Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Side 32
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2019 AÐ SOFA BETUR OG LÍÐA BETUR ER OKKUR ÖLLUM DÝRMÆTT HEILSUDAGAR Í BETRA BAKI ÖLL HEILSURÚM OG KODDAR MEÐ 20% AFSLÆTTI Svefn er undirstaða heilsu, langlífis, hreystis og lífshamingju. Rétt dýna skiptir sköpum fyrir svefngæði. Komdu á heilsudaga í Betra Baki og finndu dýnuna sem skilar þér fullkomnum nætursvefni. n Náðir þú 8 klukkustunda svefni í nótt? Komdu í Betra Bak, leyfðu okkur að hjálpa þér að finna réttu dýnuna og njóttu þess að vakna tilbúin/n í daginn. n Vissir þú að svefn getur haft áhrif á þol þitt og úthald? Á heilsudögum finnur þú dýnuna sem hentar þér hvort sem þú vilt hafa hana mjúka eða stífa. VERÐDÆMI Tilboð 186.600 kr. TEMPUR ORIGINAL OG TEMPUR CLOUD 90 x 200 cm með Comfort botni og fótum. Fullt verð: 233.250 AFSLÁTTUR 20% HEILSUDAGAR! Tilboð 254.976 kr. 160 x 200 cm með Comfort botni og fótum. Fullt verð: 318.720 Cavallo heilsu- dýnan er upp- byggð til að veita hámarksslökun og hvíld í svefni. Fimm svæða pokagormakerfið er stífara á mjaðmasvæði og mýkra á axlasvæði. Cavallo er gerð úr 100% náttúrulegum efnum og inniheldur m.a. hrosshár í efsta yfirlagi. Steyptir hliðarkantar dýnunnar gefa 25% meira svefnsvæði. SERTA CAVALLO FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 Dillandi þjóðlagatónlist og fjörugir þjóðdansar munu senn fylla gamla niðursuðudósaverksmiðju í Borgar- túni en þjóðlagahelgin Vaka verður haldin í fimmta sinn um næstu helgi. Hátíðin hefst föstudagskvöldið 31. maí og stendur fram á sunndaginn 2. júní. Að sögn aðstandenda er markmið hátíðarinnar að styrkja þjóðlagatónlistarsenuna á Íslandi með því að stefna saman hljóðfæraleikurum, söngvurum og döns- urum til þess að deila tónum og sporum í húsnæði tungumálaskólans Dósaverksmiðjunnar. Tvennir tón- leikar verða haldnir á hátíðinni, föstudags- og laugar- dagskvöld, þar sem fram koma: Ragnheiður Gröndal, Skuggamyndir frá Býsans, Voces Thules, Umbra, Funi, Mandólín og Gýa. Að tónleikum loknum á laugardagskvöldinu verður slegið upp þjóðdansaballi við lifandi hljóðfæraleik. Á laugardeginum og sunnu- deginum verður hægt að sækja vinnustofur þar sem kenndir verða evrópskir þjóðdansar, íslenskir sagna- dansar, fiðlulög frá Hjaltlandseyjum og fleira. Þjóðlagahátíðin Vaka var fyrst haldin á Akureyri árið 2014 en er nú haldin í höfuðstaðnum í fyrsta sinn. Ragnheiður Gröndal kemur fram á hátíðinni. Morgunblaðið/Ómar Dillandi þjóðlagatónlist Þjóðlagahelgin Vaka verður haldin í fimmta sinn um næstu helgi. Tvennir tónleikar fara fram, þar sem fram koma Ragnheiður Gröndal og fleiri. „Fyrsti kappleikur Reykjavík- urmótsins fór þannig, að Valur vann Víking með 5 mörkum gegn 1. Óhætt er að fullyrða að meiri hluti þeirra 3.000 áhorf- enda sem á vellinum voru hafi orðið fyrir vonbrigðum, því leik- urinn var alt annað en skemti- legur, þegar undanskildar eru fyrstu 20 mínútur fyrri hálf- leiks.“ Þannig hófst umsögn um fyrsta leik Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu í Morgunblaðinu vorið 1939. Synd væri að segja að leikmenn Víkings hafi heillað blaðamann en hann hélt áfram: „Leikurinn sýndi að Vals- menn eiga nú sterkara lið, en nokkru sinni fyr og að Víkingar hafa enn ekki lært þá góðu og nauðsynlegu reglu, að missa ekki kjarkinn, þótt liðið sje í tapi, en þeir eyðilögðu leikinn bæði fyrir sjálfum sjer og áhorfendum með því að gefast upp eftir að þeir höfðu fengið fyrsta mark- ið.“ Þó var smá von: „Víkingar virðast hafa grautað í of mörg- um „systemum“, en sjálfsagt á hinn nýi þjálfari þeirra, Buchlob, eftir að kenna þeim mikið. Hann hefir aðeins dvalið hjer í 10 daga og því ekki haft tækifæri til að kenna þeim neitt enn.“ GAMLA FRÉTTIN Eyðilögðu leikinn Lið Víkings sumarið 1939. Það átti sitthvað ólært, að mati Morgunblaðsins. Ljósmynd/Víkingur söguvefur ÞRÍFARAR VIKUNNAR Elton John tónlistarmaður Taron Egerton kvikmyndaleikari Jóhannes Karl Guðjónsson knattspyrnuþjálfari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.