Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta Síðasti kjarasamn- ingur lögreglumanna var með þeim hætti að hann hékk inni á örfá- um atkvæðum í 95% kosningaþátttöku. Það segir sína sögu um hug lögreglumanna til samningsins, t.d. þeirra sem standa verða sólahrings- og útkallsvaktir. Nefndur samningur var niður- staða eftir margra mánaða samn- ingaviðræður LL við ríkið, þrátt fyrir að lögð hefði verið rík áhersla á að nauðsynlegt væri að ná ásætt- anlegum samningi svo sæmileg sátt mætti ríkja almennt um laun í stétt- inni. Launaumhverfi hjá flestum lög- reglumönnum byggist á yfirvinnu og álagi um nætur og helgar. Fari þeir í frí þá falla launin niður í lág grunnlaun og því er mikið um að vakta- vinnumenn taki skammtímafrí, sem er slæmt gagnvart heilsufari, fjölskyldu- lífi og fleiru. Margir spyrja hvers vegna ríkið sé tilbúið að greiða víða aukagreiðslur með hinum ýmsu vinnu- staðasamningum í stað þess að greiða almennt hærri grunnlaun og skapa með því meiri sátt í launa- umhverfi opinberra starfsmanna. Lögreglumenn treysta á að ríkið taki meira tillit til krafna LL um bætt grunnlaun og fleiri úrbóta- þætti í launa- og starfsumhverfi lögreglumanna. Miðað við fyrri við- miðunarhópa, samning LL sem rík- ið vildi og fékk út árið 2001, þá eiga lögreglumenn inni verulega leiðrétt- ingu á launamisvægi til langs tíma vegna samkomulags um endurskoð- unarákvæði við nefnda hópa. Undir þetta misvægi var tekið í fjármála- ráðuneytinu í fyrirspurn þingmanns varðandi málið, en LL ekki fengið leiðréttingu þar á til þessa. Einnig þarf að taka tillit til þess að lög- reglumenn gáfu eftir til síðari leið- réttingar launahækkanir eftir hrun, þrátt fyrir mikið álag í starfi. Varðandi eftirlaun B-sjóðsmanna í LSR þá voru þeir hvattir á sínum tíma til að færa sig ekki yfir í A- sjóðinn sem hefði gefið þeim mun betri eftirlaun, t.d. þeim sem starf- að hafa í áratugi á útkallsvöktum um nætur og helgar, vaktir sem þeir fá engin eftirlaun af og fleiri greiðslum. Þennan þátt þarf að skoða í komandi samningum sem og launaumhverfið fyrir svipuð störf innan stéttarinnar. Lögreglunámið hefur verið fært yfir á háskólastig. Samhliða þarf að meta fyrra nám lögreglumanna sem var víðtækt við Lögregluskóla rík- isins ásamt hinum ýmsu endur- menntunarnámskeiðum sem og mikla starfsreynslu sem er afar mikilvæg í starfi lögreglumanna og nýtist vel til starfsþjálfunar nýliða úr háskólanámi. Ljóst er að bæta verður verulega grunnlaun lögreglumanna og fleiri þætti í starfsumhverfi þeirra ef stjórnvöld ætla að halda í starfs- reynda lögreglumenn sem er mik- ilvægt fyrir þjóðfélagið. Það er dýrt fyrir ríkið að missa reynda lög- reglumenn úr starfi og getur jafn- framt rýrt fagleg vinnubrögð fyrir borgarana í harðnandi afbrotaum- hverfi. Þar er að mörgu að huga með víðtæku samstarfi/skipulagi milli hinna ýmsu embætta og fleiri aðila. Fagmennska og reynsla í starfi skiptir miklu máli hvar sem er og ekki hvað síst í krefjandi verk- efnum sem lögreglumenn verða oft að fást við í störfum sínum. Lög- reglumenn vænta þess að fá nú betri áheyrn en oft hefur verið hjá stjórnvöldum gagnvart launa- umhverfi sínu. Tími er kominn til úrbóta þar á. Bæta þarf grunnlaun lögreglumanna Eftir Ómar G. Jónsson » Lögreglumenn treysta á að ríkið taki meira tillit til krafna LL um bætt grunnlaun og fleiri úr- bótaþætti í launa- og starfsumhverfi lögreglumanna. Ómar G. Jónsson Höfundur er fulltrúi/deildarstjóri. Þetta myndarlega og vel gerða mannvirki sem Landeyjahöfnin er nýtist lítið eða ekki enn vegna hins mikla sandmagns sem enda- laust safnast í höfnina, sanddæluskip of lítil og virðast ekki ráða við verkefnið og sífelldar tafir á því að þetta mikla og þarfa mann- virki komi að þeim notum sem að var stefnt. Ég, sem þessar línur rita, hef allt frá barnæsku haft mikinn áhuga á jafnt Vestmannaeyjum og ekki síður því hvort hægt væri að gera höfn á þessari erfiðu strönd. Ég man eftir því í æsku minni að heiman frá mér þó ég hafi alist upp um 15- 20 km frá hafinu að þá heyrðist mikill gnýr frá briminu og hvítir brimstrókarnir risu hátt við ströndina og var ég hálf hræddur við þessi miklu læti en faðir minn útskýrði fyrir mér hversu óralangt þetta væri í burtu frá Fljótshlíðinni og engin ástæða til að hræðast þetta. Jafnvel enn í dag finnst mér hann faðir minn hvísla að mér að engin þörf sé að óttast en hann vildi ávallt nota bestu og ódýrustu lausnirnar á þeim vandamálum sem á hans vegi urðu og gaf hann sér ætíð tíma til að hlusta á og skoða þær lausnir sem samferðamenn hans höfðu og síðan var unnið það besta úr hugmyndunum þannig að þegar upp var staðið urðu það oft- ast einföldustu og ódýrustu lausn- irnar sem dugðu virkilega best þegar á reyndi. Ástæður þess að ég er að rifja þetta upp eru þær að sem áhuga- maður um Landeyjahöfn þá hef ég séð tillögu um að því að virðist verulega góða og jafnframt ódýra og mengunarlausa lausn á sand- hreinsunarmálum hafnarinnar og veit til þess að þær tillögur hafa verið sendar inn á viðkomandi stofnanir til skoðunar en verið lítill eða enginn áhugi fyrir því að skoða þau mál nánar. Það mætti halda að einhverjir hafi hag af því að málin gangi ekki upp þarna? En endilega, þið sem stjórnið þessum málum. Sýnið dug og skoð- ið allavega tillögur þessar með já- kvæðu hugarfari. Það er lífsspursmál fyrir landið okkar sem og Vestmannaeyjarnar að eitthvað raunhæft verði farið að gera í þessum dýru málum. Við höfum sérfræðinga sem gott vit hafa á þessum málum, af hverju ekki að skoða málin gaumgæfilega og vita hvort vit er í þeim tillögum sem kunna að berast? Nýtt skip er komið til landsins og tími til að eitthvað raunhæft fari að gerast í þessum málum. Áfram um sanddælingar úr Landeyjahöfn Eftir Hjálmar Magnússon Hjálmar Magnússon »Nýtt skip er komið til landsins og tími til að eitthvað raunhæft fari að gerast í þessum málum. Höfundur er fv. framkvæmdastjóri. borgarvirki@simnet.is Sú ágæta kona Anna Hulda Norðfjörð menntaskólakennari reit mér pistil um dag- inn út af fregn í Morg- unblaðinu sem henni blöskraði. Þar var sú „göfuga“ áætlun kynnt að leyfa áfengisveitingar við laugar og baðstaði, svo fólk gæti nú fengið sér vænan sopa áður en það færi í baðið eða að synda og þetta ku eiga að vera í boði umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Ég spyr nú hvort þetta sé brýnt eða brýnasta verkefni þessa annars þarfa ráðuneytis? Og mikið var ég sammála Önnu Huldu um hneykslan hennar. Ég var búinn að fá í hendurnar orð þeirra Styrmis Gunnarssonar og Kára Stefánssonar í Morgunblaðinu um áfengið og ætli þau svari ekki því sem svara þarf um ágæti áfengis í laug- um þangað sem bæði börn og full- orðnir leita sér að heilsubætandi líð- an. Sá ágæti listapenni Styrmir Gunn- arsson var að vitna í viðtal á Kjarn- anum þar sem var Kári Stefánssonar forstjóri Íslenzkrar erfðagreiningar. Þar segir Kári orðrétt um áfeng- isneyzlu: „Lífið verður stjórnlaust, staðreyndin er sú að næstum allt vont sem kemur fyrir þig gerist und- ir áhrifum áfengis, svo margt vont gerist undir áhrifum þess.“ Og svo heldur Kári áfram: „Fólk á aldrinum fimmtán ára til fertugs deyr sjaldan af öðrum sjúkdómum, en fíkn- isjúkdómar deyða það svo sann- arlega. Alkóhólismi er klassískur fíknisjúkdómur. Þegar þú drekkur áfengi tekurðu inn efni sem minnkar hömlur, veldur vænisýki og óstöð- ugri hugsun jafnt sem óstöðugum fótum, þetta er eiturlyf sem ríkið sel- ur þér og getur stórskaðað þig.“ Hreinlega allrar athygli vert frá slík- um manni yfirburðaþekkingar og megi allir taka eftir sem vilja hafa sannleikann að förunaut í þessum málum. Styrmir bætir svo við að þessum lestri loknum, en áherzluat- riði hans er: Ofbeldi gegn börnum er villimennska og hafi Styrmir heill mælt. Um þetta segir Styrmir meðal annars: „Það eru yfirgnæfandi líkur á því að áfengi komi verulega við sögu, þegar kemur að ofbeldi á heim- ilum og í því felst að við þann fjanda verður ekki ráðið nema með því að taka á rótum hans, sem eru að veru- legu leyti neyzla áfengis og sjálfsagt á síðari árum annarra fíkniefna einn- ig.“ Og taki menn nú eftir, einkum þau sem á Alþingi sitja: „Í ljósi þessa má velta fyrir sér, hvernig sumum þingmönnum dettur í hug að leggja ítrekað fram tillögur á Alþingi um að auka frjálsræði í sölu áfengis og það í nafni frelsisins.“ Ég held að mjög margir geti heils hugar tekið undir þetta og þar með hvert gáfnafar stjórnar því að veita áfengi við laugar og böð. Ég þarf engu hér við að bæta, en geng vonglaður út í sumarið í fylgd þessa ágæta fólks: Önnu Huldu, Kára og Styrmis. Orð til eftirbreytni Eftir Helga Seljan Helgi Seljan »Hvaða gáfnafar stjórnar því að veita áfengi við laugar og böð? Höfundur er formaður fjölmiðlanefndar IOGT.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.