Morgunblaðið - 01.06.2019, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
V
aktmenn á vegum Land-
helgisgæslunnar höfðu
það hlutverk um áratuga
skeið að fylgjast með varð-
skipunum þegar þau lágu í
höfn, síðast á Faxagarði og þar áður
á Ingólfsgarði. Nú er þetta breytt og
vaktskýlið mun víkja.
Ný spennistöð við Gömlu höfnina
er afar brýnt verkefni, að sögn Gísla
Gíslasonar, hafnarstjóra Faxaflóa-
hafna. „Spennistöðin var í Faxaskála
en eftir að hann var rifinn höfum við
verið með gám á bryggjunni sem
þjónar sem spennistöð,“ segir Gísli.
Hugmyndir voru uppi um að setja
spennistöðina í kjallara á nýbygg-
ingasvæðinu en sú lausn hentaði
ekki.
„Það liggur fyrir að endurnýja
þarf lagnir í Austurbakka og Faxa-
garði og með auknum kröfum um
tengingar stærri skipa þá þarf að
endurnýja allt kerfið og byggja nýja
spennistöð.“
Gísli segir að stefnt sé að því að
bjóða verkið út með haustinu þannig
að þetta kæmi til framkvæmda síðla
árs eða í byrjun næsta árs.
Batteríið arkitektar hafa gert til-
lögu að útliti og staðsetningu fyrir-
hugaðrar spennistöðvar á Faxa-
garði. Fullbyggt verður húsið u.þ.b.
150 fermetrar, en fyrri áfangi er um
65m². Meginhugmynd arkitektanna
er að byggja einfalt hús með upp-
brotnu þaki þar sem vakthlutinn
myndi opna ásýnd í aðkomu að Faxa-
garði. Húsið er timburklætt í harð-
viði, bæði þak og veggir, sem fellur
vel að trémann-virkjum kringum
Hörpu. Timbur er bæsað í rústrauð-
um lit á austurhlið. Gluggar, hurðir
og e.t.v. útloftunarristar eru í dökk-
gráum lit.
Eftirlitsmyndavélum fjölgað
Varanlegri viðveru vaktmanna
Landhelgisgæslunnar í varðskýlinu
á Faxagarði lauk vorið 2016.
Þetta segir Ásgrímur L. Ásgríms-
son, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs
hjá Landhelgisgæslu Íslands.
Fyrir þann tíma hafði eftirlits-
myndavélum verið fjölgað og þær
sem fyrir voru, voru endurnýjaðar.
Gerður var samningur við Securitas
um vöktun Faxagarðs og skipanna
sem liggja við hann. Vöktunin felst í
samblandi af vöktun myndavéla,
hreyfanlegu eftirliti og fastri viðveru
starfsmanna Securitas.
Eftir sem áður er hluti af áhöfnum
varðskipanna við vinnu og eftirlit um
borð í þeim þegar þau eru í höfn í
Reykjavík á virkum dögum en skip-
herrar, yfirvélstjórar og brytar
koma um borð til eftirlits yfir helgar
og aðra frídaga, segir Ásgrímur.
Hann segir að stjórnendur Faxa-
flóahafna hafi kynnt það fyrir Land-
helgisgæslunni að fyrirhugað væri
að reisa varanlegt húsnæði á Faxa-
garði á vegum hafnarinnar sem hýsa
á m.a. rafmagnsbúnað, geymslu og
vaktaðstöðu. Landhelgisgæslunni
hefur verið kynnt það að
samnýtingarmöguleikar séu fyrir
hendi á þessu fyrirhugaða húsnæði.
Jafnframt hafi stjórnendur Faxa-
flóahafna kynnt Landhelgisgæslunni
það að núverandi varðskýli muni
þurfa að víkja þegar að byggingu
húsnæðis hafnarinnar kemur. Það
hefur enn ekki verið fullmótað af
hálfu Landhelgisgæslunnar hvernig
varðskýlinu verður ráðstafað. Það er
hinsvegar tiltölulega nýlegt, smíðað
og tekið í notkun síðla árs 2004.
Eftirfarandi upplýsingar tók Ás-
grímur saman að beiðni blaðamanns
Morgunblaðsins og eru honum færð-
ar þakkir fyrir:
Sá hluti Ingólfsgarðs sem varð-
skipin lágu við var byggður árið 1949
sem skjól fyrir Faxagarð og austari
hluta hafnarinnar. Sigurður Árna-
son, fyrrverandi skipherra, taldi að
varðskipin hefðu farið að liggja við
hann árið 1954.
Lágu undir kolakrananum
Haukur Sigurðsson, fyrrverandi
stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni
og Ríkisskip, var ekki með árið á
hreinu en sagði að varðskipin hefðu
legið mikið við Austurbakkann, und-
ir kolakrananum. Hann sagði að það
hefði stanslaust þurft að vera að
færa þau til vegna komu annarra
skipa. Það voru vaktmenn um borð í
skipunum. Ef fleiri en eitt skip voru
inni var vaktmaður í hverju skipi.
Hálfdán Henrýsson, fyrrverandi
stýrimaður og skipherra hjá Land-
helgisgæslunni, hóf störf hjá stofn-
uninni 1960. Hann sagði að varð-
skýlið á Ingólfsgarði hefði annað-
hvort verið reist það ár, þ.e. 1960,
eða árið áður, 1959. Það var alveg
nýtt þegar hann hóf störf.
Þetta eru því lykilártöl, 1954
varanlegt skipalægi við Ingólfsgarð,
1959/1960 varðskýli reist á Ingólfs-
garði og vaktmenn allan sólarhring-
inn í skýlinu.
Frá 2004 hefur varanleg viðlega
varðskipanna verið við Faxagarð og
nýtt varðskýli reist en 2016 var varð-
staða starfsmanna Landhelgisgæsl-
unnar í varðskýlinu aflögð og Secur-
itas tók við vöktuninni.
Tölvumynd/Batteríið arkitektar
Nýja spennistöðin. Meginhugmynd arkitektanna er að byggja einfalt hús með uppbrotnu þaki þar sem vakthlutinn myndi opna ásýnd í aðkomu að Faxagarði. Svarta húsið hægra megin á myndinni er Harpa.
Vaktskýli víkur fyrir spennistöð
Morgunblaðið/sisi
Faxagarður. Varðskýli Gæslunnar verður flutt annað en Landhelgisgæslan mun fá aðstöðu í nýja húsinu sem verður reist.
Til stendur að reisa spennistöð á Faxagarði í Gömlu höfninni í Reykjavík. Áður en það gerist verður vaktskýli Landhelgis-
gæslunnar, sem staðið hefur á bryggjunni, fjarlægt. Gæslan hætti árið 2016 að vakta varðskipin með föstum starfsmönn-
um í skýlinu og fól Securitas gæsluna. Tækninni fleygði fram og gerði það mögulegt að breyta fyrirkomulaginu.
Ásgrímur L.
Ásgrímsson
Gísli
Gíslason
Ingólfsgarður. Fram til ársins 2004 höfðu varðskipin þar fasta viðveru. Garðurinn er sá nyrsti í austanverðri Gömlu höfninni.