Morgunblaðið - 25.06.2019, Blaðsíða 14
FRÉTTASKÝRING
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Það hefur aldrei mátt aka bif-reið undir áhrifum áfengis.Í nýjum umferðarlögum erengin breyting þar á.
Breytingarnar sem taka gildi um ára-
mót eru þær, að refsimörk eru enn
miðuð við 0,5 prómill en menn teljast
ekki hæfir til að stjórna ökutæki eða
teljast geta stjórnað ökuræki örugg-
lega ef vínandamagn er á milli 0,2 til
0,5 prómill. Eftir einn ei aki neinn á
jafnvel við í dag og eftir áramót þegar
nýju lögin taka gildi. Minnkandi leyfi-
legt hlutfall áfengismagns í blóði
sendir þau skilaboð að það eigi aldrei
að blanda saman áfengisnotkun og
akstri ökutækja,“ segir Helgi Valberg
Jensson, aðallögfræðingur lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæðinu,
sem bendir á að breytingar á um-
ferðalöggjöfinni séu til þess hugsaðar
að auka umferðaröryggi og bæta um-
ferðarmenningu. Helgi segir að
breytingar hafi verið gerðar á frum-
varpinu á síðustu dögunum áður en
það var samþykkt sem lög. Refsi-
mörkin séu enn þau sömu, þ.e. 0,5
prómill. Áður hafi ökumenn ekki ver-
ið taldir hæfir til aksturs ef vín-
andamagn fór yfir 0,29 prómill en það
hafi verið fært niður í 0,2 prómill. Fari
ökumenn yfir það viðmið er þeim gert
að hætta akstri strax og málið skráð í
málaskrá samkvæmt vinnulagi.
„Við erum sáttir við allar breyt-
ingar sem leiða til góðs. Það er gömul
og ný saga að við breytingar á löggjöf
þarf að fara í kerfisbundna skoðun
hvað þýðingu lögin hafa. Einnig þarf
að fara yfir hvað þær breytingar sem
gerðar voru á frumvarpinu á síðustu
dögum þingsins þýði í auknum kostn-
aði lögregluembættisins,“ segir Helgi
og bætir við að sektir vegna ölvunar-
og fíkniefnaaksturs renni allar til rík-
issjóðs enda væri það óeðlilegt að
sektirnar rynnu til lögreglu sem sér
um að leggja þær á.
Eftir einn ei aki neinn
Rannsóknarstofa í lyfja- og eit-
urefnafræði, sem heyrir undir lækna-
deild Háskóla Ísland sér m.a. um
þjónusturannsóknir á sviði rétt-
arefnafræði fyrir lögreglu- og dóms-
yfirvöld. Öll blóðsýni sem tekin eru
vegna gruns um akstur undir áhrifum
áfengis og ávana- og fíkiefna eru
rannsökuð á Rannsóknastofu í lyfja-
og eiturefnafræðum. Kristín Magn-
úsdóttir, sviðsstjóri á Rannsókna-
stofu í lyfja og eiturefnafræðum við
Háskóla Íslands segir nýju lögin skýr
skilaboð um að ekki megi drekka
áfengi og aka bifreið en það hafi eldri
lög einnig gert.
Að sögn Kristínar mælir Rann-
sóknastofa í lyfja og eiturefnafræðum
magn etanóls sem sé áfengi, í blóði
ökumanna sem grunaðir eru um akst-
ur undir áhrifum áfengis. Sterkt
áfengi t.d. vodki og viský innihalda
meira en 20% af etanóli á meðan et-
anólstyrkur í léttvíni sé algengur frá
12 til 14,5%.
„Drykkir og vörur þar sem et-
anólmagn mælist undir 2,25% eru tal-
in matavara. Innihald etanól í pilsner
er 0 til 2,25% og fellur því pilsner und-
ir þá skilgreiningu að vera matvara
en ekki áfengur drykkur. Maltöl inni-
hélt áður fyrr etanóli en það var fjar-
lægt úr drykknum fyrir nokkrum ár-
um,“ segir Kristín sem bendir á að
almennt þufi fólk ekki að vera hrætt
við að drekka pilsner. Í einstaka til-
fellum þar sem einstaklingur er mjög
smávaxinn gæti magn pilsners hugs-
anlega mælst 0,2 prómill í stuttan
tíma en áfengismagnið ætti örugg-
lega að vera farið úr líkamanum í síð-
asta lagi klukkustund eftir að hans
var neytt.
Morgunblaðið/Júlíus
Eftirlit Ef ökumaður mælist með 0,2 prómill alkóhóls í blóði ber honum að
hætta akstri strax. Ökumaður á myndinn fellur ekki undir þann flokk.
Pilsner ekki talinn
áfengi heldur matvara
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Vestur-landabúareru dálítið
hortugir gagnvart
venjum og siðum
annarra þjóða, sem
fylgja ekki þeim lín-
um sem reglustikur
Vesturlanda hafa
dregið. Þannig er látið eins og
reglur lýðræðisins hafi lengi ver-
ið höggnar í grjót á helstu
„menningarsvæðum heims,“ sem
eru þó ekki mjög fjölmenn. Þær
eru þó í rauninni nýtilkomanr.
Á fjórða áratug síðustu aldar
var öll Evrópa komin undir hæla
einræðis. Rússneski hluti hennar
undir vinstrifótarhæl Stalíns og
vesturhlutinn undir hægrifót-
arhæla Hitlers og Mússolinis og
það sem upp á vantaði passaði
Franco, þó af meira umburð-
arlyndi en þeir gæsagangsmenn.
Bretar sem fengu loks forystu
sem dugði gáfu lýðræðisvonum
fótfestu á eyju sinni sem hélt þar
til árásir á Perluhöfn ýttu við
Bandaríkjamönnum svo þeir
störtuðu hervélum sínum svo að
bjartar vonir lýðræðisins vökn-
uðu. En þarna munaði litlu og
undrastutt er síðan mannkynið
horfðist í augu við miskunn-
arlaust alræðið.
Ísrael er eitt um lýðræðið fyrir
botni Miðjarðarhafs. Þar drógu
íslenskir unglingar á söng-
ferðalagi undir fararstjórn
„RÚV“ upp tvo fána og þóttust
góðir. Annar var flagg samkyn-
hneigðra en hinn ríkis Palestínu.
Þar liggur 10 ára fangelsi við iðk-
un samkynhneigðar!
Í tísku er nú að hafa andúð á
Erdogan, forseta
Tyrklands, enda
hefur hann gengið
hart fram eftir að
hans eigin her
reyndi að ræna
völdum og sprengja
forsetann. Forset-
inn tók þessu ekki
vel og hefur í framhaldinu látið
andstæðinga og meinta andstæð-
inga finna fyrir því. Hann hlaut
að taka á valdaræningjum hers-
ins, nema hvað. En hann finnur
andstæðinga víðar, hvort sem
það er í hópi blaðamanna, dóm-
ara eða kennara og þeir kenna
valds hans og kynnast fangels-
unum.
Forsetinn hófst til valda sem
borgarstjóri í Istanbul og gat sér
gott orð þar og þótti víðsýnn og
frjálslyndur þá. Honum sárnaði
þegar flokkur hans missti meiri-
hluta í borginni naumlega og
krafðist endurkosninga. At-
kvæðamunurinn var sáralítill og
gat réttlætt endurtalningu eða
eftir atvikum nýjar kosningar.
Innanlands sem utan óttuðust
margir þessa tilburði og að Er-
dogan myndi neyta aflsmunar til
að tryggja sér „rétta“ nið-
urstöðu.
Ekki skal tekin afstaða til þess
hverjir séu æskilegir stjórn-
endur Istanbul, Erdogansmenn
eða hinir. En á kvöldi kjördags
fengu atkvæðin að koma óáreitt
upp úr kössunum. Andstæðingar
Erdogans unnu og með afger-
andi meirihluta. Og frambjóð-
andi Erdogans birtist strax og
óskaði sigurvegaranum til ham-
ingju. Það var gott merki.
Margir óttuðust að
afli yrði beitt í Ist-
anbul. Það gerðist
ekki og ýtir undir
góðar vonir}
Lýðræðið hélt
Heimsmeistara-mótið í knatt-
spyrnu kvenna fer
nú fram í Frakk-
landi. Keppnin hef-
ur til þessa boðið upp á margt
af því besta sem fylgir íþrótt-
inni, líkt og heimsmeist-
aramótum sæmir. Fyrirmæli
um notkun svonefndrar mynd-
bandsdómgæslu, stundum
nefnd VAR-sjá, hefur hins veg-
ar varpað nokkrum skugga á
framkvæmd mótsins.
Þannig hefur tækninni ekki
einungis verið beitt til þess að
veita umdeildar vítaspyrnur,
heldur hafa dómarar nú einnig
farið að nota tæknina til að sjá
hvort markverðir liðanna hafi
stigið af marklínunni áður en
þær spyrnur eru teknar. Sam-
kvæmt bókinni á þá að láta end-
urtaka spyrnuna ef ekki var
skorað mark úr spyrnunni, og
um leið fær markvörðurinn að
líta gult spjald fyrir „brot“ sitt.
Þetta væri svo sem ekki
vandamál, nema fyrir þær sak-
ir, að myndbandsdómgæslan
hefur gripið nokkra markverði,
sem reynst hafa verið farnir af
línu sinni sekúndubroti áður en
spyrnt var, svo
munaði sentimetr-
um. Þannig er
regla, sem ætlað
var að koma í veg
fyrir að markverðir reyni að
loka markinu með því að fara
langt framfyrir marklínuna áð-
ur en spyrnt er, farin að ganga
gegn anda knattspyrnunnar,
þar sem VAR-sjáin gefur engin
skekkjumörk og ekkert svig-
rúm.
Nú hefur FIFA gefið út, að
ekki verði spjaldað fyrir brot á
reglunni ef útkljá þarf úrslit
leikja með vítaspyrnukeppni.
Sú breyting var líklega nauð-
syn, þar sem annars hefði verið
hætt við að markverðir beggja
liða hefðu einfaldlega verið
sendir í leikbann fyrir það eitt
að bregðast við örlítið of
snemma.
Myndbandsdómgæsla getur
mögulega haft í för með sér
kosti fyrir knattspyrnuna, ef
henni er beitt á réttan veg. Það
er hins vegar erfitt að sjá, að
það sé góð þróun fyrir íþróttina
ef hugmyndin er að beita henni
á þann veg, sem sést hefur á
þessu heimsmeistaramóti.
Tæknin á að vera
þjónn en ekki herra}VAR-hugaverð þróun
F
riður á vinnumarkaði án efa einn
mikilvægasti árangur ríkisstjórn-
arinnar þegar litið er yfir nýaf-
staðinn þingvetur. Margir töldu
að hörð átök og verkföll yrði
stærsta áskorun ríkisstjórnarinnar, sem hún
var að vissu leyti, en niðurstaðan var sú að
gerðir voru samningar á traustum grunni, með
lækkun tekjuskatts og mikilvægari hagvaxt-
artengingu sem samþættar hagsmuni atvinnu-
rekenda og starfsmanna enn frekar. Það var
líka ánægjulegt að sjá hve sterkur samhljómur
var um mikilvægi skattalækkana við gerð
samninganna og það skilaði sér í skýrum
áformum um lægri tekjuskatt. Þá var með
samningunum lagður grunnur að vaxtalækk-
unum sem við sjáum strax merki um. Þessu
hefur einnig verið fylgt eftir með framlengingu
á skattfrjálsa séreignarsparnaðarúrræðinu.
Allt er þetta í góðu samræmi við stefnu Sjálfstæð-
isflokksins, skattalækkanir og það að stuðla að fjárhags-
legu sjálfstæði einstaklinga með séreignarstefnunni.
Fyrrnefndar skattalækkanir koma til viðbótar við þær
skattalækkanir sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur áður
staðið að með lækkun lægsta þreps tekjuskatts og því að
afnema áður miðþrepið. Þá hefur auðlegðarskattur verið
afnuminn, tryggingargjald lækkað og tollar og vörugjöld
afnumin. Við gerum okkur þó fulla grein fyrir því að verk-
efninu um skattalækkanir er hvergi nærri lokið og verður
líkast til aldrei. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt
sitt af mörkum með málum um lækkun erfðafjárskatt, af-
nám stimpilgjalda o.fl. og það bíður fram á
næsta þing. Það er þó rétt að minna á að við
höfum náð árangri og ætlum að lækka skatta
enn frekar, s.s. bankaskatt, tryggingargjald,
lækka tekjuskatt frekar og þannig mætti
áfram telja.
Við stöndum framarlega á fjölmörgum svið-
um en við verðum að gera betur þegar kemur
að umhverfi fyrirtækja. Ég fjallaði um mik-
ilvægi einfaldara regluverks hér á sama vett-
vangi fyrir skömmu og það er ánægjulegt að
ráðherrarnir tveir í atvinnuvegaráðuneytinu
hafa sett slíka vinnu af stað. Ísland á að geta
hreykt sér af því að vera meðal fremstu þjóða
í umhverfi fyrirtækja sem mun stuðla að fleiri
störfum, lægri verðum og auknum tekjum.
Þannig mun stefna Sjálfstæðisflokksins ýta
undir framfarir, nýsköpun, tækniþróun og
vexti atvinnulífsins í víðu samhengi. Það
mætti segja að það að halda aftur af vexti og afskiptum
hins opinbera sé álíka mikilvægt og að lækka skatta.
Það er ábyrgð að sitja í ríkisstjórnarsamstarfi, þar þarf
oft að mætast á miðri leið og gera málamiðlarnir. Sjálf-
stæðisflokkurinn mun samt ekki gefa eftir mikilvægu
stefnu sína um öflugt atvinnulíf, frjálsara samfélag og
framtaksmátt einstaklinganna. Það eru þessir þættir sem
munu auka lífsgæði hér á landi, ekki vöxtur hins op-
inbera.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Mikilvægur árangur
Höfundur er formaður utanríkismálanefndar
og ritari Sjálfstæðisflokksins. aslaugs@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Við undirbúning og gerð frumvarps til nýrra umferðarlaga, sem lagt var
fram á 138. löggjafarþingi, leitaði nefnd samgönguráðherra álits þeirra
Jakobs Kristinssonar dósents og Kristínar Magnúsdóttur, deildarstjóra
hjá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands, um
hver yrðu áhrif þess að lækka leyfilegt hámark áfengis í blóði ökumanns
úr 0,5 prómillum í 0,2 prómill. Óskað var eftir því að teknar yrðu saman
fyrirliggjandi rannsóknir fræðimanna um þau málefni en skýrslan leit
dagsins ljós 25. mars 2009. Þetta kemur fram í greinargerð með nýsam-
þykktum umferðarlögum. Helstu niðurstöður skýrslu Jakobs og Kristínar
voru að etanól skerði hæfni manna til þess að leysa af hendi flókin verk-
efni á borð við það að aka bifreið, jafnvel þótt styrkur þess í blóði sé
lægri en 0,5‰. Áhrif þess séu þó lítil og minnki með lækkandi styrk.
Fremur líklegt sé að lækkun vanhæfismarkanna í Svíþjóð úr 0,5‰ í 0,2
‰ hafi leitt til aukins umferðaröryggis en erfitt sé að meta hve mikil
áhrifin urðu. Skýrsluhöfundar komu ekki auga á nein tæknileg eða mæl-
ingarfræðileg vandamál samfara því að lækka vanhæfismörkin niður í
0,2‰ en sögðu að gera þyrfti hliðarráðstafanir sem lúta að akstri undir
áhrifum lyfja og töldu Jakob og Kristín að hugsanlega mætti nota
sænsku umferðarlögin sem fyrirmynd í þeim efnum.
Lækkun úr 0,5‰ í í 0,2 ‰
BREYTINGAR Á UMFERÐARLÖGUM