Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 35

Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 35
ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 0:1 Hólmfríður Magnúsdóttir 23. 1:1 Ída Marín Hermannsdóttir 45. (víti). I Gul spjöldEngin I Rauð spjöldEngin Dómari: Þórður Már Gylfason, 6. FYLKIR – SELFOSS 1:1 Áhorfendur: 115. M Ída Marín Hermannsdóttir (Fylki) Hulda Sigurðardóttir (Fylki) Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki) Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki) Anna M. Friðgeirsdóttir (Selfossi) Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi) Hólmfríður Magnúsdóttir (Self.) Cassie Boren (Selfossi) 1:0 Sophie Groff 2. 2:0 Ísabel Jasmín Almarsdóttir 18. 3:0 Natasha Anasi 47. 4:0 Dröfn Einarsdóttir 65. 5:0 Sophie Groff 69. I Gul spjöldArndís Snjólaug Ingvarsdóttir og Katla María Þórðardóttir (Kefla- vík). MM Natasha Anasi (Keflavík) KEFLAVÍK – STJARNAN 5:0 Sveindís Jane Jónsdóttir (Keflav.) M Dröfn Einarsdóttir (Keflavík) Sophie Groff (Keflavík) Aytac Sharifova (Keflavík) Íris Una Þórðardóttir (Keflavík) Aníta Lind Daníelsdóttir (Keflavík) Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason, 9. Áhorfendur: 160. Njarðvík er komin niður í fallsæti í 1. deild karla í fót- bolta eftir að liðið tapaði sínum fimmta leik í röð í gær, 5:1 gegn Haukum á heimavelli. Haukar komust með sigrinum upp um tvö sæti í 9. sæti og eru tveimur stigum fyrir ofan Njarðvík eftir þennan fyrsta leik í 9. umferð deildarinnar. Njarðvík byrjaði sumarið vel og var í 4. sæti eftir fjór- ar umferðir auk þess að komast í 8-liða úrslit í bik- arkeppninni, þar sem liðið mætir KR á fimmtudag. Í júní hefur hins vegar fátt gengið upp og í gær var liðið lent 4:0 undir eftir fyrri hálfleik. Aron Freyr Róbertsson kom Haukum yfir á sínum gamla heimavelli og þeir Fa- reed Sadat, Alexander Freyr Sindrason og Ísak Jónsson bættu við mörkum í fyrri hálfleiknum. Ari Már Andrésson minnkaði muninn fyrir Njarðvík snemma í seinni hálfleik en Daði Snær Ingason skoraði síðasta mark leiks- ins fyrir Hauka í uppbótartíma. Haukar hafa náð í 7 stig af 15 mögulegum eftir að Kristján Ómar Björns- son hætti óvænt sem þjálfari liðsins 24. maí, og Búi Vilhjálmur Guðjónsson var ráðinn tímabundið. Hann er enn við stjórnvölinn nú mánuði síðar. Algjört hrun Njarðvíkinga Aron Freyr Róbertsson Keflavík fór illa með Stjörnuna Keflavík tók á móti Stjörnunni í blíðskaparveðri á Nettóvellinum. Stjarnan var fyrir leik í 6. sæti deild- arinnar með 9 stig en Keflavík á botn- inum með 3 stig. En leikurinn var af- dráttarlaus eign Keflvíkinga frá upphafi til enda. 5:0 varð lokastaða leiksins og hefði sigur Keflavíkur hæglega getað orðið stærri. Draumabyrjun Keflvíkinga var upphafið að martraðarkvöldi Stjörn- unanr þegar Sophie Groff skoraði eftir aðeins þriggja mínútna leik. Ef ekki hefði verið fyrir meistaratakta Birtu Guðlaugsdóttir í marki Stjörnunnar hefði niðurlæging kvöldsins bætt á sig rassskellingu. Þetta var þriðji tap- leikur Stjörnunnar í röð en liðinu til happs er að nóg er eftir af mótinu til að spyrna sér frá þessum leikjum og fara að hala inn stig. Keflavík var þarna að næla í sinn annan sigur í röð og undirritaður kast- ar ekki tólfunum þegar ég segi að sjálftraust liðsins er í hámarki. Þær mættu grimmar til leiks í 90 mínútur og gáfu hvergi þumlung eftir. Press- uðu hátt og spiluðu sig djarft út úr erf- iðum aðstæðum varnarlega. Virkilega skemmtilegt að sjá. Sveindís Jane Jónsdóttir heldur áfram að heilla og þar er augljóslega á ferð framtíð- arlandsliðsmaður, enda aðeins 18 ára en spilar líkt og veðraður leikmaður í efstu deild þó vissulega eigi eftir að fínpússa margt. skulibsig@gmail.com Morgunblaðið/Hari Morgunblaðið/Hari Frumraun Kyra Taylor lék sinn fyrsta leik á Íslandi með Fylki gegn Selfossi í gær. Nóg að gera Audrey Baldw- in átti stórleik í marki HK/ Víkings en að lokum dugði það ekki til neins.  Rafael Benítez lætur af störfum sem knattspyrnustjóri hjá enska úrvalsdeild- arliðinu Newcastle um um mán- aðarmótin þegar samningur hans við fé- lagið rennur út. Viðræður forráðamanna Newcastle við Benítez um nýjan samn- ing sigldu í strand. Benítez hefur stýrt Newcastle undanfarin þrjú ár og á síð- ustu leiktíð hafnaði liðið í 13. sæti. Bení- tez, sem gerði Liverpool að Evrópumeist- urum árið 2005, fékk á dögunum risatiboð frá kínverska liðinu Dalian Yi- fang sem er tilbúið að greiða honum 12 milljónir punda á ári, eða 1,9 milljarða króna.  Pétur Már Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari Vestra í körfuknattleik karla og mun hann stýra liðinu í 1. deild- inni á næstu leiktíð. Pétur, sem þjálfaði kvennalið Stjörnunnar á síðustu leiktíð, þjálfaði karla-og kvennalið KFÍ frá 2011- 13.  Kári Gunnarsson hóf í gær keppni í badminton á Evrópuleikunum í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Hann mætti Christian Kirchmayr frá Sviss og varð að sætta sig við 2:1 tap þrátt fyrir að hafa unnið fyrstu lotuna af öryggi, 21:13. Kirchmayr vann næstu tvær 21:17 og 21:18. Leikið er í riðlakeppni en Kári mætir Brice Leverdez frá Frakk- landi í dag og Luka Milic frá Serbíu á morgun. Tveir efstu í hverjum riðli komast áfram í 16- manna úrslitin ámótinu. Eitt ogannað Er heitt í vinnunni? Þín eigin skrifborðs- kæling! Á vinnustað eða hvar sem er! Kæli-, raka- og lofthreinsitæki, allt í einu tæki. Hægt að tengja bæði við rafmagn eða USB tengi. Verð aðeins kr. 24.900 m.vsk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.