Morgunblaðið - 03.06.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Mílanó
Flugsæti
y
Beint flug í allt sumar og í haust
Flug frá kr.
49.900
Ámann báðar leiðir m/tösku
og handfarangri
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta eru bæði frábærar fréttir
fyrir okkur og fyrir bókaútgáfuna í
heild sinni. Það er fagnaðarefni að
við sjáum vöxt eftir samdráttarár,“
segir Stefán Hjörleifsson, lands-
stjóri hljóðbókafyrirtækisins Story-
tel á Íslandi.
Veltutölur bókaútgefenda frá
Hagstofu Íslands sýna nú vöxt milli
ára í janúar og febrúar í fyrsta sinn
í mörg ár. Nemur veltuaukningin
7,41% frá sama tíma í fyrra en eins
og Morgunblaðið hefur greint frá
hefur tekjusamdráttur í bókaútgáfu
undanfarinn áratug verið nærri
40%.
Koma í veg fyrir samdrátt
Stefán segir í samtali við Morg-
unblaðið að ástæðan fyrir þessari
veltuaukningu sé fyrst og fremst
rafrænar áskriftartekjur sem koma
núna inn í fyrsta sinn. „Ef tekjur
Storytel eru teknar frá þá væri um
að ræða áframhaldandi verulegan
samdrátt þó vissulega standi vonir
okkar til að með endurgreiðslulög-
unum nái bransinn að rétta úr sér.
Fyrstu tekjur Storytel á Íslandi
urðu til í byrjun mars 2018 og það
verður því fróðlegt að sjá hverju
fram vindur. Það eru ekki komnar
tölur fyrir mars og apríl hjá Hag-
stofunni en þekkjandi okkar tölur
þá tel ég öruggt að þessi vöxtur
muni halda áfram. Það ber vita-
skuld að hafa í huga að okkar
tekjur eru miklu jafnari en tekjur
almennt í bókabransanum þar sem
mesta salan er fyrir jólin. Við skul-
um því spyrja að leikslokum hver
vöxturinn verður í lok ársins.“
Nýjar tekur í bókahagkerfið
Stefán segir að eitt það ánægju-
legasta við þessa þróun sé að yfir
20% viðskiptavina Storytel séu nýir
lesendur, þ.e. þeir sem ekki lásu
bækur áður en þeir hófu að greiða
fyrir áskrift hjá Storytel. „Hér er
því um að ræða nýjar tekjur sem
skila sér beint í bókahagkerfið okk-
ar, rétthöfum og öðrum sem starfa
í greininni til aukinna hagsbóta.
Það er líka áhugavert að sam-
kvæmt könnunum lesa um 80% við-
skiptavina Storytel einnig hefð-
bundnar bækur.“
Storytel hefur náð talsverðri
markaðshlutdeild á íslenskum
bókamarkaði. Stefán bendir á að
þróunin hér sé svipuð og annars
staðar. „Þetta er sama þróun og
hefur átt sér stað í Svíþjóð þar sem
Storytel opnaði fyrst en þróunin
þar hefur þó tekið lengri tíma.
Þrátt fyrir 6% samdrátt í prent-
uðum bókum þar í landi óx mark-
aðurinn heilt yfir um 5% árið
2018.“
Ná til nýrra bókaunnenda
Heiðar Ingi Svansson, formaður
Félags íslenskra bókaútgefenda,
kveðst fagna þessum viðsnúningi í
veltu bókaútgefenda. „Ég hef ekk-
ert nema jákvætt um þetta að
segja, þó ég hafi auðvitað ekki séð
þessar tölur sundurliðaðar. Hljóð-
bækur eru vonandi að ná til fleira
fólks og út fyrir þennan hefð-
bundna ramma sem bókaútgáfa
hefur gert. Við þurfum líka að efla
lestur og vonandi er þetta spírall;
að aukin notkun hljóðbóka veki líka
áhuga á bókmenntum almennt.
Fjölgun þeirra sem njóta bók-
mennta í hvaða formi sem er er af
hinu góða. Ég fagna þessu.“
Loks viðsnúningur í bókaútgáfu
Tölur Hagstofunnar sýna vöxt í veltu bókaútgefenda í byrjun ársins Samdráttur um árabil en
rafrænar áskriftartekjur Storytel hafa aukið veltuna Hljóðbækur ná til nýrra bókaunnenda
Velta íslenskrar bókaútgáfu 2008-2019
Milljónir kr. samtals í janúar og febrúar
7,4% aukning 2018-2019
550
450
350
250
150
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Heimild: Hagstofa Íslands
502
387
452
345 350
376Stefán Hjörleifsson
Heiðar Ingi
Svansson
Notendur Storytel geta nú valið
úr á annað hundrað þúsund
titlum en innan tíðar mun þeim
fjölga umtalsvert og fara yfir
200 þúsund.
„Við höfum verið með bækur
á íslensku og ensku og bættum
nýlega við bókum á norsku. Svo
munum við bæta við stórum
pakka af sænskum og dönskum
bókum í júní,“ segir Stefán.
Hann segir að nýlega hafi
verið gengið frá samningi við
Forlagið, stærsta bókaútgef-
anda landsins, og nú séu bæk-
ur þess í boði hjá Storytel. Þar
með er hægt að nálgast
hljóðbókarútgáfur af bókum
vinsælustu rithöfunda landsins,
svo sem Arnaldar Indriðasonar,
Yrsu Sigurðardóttur, Ragnars
Jónassonar og Hallgríms
Helgasonar.
Þá geta nú mun fleiri nýtt
sér Storytel-appið en áður eftir
að það varð aðgengilegt í
bandarískri og breskri útgáfu
Appstore.
Yfir 200
þúsund titlar
STORYTEL STÆKKAR
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Það eru ekki allir svo heppnir að fá
að fagna gimsteinabrúðkaupi en
fimmta dæmið um slíkt hérlendis
bætist í sögubækurnar í dag.
Það eru þau Dýrleif Hallgríms og
Gunnar Ólafsson sem fagna slíku af-
mæli. Þau gengu í hjónaband á
Þingeyri hinn 3. júní 1944 og hafa
því verið gift í 75 ár. Þá var hann 22
ára og hún árinu yngri og eru þau
því 96 og 97 ára gömul í dag.
Dýrleif segir að þeim hjónum líði
prýðilega. „Okkur líður vel, við höf-
um það fínt og það getur ekki verið
betra. Við getum ekki ætlast til ann-
ars eða beðið um meira en þetta.“
Hjónin búa nú í Hæðargarði og
hafa gert um þó nokkurn tíma.
Gunnar hætti að keyra fyrir ári.
„Minn maður losaði sig við bílinn
fyrir rúmu ári og það var náttúrlega
heilmikið áfall. Ég sagði nú samt við
hann að hann ætti bara að vera sæll
að hafa ekki valdið neinum óhöpp-
um. Að hafa heilsu til þess að geta
keyrt svona lengi finnst mér bara
frábært,“ segir Dýrleif.
„Krakkarnir“ um sjötugt
Hjónin eiga fjögur börn.
„Þetta er náttúrlega allt komið
yfir sjötugt nema sú yngsta varð
bara sextug nýlega,“ segir Dýrleif
og bætir því við að „krakkarnir“ séu
duglegir að sendast fyrir foreldra
sína.
Dýrleif skellir upp úr þegar hún
er spurð hversu marga afkomendur
þau hjónin eigi.
„Ég hef ekki talið þau saman.
Þau eru bara öll til og allt í lagi. Við
erum bara sæl með það sem við höf-
um.“
Dýrleif og Gunnar ætla að fagna
tímamótunum með því að bjóða
börnum sínum í Hæðagarðinn.
„Ég ætla að baka pönnukökur,
það er ekkert öðruvísi.“
Morgunblaðið tók viðtal við hjón-
in fyrir fimm árum, á 70 ára brúð-
kaupsafmælinu.
Þá sagði Dýrleif um lykilinn að
löngu og góðu hjónabandi: „Númer
eitt, tvö og þrjú er að vera góð hvort
við annað. Leggja það sko ekkert
undir koddann.“
Hjónin kynntust á Þingeyri en
Dýrleif er þaðan. Gunnar er aftur á
móti frá Akranesi. Hann stundaði
lengi sjómennsku en eftir að hann
hætti því settu hjónin upp síldar-
söltun í Mjóafirði.
„Ég er ekki að segja að við hlökk-
um til næstu ára, það er annað mál
en þetta er bara allt í lagi,“ segir
Dýrleif að lokum.
Morgunblaðið/Eggert
Gimsteinabrúðkaup Hjónin bjuggu í Borgarnesi í 18 ár en fluttu á Dunhaga í Reykjavík árið 1962.
Fagna 75 ára hjónabandi
Einungis fimm dæmi um slíkt hérlendis Gunnar hætti
að keyra á tíræðisaldri Hafa ekki tölu á afkomendunum
Hannes Hlífar Stefánsson stórmeist-
ari varð Íslandsmeistari í skák í þrett-
ánda sinn á laugardag. Hann hefur
hampað titlinum
oftast allra.
Opna Íslands-
mótinu lauk á
laugardag en mót-
ið stóð í átta daga.
Síðasti keppnis-
dagur var þrung-
inn spennu en fyr-
ir síðustu
umferðina á laug-
ardag voru jafnir
og efstir hollenski stórmeistarinn Iv-
an Sokolov og stórmeistarinn Héðinn
Steingrímsson. Héðinn stóð því best
að vígi í baráttunni um Íslandsmeist-
aratitilinn fyrir seinustu umferð.
Hann náði þó ekki að halda forystunni
út keppni því hann laut í lægra haldi
fyrir sænska stórmeistaranum Tiger
Hillarp Persson í síðustu umferð, og
skaust þá Hannes Hlífar fram úr
Héðni með sigri á Jóni Viktori Gunn-
arssyni.
Sokolov vann hins vegar mótið með
sjö og hálfan vinning en Hannes end-
aði með sjö vinninga.
Íslandsmeistari í kvennaflokki varð
Lenka Ptacnikova og í flokki ung-
menna, 22 ára og yngri, varð Vignir
Vatnar Stefánsson Íslandsmeistari.
Hannes Íslandsmeist-
ari í þrettánda sinn
Hannes Hlífar
Stefánsson
Stal titlinum af Héðni á síðasta degi