Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 16

Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þ ess er vænst að nýr frysti- togari, Tómas Þorvalds- son GK, sem keyptur hef- ur verið til Þorbjarnarins í Grindavík, haldi til veiða upp úr miðjum júnímánuði. Togar- inn var smíðaður árið 1992 fyrir Skagstrending hf. og bar þá nafnið Arnar HU en var seldur fjórum ár- um síðar til Royal Greenland sem hefur gert hann út síðan undir nafninu Sisimiut. Skipið er 67 metra langt og 14 metra breitt og vel tækjum búið að öllu leyti. Getur meðal annars dregið tvö troll, sem er fátítt á íslenskum skipum. Tveir skipstjórar og áhafnirnar með Togarinn verður nefndur eftir stofnanda Þorbjarnarins hf., Tóm- asi Þorvaldssyni (1919-2008), föður systkinanna sem eiga og reka fyrir- tækið. Á sinni tíð var Tómas þjóð- þekktur fyrir störf sín í sjávar- útvegi og á vettvangi Slysavarna- félags Íslands. Til skamms tíma gerði fyrirtækið út línubát með þessu nafni, en sá fór í brotajárn fyrir nokkrum mánuðum og eru kaupin á togaranum nú hluti af uppstokkun á skipastól fyrir- tækisins. Skipstjórar á Tómasi Þorvalds- syni GK verða tveir og báðir hafa þeir lengi verið hjá Þorbirninum. Annar er Sigurður Jónsson, sem hefur verið á Hrafni Sveinbjarnar- syni GK síðastliðin 29 ár, lengst sem skipstjóri. Hinn er Bergþór Gunnlaugsson, skipstjóri á Gnúpi GK. Báðir taka þeir áhafnir sínar í heilu lagi yfir á Tómas Þorvaldsson GK, en 26 manns verða jafnan á skipinu. Túrarnir á togaranum verða að jafnaði tæpur mánuður í senn og verður hátturinn sá að áhafnirnar róa hvor á móti annarri. Hjá útgerðinni hafa því verið settar saman nýjar áhafnir fyrir hina togarana tvo, Hrafn Sveinbjarnarson GK og Gnúp GK, en einnig gerir fyrirtækið út línu- bátana Valdimar, Hrafn og Sturlu. „Vandað og gott sjóskip“ Togarinn góði kom til Hafnar- fjarðar síðastliðinn laugardag og verður nú í vikunni tekinn í slipp í ástandsskoðun, öxuldrátt og fleira. Þegar því lýkur tekur Þorbjörn hf. við togaranum, sem eigendur fyrir- tækisins skoðuðu við komuna til landsins. Þar voru einnig skipstjór- arnir tveir en þeir hafa til lærdóms að undanförnu verið um borð í togaranum, sem var í sínum síðustu túrum í eigu Royal Greenland að veiðum í Barentshafi. „Þetta er vandað og gott sjóskip og smellpassar inn í rekstur Þor- bjarnarins. Skipinu hefur verið haldið vel við og gerðar hafa verið ýmsar tæknibreytingar síðastliðin ár, sem henta okkur vel. Við vorum í nokkra daga með Grænlending- unum á veiðum í Barentshafi til að kynna okkur skipið og komum síðan með togaranum hingað heim frá Noregi sem var þægileg sigling enda blíðskaparveður. Að taka við þessum togara er tilhlökkunarefni,“ segir Bergþór Gunnlaugsson. Hinn skipstjórinn, Sigurður Jóns- son, tekur í sama streng og rómar togarann. „Það var mikið lagt í smíði þessa skips fyrir Skagstrend- ing á sínum tíma og sumt þá var ný- mæli. Byrðingur skipsins er mjög þykkur með tilliti til hafíss, sem hef- ur hentað Grænlendingunum. Þeir hafa líka gengið vel um þetta skip sem við fáum í alveg toppstandi,“ segir Sigurður. Á grálúðu í djúpkantinum Gert er ráð fyrir að í fyrstu túrunum undir merkjum Þorbjarnarins fari Tómas Þorvaldsson GK á grálúðu, sem veiðist í djúpkantinum frá Vest- fjarðamiðum og austur fyrir land. Þegar nýtt kvótaár gengur í garð, 1. september, verður sóknin alhliða; sótt í þorsk, ýsu og ufsa. Um borð er góð og fullkomin vinnulína og vinnu- aðstaða sjómanna með besta móti. „Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu skipi, sem er öflugt og í alla staði vel búið,“ segir Gunnar Tómasson, útgerðarmaður í Þor- birninum. „Lestin er stór og á millidekki er öflug vinnnslulína. Þá er líka mikill plús að geta verið úti með tvö troll í einu, sem ekki hefur verið mikið um í íslenska flotanum til þessa. Fiski- stofnar á Íslandsmiðum standa sterkt og því hefur eitt troll yfirleitt dugað, en að geta verið með tvö í sjó kemur sér vel ef fiskiríið er tregt. Á þessum tímapunkti er ég samt ekk- ert að spá í slíkt, því vertíðin var góð og nóg virðist vera af fiski um allan sjó. Allar afurðir seljast líka nánast strax og nú þegar krónan gefur eftir er verð þeirra að hækka, sem léttir okkur lífið.“ Tilhlökkun að taka við Tómasi Nýr togari Þorbjarnarins hf. í Grindavík er kominn til landsins. Sisimiut verður Tómas Þorvalds- son GK og fer á miðin um miðjan mánuðinn og í brúnni standa mennsem lengi hafa verið á skipum útgerð- arinnar. Skipstjórarnir róma togarann, sem eitt sinn var Arnar HU frá Skagaströnd. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Frá vinstri: Eiríkur Dagbjartsson útgerðarstjóri, Rut Óskarsdóttir og eiginmaður hennar, Gunnar Tómasson, framkvæmda- stjóri hjá Þorbirninum, þá Gerður Sigríður, systir Gunnars og einn eigenda fyrirtækisins, Heiðar Hrafn Eiríksson skrifstofu- stjóri, Hrannar Jón Emilsson útgerðarstjóri og lengst til hægri er Friðrik Jón Arngrímsson, lögfræðingur og skipamiðlari. „Það var mikið lagt í smíði þessa skips,“ segir Sigurður Jónsson. Bergþór Gunnlaugsson til hægri. Horft af brúarvængnum yfir afturdekk og skutrennu togarans, sem getur verið úti með tvö troll í einu. Sisimiut í Hafnarfirði. Nú á að mála togarann í liti Þorbjarnarins og merkja sem Tómas Þorvaldsson GK.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.