Morgunblaðið - 25.06.2019, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 5. J Ú N Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 147. tölublað 107. árgangur
MÆÐGUR
ÚTSKRIFUÐUST
SAMTÍMIS ÍSLAND ER ENGU LÍKT
ÍVAR HEFUR
VERIÐ 52 ÁR
Á SJÓNUM
DURAN DURAN Í HÖLLINNI 36 BYRJAÐI 16 ÁRA 6STUDDU HVOR AÐRA 11
Þriggja ára framboð
» Fjárfestir sem Morgunblaðið
ræddi við telur það taka þrjú ár
að selja þær 350 nýju íbúðir
sem séu í sölu í miðborginni.
» Við þá áætlun horfði hann til
sölu síðustu áratuga.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sérfræðingar hjá Landsbankanum
og Íslandsbanka telja að vegna
breyttrar stöðu efnahagsmála þurfi
mögulega að endurmeta væntingar
um söluverð lúxusíbúða í miðborg
Reykjavíkur. Vísbendingar séu um
að markaðurinn sé mettaður.
Þá telur Magnús Árni Skúlason,
sérfræðingur hjá Reykjavík Econo-
mics, líkur á stórauknu framboði
notaðra íbúða í miðborginni vegna
samdráttar í ferðaþjónustu. Áhrifin
af því séu mögulega mjög vanmetin.
Fjárfest hefur verið fyrir tugi
milljarða í hundruðum nýrra íbúða í
miðborginni síðustu misseri.
Horft er til vaxtaákvörðunar hjá
Seðlabanka Íslands á morgun.
Friðbert Traustason, formaður
Samtaka starfsfólks fjármálafyrir-
tækja, segir þunga skattbyrði
þrengja að svigrúmi banka til að
lækka vexti af útlánum. Aukagjöld á
banka, á borð við bankaskatt og fjár-
sýsluskatt, verði ekki greidd af
„neinum öðrum en viðskiptavinum
bankanna“. „Þessir skattar voru
samtals rúmir 10 milljarðar 2018.“
Titringur á íbúðamarkaði
Sérfræðingar segja væntingar um verð lúxusíbúða í miðborginni vera brostnar
Skattlagning sögð þrengja að svigrúmi bankanna til að lækka vexti íbúðalána
MMeðalverð seldra … »10
Morgunblaðið/Frikki
Hagaskóli Glaðir nemendur.
„Á meðan nemendur mínir sitja of
margir í slæmum loftgæðum og
Vinnueftirlitið hefur gefið Reykja-
víkurborg frest til 1. október til að
bæta úr lélegum loftgæðum í átta
stofum skólans er fé borgarinnar
varið í mathallir og bragga,“ segir
Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri
Hagaskóla, sem gagnrýnir forgangs-
röðun borgaryfirvalda. Hún segir
nemendur og starfsfólk kvarta yfir
slappleika, höfuðverk, auknu mí-
greni og annarri vanlíðan vegna
ástandsins í skólanum. Ingibjörg
segir það vonbrigði að meirihluti
borgarstjórnar skyldi ekki mæta
betur undirbúinn á fund borgar-
stjórnar 4. júní í umræðu sem fram
fór að frumkvæði Kolbrúnar Bald-
ursdóttur, borgarfulltrúa Flokks
fólksins, um ástand skólahúsnæðis
og byggingar- og viðhaldsþörf skóla.
Ingibjörg sem sendi borgarstjóra
beiðni um fund í gegnum vef borg-
arstjórnar fyrir fimm vikum hefur
enn ekki fengið svar.
Kolbrún Baldursdóttir gagnrýnir
að borgarstjóri neiti borgarfulltrú-
um um aðgang að skýrslu sem sýni
stöðu fimm skóla í Reykjavík. »4
Mikil vanlíðan í Hagaskóla
Vinnueftirlitið komið í málið Skólastjóri fær engin svör
Sólin er að færa sig á austanvert landið eftir
góða þjónustu í þágu íbúa Suður- og Vesturlands
í sumar. Því ræður suðvestanáttin sem nú er
ríkjandi. Gert er ráð fyrir vætu á höfuðborg-
arsvæðinu næstu daga en yfirleitt björtu fyrir
austan. Er því vissara fyrir skokkara og ferða-
fólk í miðbæ Reykjavíkur að klæða sig betur eða
að minnsta kosti að hafa með sér vatnsheldar yf-
irhafnir. Ekki þarf þó að kvarta undan kulda.
Margbrotið mannlíf að sjá í miðbæ Reykjavíkur
Morgunblaðið/Eggert
Höfuðborgarbúar og gestir þurfa að búa sig undir einhverja vætu næstu daga
Aðeins fimm
óskilorðsbundnir
dómar hafa
fyrnst það sem af
er ári en á síð-
ustu árum hafa
um 30 dómar
fyrnst árlega.
„Ég er af-
skaplega ánægð-
ur með þetta en í
mínum huga er það ein af grunn-
stoðum réttarríkisins að refsingar
séu fullnustuðar,“ segir Páll Winkel
fangelsismálastjóri. Ástæðan fyrir
þessum árangri er að fleiri fangels-
isrými eru nú í landinu. Þá er búið
að breyta lögum þannig að hægt er
að taka út refsingu með samfélags-
þjónustu í meira mæli. »6
Aðeins fimm dómar
hafa fyrnst í ár
Páll Winkel
Alls bárust 336 kvartanir og skyld
erindi varðandi heilbrigðisþjónustu
til embættis landlæknis á síðasta ári
og fjölgaði þeim um 59 á milli ára.
Flestar kvartanir vörðuðu lækna en
þar á eftir komu kvartanir vegna
hjúkrunarfræðinga og tannlækna.
Embætti landlæknis telur tvær
skýringar vera á fjölgun kvartana.
„Í fyrsta lagi vegna þess að fólk er
orðið meðvitaðra um rétt sinn og í
öðru lagi er þetta betri skráning hjá
okkur,“ segir Dagrún Hálfdánar-
dóttur, sviðsstjóri á sviði eftirlits og
gæða hjá embætti landlæknis.
Í ársskýrslu embættis landlækn-
is, sem kom út fyrir helgi, kemur
jafnframt fram að árið 2018 voru
samtals rúmlega tíu þúsund óvænt
atvik skráð í íslenskri heilbrigðis-
þjónustu sem er heldur fleiri en árið
2017. Skráðum alvarlegum óvænt-
um atvikum hefur fjölgað stöðugt á
liðnum árum. Þau voru 45 á síðasta
ári en árið 2017 voru þau 29. Þessi
umtalsverða fjölgun er rakin til
bættrar skráningar hjá embættinu
fremur en raunaukningar á óvænt-
um alvarlegum atvikum í heilbrigð-
iskerfinu. »11
Kvörtunum til land-
læknis fjölgaði í fyrra
Sala á borðviftum hefur marg-
faldast í sumar, miðað við fyrri ár.
Ekki er það eingöngu hitinn sem
veldur heldur hræðsla við hið al-
ræmda lúsmý. Flugan getur ekki
athafnað sig nema í koppalogni og
hægur andvari frá viftu getur kom-
ið í veg fyrir bit í hendur eða fætur
sem standa undan sæng að nóttu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Byko er sala á viftum tífalt meiri en
undanfarin ár. Salan í Húsasmiðj-
unni er tvöföld. Í verslun Heim-
ilistækja hefur viftusalan stórauk-
ist og búið að selja um 1.000 viftur.
Sums staðar eru viftur uppseldar
en víða er von á aukasendingum til
að bæta úr brýnni þörf. »4
Gustur Borðvifturnar eru uppseldar í
mörgum verslunum en von á viðbót.
Sala á viftum marg-
faldast vegna lúsmýs