Morgunblaðið - 01.06.2019, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þ
ess er vænst að nýr frysti-
togari, Tómas Þorvalds-
son GK, sem keyptur hef-
ur verið til Þorbjarnarins
í Grindavík, haldi til veiða
upp úr miðjum júnímánuði. Togar-
inn var smíðaður árið 1992 fyrir
Skagstrending hf. og bar þá nafnið
Arnar HU en var seldur fjórum ár-
um síðar til Royal Greenland sem
hefur gert hann út síðan undir
nafninu Sisimiut. Skipið er 67
metra langt og 14 metra breitt og
vel tækjum búið að öllu leyti. Getur
meðal annars dregið tvö troll, sem
er fátítt á íslenskum skipum.
Tveir skipstjórar og áhafnirnar með
Togarinn verður nefndur eftir
stofnanda Þorbjarnarins hf., Tóm-
asi Þorvaldssyni (1919-2008), föður
systkinanna sem eiga og reka fyrir-
tækið. Á sinni tíð var Tómas þjóð-
þekktur fyrir störf sín í sjávar-
útvegi og á vettvangi Slysavarna-
félags Íslands. Til skamms tíma
gerði fyrirtækið út línubát með
þessu nafni, en sá fór í brotajárn
fyrir nokkrum mánuðum og eru
kaupin á togaranum nú hluti af
uppstokkun á skipastól fyrir-
tækisins.
Skipstjórar á Tómasi Þorvalds-
syni GK verða tveir og báðir hafa
þeir lengi verið hjá Þorbirninum.
Annar er Sigurður Jónsson, sem
hefur verið á Hrafni Sveinbjarnar-
syni GK síðastliðin 29 ár, lengst
sem skipstjóri. Hinn er Bergþór
Gunnlaugsson, skipstjóri á Gnúpi
GK. Báðir taka þeir áhafnir sínar í
heilu lagi yfir á Tómas Þorvaldsson
GK, en 26 manns verða jafnan á
skipinu. Túrarnir á togaranum
verða að jafnaði tæpur mánuður í
senn og verður hátturinn sá að
áhafnirnar róa hvor á móti annarri.
Hjá útgerðinni hafa því verið
settar saman nýjar áhafnir fyrir
hina togarana tvo, Hrafn
Sveinbjarnarson GK og Gnúp GK,
en einnig gerir fyrirtækið út línu-
bátana Valdimar, Hrafn og Sturlu.
„Vandað og gott sjóskip“
Togarinn góði kom til Hafnar-
fjarðar síðastliðinn laugardag og
verður nú í vikunni tekinn í slipp í
ástandsskoðun, öxuldrátt og fleira.
Þegar því lýkur tekur Þorbjörn hf.
við togaranum, sem eigendur fyrir-
tækisins skoðuðu við komuna til
landsins. Þar voru einnig skipstjór-
arnir tveir en þeir hafa til lærdóms
að undanförnu verið um borð í
togaranum, sem var í sínum síðustu
túrum í eigu Royal Greenland að
veiðum í Barentshafi.
„Þetta er vandað og gott sjóskip
og smellpassar inn í rekstur Þor-
bjarnarins. Skipinu hefur verið
haldið vel við og gerðar hafa verið
ýmsar tæknibreytingar síðastliðin
ár, sem henta okkur vel. Við vorum í
nokkra daga með Grænlending-
unum á veiðum í Barentshafi til að
kynna okkur skipið og komum síðan
með togaranum hingað heim frá
Noregi sem var þægileg sigling
enda blíðskaparveður. Að taka við
þessum togara er tilhlökkunarefni,“
segir Bergþór Gunnlaugsson.
Hinn skipstjórinn, Sigurður Jóns-
son, tekur í sama streng og rómar
togarann. „Það var mikið lagt í
smíði þessa skips fyrir Skagstrend-
ing á sínum tíma og sumt þá var ný-
mæli. Byrðingur skipsins er mjög
þykkur með tilliti til hafíss, sem hef-
ur hentað Grænlendingunum. Þeir
hafa líka gengið vel um þetta skip
sem við fáum í alveg toppstandi,“
segir Sigurður.
Á grálúðu í djúpkantinum
Gert er ráð fyrir að í fyrstu túrunum
undir merkjum Þorbjarnarins fari
Tómas Þorvaldsson GK á grálúðu,
sem veiðist í djúpkantinum frá Vest-
fjarðamiðum og austur fyrir land.
Þegar nýtt kvótaár gengur í garð, 1.
september, verður sóknin alhliða;
sótt í þorsk, ýsu og ufsa. Um borð er
góð og fullkomin vinnulína og vinnu-
aðstaða sjómanna með besta móti.
„Ég hef góða tilfinningu fyrir
þessu skipi, sem er öflugt og í alla
staði vel búið,“ segir Gunnar
Tómasson, útgerðarmaður í Þor-
birninum.
„Lestin er stór og á millidekki er
öflug vinnnslulína. Þá er líka mikill
plús að geta verið úti með tvö troll í
einu, sem ekki hefur verið mikið um
í íslenska flotanum til þessa. Fiski-
stofnar á Íslandsmiðum standa
sterkt og því hefur eitt troll yfirleitt
dugað, en að geta verið með tvö í sjó
kemur sér vel ef fiskiríið er tregt. Á
þessum tímapunkti er ég samt ekk-
ert að spá í slíkt, því vertíðin var góð
og nóg virðist vera af fiski um allan
sjó. Allar afurðir seljast líka nánast
strax og nú þegar krónan gefur eftir
er verð þeirra að hækka, sem léttir
okkur lífið.“
Tilhlökkun að taka við Tómasi
Nýr togari Þorbjarnarins
hf. í Grindavík er kominn
til landsins. Sisimiut
verður Tómas Þorvalds-
son GK og fer á miðin
um miðjan mánuðinn
og í brúnni standa
mennsem lengi hafa
verið á skipum útgerð-
arinnar. Skipstjórarnir
róma togarann, sem
eitt sinn var Arnar HU
frá Skagaströnd.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Frá vinstri: Eiríkur Dagbjartsson útgerðarstjóri, Rut Óskarsdóttir og eiginmaður hennar, Gunnar Tómasson, framkvæmda-
stjóri hjá Þorbirninum, þá Gerður Sigríður, systir Gunnars og einn eigenda fyrirtækisins, Heiðar Hrafn Eiríksson skrifstofu-
stjóri, Hrannar Jón Emilsson útgerðarstjóri og lengst til hægri er Friðrik Jón Arngrímsson, lögfræðingur og skipamiðlari.
„Það var mikið lagt í smíði þessa skips,“ segir Sigurður
Jónsson. Bergþór Gunnlaugsson til hægri.
Horft af brúarvængnum yfir afturdekk og skutrennu togarans,
sem getur verið úti með tvö troll í einu.
Sisimiut í Hafnarfirði. Nú á að mála
togarann í liti Þorbjarnarins og
merkja sem Tómas Þorvaldsson GK.