Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Blaðsíða 14
Brottskráningar úr þjóðkirkjunni 1997-2017 1997 1999 2005 2007 2009 2011 2013 2015 201720032001 5.000 4.000 3.000 2.000 0 1.000 H ei m ild :H ag st of a Ís la nd s Trúmál 6.588 milljónir Sóknargjöld 2.556 milljónir þar af til þjóð- kirkjunnar 67% eða 1.713 milljónir Þjóðkirkjan 2.074 milljónir þar af Biskup Íslands 1856 milljónir og kristnisjóður 76 milljónir Kirkju- garðar 1.243 milljónir 402 millj. 314 millj. Jöfnunarsjóður sókna Kirkjumálsjóður A ðskilnaði ríkis og kirkju hefur verið líkt við hjónaskilnað að borði og sæng, en lögskilnaður eigi eftir að fara fram og það er svona ágætis líking út af fyrir sig,“ segir Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís- lands. Það er margt til í þessari samlíkingu sem Agnes dregur upp og margir sem til hennar líta þegar aðskilnaður ríkis og kirkju er ræddur. Aðrir benda á að ríki og kirkja séu í raun að- skilin vegna kirkjujarðasamkomulagsins sem tók gildi 1. janúar 1998. Kirkjan er að mörgu leyti mjög sjálfstæð í sínum innri málefnum, en það er aðeins eitt sem bindur hana við ríkis- valdið, fjármálin. Með kirkjujarðasamkomulag- inu var fjárhagur ríkisins og kirkjunnar fléttað- ur saman. Ríkið innheimtir sóknargjöld, greiðir laun presta, vígslubiskupa og starfsmanna Biskupsstofu og leggur fjármuni í sjóði kirkj- unnar. Gegn því lét kirkjan af hendi kirkjujarð- irnar að undanskildum prestssetrunum. Hin evangelíska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda, stendur í stjórn- arskrá lýðveldisins Íslands og hefur staðið síðan við fengum fyrstu stjórnarskrána frá frændum okkar Dönum. Þjóðkirkjan er fjölmennasta trúfélag á Ís- landi en um 67 prósent þjóðarinnar eru skráð í hana. Fækkun í þjóðkirkjunni hefur staðið yfir í um 20 ár og ekki sér enn fyrir endann á henni. Árið 1998 voru 89,9 prósent landsmanna skráð í þjóðkirkjuna. Ýmislegt hefur gengið á í gegnum árin og má rekja fækkunina meðal annars til af- markaðra atvika þar sem kirkjan hefur staðið illa að málum að mati margra. Traust til þjóð- kirkjunnar hefur dvínað frá því að mælingar Gallup hófust árið 2001. Það ár sögðust 54 pró- sent aðspurðra bera mikið traust til þjóðkirkj- unnar en árið 2018 voru 30 prósent sem sögðust bera mikið traust til hennar. „Það hefur orðið aðgreining en ekki aðskilnaður“ Hjalti Hugason, prófessor við guðfræðideild Háskóla Íslands, segir að það standist ekki skoðun að ríki og kirkja séu í raun aðskilin. Þjóðkirkjan nýtur sjálfræðis gagnvart ríkis- valdinu en dóms- og kirkjumálaráðherra fer með samskipti við þjóðkirkjuna fyrir hönd rík- isvaldsins. „Ég held því fram að það hafi ekki orðið að- skilnaður ríkis og kirkju í þeirri merkingu sem er almennt lögð í það orðalag í kirkjuréttarlegu samhengi. Í mínum huga þýðir aðskilnaður ríkis og kirkju að annaðhvort séu engin tengsl og trú- félög og kirkjurnar séu bara öll sjálfstæð eða þá að það séu að minnsta kosti engin sérstök tengsl á milli ríkisins og einhvers eins trúfélags Þetta er ekki tilfellið hér, það eru tengsl á milli allra trú- og lífskoðunarfélaga sem hafa þá stöðu að vera skráð og þjóðkirkjan hefur náttúrlega alveg sér- stök tengsl við ríkisvaldið, “ segir Hjalti. Eins og fyrr segir er fjallað um þjóðkirkjuna í stjórn- arskránni en einnig eru sérlög um hana. Á grund- velli þessara laga hefur Alþingi mikið um hana að segja að mati Hjalta og þannig er hún mun tengdari ríkisvaldinu en önnur trúfélög í landinu. „Það verður að horfast í augu við það að ríkisvaldið gerði þetta sjálft“ Hjalti segir mikla teygju vera í kerfinu að því leyti að kirkjan getur haldið áfram að vaxa frá ríkinu án þess að formlegur aðskilnaður verði. Hann segist aðeins sjá eitt vandamál hvað varð- ar aðskilnað ríkis og kirkju, það eru fjármálin. „Það sem er flókið við aðskilnaðinn eru fjár- málin því flestar kirkjur hafa haldið eignum sín- um og sjálfstæðum tekjustofnum. Íslenska kirkjan, af ýmsum ástæðum, afhenti ríkinu þessar svokölluðu kirkjujarðir og sóknargjöldin sem voru sjálf- stæður tekjustofn voru byggð inn í skatt- kerfið. Þetta er það mót- sagna- kennda í þróuninni hér, að þegar verið var að að- greina kirkju og ríki stofn- analega, þá var fjárhagur þessara fyrirbæra fléttaður saman. Við að- skilnað yrði raunverulega að velta því upp hvernig þessari aðskildu kirkju yrði tryggður einhver viðunandi tekjustofn eftir að ríkið hefur með þessum hætti blandað sér inn í fjár- mál hennar. Það er ekki bara svo að ríkið geti sagt upp kirkjujarða- samkomulaginu og hætt að inn- heimta sóknargjöldin, heldur má segja að með þessu samkomulagi sem við höfum gert og þessum eign- um sem við höfum tekið hafi ríkið bakað sér siðferðislega ábyrgð á þann hátt að það verður eitthvað að koma í staðinn. Það er stærsta spurn- ingin. Það er eiginlega eina vanda- málið sem ég sé í þessu. Ég sé í rauninni engin vandamál við aðskilnað ríkis og kirkju nema á þessu fjárhagslega sviði og þar verðum við að horfast í augu við það að ríkisvaldið gerði þetta sjálft. Þetta var allt gert með lögum og sam- þykktum á Alþingi og ef það á að fara út úr þessu þá verður bara einhvern veginn að gera dæmið upp á algjörlega nýjan hátt,“ segir Hjalti. Hjalti segist hafa ákveðið að mynda sér ekki skoðun á því hvort komið sé að aðskilnaði. Hann vill heldur fylgjast með og sjá hvað gerist. „En ég tel að þessi þróun sé hafin með þess- ari aðgreiningu. Hún mun náttúrlega halda áfram og fyrr eða síðar verður um aðskilnað að ræða og við erum á einhverju sögulegu millibili núna.“ Það sé þá bara tímaspursmál hvenær þessi spurning verði tekin upp og henni svarað. Sumir myndu segja að hún hafi verið tekin upp 2012 og henni hafi verið svarað neitandi, segir Hjalti. Hann segir að þetta sé spurning sem verði að leggja fyrir þjóðina. Hér vísar Hjalti til þess að árið 2012 var þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs. Stjórnlagaráð hafði það hlut- verk að endurskoða stjórnarskrána og koma með tillögur að breytingu á henni. Ein af spurn- ingunum tók á málefnum kirkjunnar og hvort fólk vildi hafa ákvæði um þjóðkirkju í stjórn- arskránni. Rúmlega helmingur, eða 51,1 pró- sent kjósenda, vildi halda inni ákvæði um þjóð- kirkju í stjórnarskránni og 38,3 prósent kjósenda vildu það ekki. Kjörsókn var nokkuð dræm í þessum kosningum eða aðeins tæp 49 prósent af þeim sem voru á kjörskrá. Það voru því 24,6 prósent af kjörskrá sem vildu hafa ákvæði um þjóðkirkju í stjórnarskránni og 18,5 prósent sem vildu það ekki. Agnes segir þessa niðurstöðu skírskotun í söguna vegna þeirra miklu tengsla sem eru á milli þjóðarinnar og kirkjunnar. „Þjóð og kirkja hafa gengið saman um aldir og þjóðkirkjan er ekki bara það að meirihluti þjóðarinnar tilheyri henni, séu félagar í sama kompaníinu, heldur líka það að þjóðkirkjan þjónar öllum hvort sem þeir tilheyra félaginu eða ekki. Að því leytinu til að hún er kirkja sem vill þjóna þjóðinni og ganga með þjóðinni í gegnum bæði súrt og sætt. Við þurfum að tala um þjóðkirkjuna Fjármál þjóðkirkjunnar í milljónum kr. Trúmál alls Biskup Íslands Kristnisjóður Kirkjumálasjóður Jöfnunarsjóður Kirkjugarðar Sóknargjöld** Sóknargjöld til þjóðkirkjunnar Til þjóðkirkjunnar alls * M.v. fjárlög 2019 ** Hlutfall sem þjóðkirkjan fær miðað við fjölda skráðra í félagið *** M.v. Fjölda skráðra 1. janúar 2019 2016 2017 2019* 6.455 2.137 167 289 374 1.059 2.430 2.020 6.044 6.920 2.496 130 296 382 1.115 2.501 1.748 6.166 2018 6.195 2.828 148 298 385 131 2.536 1.699 5.490 6.588 1.856 76 314 402 1.243 2.556 1.712 5.744 *** Hlutfall skráðra í þjóðkirkjuna 1998 90% 87% 80% 76% 67% 2003 2008 2013 2018 He im ild : H ag st of a Ís la nd s Hin evangelíska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi stendur í stjórnarskránni og ber stjórnvöldum að vernda hana og styðja. Aðskilnaður ríkis og kirkju hefur lengi verið í um- ræðunni en margir telja okkur vera að færast í áttina að honum. Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Munkaþverár- kirkja í Eyjafirði. ÚTTEKT 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.6. 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.