Morgunblaðið - 25.06.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.06.2019, Blaðsíða 36
VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Þeir lofa skemmtun, stuði, óvæntum uppákomum og tónlist af bestu sort í Laugardalshöll í kvöld. Fjórmenn- ingarnir í Duran Duran eru hingað komnir til að halda tónleika og hlakka til að skemmta íslenskum aðdáendum sínum og rifja upp að á fyrri tónleikum þeirra hér hafi verið einstök stemning sem þeir vonast til að endurtaki sig. Þeir tónleikar voru árið 2005 og þeir Nick Rhodes, hljómborðsleik- ari Duran Duran, og Roger Taylor trommuleikari settust niður með blaðamanni Mbl.is í gær, þegar þeir voru nýlentir hér á landi og ræddu um lífið, listina, ferilinn, fyrri heim- sókn sveitarinnar hingað til lands og tónleikana í kvöld. Hinir tveir liðsmenn hljómsveitarinnar eru Simon Le Bon og John Taylor. Fór á flakk með Le Bon „Ó já, ég man heldur betur eftir þessum tónleikum,“ segir Nick. „Ég hef sjaldan spilað fyrir jafn orku- mikinn hóp, það var svo mikill kraftur á þessum tónleikum. Við vorum bara í tvo sólarhringa og það var mjög bjart um nóttina. Við Sim- on (Le Bon, söngvari Duran Duran) vorum forvitnir og fórum á flakk. Einhvern veginn tókst okkur að vaka til klukkan sex um morguninn og við hittum fullt af skemmtilegu fólki. Við fórum ekkert út fyrir Reykjavík, en ætlum svo sann- arlega að gera það núna.“ „Síðasta heimsókn var mögnuð. Algerlega mögnuð,“ segir Roger. „Ísland er engu líkt og það var tekið svo vel á móti okkur síðast. Á þess- um tíma vorum við nýlega komnir saman aftur eftir nokkuð hlé.“ Hvernig undirbúið þið ykkur fyr- ir tónleika? Eruð þið með ein- hverjar hefðir, eitthvað sem þið gerið alltaf? „Sko... við æfum okkur alltaf,“ svarar Nick og Roger skellir upp úr. „Já, er það?“ segir hann hlæj- andi. „Og það er líka gott að ganga úr skugga um að maður muni hvað maður er að fara að gera uppi á sviði.“ „Svo er gott að muna eftir að fara í föt,“ heldur Nick áfram. „Já, og svo þurfum við líka að muna eftir hljóðfærunum,“ segir Roger og hlær. „En að öllu gamni slepptu; við grammið og við munum ekki ákveða fyrr en á morgun hvað við spilum annað kvöld.“ „Við erum auðvitað með svo gríð- arlega mörg lög á efnisskránni eftir allan þennan tíma,“ segir Roger. Skemmtilegir tónleikagestir „Ég lít á tónleika eins og ferðalag sem við erum að fara með tónleika- gesti í. Tónleikar eiga að vera upp- lifun, eitthvað sem fólk man lengi eftir. Sumir muna eftir tónleikum alla sína ævi og það er vegna þess að þar hafa einhverjir töfrar átt sér stað,“ segir Nick. Duran Duran var stofnuð árið 1978. Spurðir hvort þeir verði aldrei þreyttir hver á öðrum eftir allan þennan tíma segja þeir að það hafi vissulega gerst áður fyrr. „En þeg- ar fólk hefur unnið svona lengi sam- an finnur það einfaldlega leiðir til að það gangi sem best,“ svarar Ro- ger. Hafið þið einhverjar væntingar fyrir tónleikana í kvöld? „Ekki aðr- ar en þær að tónleikagestir verði jafn skemmtilegir og á síðustu tón- leikunum okkar hér. Það er ekki hægt að biðja um meira,“ svarar Roger. Lengri útgáfa af viðtalinu er á mbl.is. Gott að muna eftir að fara í föt...  Nick Rhodes og Roger Taylor í Duran Duran lofa tónlist af bestu sort í Laugardalshöllinni í kvöld Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Duran Duran Roger Taylor trommuleikari er til vinstri og Nick Rhodes hljómborðsleikari til hægri. Þeir segjast hlakka mjög til tónleikanna í kvöld. förum ekki með neinar bænir fyrir tónleika eða erum alltaf í sömu skónum. Það er engin slík hjátrú hjá okkur.“ Allir tónleikar einstakir Undirbúið þið ykkur öðruvísi fyr- ir tónleika núna en fyrir t.d. 30 ár- um? „Nei, það held ég ekki,“ svarar Nick. „En það er ekki vegna þess að okkur finnist allir tónleikar eins, síður en svo – þeir eru allir ein- stakir; mismunandi áhorfendahópur og mismunandi staðir og það er það sem gerir þetta starf svo skemmti- legt. Við erum aldrei með sama pró- 36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 Sjöunda árshátíð „ReykjavikMidsummer Music“ undirforsjá Víkings HeiðarsÓlafssonar hófst sl. fimmtudag. Vitjaði undirritaður hennar á þriðja degi, nánar tiltekið á kammertónleikum laugardags í Norðurljósum er fögnuðu svo til fullskipuðum sal eftirvæntingar- fullra unnenda ,kjarna kjarnans í list listanna‘ eins og stundum er kallað. Það er háþakkarvert að auka þannig fjölbreytni árstíma útivistar, gúrku- & tuðrutíðar með tónlist sem stendur undir seinni lið orðsins – og það í toppflutningi. Fyrir að koma Klakanum á heimskort áfangastaða menningarferða mætti því telja framtak Víkings verðugt stuðnings- efni hérlendrar túrhestaútgerðar. Hitt er svo opin spurning: Eftir hverju sækjast erlendir Frónfarar einkum á slíkri hátíð? Burtséð frá einstaklingsbundnum hvötum hvarflar að manni alkunn þörf fyrir að geta sagt vinunum heima frá frumlegri upplifun í fjar- lægu landi sem annars er þekktast fyrir náttúrufegurð og sjálfutökur. En hvort vegur þyngra – verk eða flytjendur? Og fyrir hvers konar hlustendum? Um það vita sjálfsagt bezt aðstandendur hátíðarinnar, og væri því afar fróðlegt ef vandvirkum fjölmiðli tækist að draga þaðan fram nánari staðreyndir málsins. Yfirskrift kvöldsins var „Fiðrildi og fiðurfé“ í samræmi við heiti tón- verka. Fyrst lék Jakob Koranyi Sept papillons, stutta [10 mín.] sjö- þætta sellósvítu hinnar finnsku Kaiju Saariaho eignaða fiðrildum af ísmeygilegri mýkt svo mátti ekki að- eins heyra veikustu vængjatök held- ur einnig sjá – m.a. á hörpluðum ar- peggio-bogastrokum knéfiðlarans er virtist öllum tæknihnútum verksins kunnugur (þ.m.t. syngjandi tærum flaututónum) af innblásnu skor- fleygu næmi. Að óbreyttu hefði næsta verk einnig fjallað um fiðrildi, þ.e. „Ro- senbad“ Bents Sørensens úr Píanó- kvintetti hans „Papillons“ (2013). En þá sté Víkingur á stokk og boðaði dagskrárbreytingu sakir ófyrir- séðrar seinkunar á nótnasendingu. Í staðinn var fluttur Píanókvintett Op. 57 eftir Dmitri Sjostakovitsj [35’]. Þrátt fyrir þetta óvænta uppbrot á viðfangi kvöldsins fagnaði ég í laumi (og e.t.v. fleiri nærstaddir klassíkfíklar) varaskeifunni, enda ótvírætt meðal tilkomumestu verka 20. aldar fyrir sömu hljóðfæraáhöfn – jafnvel þótt hafi hlotið „Stalín- verðlaun“ í verkalýðræðinu eystra á tilurðartíma. Því líkt og Erland von Koch síðar kjöryrti sér hélt fimm- þætt verk Dmitris ávallt melódísku lagi, enda ekki laust við að sannfæra mann um að svokallað ,gatslitið‘ dúr/ moll kerfið ætti sér enn ærið svig- rúm til nýsköpunar undir miðja síð- ustu öld. Þ.e.a.s. í réttum höndum. Hvað sovézka meistarann varðar var nefnilega engin spurning um töfrandi áhrifamátt kvintettsins, er hélt manni heilluðum allt til enda í innvígt samstilltri túlkun fimm- menninganna. Þar má svo við bæta hvað greinilega upprunamótuð túlk- un strokdeildar hóf oft upp meist- araverkið í ,nýja‘ vídd. M.a. með líð- andi tæru lágtitri, er fór útvíkkaðri hljómanotkun verksins furðuvel. Seinni hlutinn bauð upp á slag- hörpudúó hinna heimskunnu frönsku Lebèque-systra í Gæsa- mömmu („La Mère L’Oye“) Ravels þar sem fjölbreytt fjórhent meðferð þeirra á yndislegu barnalagasvítu franska síðimpressjónistans ljómaði af jafnt ljúfri elsku sem logandi ástríðu. Þessi spilunargrein tveggja ein- staklinga á ýmist eina eða tvær slag- hörpur kvað annars meðal hinna kröfuhörðustu í tvímennings- samleik. En ekki var að heyra annað en að systurnar gætu þess vegna verið eineggja tvíburar. Þær sáu hvor um sinn flygil þegar klykkt var út með kostulegu Karni- vali dýranna eftir Camille Saint- Saëns ásamt strengjakvartett, flautu, klarínett, kontrabassa og slagverki. Of langt yrði að reifa ein- staka þætti af alls 14, en frá mínum eyrnahóli er þó skylt að nefna einu skepnur hópsins sem hafa mér vit- andi hlotið viðlíka náð (eða hið gagn- stæða) fyrir augum tónskálda – nefnilega gagnrýnendur („Fólk með löng eyru“) – hér í líkingu hrínandi asna! Það var stórgaman að þessari tón- rænu kjötkveðju, og líka margt dá- fallegt innan um glensið, er kallaði við hæfi fagnandi hlustendur úr Norðurljósasal á heiðbjartri mið- sumarnótt. Sellóleikarinn Jakob Koranyi lék „af innblásnu skorfleygu næmi.“ Norðurljósum í Hörpu Kammertónleikar – Miðsumarmúsík í Reykjavík bbbbm Kaija Saariaho: Sjö fiðrildi f. einleiks- selló (2000)*. Sjostakovitsj: Píanókvin- tett í g Op. 57 (1940; dagskrárbreyt- ing)**. Ravel: Gæsamamma f. fjórhent píanó (1910)***. Saint-Saëns: Karnival dýranna f. píanódúó, fl., klar., strengja- kvartett, kb. og slagverk (1886)**** Jakob Koranyi selló */**, Víkingur Heiðar Ólafsson píanó**, Ilya Gringolts & Anahit Kurtikyan fiðla, Yura Lee víóla; Leonard Elsenbroich selló****, Jacek Karwan kontrabassi****, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari ****, Mark Simpson klar.****, Steef van Oosterho- ut slagverk**** og Katia & Marielle Labèque píanó***/****. Laugardagur 22.6. kl. 20. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Stjórnandinn Víkingur Heiðar kom fram í verkum á öllum tónleikunum. Fjölhæf Yura Lee lék bæði á víólu og fiðlu í tónverkum á hátíðinni. Lebèque-systur Túlkunin ljómaði af „elsku sem logandi ástríðu“. Tóndraumar á Jónsmessunótt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.