Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
H
örður segir Íslendinga að mörgu
leyti í fararbroddi þegar kemur
að rannsóknum í sjávarútvegi en
að betur megi ef duga skal.
Hætta sé á að Ísland dragist aft-
ur úr og bendir hann í því samhengi á að
framlög til AVS-rannsóknarsjóðsins, sem
stendur fyrir aukið virði sjávarfangs, hafi
staðið í stað í nokkurn tíma.
„Stóra áskorunin er að ná sem mestu úr
hráefnunum sem við fáum og nota til þess
sem minnsta orku með skilvirkari veiðum
og vinnslu. Að ná að kreista eins mikil verð-
mæti úr hverju kílói sem við veiðum og nýta
fiskinn 100%. Við erum ekki komin þangað.
Við erum að nálgast 80% ef við skoðum
þorskinn,“ segir Hörður.
Að sögn Harðar kom ákveðið stökk hvað
nýtingarhlutfallið varðar
þegar AVS-sjóðurinn var
stofnaður árið 2003. Þá
hafi verið sett mikið fjár-
magn í rannsóknir og þró-
un sem skilaði bæði betri
nýtingu á fiski á Íslandi
og jók einnig verðmæti á
hvert kíló sem veitt er.
Til að mynda hafi verið
veidd um 460.600 tonn af
þorski árið 1981 en
252.800 tonn árið 2017.
Þrátt fyrir næstum helmingi minni veiði var
úflutningsverðmætið um 60% meira.
Flöt þróun síðustu ár
„Síðustu ár höfum við séð þessa þróun
nokkuð flata og á sama tíma hefur dregið
verulega úr fjármagni í AVS-sjóðinn. Við
höfum áhyggjur af því að ef við fáum ekki
meiri innspýtingu í rannsóknir og þróun
eigum við eftir að missa það forskot sem við
höfum á aðrar þjóðir, sem margar hafa sett
aukið fjármagn í slíkar rannsóknir á meðan
það er ákveðin stöðnun í gangi hér núna,“
segir Hörður.
Hann segir íslensk fyrirtæki hafa selt
mikið af mjög flottum tæknilausnum sem
þróaðar hafa verið hér á landi í gegnum ár-
in erlendis. „Aðrar þjóðir eru farnar að nota
svipaða tækni og við höfum þróað hér innan
lands. Það kemur að því að þær ná okkur ef
við höldum ekki áfram að þróast.“
Matís er rannsóknar- og nýsköpunarfyr-
irtæki og hefur t.a.m. samstarfssamning við
Háskóla Íslands en vinnur einnig náið með
fyrirtækjum og frumkvöðlum, t.d. þeim sem
eru staðsett í Sjávarklasanum. Matís þjónar
því oft nokkurs konar stoðhlutverki fyrir
klasa sprotafyrirtækja í sjávarútvegi sem
róa í sömu átt að því meginmarkmiði Matís
að auka verðmæti sjávarafurða.
„Við komum þarna inn með þekkingu sem
fyrirtækin eru kannski ekki með. Við erum
líka með rannsóknar- og þróunaraðstöðu
sem fyrirtækin hafa oft ekki og mjög góða
aðstöðu til þess að skala upp ferla sem
fyrirtæki eru að þróa,“ segir Hörður og
heldur áfram:
„Oft förum við í sameiginleg verkefni með
fyrirtækjunum. Þar sækjum við um styrki
saman og hugmyndirnar geta annaðhvort
komið frá fyrirtækjunum sem vantar t.d.
einhverja sérþekkingu eða aðstöðu, eða þá
að við erum með ákveðna hugmynd sem við
berum undir fyrirtæki og förum þá í verk-
efni saman,“ segir Hörður.
Kerecis er eitt þeirra fyrirtækja sem
Matís studdi við á sínum tíma en fyrirtækið
hefur þróað plástra úr roði til þess að
lækna fólk með krónísk sár og hafði aðstöðu
hjá Matís á sínum tíma, en fyrirtækið var í
upphafi árs 2019 metið á 9,5 milljarða
króna.
Sömu áskoranir með eldisfisk
Hörður nefnir að stór mál eigi eftir að leysa
hvað aukna nýtingu fiskafurða varðar sem
snúist m.a. um innyfli fisksins.
„Þar erum við með mjög heftandi evr-
ópska reglugerð sem má túlka á mismun-
andi hátt en er túlkuð hér á Íslandi þannig
að þú getur t.d. ekki notað innyfli til þess
að framleiða prótein eða lýsi til manneldis.
Blóð úr fiski er annað dæmi um eitthvað
sem við erum ekki að nýta nú til dags. Við
eigum eftir að gera ýmislegt til þess að ná
þessari 100% nýtingu,“ segir Hörður.
„Við erum einnig að tala um þarmana og
magann. Ef það hráefni er unnið á ákveðinn
hátt er hægt að gera þetta að alvöru vöru
til manneldis,“ segir Hörður en nefnir þó að
ýmsar hliðarafurðir hafi sprottið upp úr
þeim hráefnum á síðustu árum.
„Það eru alls konar spennandi afurðir úr
innyflum fisks. Þorskaensím eru til dæmis
notuð í lækningavörur,“ segir Hörður og
nefnir fyrirtækið Zymetech sem dæmi en
það framleiðir vöruna PreCold, munnúða
sem úðað er á slímhúð í koki og kemur í veg
fyrir útbreiðslu kvefveira.
Hörður segir að vissulega hafi góður ár-
angur náðst á undanförnum árum með
rannsóknum og þróun á ýmsum hliðaraf-
urðum þótt því verkefni sé ekki lokið. En
hann veltir því fyrir sér hvort ekki þurfi að
skoða slíkar rannsóknir fyrir önnur við-
fangsefni. Til að mynda eldisfisk.
„Fiskeldið er spennandi á margan hátt.
Bæði hvað varðar það að auka fiskfram-
leiðslu með eldi og svo koma einnig upp
sömu áskoranirnar og við höfum verið að
glíma við með bolfiskinn. Allar aukaafurð-
irnar. Getum við hugsanlega gert það sama
við laxinn og við höfum gert við þorskinn?
Svo eru náttúrlega gríðarleg tækifæri til að
þróa uppsjávarfiskinn frekar og nota meira
af honum úr fóðri yfir í mannamat. Hvort
sem það eru prótein eða omega-3 fitusýrur.“
Kreista verðmætin úr hverju kílói
Íslendingar eru enn að mörgu
leyti í fararbroddi þegar kem-
ur að rannsóknum í sjávar-
útvegi en hætta er á því að
Ísland dragist aftur úr ef ekki
kemur til aukinnar innspýt-
ingar fjármagns í rannsóknir
og þróun. Þetta er mat Harðar
Guðjóns Kristinssonar, rann-
sóknar- og nýsköpunarstjóra
hjá Matís, sem segir enn stórt
áhersluatriði hjá stofnuninni
að huga að því hvernig hægt
sé að búa til frekari hliðar-
afurðir úr fisknum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Alls konar spennandi afurðir er hægt að vinna úr innyflum fisks að sögn Harðar. Munnúðinn Pre-Cold sem búinn er til úr þorskaensímum er gott dæmi.
Ekki er hægt að tala við rannsóknar-
og nýsköpunarstjóra Matís án þess að
spyrja um stöðuna á rannsóknum er
snúa að plastmengun hafsins. „Plast-
mengunin er eitt af því sem þarf að
rannsaka. Við vitum voðalega lítið
hvað það er mikil plastmengun og
hvort hún hafi áhrif á heilsu okkar
sem borðum sjávarfang. Þetta er eitt-
hvað sem við vitum ekki nógu mikið
um og mikilvægt er að rannsaka,“
segir Hörður.
„En þetta er risaverkefni og við í
Matís erum byrjuð að skoða þetta.
Það þarf að fjárfesta í sérstökum
tækjabúnaði til þess að rannsaka
þetta vel,“ segir Hörður og nefnir að
Ísland gegni núna formennsku í nor-
rænu ráðherranefndinni þar sem ný-
verið var kallað eftir alþjóðlegum
plastsamningi til að draga úr og fyrir-
byggja losun plasts og örplasts í haf-
ið. „Það er eitt að rannsaka hvað það
er mikið plast í hafinu og í fisknum
en svo er annað að rannsaka hvað
gerist þegar fólk borðar fiskinn. Við
höfum ekki hugmynd um það. En
svona mengun er náttúrlega alveg
skelfileg,“ segir Hörður.
Plastið er
risaverkefni
Morgunblaðið/Eggert
Þrátt fyrir um helmingi minni veiði árið 2017 en árið 1981 var útflutningsverðmætið þá um 60% meira.
Hörður
Kristinsson
Aukið nýtingarhlutfall fiskafurða er enn lykilatriði að sögn Harðar þrátt fyrir góðan árangur.