Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 koman sett við Fornubúðirnar, þar sem haldið verður stutt ávarp og fjórir sjómenn heiðraðir.“ Krýna sterkasta mann Íslands Árlegur kappróður er hefðbundinn hluti af hátíðarhöldunum þar í bæ og segir Karel að metþátttaka sé í ár, en alls hafa átta lið skráð sig til leiks. Róðurinn hefst til móts við Fjöru- krána og er róið inn að smábátahöfn- inni. Ef til vill er það lýsandi fyrir breytta tíma að ekkert liðanna inni- heldur sjómenn, heldur er um að ræða crossfit-iðkendur, hlaupahópa, hjólaskautara og fyrirtækjahópa, svo dæmi séu nefnd. „Síðan er það um klukkan fjögur sem úrslitin í keppninni um sterk- asta mann Íslands munu ráðast, en úrslitakeppnin fer að þessu sinni fram hjá okkur í Hafnarfirði,“ segir Karel. „Eins og alltaf er ég virkilega þakklátur fyrir framlag allra þeirra sem að deginum koma, hvort sem það er af hálfu bæjarins, björg- unarsveita eða annarra.“ Skemmtidagskráin við Flens- borgarhöfn í Hafnarfjarðarbæ er fjölbreytt þennan sjómannadag- inn, en hún hefst klukkan 13 með tónleikum Das-bandsins. Á sama tíma hefst skemmtisigling í boði Hafnarfjarðarhafnar og verður lagt af stað úr höfninni á hálftíma fresti. Samkoman sett klukkan 14 Kappróður við Flensborgarhöfn- ina hefst einnig klukkan 13 og gert er ráð fyrir að hann standi yfir í um klukkustund. Lúðrasveit Hafnarfjarðar hefur svo leik aftur klukkan 13.50 áður en samkoman er sett klukkan 14 með heiðrun sjómanna, ávarpi og verðlauna- afhendingu. Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirs sjá svo um að skemmta frá klukkan 14.30 til 15, þegar Listdansskóli Hafnar- fjarðar tekur við og flytur dans- atriði. Klukkan 15.30 stígur leik- hópurinn Lotta á svið með söngvasyrpu og klukkan 16 hefst loks úrslitakeppnin um titilinn sterkasti maður á Íslandi. Gert er ráð fyrir að þyrla Land- helgisgæslunnar muni fljúga nið- ur að bænum meðan á hátíðar- höldunum stendur og halda björgunarsýningu við höfnina. Þrautabraut og koddaslagur Björgunarsveit Hafnarfjarðar stendur enn fremur fyrir þrauta- braut í sjó, rennibraut, gámasigi, kassaklifri, fluglínutæki, kodda- slag og björgunarsýningu. Slysa- varnadeild Hraunprýði selur kaff og siglingaklúbburinn Þytur verður með opið hús, þar sem verða árabátar, kajakar og skútu- siglingar á kænum og kjölbátum. Uppsettar skútur verða í verk- stæðissalnum og búningsaðstaða fyrir þá sem blotna. Furðuverur úr undirdjúpunum verða til sýnis við höfnina í boði Hafrannsóknastofnunar og báta- smíði fyrir krakka verður við Ís- hús Hafnarfjarðar. Opnar vinnustofur listamanna Ljósmyndasýning verður á Strandstígnum, en umfjöllunar- efnið er Hafnarfjarðarhöfn í 110 ár. Sýning um tímabil erlendu út- gerðanna verður í Bookless bungalow og í Siggubæ verður sýnishorn af heimili sjómanna í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar. Loks verða opnar vinnustofur hjá ýmsum listamönnum; hjá Málaranum við höfnina, vinnu- stofu Soffíu Sæmundsdóttur myndlistarkonu að Fornubúðum 8, í Gáru, vinnustofu átta leirlista- kvenna, Fornubúðum 8, hjá Aðal- heiði Skarphéðinsdóttur, Fornu- búðum 8, í SIGN, þar sem fallegir skartgripir eru hannaðir og smíð- aðir, Fornubúðum 12, í Íshúsi Hafnarfjarðar, en þar eru yfir þrjátíu vinnustofur hönnuða, list- og iðnaðarmanna, og í The Shed, Suðurgötu 9. Skemmtisigling á hálftíma fresti „Við höldum sjómannadaginn enn hátíðlegan þótt útgerðin sé ekki lengur jafn áberandi og hún var hér í Hafnarfirði,“ segir Karel Ingvar Karelsson, framkvæmdastjóri sjómannadagsins í Hafnarfirði. Metþátttaka í kapp- róðri í Hafnarfirði F ánar eru dregnir að húni klukkan átta og svo leikur Lúðrasveit Hafnarfjarðar við Hrafnistu klukkan tíu. Um hálfellefu stefnum við á að leggja blómsveig að minnisvarða við Víðistaðakirkju um horfna sjó- menn,“ segir Karel. „Síðan er farið í Hafnarfjarðar- kirkju þar sem haldin verður sér- stök sjómannamessa. Klukkan 13 byrjar hvalaskoðunarbátur Eld- ingar að sigla með börn og gerir það til klukkan 17. Klukkan 14 er sam- Átta lið eru skráð til leiks í kappróðri í ár. Skemmtidagskráin í Hafnarfirði hefst kl. 13 við Flensborgarhöfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.