Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 37

Morgunblaðið - 25.06.2019, Síða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2019 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ram Limited 3500 Litur: Dökkgrár/ svartur að innan (einnig til Granite Crystal). Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. VERÐ 11.790.000 m.vsk 2019 Ford F-350 Lariat 35 Litur: Ruby red/ gray, svartur að innan. 6-manna bíll. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque. 35” dekk með FX4 off-road pakka, quad beam headlights, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, Driver altert-pakki, Trailer tow camera system og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 10.990.000 m.vsk 2018 Ford F-150 Platinum Ekinn 10.000 km. Litur: Platinum white / svartur að innan. Upphækkaður, tölvubreyting 431 hö, lok á palli, Ceramic húðaður. Quad-beam LED hedlights, bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20” felgur. 3,5 L Ecoboost, (V6)10-gíra, 431 hestöfl, 470 lb-ft of torque. VERÐ 11.790.000 m.vsk 2019 Ford F-350 Limited 35” breyttur Litur: Svartur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque. 35” breyttur, 35 dekk, 20” felgur, brettakantar. LED ljós í grilli. Með FX4 off-road pakka, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper eða trailer, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 12.590.000 m.vsk AF SÓLSTÖÐUM Veronika S. Magnúdóttir veronika@mbl.is Það hefur varla farið fram hjámörgum að fjölskylduhátíðinSecret Solstice fór fram í Laugardalnum um helgina, þar sem rapparinn Pusha T, plötusnúðurinn Jonas Blue og Black Eyed Peas voru meðal skemmtara. Ég fór fyrst á Solstice fyrir tveimur árum, þegar ég var 19 ára, og nú fór ég aftur 21 árs og sá nokkra af bestu listamönnum okkar tíma. Ég ætti að vera í blóma lífsins, 21 árs og með lífið framundan, en nei – Solstice ýtti sannarlega ekki undir þá ásýnd. Á Secret Solstice leið mér eins og ég væri orðin göm- ul. Svo margir voru krakkarnir og ungmennin að ég ætlaði ekki að trúa því – ég sem hélt að Secret Solstice ætti að vera „kúl“ hátíð en þarna var ég mætt ásamt hinum kúl vinunum mínum og rakst á litlu frænku mína sem er tveimur árum yngri en ég. Sem var auðvitað bara ánægjulegt. Ekki að það skemmi hátíðina að „crowdið“ sé töluvert yngra en maður sjálfur, en áhorfendahópur- inn er hluti af hátíðinni, sjáið til. Ég myndi aldrei til dæmis fara á Kalda bar, mamma mín fer þangað. Þrátt fyrir hugarangur mitt yf- ir meðalaldri tónleikagesta get ég ekki annað sagt en að rífandi stemning hafi verið í Laugardalnum – sólin skein skært og landinn naut sín í sólinni og hugsaði ábyggilega: „Svona á sumarið að vera“, minn- ugur rigningasumarsins 2018. Hver er þessi „Pushatea“? Já, það var margt um dýrðir í Laugardalnum þessa helgina, svo mikið er víst. Við inngang hátíðar- innar blasti við löng röð tónlistar- áhugamanna, sem ólmir biðu eftir því að sjá Ritu Ora. Nei ég meina Rae Sraemmurd, nei – Pusha T. Það er reyndar bara skemmti- leg tilbreyting í tilverunni að vera ekki viss um hver aðallistamaðurinn á hátíðinni verður fyrr en á síðustu stundu, því þá sér maður hverjir eru alvöruaðdáendur hans og hverj- ir eru það ekki. Pusha T steig á svið á föstudaginn við mikil fagnað- arlæti og var ljóst að fjöldi fólks þekkti lög hans vel. Koma hans var tilkynnt með tveggja daga fyrirvara og í því fólst viss sía – því tveir dagar eru ansi knappur tími til að kynna sér verk tónlistarmanns og læra lögin hans utan að, líkt og hefð er fyrir. Svo þeir sem sungu með lögum Pusha okkar T vissu hvað þeir sungu. Það er ljóst að þeir eru ekki meðal þeirra sem kynna sér lista- manninn með margra vikna fyrir- vara og læra lögin hans í þaula eftir að hafa í fyrstu hugsað: hver í and- skotanum er þessi „Pushatea“? Sól, „slingshot“ og smáfólk Stuð Góð stemning var á tónleikum Pusha T á föstudagskvöldi á Secret Solstice í Laugardal. Ýttni Té á hrós skilið fyrir frammistöðu sína í Laugardalnum og hélt uppi stuði á sviði Valhallar við fagnaðarlæti milljón trylltra unglinga. Sviðsmyndin vakti einnig athygli marga. Hvít dúfa, sem flaug upp og niður, prýddi skjáinn að baki Pusha T. Dúfan táknar ást og frið og ég er ekki frá því að hún hafi haft jákvæð áhrif stemninguna í Laugardalnum. Kannski dulin áhrif á undirmeðvitund gestanna, því ást og friður ríkti sannarlega á hátíðinni. Áhorfendur eiga hrós skilið fyrir að hafa verið í góðu skapi á hátíðinni. Vinur minn var reyndar ekki í alveg nógu góðu skapi þegar Pusherinn tók ekki uppáhaldslagið hans, „Santeria“. Ég hlustaði á Pusha og naut vel en varð bylt við þegar Jón öskraði „ha í alvörunni?!“ og síðan „kommon“. Þá hafði Pusha einungis tekið viðlag uppáhaldslags þessa vinar míns en ekki allt lagið. Það féll honum illa í geð en hann gleymdi því strax og skemmti sér vel við restina af lögum T. Svo reyndar mundi hann aftur eftir því og varð mikið í mun að tala um það. Aron með baununum Við dreifðum athygli hans með því að fara í slingshot-tækið, svona eins og þegar börnum líður illa og maður gerir eitthvað skemmtilegt, því þá gleyma þau öllu og allt er gaman. Við skelltum okkur því nokkur í slingshot-kúluna, sem sveiflast upp í loftið og niður í tveimur teygjum, tilfinningunni svipaði til frjáls falls. Það var bara skemmtilegt, en reyndar síður skemmtilegt fyrir þann sem kann að hafa drukkið að- eins of mikla mjólk yfir kvöldið. Hátíðinni lauk fyrr í ár en á ár- um áður, sem var bara fínt. Það gaf gestum færi á að fara snemma að sofa og koma sér í gírinn fyrir Svarteygðu baunirnar, eða „Black Eyed Peas“ sem stigu á svið Val- hallar á laugardag. Mikla athygli vakti að Aron Can fékk að stíga á svið með Baununum og tók „Fulla vasa“ með will.i.am fyrir aftan sig á plötusnúðsborðinu. Margur hélt ef- laust að Aron hefði verið skilinn út- undan á Solstice en annað kom á daginn, hann er líklega sá sem gengur út með hvað einstæðustu upplifunina af hátíðinni. Fáir geta sagt: Ég hef sungið með undirspili will.i.am. Nú getur Aron sagt það og þið þekkið strákinn. » Það er reyndarbara skemmtileg tilbreyting í tilverunni að vera ekki viss um hver aðallistamaðurinn á hátíðinni verður fyrr en á síðustu stundu. Þá sér maður hverjir eru alvöruaðdáendur hans og hverjir ekki. Vinsæll Pusha T var boðaður á Solstice með tveggja daga fyrirvara. Hann stóð sig frábærlega. Adrenalín Slingshot-tækið veitti áhorfendum góða útrás og adrenalín. Um er að ræða kúlu í teygjum, sem sveiflast með farþega hátt í loft upp. Heimsþekktir Flestir hljóta að kannast við liðsmenn Black Eyed Peas, þá will.i.am, apl.de.ap og Taboo. Athygli vakti að Fergie var ekki á svæðinu. Morgunblaðiðð/Arnþór Birkisson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.