Morgunblaðið - 03.06.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019
Liverpool frá Englandi er Evrópumeistari í
knattspyrnu karla í sjötta sinn eftir 2:0 sigur á
Tottenham í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
sem fram fór á Wanda Metropolitano leikvang-
inum í Madríd.
Liverpool stendur nú eitt sem þriðja sigursæl-
asta lið keppninnar frá upphafi með sex titla, á
eftir AC Milan með sjö og Real Madrid með 13.
Þá var þetta fyrsti stóri titill félagsins eftir 14 ár
sem mörg hver hafa verið ansi erfið.
Leikurinn sjálfur var ekki sérlega skemmti-
legur. Liverpool fékk vítaspyrnu eftir aðeins 22
sekúndur þegar Moussa Sissoko, leikmaður
Tottenham, handlék knöttinn innan teigs.
Egyptinn Mohamed Salah steig á vítapunktinn
og þrumaði knettinum beint í markið, staðan
strax orðin 1:0. Við tóku langdregnar mínútur í
svitakófinu í spænsku höfuborginni. Leik-
mönnum Tottenham gekk lítið sem ekkert að at-
hafna sig og gátu stórstjörnur liðsins ekki skilað
sínu þegar á reyndi. Hetja Lundúnaliðsins í und-
anúrslitunum, Lucas Moura, var sprækastur
manna eftir að hann kom inn af varamanna-
bekknum í síðari hálfleik en ekki tókst hvít-
klæddum að jafna úr þeim hálffærum sem þeir
fengu í síðari hálfleik. Ekki hjálpaði að stór-
stjarnan Harry Kane var skugginn af sjálfum
sér. Enski framherjinn er nýstiginn upp úr
meiðslum og ekki ólíklegt að hann hafi hreinlega
ekki verið klár í slaginn. Að sama skapi hefur
hann reynst Tottenham dýrmætur undanfarin ár
og var því allt gert til að koma honum í leik-
stand. Það reyndist hættuspil sem misheppn-
aðist hrapallega. Það féll svo að lokum í skaut
hetju Liverpool úr undanúrslitunum, Divock
Origi, að koma inn af bekknum og innsigla sig-
urinn með öðru marki á 87. mínútu.
Liverpool sigurvegari á ný
Undir stjórn Jürgen Klopp hefur lið Liverpool
spilað leiftrandi sóknarbolta og komist í hvern
úrslitaleikinn á fætur öðrum undanfarin ár en
alltaf án árangurs. Eftir ótrúlegt tímabil í úr-
valsdeildinni nú í vetur þar sem Liverpool hrein-
lega gat ekki komist nær Englandsmeistaratitl-
inum án þess að vinna hann virtist það óvinnandi
vígi fyrir þetta lið Liverpool að brjóta ísinn þar
til um helgina. Ætti nú engan að undra ef þetta
reynist upphafið að nýrri valdatíð liðsins frá
Bítlaborginni. kristoferk@mbl.is
Verðlaunasafnið stækkar
Erfiði Klopps bar loks ávöxt Tottenham koðnaði niður á ögurstundinni
AFP
Sigurför Liverpoolmenn mættir með verðlaunagripinn heim til Englands þar sem þeim var vel fagnað.
Hans Viktor Guðmundsson sendi
Fjölni á topp 1. deildarinnar í fót-
bolta, Inkasso-deildarinnar, þegar
hann skoraði nokkrum mínútum
fyrir leikslok í 1:0-sigri á Njarðvík.
Fjölnismenn eru því efstir eftir
fimm umferðir en þeir hafa unnið
fjóra leiki og eru tveimur stigum á
undan Keflavík og Víkingi Ó.
Þórsarar eru skammt undan eftir
mikilvægan 2:0-sigur á Þrótti R. í
gær. Alvaro Montejo, sem skoraði
16 mörk í fyrra, kom Þór yfir og
Sigurður Marinó Kristjánsson skor-
aði í lokin.
Fjölnismenn einir
á toppnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Hetjan Hans Viktor, hér í leik gegn
Magna, skoraði gegn Njarðvík.
Afar óvænt úrslit urðu í 16-liða úr-
slitum bikarkeppni kvenna í fót-
bolta um helgina þegar Fylkir vann
1:0-sigur á Íslands- og bikarmeist-
urum Breiðabliks. Kristín Þóra
Birgisdóttir skoraði sigurmarkið í
fyrri hálfleik og þung sókn Blika-
kvenna dugði ekki til. Fylkir, sem
þá lék í 1. deild, komst óvænt í und-
anúrslit bikarsins í fyrra.
Ásamt Fylki eru komin í 8-liða
úrslitin lið HK/Víkings, KR, Sel-
foss, ÍA, Þórs/KA, Vals og Tinda-
stóls sem er eina liðið úr 1. deild
sem enn er í keppninni.
Meistararnir úr
leik í Árbænum
Morgunblaðið/Hari
Áfram Fylkiskonur fögnuðu ákaft
sigurmarkinu gegn Breiðabliki.
Kolbeinn Sigþórsson sneri aftur út á völlinn eftir meiðsli
og spilaði síðustu 20 mínúturnar í 2:0-sigri AIK á Hamm-
arby í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Þetta var
annar leikur Kolbeins fyrir AIK en þrátt fyrir meiðsli und-
anfarið var hann á föstudag valinn í íslenska landsliðið
sem mætir Albaníu í undankeppni EM á laugardaginn kl.
13.
Viðar Örn Kjartansson, sem einnig er í íslenska lands-
liðshópnum, lék allan leikinn fyrir Hammarby en náði ekki
að bæta við mörkin 5 sem hann hefur skorað á leiktíðinni.
AIK er eftir sigurinn í 3. sæti með 24 stig og leik til góða
á topplið Malmö sem er með 30 stig. Arnór Ingvi Trausta-
son, þriðji landsliðsmaðurinn, lék allan leikinn fyrir Malmö í 1:0-útisigri á ný-
liðum Helsingborgar í gær. Andri Rúnar Bjarnason lék sömuleiðis allan leik-
inn fyrir heimamenn sem eru með 10 stig í þriðja neðsta sæti.
Í sænsku 1. deildinni skoraði Óttar Magnús Karlsson sigurmark Mjällby í
1:0-sigri á Jönköping. Þeir Gísli Eyjólfsson komu inn á sem varamenn.
Náði að spila fyrir landsleiki
Kolbeinn
Sigþórsson
Martin Hermannsson fór fyrir sínum mönnum í Alba
Berlín á lokakaflanum í 100:93-sigri á Oldenburg á úti-
velli í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum þýsku 1. deild-
arinnar í körfubolta. Eftir að Oldenburg hafði minnkað
muninn í 86:83 setti Martin niður mikilvæga þriggja
stiga körfu, víti skömmu síðar, og Alba komst í 94:83
þegar mínúta var eftir. Þar með var sigurinn í höfn.
Martin var næststigahæstur í Berlínarliðinu með 15
stig en hann gaf einnig 3 stoðsendingar á þeim 23 mín-
útum sem hann spilaði. Liðin mætast aftur á miðvikudag
en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitin.
Haukur Helgi Pálsson hafði hægt um sig í sóknarleik
Nanterre þegar liðið tapaði 91:72 gegn Lyon í fyrsta leik liðanna í undan-
úrslitunum um franska meistaratitilinn. Haukur skoraði 3 stig og gaf 1
stoðsendingu auk þess að taka 3 fráköst í leiknum. Liðin mætast að nýju,
aftur í Lyon, annað kvöld. Vinna þarf þrjá leiki.
Martin góður í undanúrslitum
Martin
Hermannsson
Þýskaland
Undanúrslit, fyrsti leikur:
Oldenburg – Alba Berlín .................. 93:100
Martin Hermannsson skoraði 15 stig og
gaf þrjár stoðsendingar á 23 mín hjá Alba.
Staðan er 1:0 fyrir Alba Berlín en vinna
þarf þrjá leiki til að komast áfram.
Frakkland
Undanúrslit, fyrsti leikur:
Lyon-Villeurbanne – Nanterre ......... 91:72
Haukur Helgi Pálsson skoraði þrjú stig,
tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu
fyrir Nanterre á 20 mínútum.
Staðan er 1:0 fyrir Lyon-Villeurbanne en
vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram.
Argentína
8-liða úrslit, þriðji leikur:
Regatas – Instituto de Cordoba......... 94:88
Ægir Þór Steinarsson skoraði fimm stig,
tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsend-
ingar á 23 mínútum fyrir Regatas.
Cordoba er 2:1 yfir en vinna þarf þrjá
leiki til að komast áfram.
KÖRFUBOLTI
Svíþjóð
AIK – Hammarby .................................... 2:0
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem
varamaður á 70. mínútu hjá AIK.
Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn
með Hammarby.
Helsingborg – Malmö.............................. 0:1
Andri Rúnar Bjarnason lék allan leikinn
með Helsingborg.
Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn
með Malmö.
Eskilstuna – Norrköping........................ 0:2
Guðmundur Þórarinsson lék fyrsta
klukkutímann með Norrköping.
B-deild:
Mjällby – Jönköping................................ 1:0
Gísli Eyjólfsson kom inn á hjá Mjällby á
61. mínútu og Óttar Magnús Karlsson á 79.
mínútu. Óttar skoraði sigurmarkið.
Noregur
B-deild:
Aalesund – Ull/Kisa ................................ 1:0
Aron Elís Þrándarson skoraði sigur-
mark Aalesund og fór af velli í uppbótar-
tíma. Daníel Leó Grétarsson lék fyrstu 70
mínúturnar, Hólmbert Aron Friðjónsson
leysti Aron Elís af hólmi.
Sandefjord – Sogndal.............................. 0:3
Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með
Sandefjord en Emil Pálsson er meiddur.
Start – Skeid............................................. 2:0
Aron Sigurðarson lék allan leikinn og
skoraði fyrra mark Start og Kristján Flóki
Finnbogason lék síðustu 25 mínúturnar.
Jóhannes Harðarson er þjálfari liðsins.
Vináttulandsleikir kvenna
England – Nýja-Sjáland.......................... 0:1
Noregur – Suður-Afríka .......................... 7:2
Vináttulandsleikir karla
Tyrkland – Úsbekistan ............................ 2:0
Frakkland – Bólivía.................................. 2:0