Morgunblaðið - 03.06.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Árin um og eftir 2010 voru mikið
umbrotatímabil í lífi mínu og Regn-
tímabilið vísar í þennan tíma,“ segir
Kristinn Árnason um titil ljóðabókar
sinnar Regntímabilið – Ljóðabókin,
sem kom út á dögunum. „Ég glímdi á
þessum tíma við erfið veikindi, var
alveg óvinnufær og gat lítið sem ekk-
ert notað augun að gagni á nokkurra
ára tímabili. Ég fór að lesa ljóð þegar
ég byrjaði að þjálfa augun í að lesa
aftur, og þá tók ég líka að fikta við að
skrifa niður brot úr dögum mínum.“
Kristinn segir ljóðin einfaldlega hafa
hentað augunum vel vegna þess að
þau hafa tilheigingu til að vera í
styttri kantinum. „En svo hafði hug-
arástand mitt tekið vissum straum-
hvörfum svo ég fann mig knúinn til
skrifa, og með öðrum hætti en áður.
Miðlar einfaldri skynjun
Í ljóðunum reyni ég að miðla
stemningu eða hugarástandi, að
minnsta kosti hvað þessa bók varðar.
Hugarástand mitt breyttist á þessu
tímabili sem hafði mótandi áhrif á
það hvernig ég horfði á hlutina.“
Kristinn segist á þessu tímabili hafa
reynt að losa sig við eldri hugmyndir
og í rauninni reynt að hugsa sem
allra minnst. „Ég var að reyna að
vinda ofan af huganum frekar en að
búa til eitthvað upp á nýtt. Smám
saman varð til meiri kyrrð í hugan-
um og þá gerðist eitthvað og fleira
sem gat átt erindi í ljóð.“
Í ýmsum ljóðanna felst einföld lýs-
ing á andrúmslofti augnabliks. „Ég
var einfaldlega að reyna að skynja
sjálfan mig og lífið sem beinast. Í
stórum hluta þessara ljóða er ég að
fást við það að miðla eins konar vit-
undarástandi, frekar einfaldri skynj-
un á umhverfinu og lífinu, í bland við
hugleiðingar um sjálfan mig og til-
veruna.“
Kom víða við á ferðalaginu
Í verkinu er farið um víðan völl,
allt frá Svíþjóð til Indlands og Bras-
ilíu, og segir Kristinn þessa staði alla
hafa komið við sögu á því tímabili í
lífi hans sem hann skrifar um.
„Þarna voru taugakerfið, meltingin
og augun í lamasessi og ég var með
mörg einkenni sem flokkast undir
vefjagigt og síþreytu. Ég fór víða í
leit að bótum meina minna og til þess
að komast til botns í málinu. En
smám saman varð þetta í raun að
sjálfsskoðunarferðalagi og á því
ferðalagi kom ég víða við.“ Kristinn
dvaldi lengi á Indlandi og var svo bú-
settur í Stokkhólmi í þrjú ár. „Þar
þræddi ég götur borgarinnar og
reyndi að hugsa sem minnst um for-
tíðina og framtíðina og vonaði að það
myndi losa um einhverja hnúta inni í
mér. Það var í bland innblástur af
austrænum sálrænum fræðum og
heimspeki sem leiddi mig á þá braut,
og reyndar held ég að þetta hafi lán-
ast sæmilega vel, miðað við aðstæður
og almennar horfur í svona veik-
indum.“
Sænsk tré kölluðu á hann
Náttúran er áberandi í ljóðum
Regntímabilsins og þá sérstaklega
tré af ýmsu tagi. „Á þessu tímabili í
Stokkhólmi fóru trén að kalla á mig á
einhvern hljóðlátan og merkilegan
hátt. Fyrir mann af þessu litla kalda
og vindasama skeri þar sem trén
geta verið frekar lokuð og vindbarin
var þægilegt og gott að tengja við
trén í Svíþjóð þar sem þau geta leyft
sér að vera aðeins opnari. Þau urðu
mér mjög mikilvæg,“ segir Kristinn
en bætir við að það að skynja tengsl
við tré sé hluti af því að vera meðvit-
aður um umhverfið. „Það er alls
staðar náttúra svo maður getur ein-
hvern veginn ekki verið meðvitaður
um sjálfan sig og umhverfið án þess
að vera meðvitaður um náttúruna
líka. Í þessu geta stór tré í Svíþjóð
verið hjálpleg.“
Hugsuð sem systurverk
Kristinn lýsir ferðalagi sínu til
andlegs og líkamlegs bata í ljóðum
sem hann hóf að skrifa þegar hann
dvaldi í Stokkhólmi. Í sumum ljóð-
unum undir lok verksins má greina
nokkurs konar heimkomu til Íslands.
„Þá var ég aðeins breyttur, hafandi
farið í gegnum þetta ferðalag. Margt
við þetta tímabil var fyrir mér af
andlegum toga. Þetta er andlegt
ferðalag,“ segir Kristinn og bætir við
að eftir ferðalagið hafi líkamleg
heilsa líka fylgt í kjölfarið.
Kristinn hefur hvergi nærri lagt
pennann á hilluna og segist vera að
vinna að öðruvísi bók um sama tíma-
bil. „Þetta er eiginlega hugsað sem
systurverk á mismunandi formi.
Þess vegna stendur á kápu Regn-
tímabilsins „Ljóðabókin“. Ég er að
fást við eins konar reisubók eða
ferðasögu úr þessu sama tímabili,
þessum áratug umbrota, og ferða-
lögin í gegnum þann tíma. Það gæti
orðið aðeins opnari bók, ekki ljóða-
bók. Ljóðabókin er í raun hluti af
stærra verki.“
Morgunblaðið/Eggert
Ljóðskáld „Ég miðla eins konar vitundarástandi, í bland við hugleiðingar um sjálfan mig og tilveruna,“ segir Kristinn, höfundur Regntímabilsins.
Ljóð sem lýsa ferðalagi til bata
Kristinn Árnason gefur út Regntímabilið, sína fyrstu ljóðabók Lýsir umbrotatíma í lífi sínu
„Í ljóðunum reyni ég að miðla stemningu eða hugarástandi,“ segir Kristinn um verkið
Helga Kvam píanóleikari og Þór-
hildur Örvarsdóttir söngkona halda
sjö tónleika frá og með deginum í
dag til og með 13. júní. Þar flytja
þær tónleikadagskrána María
drottning dýrðar sem er helguð ís-
lenskri tónlist við Maríuvers og bæn-
ir.
„Íslensk tónskáld hafa í gegnum
aldirnar sótt innblástur í Maríu-
versin og gera enn í dag. Á tónleik-
unum munum við rekja okkur í
gegnum síðustu 100 ár í íslenskri
tónlistarsögu og færa ykkur
rjómann af Maríutónlist þess tíma-
bils með tónskáld á borð við Atla
Heimi Sveinsson, Hildigunni Rún-
arsdóttur, Sigvalda Kaldalóns, Karl
O. Runólfsson og Sigurð Flosason
innanborðs. Á tónleikunum mun ný
tónlist verða í aðalhlutverki þar sem
tónskáld samtímans vefa Maríu ný
klæði,“ segir í tilkynningu frá flytj-
endum. Helga og Þórhildur hafa
unnið saman um nokkurra ára bil og
flutt söngdagskrár með íslenskri
tónlist vítt og breitt um landið við
mikið lof áheyrenda. Tónleikarnir
eru styrktir af Sóknaráætlun Norð-
urlands eystra og dagskráin er á
þessa leið: Þorgeirskirkja í kvöld kl.
20.30, Ólafsfjarðarkirkja á morgun
kl. 20, Akureyrarkirkja 6. júní kl. 20,
Þórshafnarkirkja 10. júní kl. 20.30,
Hólaneskirkja á Skagaströnd 11.
júní kl. 20, Vinaminni á Akranesi 12.
júní kl. 20 og loks Fríkirkjan í
Reykjavík 13. júní kl. 20.
Íslensk tónlist við Maríuvers og bænir
Ljósmynd/Auðunn ljósmyndari
Tónleikaferð Þórhildur og Helga halda tónleika víða um landið næstu daga.