Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 27

Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 ✝ Stefán YngviFinnbogason fæddist á Miðgrund í Skagafirði 13. jan- úar 1931. Hann lést 14. júní 2019. Foreldrar hans voru Skúli Finnbogi Bjarnason frá Þor- steinsstöðum, f. 22. maí 1895, d. 20. ágúst 1986, og Sig- rún Eiríksdóttir frá Sölvanesi, f. 19. ágúst 1897, d. 7. febrúar 1991. Látin systkini Stefáns Yngva eru Eiríkur Hreinn, f. 13. mars 1922, Bjarni Fanndal, f. 1918, Jór- unn Margrét, f. 1919, Valgarður Hjörtur, f. 1927. Uppeldissystir var Margrét Kristjánsdóttir, f. 1933. Stefán Yngvi kvæntist Hólm- fríði Árnadóttur, f . 29. október hennar er Aron Hólmfríðarson Pettersen, f. 30. desember 2018. Friðbjörn Yngvi Leifsson, f. 26. desember 1993. 2) Kolbrún Hafsteinsdóttir, f. 7. febrúar 1966, d. 19. janúar 2007. Dóttir hennar er Tinna Ingólfs- dóttir sjúkraliði, f. 29. júlí 1986. Börn hennar eru Ólafía Kolbrún Ólafsdóttir, f. 1. maí 2009, Magnús Yngvi Ólafsson, f. 27. nóvember 2013, Margrét Magdalena Ólafs- dóttir, f. 16. desember 2013. Stefán Yngvi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1950 og lauk námi í tannlækn- ingum frá Háskóla Íslands 1957. Hann lauk sérnámi í barnatann- lækningum 1974 frá Odontologisk institutt í Bergen. Stefán starfaði við barnatannlækningar og var yfirskólatannlæknir Reykjavíkur- borgar. Hann var heiðursfélagi í Rótarý á Seltjarnarnesi, varaformaður Tannlæknafélags Íslands 1968- 1970 og virkur félagi í veiðifélag- inu Ármönnum. Útför hans fer fram frá Nes- kirkju í dag, 25. júní 2019, klukkan 13. 1929, dóttur Árna Friðfinnssonar frá Rauðuskriðu og Guð- nýjar Kristjánsdóttur frá Bergstöðum. Börn þeirra hjóna eru: 1) Leifur Stef- ánsson bygginga- fræðingur, f. 2. apríl 1958. Maki Tone Ma- rit Torgeirsdóttir Lien sjúkraliði. Börn þeirra eru Stefán Tór Leifsson, f. 4. október 2000, Eiríkur Freyr Leifsson, f. 24. ágúst 2006, og María Björk Leifs- dóttir, f. 24. ágúst 2006. Börn Leifs eru einnig Elísabet Rósa Leifsdóttir, f. 24. nóvember 1977. Börn hennar eru Guð- mundur Leifur, f. 18. ágúst 1995, og Kolbrun Ásta, f. 16. júní 1999, d. 17. desember 2014. Hólmfríður Leifsdóttir, f. 13. apríl 1985, barn Blessuð sé minning þín, elsku afi minn. Ég kvaddi þig í hinsta sinn á Eir, þegar ég var á landinu síðast. Ég held að við höfum vitað það bæði, því þú kysstir mig á ennið tvisvar, eins og þú vildir vera viss um að þú værir búinn að kveðja mig almennilega. Ég vil þakka þér öll skutlin, góðu samtölin okkar og minning- arnar frá Sólbrautinni. Þú neitaðir mér um spangir þegar ég sagði að ég væri með skakkar tennur, ég man að þú sagðir að þær væru hluti af minni persónu. Þú hafðir rétt fyrir þér, eins og með margt annað. Takk fyrir hlýjuna, umhyggj- una og viskuna sem þú barst með þér alla tíð. Þú ert hluti af mér og ég mun segja Aroni allar sögurnar af þér og halda fast í minningarn- ar okkar. Takk, afi minn. Hólmfríður yngri Leifsdóttir. Við Rósa þekktum til Stefáns og Hólmfríðar fyrir mörgum ára- tugum, en kynni okkar urðu nán- ari eftir að við fluttum á Lindar- brautina á Seltjarnarnesi árið 1965. Nokkrum árum síðar flutt- um við Rósa á Sæbrautina en þau á Sólbraut 9. Hann varð okkar tannlæknir og þjónaði fjölskyld- unni þar til hann lét af störfum. Stefán hafði mjög mjúkar og liprar hendur. Hann var mikið ljúfmenni, hlýlegur og notalegur félagi. Um árabil fórum við ásamt öðrum fé- lögum í veiðiferðir í Veiðivötn og víðar. Við Stefán vorum saman í spilaklúbbi í mörg ár og Rósa og Fríða voru saman í öðrum spila- klúbbi í meira en 30 ár. Auk þess hittumst við öðru hverju og slóg- um í slag saman. Stefán átti létt með að semja stökur og ljóð og eigum við Rósa nokkuð af því sem hann samdi við hin ýmsu tækifæri. Skriftin hans var mjög falleg. Við Stefán urðum báðir félagar í Rót- arýklúbbi Seltjarnarness og áttum þar samleið í meira en 30 ár. Þau Stefán og Fríða urðu þannig nánir vinir okkar um langt árabil. Um leið og við kveðjum Stefán og þökkum allar ljúfu minningarnar vottum við Fríðu og afkomendum þeirra okkar dýpstu samúð. Rósa og Örn Smári. Kveðja frá Rótarýklúbbi Seltjarnarness Félagi okkar í Rótarýklúbbi Seltjarnarness, Stefán Yngvi Finnbogason, er látinn. Hann gekk snemma í Rótarýhreyf- inguna þegar hann varð félagi í Rótarýklúbbi Húsavíkur 1959 en gekk síðan í klúbbinn okkar á Sel- tjarnarnesi í desember 1975 og var því búinn að vera í klúbbnum í tæp 44 ár þegar hann lést. Hann gegndi ýmsum trúnaðar- störfum í klúbbnum, var gjaldkeri 1979-1980, verðandi forseti 1991- 1992 og forseti klúbbsins 1992- 1993. Hann var sæmdur Paul Harris-orðunni 1997 og eftir næst- um 30 ára vel unnin störf í klúbbn- um var hann gerður að heiðurs- félaga 2004. Við minnumst Stefáns með söknuði, hann var góður félagi, hafði notalega nærveru og var við- ræðugóður á fundum. Við þökkum honum góð störf í þágu klúbbsins. Við Rótarýfélagar sendum eig- inkonu Stefáns, Hólmfríði Árna- dóttur, og afkomendum hans okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. F.h. Rótarýklúbbs Seltjarnar- ness, Þór Þorláksson, forseti. Kveðja frá Tannlæknafélagi Íslands Þeim íslensku tannlæknum fækkar óðum sem stunduðu tannlæknanám í tveimur her- bergjum á þriðju hæð gömlu há- skólabyggingarinnar undir hand- leiðslu prófessors Jóns Sigtryggssonar, Jóhanns Finns- sonar tannlæknis og Guðmundar Hraundal tannsmíðameistara. Þar var staðið við tannlæknastól- ana sex fyrir hádegi og prófess- orinn þéraður. Eftir hádegið var unnið á tannsmíðastofu hjá Guð- mundi Hraundal. Þröng var á þingi og þurftu menn að sýna til- litssemi, en kynntust vel fyrir bragðið. „Það var margt spjallað við langa vinnuborðið og ekki ein- göngu um fagið.“ Þessi lýsing er fengin hjá kollega Stefáni Yngva Finnbogasyni barnatannlækni, en hann lést 14. júní sl. 88 ára að aldri. Eitt af því dýrmætasta í lífinu eru góðir vinir og gott samferða- fólk. Það auðgar og gefur lífinu gildi, bæði í gleði og sorg. Stefán Ingvi var einn þessara samferða- manna. Hans ljúfa lund bæði í leik og starfi koma í hugann þegar þessar línur eru ritaðar. Þegar rýnt er í ferilskrá Stef- áns Yngva er hún mikil að vöxtum og glæsileg. Stefán lauk kandi- datsprófi í tannlækningum frá Háskóla Íslands í janúar 1957. Hann starfaði sem tannlæknir í Reykjavík og Húsavík en fluttist á ný til Reykjavíkur, þar sem hann starfaði á tannlæknastofu sinni með hléum uns hann lét af störf- um 2002. Hann hóf framhaldsnám í barnatannlækningum við Björg- vinjarháskóla í Noregi og lauk li- centiat-prófi 1975. Stefán tók við starfi yfirskólatannlæknis í Reykjavík sem hann gegndi fram til 1. janúar 2002. Stefán starfaði sem stundakennari og lektor í barnatannlækningum á Tann- læknadeild HÍ um tíma. Eftir erilsöm en farsæl 25 ár í starfi yfirskólatannlæknis, rekst- ur tannlæknastofu og háskóla- kennslu mætti halda að tími væri kominn að slaka á og leggja meiri áherslu á áhugamálin, en þar var stangveiði á flugu ofarlega á lista. Stefán hóf þess í stað nám í norsku við HÍ og lauk BA-prófi þaðan 2004. Stefán Yngvi var virkur fræði- maður og ritaði fjölda greina í virt erlend vísindarit. Hann ritaði einnig greinar um barnatann- lækningar og skólatannlækningar í íslenska fjölmiðla. Stefán var dugmikill í félags- og trúnaðar- störfum fyrir Tannlæknafélag Ís- lands, var varaformaður félagsins, í ritnefnd Árbókar og í fræðslu- og kúrsusnefnd um árabil. Hann mætti á allar samkomur í félaginu og minnistæðar eru sviðaveislur þar sem hann var hrókur alls fagnaðar. Á þessum tímamótum eru störf hans fyrir félagið þökk- uð. Störf hans sem yfirskólatann- læknir voru erilsöm og örugglega oft á tíðum erfið, sérstaklega í ljósi þess að miklar breytingar áttu sér stað á starfsferli hans hjá Reykja- víkurborg. Frá 1922 voru skóla- tannlækningar í Reykjavík greiddar úr borgarsjóði og síðar að hluta til úr almannatrygging- um en eftir að ríkið tók við heilsu- gæslu árið 1991 var farið að krefj- ast greiðslu forráðamanna á hluta kostnaðar vegna tannlækninga skólabarna. Við það raskaðist það skipulag sem komið var hjá Skóla- tannlækningum Reykjavíkur. Ekki var lengur hægt að kalla börn inn til tanneftirlits nema eftir skriflegri ósk forráðamanna og smám saman lögðust skólatann- lækningar af í fyrri mynd og flutt- ust til einkarekinna tannlækna- stofa. Á þessum tímamótum vil ég fyrir hönd Tannlæknafélags Ís- lands þakka Stefáni Yngva Finn- bogasyni samfylgdina, votta eig- inkonu hans Hólmfríði Árnadóttur og ættingjum samúð. Blessuð sé minning hans. Svend Richter. Stefán Yngvi Finnbogason ✝ SigurðurBjarni Jóhann- esson fæddist í Hnífsdal 18. apríl 1933. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 14. maí 2019. Foreldrar hans voru Steinunn Sig- urðardóttir, f. 28. júlí 1898, d. 11. maí 1988, og Jóhannes Bjarni Jóhannesson, f. 14. ágúst 1898, d. 18. febrúar 1974. Sig- urður var yngstur systkinanna sem voru Guðbjörg, f. 14. maí 1923, d. 8. mars 2005, Steinunn, f. 21. september 1924, d. 4. mars 2014, Einar, f. 23. maí 1927, d. 28. október 1927, og Jóhannes, f. 23. maí 1927, d. 9. maí 2016. Sig- urður hóf nám í barnaskólanum í Hnífsdal árið 1941 og lauk fulln- aðarprófi 1946. Í framhaldi af því lá leiðin í Reykjanesskóla 1948. Ári síðar ákvað hann að fjár fyrir námskostnaðinum. Í mörg ár starfaði hann á síldar- plönum bæði á Siglufirði og á Raufarhöfn, m.a. við efnagrein- ingar hjá SR, auk þess að fara á vertíð. Þá var byggingarvinna oft nærtæk. Á árinu 1965 fór hann að kenna við Kennaraskól- ann og kenndi þar til 1971. Í framhaldi af því kenndi hann við Menntaskólann við Tjörnina og Víghólaskóla til 1973, er hann var fastráðinn kennari við Menntaskólann í Kópavogi, þar sem hann kenndi til 2003. Eftir að hann hóf kennslustörf vann hann oft við leiðsögn í hálend- isferðum hjá ýmsum af stærstu ferðafyrirtækjum, sem buðu upp á slíkar ferðir. Sigurður kvænt- ist 1989 Ásdísi Guðmundsdóttur, hjúkrunarfræðingi, og lifir hún mann sinn. Fyrir þeirra kynni átti Ásdís dótturina Lindu Sig- urðardóttur. Maki Lindu er Ivan Möller Knudsen. Linda og Ivan eiga þrjú börn: 1) Freyja Sjöfn, maki hennar er Grímur Þór og eiga þau dótturina Agnesi, 2) Svana Dís og er maki henar Tobías P. Gentin, og 3) Sigurður Ingvar. Að ósk hins látna fór útför hans fram í kyrrþey. flytja sig um set og hóf nám við Alþýðu- skólann á Eiðum þaðan sem hann lauk landsprófi vor- ið 1951. Hann stundaði nám við lýðháskóla í Noregi árið 1953 en innrit- aðist í Mennta- skólann að Laug- arvatni 1954 og lauk þaðan stúd- entsprófi fjórum árum síðar. Hann stundaði nám í efnafræði við Tækniháskólann í Braun- schweig í Þýskalandi á árunum 1958 og 1959 en flutti sig um set til Kaupmannahafnarháskóla 1960 og var þar við nám í líf- efnafræði til ársins 1964. Á árinu 1967 hóf hann nám í líffræði við Háskóla Íslands og lauk þar BS- prófi 1972 með eðlis- og efna- fræði sem aukagreinar. Á náms- árunum stundaði Sigurður margs konar vinnu til að afla Fallinn er frá einn fjölfróðasti maður sem ég hef kynnst, Sig- urður Bjarni Jóhannesson, frá Hvammi í Hnífsdal. Hann virtist alls staðar vel heima. Við vorum systkinabörn. Kærleikar voru á milli fjölskyldna okkar. Kynnin urðu meiri og nánari á fullorðins- árum þegar Siggi Bjarni, eins og við kölluðum hann, kom í heim- sókn. Hann var vel að sér um þjóðmál bæði innlend og erlend. Hann las ýmis erlend tímarit og skipaði Der Spiegel þar sérstak- an sess. Skaphöfn Sigga Bjarna bar einkenni skapfestu og fróð- leiksfýsnar. Áhugamál hans voru fjölmörg. Á unga aldri fór hann að taka myndir og framkalla þær. Það áhugamál fylgdi honum alla tíð. Hann lætur eftir sig mikið ljósmyndasafn og má sjá hluta þess á netinu undir photosbj.is. Þar er að finna merkar heimildir úr atvinnusögu þjóðarinnar. Ungur að árum heillaðist hann af náttúru Íslands og fór ferðir inn á hálendið löngu áður en það varð almennt. Einnig ferðaðist hann um Jökulfirðina og Strandir. Þessi kynni hans af landinu komu honum vel þegar hann gerðist leiðsögumaður á báðum þessum svæðum. Hann eignaðist Land Rover-jeppa og útbjó hann þannig að þar hafði hann allt til alls. Þannig ferðuðust hann og kona hans Ásdís um landið öllum óháð, en ekki aðeins um landið heldur einnig um fjölmörg lönd Evrópu. Siggi Bjarni hafði ákveðnar skoðanir á því hvernig hlutir ættu að vera. Einu sinni fékk hann ekki tjald við sitt hæfi. Þá tók hann sig til og saumaði sér tjald. Sama átti sér stað þegar hann fékk ekki sokka sem honum líkaði. Þá leysti hann það með því að kaupa prjónavél og prjónaði sér sokka. Sigga Bjarna var í mun að vita hvernig hver hlutur virkaði. Færi eitthvað úrskeiðis var hluturinn tekinn í sundur í frumparta og rannsakaður. Mað- ur með þetta vítt áhugasvið féll að sjálfsögðu fyrir tölvunum þeg- ar þær komu fram á sjónarsviðið. Mér er minnisstætt þegar hann þurfti að skila inn ársreikningi vegna smávægilegra viðskipta. Þá lagði hann sig í framkróka um að forrita tölvuna svo að hún skil- aði honum ársreikningi. Þetta var fyrir tíma bókhaldsforrita. Eftir áttrætt málaði hann þakið á húsinu sínu. Það var bratt þak. Þá kom sér vel að hafa á árum áð- ur verið í Svissneska alpaklúbbn- um og nýta taugar og belti sem þar voru notuð. Eftir að kennslu- störfum lauk kom fram enn einn eiginleiki og áhugasvið hjá Sigga Bjarna. Hann var völundur á tré. Í rennibekknum gerði hann marga gullfallega muni. Siggi Bjarni var í rauninni „lífskúnster“. Hann naut áhuga- mála sinna og gaf þeim tíma. Það var því eðlilegt að það teygðist á tímanum sem fór í hið formlega nám og jafnframt að það teygðist á tímanum þar til hann staðfesti ráð sitt. Það var mikil gæfa fyrir hann að eignast jafn indæla konu og Ásdísi Guðmundsdóttur, hjúkrunarfræðing. Betri eigin- konu og ferðafélaga hefði hann vart getað fundið. Síðustu tvö ár- in voru Sigga Bjarna erfið. Leiðin lá á víxl milli spítala og heimilis. Að lokum urðu örlögin ekki umflúin. Blessuð sé minning frænda míns, Sigurðar Bjarna Jóhannessonar. Brynjólfur Sigurðsson. Sigurður Bjarni Jóhannesson Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG ÁGÚSTA GUÐLAUGSDÓTTIR, lést mánudaginn 17. júní á gjörgæsludeild Landspítalans. Útför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. júní klukkan 13. Aðalsteinn Aðalsteinsson Guðlaugur Aðalsteinsson Hjördís Jónsdóttir Andri S. Aðalsteinsson Eyrún Pálsdóttir Eyjólfur S. Aðalsteinsson Vigdís G. Ingimundardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURJÓN RÓSANTS STEFÁNSSON bílstjóri, Strikinu 12, Garðabæ, lést fimmtudaginn 20. júní. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 28. júní klukkan 13. Margrét Björgvinsdóttir Kristín Dóra Sigurjónsdóttir Pétur Óskarsson Guðný Sigurjónsdóttir Ívar Pálsson Kolbrún Sigurjónsdóttir Sigurður Þór Sæmundsson Valgeir Sigurjónsson barnabörn og langafabarn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, BJÖRGVIN ÓLAFUR GUNNARSSON skipstjóri, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 22. júní. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 3. júlí klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnarsveitina Þorbjörn, Grindavík. Rúnar Þór Björgvinsson Karen Mjöll Elísdóttir Hrafnhildur Björgvinsdóttir Gunnhildur Björgvinsdóttir Símon Alfreðsson Óli Björn Björgvinsson Guðrún Jóna Magnúsdóttir afabörn, langafabörn og langalangafabarn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, ALBERT PÉTURSSON, áður Krummahólum 6, lést þriðjudaginn 28. maí. Minningarathöfn fer fram frá Fossvogs- kapellu mánudaginn 1. júlí klukkan 13. Susan T, Trunk Wolter Guðmundur H. Albertsson Pétur Hansson Indriði Kr. Pétursson Stella B. Kjartansdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.