frumgerð stígsins var lögð í
Hveradölum og þar var hægt að
leggja hann í nálægð hvers þar sem
dæmi voru um að fólk hefði meiðst
vegna virkni hans og svæðið því
hættulegt, að sögn Birgis.
Hægt er að leggja handrið við stíg-
inn auk þess að lýsa hann upp. Þá
geta snjómokstursvélar nýst við að
hreinsa stíginn ef þess þarf. „Stíg-
urinn fellur vel inn í umhverfið svo
inngripið sem fylgir lagningu hans er
lítið útlitslega séð,“ segir Birgir.
Hann segir stíginn byggjast á hönn-
un sem eigi sér engan líka.
Svífandi göngustíg-
ur í Hveradölum.
Úr einkasafni
Svífandi göngustígar eru ný og umhverfisvæn
tegund stíga sem ætlað er að vernda við-
kvæmar náttúruperlur fyrir átroðningi auk
þess að auðvelda aðgengi að þeim.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Upphaflega var verkefni Birgis
og Ney styrkt af Tækniþróun-
arsjóði til tveggja ára. Styrkur-
inn var nýttur til að þróa hönn-
un stígsins og prófa mismun-
andi útgáfur hans. Afraksturinn
var 20 metra langur stígur sem
lagður var í Hveradölum síð-
asta sumar.
Landeigendur í Hveradölum
voru ánægðir með afraksturinn
og sóttu því um styrk hjá Fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða
til að bæta aðgengi á svæðinu
með lagningu svífandi stíga.
Styrkurinn var veittur í mars
síðastliðnum og hljóðar upp á
29,8 milljónir króna. Styrkinn
er hægt að nýta til að leggja
u.þ.b. 100 metra langan stíg á
svæðinu og hægt að nýta sér-
staka eiginleika hans til að kom-
ast nær hverunum en hægt væri
með hefðbundnum stígum.
Fengu styrk til verksins
Nú væri sennilega frábær tími til að takaskófluna af Ragnari Önundarsyni svohann hætti að grafa sig dýpra og
dýpra. Það er hreinlega ekki einleikið hvað
hann er mikill sérfræðingur í að sýna hæfni sína
í mannlegum samskiptum. Eða ekki. Sérstak-
lega þegar kemur að einum þingmanni.
Það byrjaði á því að honum fannst Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, ekki gefa rétt mynd af sér sem
stjórnmálamanni á Facebook. Eins og hún væri
að senda skilaboð. Tímasetningin var einstak-
lega merkileg, í miðri #metoo-umræðinni. Í
kjölfarið lifnaði myllumerkið #ekkiveraragnar.
Þetta var ekki nóg fyrir okkar mann. Hann
fann sig knúinn í vikunni til að greina áhrif próf-
kjöra á stjórnmálin með þeim hætti að „glæsi-
legasta konan væri varaformaður og sætasti
krakkinn væri ritari“. Sætasti krakkinn er ein-
mitt Áslaug Arna, sem er reyndar á svipuðum
aldri og Ragnar var þegar hann varð banka-
stjóri. Ferli hans í viðskiptum lauk reyndar í
obbolitlu samráði. En það er önnur saga.
Einhver hefði haldið að nú væri þetta komið
gott. En, nei, ekki alveg. Áslaug fór í viðtal í
hlaðvarpi og sagði þar að metnaður sinn í
stjórnmálum stæði til þess að verða forsætis-
ráðherra. Svona einhvern tímann í framtíðinni.
Þetta finnst Ragnari ómögulegt. Þeir sem
sækjast eftir frama svona ungir eiga ekki að
fara á þing. Þeir eiga að fara til sálfræðings.
Enda að mati Ragnars algjörlega fáránlegt að
einhver láti sig dreyma um frama á þessu sviði.
Kannski væri þetta fyndið ef Ragnar væri
bara einn í þessu. En það er því miður enginn
skortur á kallpungum sem vita allra best hvað
er að í þessu þjóðfélagi og búa einmitt yfir
lausnunum. Sem væri heppilegt ef þeir hefðu
ekki sjálfir verið bara mjög virkir í stjórnmálum
og viðskiptum. Með umdeilanlegum árangri.
Annar sérfræðingur var á því að eina vonin
væri að kalla til hóp af útrunnum stjórnmála-
mönnum því þessir krakkar réðu ekkert við þetta.
Það var skömmu áður en einhverjir merkilegustu
kjarasamningar síðari ára litu dagsins ljós.
Þetta hefur ekkert með aldur að gera. Miklu
frekar viðhorf sem virðist þrungið af biturð og
reiði yfir því að hafa ekkert með málin að gera.
Sumum finnst eins og allt hafi verið betra í
gamla daga. Það var sól á sumrin og alltaf hvít
jól. Það reyndar stenst ekki en þannig er það í
minningunni. Og hjá sumum hefur nánast allt
verið á leiðinni lóðbeint til helvítis síðan þeir
hættu að hafa einhver völd og áhrif.
Þá myndi ég halda að það væri skynsamlegt
að reyna að rifja upp hvernig var að vera ungur.
Spenntur og óþolinmóður yfir að fá tækifæri og
fullur af nýjum og spennandi hugmyndum. Vilja
breyta og bæta og gera samfélagið nútímalegra,
opnara og lýðræðislegra.
Það vill nefnilega svo til að þessum yngri kyn-
slóðum, sem fara svona í taugarnar á þessum
mönnum (því þetta eru nánast alltaf karlar),
hefur að mörgu leyti tekist þetta. Þær hafa nýtt
sér þau tækifæri sem þær hafa fengið og náð að
auka jafnrétti, fordómaleysi og gegnsæi. Svo
eitthvað sé nefnt.
Mér finnst það nú bara býsna gott hjá þess-
um krakkabjánum.
’Þannig tókst einum að spá þvíað ríkisstjórnin myndi klúðraöllu í kjarasamningum af því ráð-herrarnir væri svo ungir og reynslu-
lausir. Jafnvel þótt meðalaldur
þeirra sé tæp 50 ár og samanlögð
þingreynsla þeirra rúm 100 ár.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
#ekkiverakallpungur
Langar þig í ný gleraugu!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar
hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun!