Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
N
ýi vitinn við Sæbraut er að
sjálfsögðu gulur að lit.
Það voru starfsmenn
Faxaflóahafna sem smíð-
uðu nýja vitann í bæki-
stöð fyrirtækisins á Fiskislóð.
Vitarnir á Norðurgarði og Ing-
ólfsgarði (í mynni Gömlu hafnar-
innar) voru settir upp um leið og
hafnargerðinni lauk árið 1917. Þeir
koma fram á teikningum Monbergs
af fyrirhuguðum hafnarmann-
virkjum áður en framkvæmdir fóru
af stað 1913. Þessar upplýsingar eru
komnar frá Jóni Þorvaldssyni að-
stoðarhafnarstjóra.
N.C. Monberg var danskur verk-
fræðingur sem átti hagstæðasta til-
boðið í hafnargerðina í Reykjavík og
var gengið til samninga við hann um
verkið. Jón spurði á sínum tíma Pál
Ásmundsson eimreiðarstjóra um
sögu vitanna og hvað var síðar gert.
Neðri hluti vitanna var klæddur
nokkrum árum eftir að þeir voru
settir upp, líklega árið 1924.
Í áranna rás voru gerðar ýmsar
endurbætur á vitunum. Meðal ann-
ars var lagt í þá rafmagn í stað gass.
Eins var sett upp bárujárnsklæðn-
ing á neðri hluta þeirra. Hermann
Bridde hannaði og lét smíða grind-
verkið á Ingólfsgarði.
Þriðji guli innsiglingarvitinn, sem
settur var upp, stendur á Skarfa-
garði í Sundahöfn. Hann var tekinn í
notkun árið 2011. Í myndasafni
Morgunblaðsins eru til margar
myndir af gulu vitunum, sem óneit-
anlega setja svip á höfnina. Hér birt-
ast nokkrar þeirra. sisi@mbl.is
Gulu vitarnir setja mikinn svip á höfnina
Vitar Faxaflóahafna á
hafnarsvæðinu, fjórir að
tölu, eru allir með sömu
lögun og gulir að lit.
Ingólfsgarður. Svona var vitinn eins og á „eyðieyju“ áður en ráðist var í það verk að lengja hafnargarðinn.Flugstarfsemi. Í árdaga farþegaflugs var bækistöðin í Gömlu höfninni. Súlan að taka á loft árið 1928.
Ljósmynd/Sigurhans Vignir
Að vetri til. Brimaldan gengur yfir Ingólfsgarð og vissara fyrir menn að gæta að sér. Menn geta ímyndað sér hvernig ástandið gat orðið áður en ráðist var í hafnargerð.
Morgunblaðið/sisi
Sundahöfn. Risastórt skemmtiferðaskip siglir inn Viðeyjarsund. Vitinn vísar leið og fólk fylgist með.
Morgunblað/Styrmir Kári
Hvalaskoðun. Nýleg mynd sem sýnir vel hvernig byggðin í Skuggahverfi hefur gjörbreyst frá fyrri tíð.