Morgunblaðið - 03.06.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.06.2019, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019 Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is STIMPILPRESSUR Loftpressur af öllum stærðum og gerðum Mikið úrval af aukahlutum Á Íslandi má framleiða mörg þús- und megavött af raf- orku með vindmyll- um án verulegra umhverfisáhrifa ann- arra en sjónmeng- unar og slíkra áhrifa. Fram- leiðslukostnaður vindorku hefur lækkað svo mikið undanfarin ár að hann nálgast kostnaðinn við vatns- orku og jarðvarma. Góðum virkj- anakostum í vatnsafli og jarð- varma fer fækkandi og því er kærkomið að margir staðir á land- inu henta vel fyrir vindorkugarða. Þegar er kominn fram áhugi á að framleiða hér um 1000 MW af rafmagni með vindorku og ljóst að áhuginn mun bara vaxa. Útlit er fyrir að auðveldlega verði hægt að fullnægja fyrirsjáanlegri innlendri eftirspurn eftir raforku til langrar framtíðar og auk þess ætti að verða nóg eftir til útflutnings um sæstrengi ef til kemur. Hér er um risastórt mál að ræða fyrir þjóðina og því mikil- vægt að horfa strax á stóru mynd- ina og marka framsækna orku- stefnu. Hér eru nokkur atriði í því sambandi. Skilgreina þarf umhverfis- og auðlindagjald fyrir orkufram- leiðslu hvort sem er með vatni, hita eða vindi. Í Noregi er þegar í dag lagt á auðlindagjald sem nem- ur um þriðjungi af hagnaði orku- framleiðenda. Reglur EES kalla nú á samræmt auðlindagjald, og hefur það verið til athugunar í starfshópi ráðuneyta í nokkur ár og mikilvægt að fá álit hans sem fyrst. Í tilfelli vindorku ætti að vera um að ræða umhverfisgjald fyrir aðgang að þeim takmörkuðu gæðum að fá heimild til að setja upp vindorkugarða þrátt fyrir þá sjónmengun og önnur áhrif sem þeir hafa. Umhverfis- og auðlinda- gjaldið mun geta numið a.m.k. tugum milljarða króna á ári. Gera þarf rammaáætlun og skipuleggja vindorkugarða. Skil- greina þarf heppilegustu svæðin á landinu fyrir vindorkugarða út frá umhverfissjónarmiðum og teng- ingum við orkuflutningskerfi Landsnets. Taka þarf tillit til mögulegrar tengingar við raf- orkukerfi Evrópu um sæstreng. Margir landeigendur, t.d. sveit- arfélög, munu vilja að þeirra land verði skilgreint sem heppilegt svæði vegna teknanna sem vænta má. Mikilvægt er að eignarhald Landsnets sé sem mest óháð orkuframleiðendum til að minnka hættu á því að einum sé hyglað umfram annan, eins og reglur orkupakka þrjú kveða á um, þótt undanþága hafi fengist frá því. Vatnsaflsvirkjanirnar okkar nýtast vel til að jafna sveiflur í framleiðslu vindorkuvera. Með til- komu verulegrar vindorkufram- leiðslu og með því að stórauka afl vatnsaflsvirkjananna, sem kostar brot af meðalaflkostnaði nýrra virkjana, má spara vatn í miðl- unum þegar vindorkan er á fullu en nýta það þeim mun betur þeg- ar hægir á vindinum. Tenging við orkukerfi Evrópu í framtíðinni nýtist ef til kemur líka til að jafna út sveiflur. Mikilvægt er að koma á inn- lendum uppboðsmarkaði rafmagns þar sem verð er að breytast á hverri klst. eða innan klst., til að stýra álagi á raforkukerfið, og ofangreindu samspili breytilegs vinds og vatns. Þá er unnt að nýta betur þá raforku sem er til staðar, auk þess sem slíkur markaður er skilvirk leið til virkra viðskipta og að leiða fram raunverð orkunnar á hverjum tíma. Hönnun markaðar- ins þarf að taka mið af sérstöðu ís- lenska raforkukerfisins og beita þarf viðurkenndum samkeppnis- sjónarmiðum til að efla virkni orkumarkaðarins. Kanna þarf kosti og galla, kostnað og ábata sæstrengja til fulls. Ef þeir reynast raunhæfir og hagkvæmir, eins og margt bendir til, mun verðmæti hérlendra orku- auðlinda aukast. Svipað og gerðist með sjávarútvegsauðlindina þegar við fórum að geta flutt aflann út ferskan. Lítið er kvartað undan háu fiskverði því fólk veit að hátt heimsmarkaðsverð á fiski hefur skapað efnahagslegar framfarir á Íslandi. Svipað mun gilda um raf- orkuna ef útflutningur verður fær. Vegna þess hversu fjárfrek og áhættusöm lagning sæstrengs er er takmarkaður vilji til að opinber- ir aðilar standi að verkefninu að öðru leyti en mögulega að heimila það og gera viðeigandi ráðstafanir innanlands. Hins vegar ef einka- aðilar myndu vilja leggja í áhætt- una við sæstreng og njóta þá arð- seminnar ef vel gengur kæmi til greina að bjóða verkefnið út al- þjóðlega, sem einkaframkvæmd. Hugsanlega mætti hafa ákvæði um að verkefnið borgaði „tengigjald“ til að fjármagna nauðsynlegar framkvæmdir Landsnets við að flytja orkuna að landtökustað strengsins. Þá kemur sér vel að hér gildi samevrópskar reglur bæði um flutninginn og orkumark- aðinn. Þjóðhagslegur ábati vegna beisl- unar vindorkunnar og hækkunar raforkuverðs, ef til tengingar við raforkumarkað Evrópu kemur, getur, orðið gríðarlega mikill. Raforkuútgjöld meðalheimilis munu aukast lítillega, segjum um 10.000 kr. á ári, en þjóðhagslegur ábati gæti hins vegar numið um einni milljón króna á ári, mælt á heimili. Tekjur ríkis og sveitar- félaga munu aukast um marga tugi milljarða króna á ári og verða a.m.k. álíka miklar og af stærstu atvinnugrein þjóðarinnar, ferða- þjónustunni. Það er því ekki eftir neinu að bíða að móta framsækna orku- stefnu til framtíðar og hefjast handa við aðgerðir. Ekki mun af veita því hér skortir fé í heilbrigð- iskerfið, samgöngur og nánast öll verkefni sameiginlegu sjóðanna. Framsækin orkustefna getur skilað miklu Eftir Guðjón Sigurbjartsson og Egil Benedikt Hreinsson » Tekjur ríkis og sveitarfélaga munu aukast um marga tugi milljarða króna og verða a.m.k. álíka miklar og af ferðaþjónustunni. Egill Benedikt Hreinsson Höfundar eru viðskiptafræðingur og fv. fjármálastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur. gudjonsigurbjartsson@gmail.com Guðjón Sigurbjartsson Sjálfstæðisfélag Garðabæjar var stofn- að 3. júní 1959 og fagn- ar því 60 ára afmæli í dag. Stofnfélagar voru 124. Frá upphafi hefur markmið félagsins ver- ið að berjast fyrir þjóð- legri og víðsýnni fram- farastefnu með hagsmuni allra að leið- arljósi. Grundvöllur stefnunnar er frelsi, sjálfstæði þjóð- ar og einstaklings ásamt jöfnun rétti allra þjóðfélagsþegna. Sjálfstæðisflokkurinn bauð fyrst fram í sveitarstjórnarkosningum í Garðahreppi árið 1966 og hlaut meirihluta atkvæða. Síðan þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið óslitið í meirihluta í sveitarstjórn Garða- hrepps og síðar Garðabæjar. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur verið traust kjölfesta í rekstri sveitarfélagsins sem sést á þeim árangri sem Garðabær hefur náð. Kynjahlutföllin jafnast Fyrsti formaður Sjálfstæðisfélags Garðabæjar var Jóhann Eyjólfsson heitinn. Frá stofnun félagsins hafa þrjátíu formenn verið yfir félaginu og tugir manna setið í stjórninni. Ef horft er til kynjahlutfalla þá hafa tuttugu og þrír karlar og sjö konur gegnt formennsku. Fyrsta konan til að gegna formennsku var Ólöf Sigurðardóttir heitin sem kos- in var formaður árið 1993. Síðustu tuttugu árin hafa kynjahlutföllin jafnast því á þeim tíma hafa sex konur gegnt formennsku og fjórir karlar. Það er fagn- aðarefni. Öflugt félagsstarf Sjálfstæðisfélagið í Garðabæ hefur ávallt staðið fyrir öflugu fé- lagsstarfi. Félagið hefur verið ötult við að halda fundi þar sem íbúum Garða- bæjar gefst tækifæri til að hlýða á áherslur kjörinna fulltrúa og koma sínum ábend- ingum á framfæri. Í haust réðst stjórn félagsins í miklar endur- bætur á félagsheimilinu á Garða- torgi. Veggir voru teknir niður og rýmið með þeim hætti opnað, skipt var um gólfefni, húsnæðið var mál- að og fleira mætti nefna. Félags- heimilið nýtist nú enn betur fyrir félagsstarfið og er mikil ánægja meðal félagsmanna með endurbæt- urnar. Í vetur hefur félagið staðið fyrir fundum þar sem fjölbreytt málefni hafa verið tekin fyrir með ráðherr- um, þingmönnum, kjörnum bæjar- fulltrúum og öðrum. Auk þess að halda laugardagsfundi eins og gert hefur verið undanfarin ár, ákvað stjórnin að bjóða upp á fundi á þriðjudagskvöldum kl. 18.30. Með þessum fundartíma vildi stjórnin ná til yngra fólks. Fundirnir hafa feng- ið jákvæðar viðtökur og hafa mál- efni bæjarfélagsins verið í brenni- depli. Ánægjulegt hefur verið að sjá fólk á ólíkum aldri koma og taka þátt í málefnalegum umræðum. Bæjarfulltrúar flokksins hafa verið kappsamir við að mæta á fundina og hafa gagnlegar umræður átt sér Sjálfstæðisfélag Garðabæjar 60 ára Eftir Sigþrúði Ármann » Sjálfstæðisfélag Garðabæjar leggur áherslu á öflugt fé- lagsstarf og uppbyggi- legar umræður meðal íbúa Garðabæjar og kjörinna fulltrúa. Sigþrúður Ármann stað. Auk laugardags- og þriðjudagsfunda hefur félagið stað- ið fyrir vinsælum viðburðum. Má þar nefna hið rómaða jólakakó í upphafi aðventunnar og hina árlegu páskaeggjaleit þar sem fjölskyldur fjölmenna og eiga saman gleðiríkar stundir. Þakkir til félagsmanna, afmælishátíð á fimmtudag Fyrir hönd stjórnar Sjálfstæðis- félagsins vil ég þakka öllu því góða fólki sem lagt hefur sitt af mörkum fyrir félagið og félagsmönnum öll- um fyrir þeirra þátttöku í þau 60 ár sem félagið hefur verið starfrækt. Haldið verður upp á afmæli félags- ins fimmtudaginn 6. júní nk. kl. 17.30 í félagsheimilinu að Garða- torgi 7. Þangað er öllum boðið. Sjálfstæðisfélag Garðabæjar mun hér eftir sem hingað til bjóða upp á metnarfullt félagsstarf og vera vett- vangur fyrir uppbyggileg skoðana- skipti meðal íbúa Garðabæjar og kjörinna fulltrúa og stuðla áfram að jákvæðum framförum í hina sterka sveitarfélagi sem Garðabærinn er. Sigþrúður Ármann, formaður Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ. Höfundur er formaður Sjálfstæðisfélags Garðabæjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.