Morgunblaðið - 03.06.2019, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Greint varfrá því fyr-ir helgi að
óháð nefnd sér-
fræðinga, sem
skipuð var af
mannréttindaráði Sameinuðu
þjóðanna, hefði komist að
þeirri niðurstöðu að þrír af
helstu forvígismönnum að-
skilnaðarsinna í Katalóníu-
héraði, sem nú sitja í fang-
elsi, væru í raun
samviskufangar og að því
bæri spænskum stjórnvöld-
um að láta þá lausa þegar í
stað. Þá ættu stjórnvöld á
Spáni að greiða mönnunum
bætur fyrir þann tíma sem
þeir hafa setið inni.
Um er að ræða þá Jordi
Sanchez, fyrrverandi forseta
héraðsþings Katalóníu, Jordi
Cuixart, forseta Omnium,
menningarstofnunar Kata-
lóníuhéraðs, og Oriol Junq-
ueras, sem var varaforseti
Katalóníuhéraðs. Nefndin
tók ekki afstöðu til máls sex
annarra aðskilnaðarsinna,
þar sem þeir vísuðu ekki máli
sínu til mannréttindaráðsins,
en allir níu eru meðal annars
ákærðir fyrir að hafa staðið
að „byltingu“, með gjörðum
sínum í október 2017 þegar
aðskilnaðarsinnar héldu um-
deilda atkvæðagreiðslu um
sjálfstæði héraðsins.
Niðurstöður skýrslunnar,
sem ekki eru bindandi, eru að
sönnu mikið áfall fyrir
spænsk stjórnvöld, enda hafa
þau fullyrt ítrekað að ekkert
óeðlilegt sé við framgang
réttvísinnar í málum kata-
lónsku aðskilnaðarsinnanna,
en þeir máttu sitja í fangelsi í
nærri eitt og hálft ár áður en
réttarhöld hófust í máli
þeirra, auk þess sem vægast
sagt vafasamt er að rétt sé að
ákæra mennina fyrir „bylt-
ingu“, sem felur í sér ofbeld-
isbrot, fyrir friðsamlega
stjórnmálabaráttu, þrátt fyr-
ir að hún hefði getað falið í
sér uppbrot Spánar.
Spænsk stjórnvöld hafa
brugðist við með því að mót-
mæla niðurstöðunni, meðal
annars með því að saka tvo af
þeim fimm sem sitja í nefnd-
inni um að eiga hagsmuna-
tengsl við aðskilnaðar-
sinnana í Katalóníu, en þau
felast í því að mennirnir tveir
hafi eitt sinn starfað með lög-
fræðingi þremenninganna í
alls óskyldu máli. Þá gagn-
rýndu stjórnvöld í Madrid
skýrsluhöfunda fyrir tíma-
setningu sína, en réttar-
höldum yfir aðskilnaðarsinn-
unum á að ljúka eftir tæpar
tvær vikur.
Eitt af því for-
vitnilega við þetta
mál er kannski
ekki síst sú stað-
reynd að menn-
irnir þrír voru all-
ir kjörnir til setu á spænska
þinginu í nýafstöðnum þing-
kosningum, og fengu leyfi frá
fangavist sinni til þess að
sitja setningu þingsins. Þing-
ið ákvað hins vegar í kjölfarið
að staðfesta ekki kjörbréf
þeirra, auk eins til viðbótar,
þar sem þeir sætu inni. Þá
var einum kjörnum öldunga-
deildarþingmanni vísað frá á
sömu forsendu. Þessi ákvörð-
un gæti haft töluverða þýð-
ingu, því að Pedro Sanchez,
forsætisráðherra, þarf að
minnsta kosti stuðning eða
hlutleysi eins þingmanns frá
þjóðernisflokkum Baska eða
Katalóna til þess að mynda
meirihluta á þinginu.
Þá hefur Katalóníudeilan
nú einnig leitt til þess, að öll-
um væntanlegum Evrópu-
þingmönnum landsins hefur
verið meinað að sitja þingið
þar til staðfest hefur verið
hverjir hafa rétt til setu á
því, en á meðal þeirra sem
náðu kjöri var Carles
Puigdemont, fyrrverandi for-
seti héraðsins, en hann er nú
í útlegð frá Spáni í Brussel.
Spænskar reglur krefjast
þess hins vegar að Evrópu-
þingmenn sverji eið að
stjórnarskrá Spánar á
spænskri grund áður en þeir
halda til þingsins, en ljóst má
vera að Puigdemonts bíður
fangelsisvist og réttarhöld,
geri hann það.
Öll þessi framganga hefur
rýrt álit spænskra stjórn-
valda, ekki síst erlendis en
hefur einnig haft mikil áhrif
innanlands. Katalóníudeilan
litar nú nánast hvern einasta
þátt spænskra stjórnmála, og
víst er að harkan hefur ekki
dugað til þess að laða þá, sem
sóst hafa eftir aðskilnaði
Katalóníuhéraðs frá Spáni,
aftur til hollustu við ríkið.
Það eru því allar líkur á að
niðurstöður nefndarinnar
verði enn frekara vatn á
myllu aðskilnaðarsinna.
Um leið hlýtur að aukast
þrýstingurinn á Evrópu-
sambandið að beita sér í
þessu máli. Þar á bæ hafa
menn gjarnan miklar áhyggj-
ur af stöðu mála í ríkjum
austar í álfunni eða utan
hennar, en af einhverjum
ástæðum þykir ekki stórmál í
Brussel hvaða aðferðum
stjórnvöld á Spáni beita í
baráttu sinni gegn pólitísk-
um andstæðingum.
Katalóníumálið
hefur ekki aukið
hróður Spánverja}
Deila í miklum hnút
N
ú er tilhlökkun í loftinu. Tími
skólaslita og útskrifta hjá
yngri kynslóðinni, skólavet-
urinn að baki og allt sumarið
framundan. Þessi upp-
skerutími er öllum dýrmætur, ekki síst
kennurum sem nú horfa stoltir á árangur
sinna starfa. Ég hvet nemendur og foreldra
til þess að horfa stoltir til baka á kenn-
arana sína og íhuga hlutdeild þeirra og
hlutverk í þeirri vegferð sem menntun er.
Menntun er samvinnuverkefni og kennarar
eru mikilvægir áhrifavaldar í lífi nemenda
sinna. Kennarar eru líka hreyfiafl okkar til
góðra verka og framfara í íslensku mennta-
kerfi en starf og árangur kennara byggist
á sjálfstæði þeirra og fagmennsku, næmi
fyrir einstaklingnum og þeim ólíku leiðum
sem henta hverjum nemenda til að byggja upp hæfni
sína.
Það eru virkilega ánægjulegar fréttir að umsókn-
um í kennaranám hefur fjölgað verulega. Þannig
fjölgaði umsóknum um framhaldsnám til kennslurétt-
inda í leik- og grunnskólakennaranámi við Háskóla
Íslands um 30% miðað við meðaltal síðustu fimm ára,
samkvæmt upplýsingum frá Menntavísindasviði Há-
skóla Íslands, og umsóknum í listkennsludeild
Listaháskóla Íslands fjölgaði um 122% frá síðasta ári.
Þetta eru að mínu mati góðar vísbendingar um að við
séum á réttri leið. Kennarastarfið er enda
spennandi kostur sem býður upp á fjöl-
breytta starfsmöguleika og mikið starfs-
öryggi.
Fyrr í vor kynntum við aðgerðir sem
miða að fjölgun kennara en í þeim felst
meðal annars að frá og með næsta hausti
býðst leik- og grunnskólakennaranemum á
lokaári launað starfsnám. Þá geta nem-
endur á lokaári meistaranáms til kennslu-
réttinda á leik- og grunnskólastigi sótt um
námsstyrk sem nemur alls 800.000 kr. til
að sinna lokaverkefnum sínum samhliða
launuðu starfsnámi. Enn fremur eru veitt-
ir styrkir til að fjölga kennurum með sér-
hæfingu í starfstengdri leiðsögn sem m.a.
taka á móti nýjum kennurum sem koma til
starfa í skólum. Umsóknum um slíkt nám
hefur fjölgað um 100% milli ára, samkvæmt upplýs-
ingum frá Háskóla Íslands.
Öflugt menntakerfi er forsenda framfara og það
kerfi er borið uppi af kennurum. Það er eftirtektar-
verð gróska í íslenskum skólum þessi misserin og
mikil og þörf umræða um skólastarf og hlutverk þess
til framtíðar. Ég fagna því um leið og ég óska kenn-
urum, nemendum og öðru skólafólki gleðilegs sum-
ars.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Vor í menntamálum – uppskeran í hús
Höfunder er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Það brautryðjandastarf sem unnið
hefur verið með bresku ferðaskrif-
stofunni Super Break hefur vakið at-
hygli á Akureyri sem áfangastað
ferðafólks í Evrópu. Nú hefur hol-
lenska ferðaskrifstofan Voigt Travel
hafið leiguflug til vallarins og unnið
er á fleiri mörkuðum í Evrópu.
Markmiðið er að gera Akureyrar-
flugvöll að alvörugátt fyrir erlenda
ferðamenn með beinu áætlunarflugi
frá Evrópu.
Flugklasinn 66N, samstarfs-
verkefni fyrirtækja í ferðaþjónustu,
sveitarfélaga, stofnana og fleiri
hagsmunaaðila, hefur í nokkur ár
unnið að því að kynna Akureyri sem
nýjan áfangastað fyrir millilanda-
flug. Breska ferðaskrifstofan Super
Break hefur nú í tvo vetur skipulagt
leiguflug til Akureyrar og hefur lýst
því yfir að því verði haldið áfram
næsta vetur. Fyrri veturinn voru
erfiðleikar með lendingar á flugvell-
inum og flugstöðin er í raun of lítil til
að taka við farþegum úr heilli þotu. Í
vetur voru farþegarnir látnir yfir-
gefa vélina í hollum, til þess að þeir
þyrftu ekki að bíða utandyra eftir
skoðun vegabréfa. Hjalti Páll Þór-
arinsson verkefnastjóri segir að
framkvæmdin hafi eigi að síður
gengið vel. Mikil ánægja sé meðal
ferðaþjónustufólks og farþeganna.
Flogið er tvisvar í viku þannig
að gestirnir stoppa almennt stutt.
Ferðaskrifstofan selur ferðapakka
með flugi, gistingu á Akureyri, norð-
urljósaferð og dagsferð í Mývatns-
sveit og gestirnir geta síðan bætt við
annarri afþreyingu.
„Þetta hefur haft gríðarlega
mikil áhrif hér, bæði á þjónustu-
fyrirtæki svo og mannlíf hér í bæn-
um. Hótel og afþreyingarfyrirtæki
fá auknar tekjur á þessum tíma sem
er rólegur í ferðaþjónustunni,“ segir
Hjalti.
Ólíkir farþegahópar
Fyrir viku kom fyrsti hópurinn
á vegum hollensku ferðaskrifstof-
unnar Voigt Travel sem sérhæfir sig
í að selja ferðir á norðlægar slóðir.
„Þeir sáu tækifæri til að gera eitt-
hvað svipað hér,“ segir Hjalti.
Transavia flýgur á vegum Voigt til
Akureyrar vikulega fram í sept-
ember. Farþegahópurinn er frá-
brugðinn bresku gestunum. Farþeg-
arnir kaupa flug og bílaleigubíl eða
húsbíl og gistingu á mismunandi
stöðum. Hjalti segir að margir fari
hringinn og taki í það hálfan mánuð
en aðrir einbeiti sér að Norðurlandi.
„Við bindum miklar vonir við þetta
samstarf. Jákvæðast er að Hollend-
ingarnir horfa til lengri tíma, vilja
byggja Akureyri upp sem áfanga-
stað til framtíðar.“
Áætlað er að í ár komi um 6.500
farþegar með þessum ferðaskrif-
stofum til Akureyrar og að minnsta
kosti jafn margir á næsta ári. Þá
bætist við vetrarflug frá Hollandi en
á móti kemur að reiknað er með að
færri ferðir verði frá bresku flug-
völlunum en var í ár og þar af leið-
andi færri farþegar. Hjalti sér fyrir
sér aukningu á næstu árum og von-
ast til að flug hefjist frá fleiri Evr-
ópulöndum og að í fyllingu tímans
þróist það út í beint áætlunarflug.
Markmiðið er að koma
á beinu áætlunarflugi
Erfiðar aðstæður Bretarnir sem Super Break flytur til Akureyrar þurfa
að yfirgefa flugvélina í hollum vegna þrengsla í flugstöðinni.
Leiguflug til Akureyrar
*Áætlað
2019 Flug Farþegar
Bretland – vetur 28 4.500
Holland – sumar* 16 2.000
6.500
2020* Flug Farþegar
Bretland – vetur 14-20 3.500
Holland – vetur 8 1.000
Holland – sumar 16 2.000
6.500
„Við sjáum að áhuginn á Ak-
ureyri er að aukast og gaman
að sjá frumkvæði heimamanna.
Eftirtektarvert er hversu allir
hafa staðið saman í að láta
þetta flug ganga upp við þess-
ar þröngu aðstæður,“ segir Sig-
rún Björk Jakobsdóttir, fram-
kvæmdastjóri flugvallasviðs
Isavia, um möguleika á bættri
aðstöðu í flugstöðinni.
Fyrirtæki sem tengjast ferða-
þjónustu, undir forystu KEA,
hafa boðist til að byggja við
flugstöðina og leigja ríkinu að-
stöðuna. Sigrún segir ekki hag-
kvæmt að byggja sérstaklega
yfir millilandaflugið þar sem
tæknin í flugstöðvum sé mjög
dýr og þurfi að vera hægt að
nýta hana fyrir alla starfsem-
ina. Hún segir að Isavia sé að
hefja vinnu með KEA og arki-
tektunum um útfærslu á hug-
myndunum í þessu ljósi, án
þess að vilyrði hafi verið gefið
um að tilboðinu verði tekið.
Tekur Sigrún fram að ekki séu
neinar fjárveitingar til stækk-
unar flugstöðvar.
Unnið er
að útfærslu
STÆKKUN FLUGSTÖÐVAR