Morgunblaðið - 01.06.2019, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
H
átíðarhöldin í Bolungarvík byrja í
raun á fimmtudeginum fyrir sjó-
mannadaginn, sem nú nefnist
Þuríðardagur þar í bæ. Mark-
miðið með Þuríðardegi er að gera
landnámskonu Bolungarvíkur og formóður
Bolvíkinga, Þuríði sundafylli, sýnilegri, og
ekki síst vekja athygli á tengslum hennar
við sjávarfang og sjávarútveg.
Enn fremur er dagurinn gerður til að
minnast kvenna í Bolungarvík allt fram á
þennan dag, sjómannskvenna, fiskverk-
unarkvenna, alþýðukvenna, hvunndagshetja
og kvenfrumkvöðla, landnema og innflytj-
enda, að því er fram kemur í Sjómanna-
dagsblaði Bolungarvíkur í ár.
Hátíðarsigling inn Djúpið
„Á föstudeginum eru skemmtanir í Einars-
húsi, sem er sögufrægt hús hér í Bolung-
arvík, og dorgveiðikeppni á bryggjunni.
Laugardagurinn byrjar svo á hátíðarsigl-
ingu þar sem lagt er á Djúpið klukkan tíu
að morgni. Siglt er til móts við skip frá Ísa-
firði, tekinn hringur og siglt til baka. Þetta
hefur verið fastur liður í töluvert mörg ár,“
segir Helgi Hjálmtýsson, markaðs- og
kynningarfulltrúi Bolungarvíkur.
„Síðan er leiksýning frá Lottu, Litla haf-
meyjan, þegar fólkið kemur til baka úr sigl-
ingunni. Þá hefjast þessir föstu liðir á borð
við kappróður og koddaslag, að ógleymdri
tunnulestinni sem nemendur við Mennta-
skólann á Ísafirði smíðuðu fyrir okkur. Hún
hefur rækilega slegið í gegn,“ segir Helgi
og bendir á að Danskir dagar í Stykkis-
hólmi hafi fengið lestina lánaða í fyrra, eftir
að hún hafði í fyrsta sinn verið tekin í gagn-
ið í Bolungarvík.
„Þar var hún svo vinsæl að þau vildu
helst ekki senda hana aftur til baka,“ segir
hann og hlær við. „Úr varð að við létum
smíða nýja lest og þau borguðu fyrir þá
smíði.“
Þrír fastir liðir frá upphafi
Þá sjá þeir Jógvan og Friðrik Ómar um að
skemmta, en á sjómannadagsballinu um
kvöldið leikur hljómsveitin Albatross fyrir
dansi.
„Á sunnudeginum má síðan segja að
þrennt hafi verið á sjómannadeginum alveg
frá upphafi, fyrir áttatíu árum. Það er
skrúðganga frá Brimbrjótnum að Hóls-
kirkju, þar sem fram fer hátíðarguðsþjón-
usta, en skemmtilegt er að segja frá því að
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráð-
herra ætlar að predika fyrir okkur. Þar fer
einnig fram heiðrun sjómanna og að síðustu
verða lagðir blómsveigar að minnismerkjum
sjómanna í Grundarhólskirkjugarði,“ segir
Helgi. „Það er þetta þrennt; skrúðgangan,
guðsþjónustan og blómsveigarnir, sem hafa
alltaf fylgt sjómannadeginum og aldrei fall-
ið niður.“
Áttatíu ár eru nú liðin síðan sjómannadagurinn í Bolungarvík var
fyrst haldinn, árið 1939. Því fagna menn fyrir vestan með vegleg-
um hátíðarhöldum og sérstöku afmælisriti sjómannadagsblaðsins.
Nýsmíðuð tunnulest
fyrir 80 ára afmælið
Frá sjómannadagsmessu í Hólskirkju. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra predikar í ár. Varðskip Landhelgisgæslunnar á sjómannadeginum í Bolungarvík, sem fagnar 80 ára afmæli í ár.
Tunnulestin vakti mikla lukku á síðasta ári. Það gerði hún líka í Stykkishólmi síðar um sumarið.
Sexæringurinn Ölver fékk upplyftingu í vikunni og síðan var honum róið á miðvikudagskvöld af
miklu liði kappa, í ægifögru veðri yfir Bolungarvíkina og í Ósvör þar sem hann var dreginn upp á
hvalbeinahlunnum í sátrið sitt. Lendingin gekk vel enda kunnáttumaðurinn Jóhann Hannibalsson
safnvörður við stjórn. Í lendingunni er nauðsynlegt að fara réttum megin við Vararkoll og eins ná-
lægt honum og hægt er. Annars er voðinn vís, segir Jóhann.
Ölver var smíðaður árið 1941 af Jóhanni Bárðarsyni skipasmið frá Bolungarvík og var hann
smíðaður samkvæmt gömlu bolvísku lagi. Bolvíska lagið byggðist á góðri sjóhæfni en bátarnir
voru hraðskreiðir, léttrónir, góðir til siglinga og léttir og stöðugir í lendingu. Ölver er í eigu Byggða-
safns Vestfjarða á Ísafirði en dvelur sumarlangt í uppsátrinu í Ósvör í Bolungarvík, safngestum til
ánægju.
Voðinn vís ef ekki er rétt að farið
Sexæringurinn á miðvikudagskvöld. Báturinn var smíðaður árið 1941 samkvæmt gömlu bolvísku lagi.