Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 48
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
ótt gætt hafi nokkurrar
svartsýni í umræðu fjöl-
miðla um gjaldþrot WOW
air, og þau áhrif sem enda-
lok flugfélagsins gætu haft
á útflutning á ferskum fiski, er raun-
in sú að framboðið á fragtflugi hefur
lítið skerst og standa seljendum til
boða margar góðar og hagkvæmar
leiðir til að koma sjávarafurðum á
markað erlendis.
Þetta segir Ró-
bert Tómasson,
framkvæmda-
stjóri Cargo Ex-
press, en fyrir-
tæki hans var
umboðsaðili
fragtflutninga
fyrir WOW og
þjónustar í dag
Norwegian, Am-
erican Airlines,
United Airlines, airBaltic og Air
Canada.
„Áhrifin af brotthvarfi WOW
komu aðallega fram á vesturströnd
Bandaríkjanna, og bitnuðu helst á
útflutningi á laxi, en annars staðar
setti gjaldþrot flugfélagsins ekki
stórt strik í reikninginn,“ útskýrir
Róbert og bendir á að sá fiskur sem
ekki getur lengur farið með beinu
flugi fari í staðinn frá Keflavík með
viðkomu á öðrum flugvöllum í Evr-
ópu og N-Ameríku. „Næst til dæmis
að koma fiski á vesturströnd Banda-
ríkjanna innan 24 tíma eftir brottför
frá Keflavík, og þá er töluvert fram-
boð af tengingum með erlendum
flugfélögum beint inn á hefðbundna
markaði beggja vegna Atlantshafs-
ins.“
Hátt þjónustustig alla leið
Þótt fiskurinn sé í sumum tilvikum
ögn lengur á leiðinni munar ekki
miklu. Kemur varan í hendur kaup-
enda í góðu ástandi og hefur ekki
áhrif á gæði fisksins.
„Flugfélögin og samstarfsaðilar
þeirra hafa hátt þjónustustig og var-
an skilar sér hratt og örugglega á
áfangastað, í réttu ásigkomulagi,“
segir Róbert.
Þá má reikna með að önnur flug-
félög komi til með að fylla að hluta
upp í það skarð sem WOW skildi eft-
ir sig og hafa nokkur þeirra þegar
tilkynnt að þau muni fjölga ferðum
til Íslands eða bæta við tengingum
við nýjar borgir. „Okkur hefur einn-
ig tekist að semja um flutningsverð
við þessi félög sem er á pari eða jafn-
vel hagstæðara en það markaðsverð
sem hefur verið leiðandi,“ segir Ró-
bert en bendir á að sum af þeim flug-
félögum sem sýnt hafa Íslandi mik-
inn áhuga flytji ekki varning. „Það á
t.d. við um Wizz Air og EasyJet. Þótt
þau hafi ákveðið að fljúga oftar til Ís-
lands breytir það engu fyrir fragt-
flutninga því þessi flugfélög nota vél-
ar sem eru hannaðar fyrir farþega-
flutninga eingöngu og hafa rekstrar-
módel sem byggist á að hafa aðeins
örstutt stopp á flugvellinum svo varla
gæfist ráðrúm til að afferma og
ferma varning.“
Tækifæri á öllum mörkuðum
Útflytjendur voru duglegir að grípa
tækifærið þegar íslensku flugfélögin
voru í örum vexti og stofnuðu til við-
skiptasambanda í þeim borgum sem
hægt var að senda fiskinn til með
beinu flugi. Róbert segir að kannski
hafi þessi mikla áhersla á íslensku
flugfélögin þrengt sjóndeildarhring-
inn, og nú þegar WOW heyrir sög-
unni til geti seljendur leitað tækifæra
á hér um bil hvaða markaði sem er.
Enda er það svo að fiskurinn getur
verið kominn nánast hvert á land sem
er um það bil sólarhring eftir að hann
leggur af stað frá Keflavíkurflugvelli.
Þá segir Róbert hugsanlegt að
uppgangur í laxeldi geti skapað rétt-
ar forsendur fyrir því að taka fragt-
flutningavél á leigu.
„En þá þurfa framleiðendur bæði
að hafa nægilegt magn af fiski, og ís-
lenskir innflytjendur að vera dugleg-
ir að nýta plássið því það er erfitt að
láta fragtflutninga borga sig ef vélin
fer full aðra leið en nærri tóm til
baka.“
Til að leiga á fragtflugvél geti orðið
að veruleika myndu framleiðendur
þurfa að skuldbinda sig til að nýta
plássið um borð.
„Ef við gefum okkur að leigð væri
flugvél sem gæti borið 50 tonn af
varningi þá má reikna með að fyrstu
40 tonnin eða meira fari bara upp í
það að greiða kostnaðinn og ekki
neina afkomu að hafa fyrr en því
marki er náð. Gefur augaleið að ef
hafist væri handa og ekki tækist að
fylla vélina með nema til dæmis 25
tonnum af fiski þá væri sú aðgerð
rekin með miklu tapi.“
Fiskurinn kominn hvert á land
sem er á einum sólarhring
Uppgangur í laxeldi gæti
skapað forsendur fyrir
því að taka fragtflugvél
á leigu en þá myndu
framleiðendur helst
þurfa að skuldbinda sig
til að nýta flutningsgetu
vélarinnar.
Starfsmenn afferma flugvél WOW air. Þó að flugfélagið hafi hætt rekstri geta seljendur ferskra sjávarafurða valið úr mörgum góðum kostum til að koma vöru sinni í hendur kaupenda erlendis.
Róbert segir fiskútflytjendur ekki þurfa að einskorða sig við markaði sem ná má til með beinu flugi. Fleiri kostir eru í boði.
Eins og allt sem fer um borð í flugvélarnar fer fiskurinn gegnum öryggisleit.
Róbert
Tómasson
48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019